Morgunblaðið - 21.01.2022, Page 13

Morgunblaðið - 21.01.2022, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fundaði í gær í Berlín með utanríkisráðherrum Frakklands og Þýskalands, Jean- Yves Le Drian og Önnulenu Baer- bock, og James Cleverly, aðstoðar- utanríkisráðherra Bretlands, en til- gangur fundarins var að sýna samstöðu vesturveldanna í Úkra- ínudeilunni. Blinken mun funda með Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rúss- lands, í Genf í dag, til að ræða ástandið í deilunni sem og kröfur Rússa, sem fela meðal annars í sér að Úkraínu verði meinað að ganga í Atlantshafsbandalagið. Hétu ráðherrarnir því að hvers kyns innrás Rússa í Úkraínu yrði svarað af fullum þunga. Sagði Anna- lena Baerbock, utanríkisráðherra Þýskalands, að vestræn ríki myndu ekki hika við að grípa til refsiaðgerða gegn Rússum komi til innrásar, jafn- vel þótt þær aðgerðir gætu haft efnahagslegar afleiðingar fyrir ríkin sjálf. Fordæmdu ummæli Bidens Rússar fordæmdu í gær harðlega ummæli Joes Bidens Bandaríkja- forseta á blaðamannafundi sínum í fyrrinótt, en þar hét Biden því að innrás í Úkraínu yrði svarað með þungum aðgerðum. Sagði Biden að afleiðingar slíkrar innrásar myndu verða Rússum dýrkeyptar. Gaf Bid- en meðal annars í skyn að lokað yrði fyrir öll bankaviðskipti við Rússa í bandaríkjadölum. Sagði Dmitrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, að ummæli Bidens gætu gert ástand- ið ótryggara með því að „veita ein- hverjum haukum í Úkraínu falskar vonir“. Biden gaf hins vegar einnig í skyn á blaðamannafundinum að ef Rússar gerðu eitthvað sem teldist ekki vera innrás af fullum þunga kynnu við- brögð Atlantshafsbandalagsins að verða minni. „Það er eitt ef þetta er minni háttar inngrip, og þá förum við að rífast um hvað eigi að gera og hvað ekki,“ sagði Biden. Ummæli Bidens voru gagnrýnd nokkuð bæði austan hafs og vestan, þar sem þau þóttu gefa til kynna að vesturveldin myndu ekki grípa til al- varlegra aðgerða nema Rússar hæfu allsherjarinnrás. Biden tók síðar fram á fundinum að hann hefði átt við inngrip Rússa, sem ekki gætu talist vera full innrás í Úkraínu, á borð við netárásir. Biden ítrekaði svo í gær að færu rússneskir hermenn yfir landamær- in að Úkraínu yrði litið á það sem innrás, sem yrði svarað bæði skjótt og af fullum þunga, óháð því hver stærðargráða hennar væri. Sagðist hann hafa verið skýr gagnvart Pútín hvað þetta atriði varðaði. Brestir í samstöðunni? Ummæli Bidens þóttu hins vegar einnig gefa til kynna að ekki ríkti full samstaða á milli Bandaríkjanna og Evrópu um það hvernig ætti að bregðast við því ef Rússar hæfu inn- rás í Úkraínu. Hafa spjótin þar einkum beinst að Þjóðverjum, en þeir hafa ekki viljað segja nákvæmlega til hvaða aðgerða ætti að grípa ef til innrásar kæmi. Þá hefur þýska ríkisstjórnin gefið til kynna við þarlenda blaðamenn að ekki komi til greina að loka Rússa frá SWIFT-bankakerfinu, en það hefur verið ein helsta hótunin sem nefnd hefur verið sem mögulegt svar við því, ákveði Rússar að ráðast inn í Úkraínu. Innan þýsku ríkisstjórnarinnar virðist einnig vera misklíð um það hvort Nord Stream 2-jarðgasleiðslan eigi að vera undir í mögulegum refsi- aðgerðum gagnvart Rússum, en ótt- ast er að þeir muni loka fyrir jarð- gassendingar til Þýskalands, sem glímir nú við alvarlegan orkuskort um hávetur. Samþykkja vopnasölu Þjóðverjar hafa einnig lagt blátt bann við því að þýsk vopn verði seld til Úkraínu þrátt fyrir að stjórnvöld þar hafi óskað eftir því, á sama tíma og bæði Bretar og Bandaríkjamenn eru að senda bæði hergögn og fjár- magn til landsins til þess að hjálpa þeim að undirbúa varnir sínar. Bandaríkjastjórn heimilaði í gær Eystrasaltsríkjunum að selja áfram til Úkraínu hergögn, sem upphaflega voru fengin frá Bandaríkjunum, en þar er aðallega um að ræða svokall- aðar Javelin-eldflaugar, sem fót- gönguliðar geta beitt til þess að granda skriðdrekum. Arvydas Anusauskas, varnar- málaráðherra Litháens, sagði við AFP-fréttastofuna að sagan sýndi að það að láta undan árásaraðilum end- aði oftast með stóru stríði. „Við vilj- um það ekki. Öll ríki sem eru að verja sig verða að fá tækifæri til þess.“ Ú K R A Í N A HVÍTA- RÚSSLAND 13.000 rússneskir hermenn taka þátt í heræfingum í Hvíta-Rússlandi 10.-20. febrúar ásamt 12 rússneskum SU-35-orustuþotum, tveimur S-400-flugskeytakerfum og einu Pantsir-S loftvarnarkerfi RÚSSLAND Við landamæri Úkraínu: 100.000 hermenn 1.300 skriðdrekar, 1.680 fallbyssur 3.700 brynvarin ökutæki ÚKRAÍNA 225.000 hermenn undir vopnum 900.000manna varalið 13.685 skriðdrekar og brynvarin ökutæki 67 herflugvélar og orustuþotur 34 herþyrlur 13 herskip DONBASS-HÉRAÐ 35.000 aðskilnaðarsinnar í Donbass- héraði eru studdir af 2.100 rússnesk- um hermönnum og sérsveitum KRÍMSKAGI 33.000 rússneskir hermenn eru staðsettir á Krímskaga sem Rússar hernumdu ólöglega árið 2014 SEVASTOPOL Rússnesk flotastöð er í Sevastopol á Krímskaga VOLGOGRAD 5.000 hermenn PERSIANOVSKII 5.000 hermenn ROSTOV 4.000 hermenn Kænugarður Sevastopol KLINTSY 4.000 hermenn BOYEVO 2.000 hermenn SOLOTI 4.000 hermenn Svartahaf Donetsk Luhansk R Ú S S L A N D H V Í TA - R Ú S S - L A N D Hernaðaruppbygging við landamæri Úkraínu Hvers kyns innrás verði svarað - Vesturveldin heita hörðum aðgerðum ráðist Rússar inn í Úkraínu - Blinken mun funda með Lavrov í dag - Ummæli Bidens harðlega gagnrýnd - Eystrasaltsríkin senda skriðdrekavopn til Úkraínu AFP Samstöðufundur James Cleverly, Jean-Yves Le Drian, Annalena Baerbock og Antony Blinken stilla sér upp fyrir fund sinn um Úkraínumálið í gær. Austurríska þingið samþykkti í gærkvöldi að skylda austurríska ríkisborgara til þess að bólusetja sig gegn kórónuveirunni. Er Austurríki fyrsta ríki Evrópu til þess að grípa til þessara ráða í heimsfaraldrinum. Frumvarpið naut stuðnings allra flokka á þingi nema Frelsisflokks- ins, sem er yst til hægri í aust- urrískum stjórnmálum. 72% allra Austurríkismanna eru nú fullbólusett, og er það svipað hlutfall og meðaltal Evrópusam- bandsríkjanna, en ögn lægra en í Ítalíu og Frakklandi. Samkvæmt frumvarpinu verður heimilt að sekta þá, sem neita að láta bólusetja sig, um allt að 3.600 evrur, eða sem nemur um 520.000 íslenskum krónum, en byrjað verð- ur að sekta fólk um miðjan mars. Bólusetningarskyldan nær til allra fullorðinna Austurríkismanna, að frátöldum óléttum konum og þeim sem hafa læknisvottorð upp á að geta ekki þegið bóluefnið. Karl Nehammer, kanslari Aust- urríkis, sagði fyrir umræðu þingsins að bólusetning væri tækifæri fyrir samfélagið til þess að ná varanlegu frelsi á ný, þar sem veiran gæti ekki heft fólk lengur. Nehammer viður- kenndi þó að málið hefði vakið upp mikla umræðu og heitar tilfinning- ar, en fjölmenn mótmæli hafa verið haldin gegn frumvarpinu frá því það var tilkynnt í nóvember síðastliðn- um. Ríkisstjórnin hyggst efna til happdrættis fyrir alla sem eru bólu- settir til þess að hvetja fólk til að láta bólusetja sig. Munu bólusettir Austurríkismenn geta unnið inneign upp á 500 evrur, eða um 72.000 krónur, til að nota í verslunum, hót- elum eða á viðburðum. Skylda fólk til bólusetningar - Byrjað að sekta um miðjan mars AFP Bólusetning Austurríska þingið hef- ur samþykkt bólusetningarskyldu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.