Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 21.01.2022, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.01.2022, Blaðsíða 23
Linda urðu engar dekurrófur heldur dugnaðarforkar eins og mamma þeirra var. Guðný var einstaklega listfeng þegar kom að handavinnu hvort heldur var saumar eða prjón. Litir, snið og frágangur var eins og hjá frægustu hönnuðum heims. Guðný var líka hjálpsöm þegar ég hafði ætlað mér um of á sviði handmennta. Hún kenndi mér alls konar fiff við sauma- skapinn og fullvissaði mig um að ég gæti þetta alveg, ég yrði bara að sýna smá þolinmæði. Listfengi Guðnýjar sýndi sig ekki aðeins við handavinnu og í klæðaburði heldur í öllum hennar verkum og ekki síst í prentverk- inu sem hún vann við alla sína tíð. Hún var ekki bara að setja texta heldur var hún alltaf að fullkomna vinnu sína og finna upp á ein- hverju nýju útliti þegar tölvurnar komu til sögunnar. Hún gat ekki hugsað sér að koma nálægt „ljótu“ prentverki, og var eftir- sótt til vinnu. Þótt Guðný væri lágvaxin og fínleg í alla staði var hún algjör nagli og stóð eins og klettur með þeim sem henni þótti vænt um. Hún var þeirrar gerðar að hún hreykti sér ekki af verkum sínum og var að mínu mati of hógvær þegar kom að því að þiggja hrós. Guðný talaði ekki mikið um sjálfa sig, en ég vissi að hún var ekki fædd með silfurskeið í munni. Einn ónefndur kostur Guðnýj- ar, sem allir sem þekktu hana eiga eftir að sakna, er hversu góður hlustandi hún var. Nýlega þegar ég heimsótti hana í nýju íbúðina ætlaði ég að spyrja hana hver hefði kennt henni að sauma svona listavel. Sú umræða varð að engu því ég var allt í einu farin að tala út í eitt um eigin hörm- ungar og Guðný sat og hlustaði. Þegar ég síðar bað hana afsök- unar á þessu rausi mínu sagði hún: „Blessuð vertu, ekkert mál, ég vissi að þú þyrftir að tala um þetta.“ Þannig var Guðný, góður vinur gulli betri og hennar er sárt saknað. Ég sendi fjölskyldu Guðnýjar alla mína samúð með ósk um huggun harmi gegn. Meira á www.mbl.is/andlat María Anna Þorsteinsdóttir. Kynni okkar Guðnýjar hófust þegar hún kom til starfa hjá Prentsmiðjunni Odda. Hún var snögg að tileinka sér nýja tækni, úrræðagóð, afkastamikil, ósér- hlífin til vinnu og umfram allt góð- ur vinnufélagi. Af einhverjum ástæðum náð- um við vel saman við fyrstu kynni. Kannski að hluta til vegna sam- eiginlegs áhuga okkar á mat og matargerð en Guðný var framúr- skarandi kokkur. Það fór ekki á milli mála hvað var það mikilvægasta í lífi Guð- nýjar en dætur, tengdasonur og barnabörnin voru hennar stolt og yndi. Að fá að vera þátttakandi í líf þeirra veitti henni gleði og styrk til að takast á við það sem lífið gaf. Systkini hennar og fjöl- skyldur þeirra voru henni einnig afar hugleikin. Guðný var miklum mannkost- um búin. Hún var heiðarleg, já- kvæð, víðsýn, dugleg og skemmti- leg. En fyrst og fremst var hún góð og hlý manneskja sem gott var að umgangast. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina. Blessuð sé minning góðrar vinkonu. Magnús G. Guðfinnsson. Guðný vinkona mín er fallin frá eftir nokkurra mánaða baráttu við erfið veikindi. Þótt vitað væri að á brattann væri að sækja kom andlát hennar að morgni aðfangadags á óvart en við töluðum saman daginn áður og hún var þá nokkuð hress. Guðný tókst á við veikindin af miklu æðruleysi, alltaf jákvæð, bjartsýn og tók virkan þátt í líf- inu. Ég kynntist Guðnýju fyrir tæpum aldarfjórðungi en eigin- menn okkar voru nánir sam- starfsmenn. Ég hafði séð Guð- nýju nokkrum sinnum en aldrei talað við hana þegar mennirnir buðu okkur með á ráðstefnu til Bandaríkjanna haustið 1998. Herrarnir þrír sem voru með okkur í ferðinni vildu gjarnan sitja saman í flugvélinni til Bost- on og leyfa okkur Guðnýju að spjalla saman en við vorum eitt- hvað feimnar og litlar í okkur, vildum frekar sitja hvor hjá sín- um manni. Það var gist eina nótt í Boston og þaðan var ferðinni síðan heitið til Houston í Texas. Við vorum búin að panta borð á veitingastað og þegar á hótelið var komið fóru allir upp á herbergi til að þvo af sér ferðarykið. Þetta tók okkur konurnar heldur lengri tíma en mennina og þegar ég kom niður í anddyri stóð Guðný þar ein og sagði karlana hafa farið saman í leigubíl en hún hefði ekki náð að spyrja þá neins. Við hugsuðum ekki hlýlega til þeirra en ég vissi á hvaða stað átti að fara og við ákváðum að drífa okkur þangað, við yrðum þá bara tvær ef þeir kæmu ekki en auðvitað voru þeir komnir á staðinn og tóku okkur fagnandi. Við gerðum oft grín að þessu atviki, sem var í raun okkar fyrstu kynni. Við Guðný ferðuðumst mikið með eiginmönnum okkar sem oft höfðu ekki tíma til að sinna okkur en það kom ekki að sök því við nutum þess að vera saman, rölta um, fara í skoðunarferðir, kíkja í búðir og borða góðan mat. Við Guðný vorum ekki bara vinkonur í utanlandsferðum held- ur gerðum við líka margt skemmtilegt saman hér heima, við fórum á tónleika, sýningar og út að borða. Guðný var listakokk- ur og undanfarin ár höfum við frekar eldað og borðað saman. Þau eru ófá símtölin sem ég hef hringt í Guðnýju til að fá ráðlegg- ingar varðandi matreiðslu og uppskriftir og aldrei gripið í tómt. Það verða mikil viðbrigði að geta ekki gert þetta lengur. Hún Guðný var fíngerð og fág- uð kona, mjög listræn og einstak- lega smekkleg. Hún var frábær í höndunum, bæði í fíngerðum saumaskap og í grófari verkum eins og að brjóta niður veggi, flísaleggja og fleira. Í öllu þessu kom hennar einstaka nákvæmni og samviskusemi sér vel því allt sem hún kom nálægt var einstak- lega vel og vandvirknislega unn- ið. Í vor flutti Guðný í nýja og glæsilega íbúð og var að koma sér vel fyrir þegar hún veiktist. Við náðum að skála í hvítvíni fyrir nýju íbúðinni og útsýninu en þurftum að gera það tvisvar því útsýnið sveik okkur í fyrra skipt- ið en þessi skipti áttu að verða svo miklu fleiri. Að leiðarlokum langar mig að þakka Guðnýju minni ómetan- lega og trygga vináttu sem aldrei bar skugga á. Við Guðmundur sendum dætr- unum, Lilju Dögg og Lindu Rós, og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Guðnýjar Kristjánsdóttur. Halldóra Björnsdóttir. Elskulegu systur, Lilja Dögg og Linda Rós. Við vinkonur mömmu ykkar viljum votta ykkur samúð við frá- fall elsku vinkonu okkar til margra ára. Hvílíkt hvað snöggt fráfall hennar snerti okkur. Við trúum ekki þessari staðreynd að á morgni eftir sólarlag breytast hlutirnir oft óvænt og rista djúpt. Okkar hugur er hjá ykkur og fjölskyldum ykkar, elsku systur. Hún verður ætíð í huga okkar. Guðs blessun fylgi minningu vinkonu okkar. Anna, Elín (Ella), Anna María, Sigurborg (Systa), Ingibjörg (Inga) og Þórunn. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022 ✝ Bjarni Sigfús- son fæddist 13. september 1933 á Grýtu- bakka í Suður- Þingeyjarsýslu. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Lundi á Hellu 12. janúar 2022. Foreldrar hans voru Sigfús Her- mann Bjarnason, f. 1897 á Svalbarði, og Jó- hanna Erlendsdóttir, f. 1905 á Hnausum í Vatnsdal. Bjarni kvæntist árið 1959 Aðalheiði Margréti Haralds- dóttur, f. 1938. Aðalheiður lést árið 2002. Þau áttu saman og Arnberg Victor. Halla á eitt barnabarn. 5) Brynja Rós, f. 1973, maður hennar er Guð- mundur Birgisson, börn þeirra eru Lydía Líf og Birgir. Bjarni fæddist á Grýtu- bakka en flutti 16 ára gamall að Breiðavaði í Langadal. Síð- ar flutti hann til Reykjavíkur með eiginkonu sinni og bjuggu þau lengst af í Breiðholti, fyrst í Staðarbakka og síðar í Ystaseli. Bjarni var lærður rennismiður en starfaði lengst af við rekstur eigin kranafyr- irtækis. Bjarni verður jarðsunginn frá Seljakirkju í dag, 21. jan- úar 2022, klukkan 10. Fjölda- takmarkanir eru vegna Covid en streymt verður á www.seljakirkja.is Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat fjögur börn en Bjarni átti eina dóttur fyrir. Börn Bjarna eru: 1) Margrét, f. 1958, maður henn- ar er Sævar Ósk- arsson. Börn þeirra eru Óskar, Kristín og Brynj- ar. Margrét og Sævar eiga níu barnabörn. 2) Sig- fús, f. 1959, kona hans er Ást- rós Sverrisdóttir. Börn þeirra eru Bjarni Haraldur, Heiða Vigdís og Snorri Alexander. 3) Haraldur, f. 1964, d. 1968. 4) Halla Rut, f. 1969, synir henn- ar eru Elís Viktor, Ívan Victor Þá er elsku tengdapabbi minn til 35 ára farinn í sumarlandið fagra. Ég kynntist Bjarna og Heiðu, tengdaforeldrum mínum, fljótlega eftir að við Sigfús, elsta barn þeirra, fórum að draga okk- ur saman. Ég var rúmlega tvítug stelpuskotta. Þau tóku mér strax opnum örmum. Sunnudagsmatur í Ystaseli 5 voru góðar stundir sem og önnur samvera. Þau voru samtaka hjón. Nutu lífsins og ferðuðust innanlands og utan í góðra vina hópi. Alltaf fjör þar sem Bjarni og Heiða voru. Partíl- jónið Bjarni. Í sumar verða 20 ár síðan Heiða lést langt fyrir aldur fram. Það var okkur öllum mikill missir, sérstaklega Bjarna. Heiða lifði það að kynnast eldri börnum okkar Sigfúsar, þeim Bjarna Har- aldi (f. 1988) og Heiðu Vigdísi (f. 1992). Hún vissi að Snorri Alex- ander væri á leiðinni (f. 2002) en lést áður en hann fæddist. Bjarni var góður og „kúl“ afi. Hann var afinn sem var með fjarstýrðar gardínur í Funalindinnni. Græju- kall, opinn fyrir nýjungum. Alltaf flottur, helst með kúrekahatt eða derhúfu. Auðvitað var hann með stærsta og flottasta hattinn í fimmtugsafmælinu mínu (það var hattapartí). Flottur jakki, lag Ragga Bjarna, minnir mig alltaf á Bjarna, enda var hann alltaf í flottum jakka. Þeir Raggi Bjarna voru af sömu kynslóð og þekkt- ust. Samband Bjarna senjor og Bjarna júníor var einstakt. Þeir fóru ásamt Sigfúsi þrisvar sinn- um til Ameríku. Dálítið flókið að útskýra í vegabréfaskoðuninni á JFK-flugvellinum að það væru tveir sem hétu Bjarni Sigfússon á svæðinu. Tengdapabbi ljómaði alltaf þegar ég sagði honum hvað Heiða Vigdís væri að bralla. Snorri Alexander fékk að vera með afa sínum í sumarbústaðnum þegar hann var lítill. Síðustu árin leyfði heilsan Bjarna ekki að njóta sín sem skyldi. Aldrei kvart- aði hann, alltaf glaður og ljúfur. Hann hafði einstaklega gott geðs- lag. Mikið áttum við góðar stund- ir þegar ég heimsótti hann reglu- lega, hvort sem það var þegar hann bjó í íbúð við Sunnuhlíð í Kópavoginum, var á sjúkrahúsi eða á Hrafnistu í Reykjavík, en þar dvaldi hann í nokkur ár. Gam- an var að rifja upp með honum hvað hann hafði gert um ævina. Bjarni vildi dvelja við það sem var skemmtilegt, ekki það sem var erfitt og sorglegt. Við vorum sam- mála um að það væri dýrmætt hvað þau Heiða notuðu tímann vel sem þau höfðu saman. Þau Heiða ráku kranafyrirtæki. „Krana- Bjarni“, eins og sumir kölluðu hann, hafði unnið víða um land tengt því. Iðulega spurði Bjarni mig hvaða fjall ég hefði síðast gengið á þegar ég hitti hann. Svo skoðuðum við á landakorti hvar það var og kom mér alltaf á óvart hvað hann þekkti landið vel. Nú er partíinu lokið hjá Bjarna. Hann sofnaði vært á hjúkrunar- heimilinu Lundi á Hellu þar sem hann dvaldi síðustu vikurnar í þessu lífi. Magga elsta dóttir hans vann þar og sinnti pabba sínum vel eins og henni einni er lagið. Bjarni var umvafinn börnum sín- um og tengdabörnum þessi síð- ustu andartök. Þetta var komið gott. Hann kvaddi þetta líf sáttur og saddur lífdaga. Ég sendi fjöl- skyldu og vinum samúðarkveðjur og þakka honum Bjarna Sigfús- syni fallega samfylgd. Blessuð sé minning hans. Ástrós Sverrisdóttir. Mig langar að minnast hans Bjarna míns með örfáum orðum og þakklæti fyrir yndislega tíma sem við áttum saman. Bjarni var natinn og einstak- lega duglegur maður, það sáu all- ir sem heimsóttu okkur á sínum tíma í Viðeyjarsundið. Þar átti hann stað sem hann naut þess að vera á og spurði mig oft út í bú- staðinn þegar við hittumst eftir að hann fór á elliheimili. Við töluðum líka um öll ferða- lögin sem við fórum í saman og áttum góða tíma hvort sem það var innanlands eða utan. Í ferðum okkar innanlands á húsbílnum var það eftirtektarvert hvað hann Bjarni var fróður um hvern krók og kima á landinu. Það var skemmtilegt og með eindæmum gott að ferðast með honum því hann var svo áhugasamur um alla staði sem við komum á og sýndi öllum sem við hittum áhuga. Bjarni var börnum mínum og barnabörnum góður og vil ég þakka honum kærlega fyrir það. Takk fyrir samfylgdina Bjarni minn, guð geymi þig. Þín Olga Sigurðardóttir. Bjarni móðurbróðir okkar er fallinn frá. Margs er að minnast, hlýjar og skemmtilegar minning- ar. Bjarni var stóri bróðir mömmu okkar en barnahópurinn frá Grýtubakka var stór og komust öll til manns. Af þessum sam- henta hópi eru einungis þrjú þeirra á lífi. Ein falleg minning er til þegar systurnar þrjár voru að rifja upp uppátæki bræðranna. Amma sagði ekki neitt, þar til ein þeirra sagði: „Mamma, manstu ekki hvernig þeir létu?“ Amma skellti aftur ísskápnum og sagði: „Ég man ekkert sem ég vil ekki muna!“ Sönn móðurást þar, og trúum við því að Bjarni hafi ekki látið sitt eftir liggja í uppátækj- unum. Aldrei var hversdagslegt að vera nálægt Bjarna, hann sá alltaf eitthvað skondið út úr lífinu og var frásagnagóður. Því miður voru sögurnar hans ekki skráðar en þær voru oft dálítið svakaleg- ar. Það var sama hvar Bjarni var, hann var alltaf hrókur alls fagn- aðar. Þrátt fyrir galsa og gaman- semi var Bjarni að upplagi hóg- vær og hlédrægur maður og voru ekki allir sem fengu að kynnast hans innsta kjarna. Það hefur örugglega ekki verið einfalt að fylgja honum Bjarna eftir en lán hans var að kvænast Heiðu. Það var aðdáunarvert að fylgjast með þessum samhentu hjónum. Þau bættu hvort annað upp að öllu leyti. Þau heiðurshjón Heiða og Bjarni voru vinmörg, vinsæl og raungóð. Þau voru einstaklega gestrisin, ekkert nema hlýjan, gleðin og ánægjulegt að vera með þeim. Allir áttu athvarf hjá þeim, hvort sem þeir dvöldu í ár eða yfir nótt því faðmur þeirra var stór. Bjarni var oft kallaður „Krana-Bjarni“ af því hann rak, ásamt Heiðu, fyrirtækið Krana- bílar sf. á miklum uppgangstím- um á Íslandi. Bjarni var vel gef- inn maður og alltaf mikill kraftur í honum enda mikill frumkvöðull. Bjarni var einstaklega mikið snyrtimenni hvort heldur það var innan dyra eða utan. Aldrei sáust merki þess að hann hefði verið með mikla vinnu í gangi þar sem hann var, því allt var svo snyrtilegt. Öll umgengni hans var til fyrirmyndar og hann var alltaf að. Hann snyrti í kringum sig og dyttaði að á meðan stætt var. Hann var vandvirkur og handlaginn enda sóttust margir eftir að fá hann til sín í fram- kvæmdir enda mjög útsjónar- samur og þúsundþjalasmiður. Hann byggði sjálfur fyrir fjöl- skyldu sína stórt hús í Breiðholti. Fóru margar stundir hjá þeim hjónum í bygginguna og má segja að þau hafi byggt húsið með eigin höndum enda hörku- dugleg bæði tvö. Gerði hann aukaíbúð fyrir móður sína en því miður náði hún ekki búa þar lengi. Aftur á móti nutu systk- inabörnin, hvert af öðru, góðs af þessari íbúð. Svona voru þau hjónin Heiða og Bjarni. Eftirlifandi börn Bjarna og Heiðu eru fjögur en barnabörnin þeirra höfðu þeirra heimili sem sitt annað heimili eins og margir aðrir. Það var mikið högg fyrir Bjarna, börnin, systkini Bjarna og barnabörnin þegar Heiða féll frá þar sem hún hélt utan um allt og alla. Við systkinin og fjölskyld- ur okkar minnumst Bjarna frænda með hlýju og þökkum honum allar góðar samveru- stundir. Vottum við börnum hans og fjölskyldum þeirra innilegrar samúðar vegna andláts hans. Jón, Jóhanna, Nína Margrét og fjölskyldur. Elsku Bjarni frændi, ömmu- bróðir minn, hefur nú kvatt þessa jarðvist. Við þessi tímamót rifjast upp margar góðar minningar, þær sem standa hæst eru tengdar útilegum. Þau Heiða áttu um tíma stærsta húsbíl fjölskyldunnar, þannig að þegar við vorum í úti- legum var sá bíll oftar en ekki að- alstaðurinn þar sem allir gátu safnast saman. Í einni fjölskyldu- útilegunni kom það sér mjög vel þar sem veðrið var slæmt, þá var hver krókur, borðkrókarnir voru tveir, þéttsetinn þannig að fjöl- skyldan skemmti sér konunglega þrátt fyrir úrhelli. Bjarna fannst söngur skemmtilegur en það truflaði hann ekkert ef hann kunni ekki textann. Undir bláhimni var í miklu uppáhaldi en eina sem hann kunni úr laginu var: Svo dönsum við dátt … Í hvert sinn sem komið var að þeim stað í laginu stökk Bjarni upp, klappaði saman lóf- unum og söng manna hæst. Þetta er svo fast í manni að það er ekki hægt að syngja lagið öðruvísi. Í fyrsta sinn sem ég keyrði sjálf bíl var það í bílnum hans Bjarna með hann í farþegasæt- inu. Ég var bara sjö ára en hann sagði mér mjög vel til, bíllinn var líka sjálfskiptur sem okkur Bjarna fannst betra. Get ekki sagt að Helgu ömmu og Heiðu hafi þótt þetta sniðug hugmynd. Bjarna fannst allar nýjungar mjög skemmtilegar og sagði að fólk sem keyrði beinskiptan bíl eftir að það væri búið að finna upp sjálfskiptinguna væri eins og fólkið sem notar skífusíma eftir að það er búið að finna upp takka- síma. Þetta hef ég haft sem lífs- mottó eftir að hann sagði mér þessa speki. Elsku besti Bjarni minn, ég veit að Heiða, Haraldur og marg- ir fleiri tóku vel á móti þér í Sum- arlandinu. Elsku Margrét, Sig- fús, Halla, Brynja og fjölskyldur, ég sendi ykkur öllum mínar inni- legustu samúðarkveðjur, missir ykkar er mestur. Helga Gunnarsdóttir frá Akri. Bjarni Sigfússon Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður, tengdaföður, afa og langafa, INGÓLFS JÓHANNSSONAR, Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks Eirhamra. Unnur V. Ingólfsdóttir Guðjón Magnússon Jóhann Ingólfsson Jónína Daníelsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRU STELLU GUÐJÓNSDÓTTUR, Staðarfelli í Dölum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi fyrir hlýhug og einstaka umönnun. Eins færum við starfsfólki Heilsugæslunnar í Búðardal einlægar þakkir fyrir ómetanlega aðstoð og hlýhug síðustu dagana. Sveinn K. Gestsson Anna Kristín Sveinsdóttir Eyþór Kristjánsson Ingibjörg Sveinsdóttir Stefán Pétur Stefánsson Kristján Ellert Sveinsson ömmu- og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.