Morgunblaðið - 21.01.2022, Qupperneq 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Allt félagsstarf liggur niðri til
miðvikudagsins 2. febrúar. Grímuskylda og 2 metra reglan komin
aftur. Hámark 10 manns í hverju rými. Boðið uppá kaffi til kl. 11.
Hádegismaturinn kemur í bökkum. Panta þarf matinn fyrir hádegi
deginum áður. Síðdegiskaffið er opið frá kl. 14.30-15.30.
Garðabær Poolhópur Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Handavinna, opin vinnustofa frá kl. 10.30. Brids kl. 13.
Bíó kl. 13.15. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi
deginum áður.
´Korpúlfar Vegna fjöldatakmarkana fellur allt hópastarf niður á veg-
um Korpúlfa bæði í Borgum, á Korpúlfsstöðum og í Egilshöll. Opið er
í Borgum, kaffi á könnunni en grímuskylda, hámark 10 í rými og sótt-
varnir í heiðri hafðar. Hvetjum alla til hreyfingar og sendum hlýjar
óskir til ykkar allra og hlökkum til að byrja starfið aftur með gleði í
hjarta. Boðið er upp á heimsenda mat fyrir alla, afgreiddan frá Borg-
um eða heimsendingu á heimili viðskiptavina. En opið er í Borgum
og kaffi á könnunni. Einnig er í boði að fá símhringingaspjall heim
fyrir þá sem þess óska. Með baráttukveðju og hlýjum óskum.
Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabraut opinn milli kl. 9. og 11.30.
Vegna samkomutakmarkana verður enginn söngur eða önnur
dagskrá í dag, föstudag.
intellecta.is
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Lok á potta
Eigum til lok á flest
alla potta á lager.
Td. stærðir 200x200,
210x210, 220x220, 235x235,
kringlótt lok og átthyrnt lok.
HEITIRPOTTAR.IS
Sími 777 2000
Bílar
Nú þegar engir sendibílar eru
fáanlegir í heiminum eigum við
þennan til á lager !
Nýr 2021 Ford Transit Trend
L3H3. Til afhendingar strax !
Verð: 5.500.000,- án vsk.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
✝
Halldóra Krist-
ín Arth-
ursdóttir fæddist í
Reykjavík 1. mars
1945. Hún andaðist
á líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 12. janúar
2022.
Foreldrar henn-
ar voru Arthur
Jónatansson, f.
17.12. 1912, d.
21.3. 1995, og Marsibil Guð-
björg Guðbjartsdóttir, f. 29.6.
1911, d. 5.2. 2004. Bróðir Hall-
dóru er Sigmundur Unnar, f.
1942, maki Ásthildur Sigurð-
ardóttir, f. 1948.
Hinn 29.6. 1969 giftist Hall-
dóra Símoni Sverri Ragn-
arssyni, f. 1944. Þau skildu
2018. Fyrir átti Halldóra son-
inn: 1) Arthur Pétursson, f.
1966, sambýliskona Herta Marí-
anna Magnúsdóttir, f. 1965,
dóttir Hertu er Ragnhildur
Austurbæjarskóla. Halldóra fór
sem au pair til Englands og
gætti þar tveggja stúlkna í eitt
ár og lærði góða ensku við
dvölina þar. Eftir skólagöngu
fór Halldóra að vinna á skrif-
stofu hjá Vita- og hafnarmálum
og síðar hjá Loftleiðum við
bókhald.
Árið 1973 fluttist hún með
eiginmanni og börnum í Kópa-
vog, fyrst í Lundarbrekku 16
en síðar Daltún 34, þar sem
þau bjuggu til ársins 2005,
Halldóra bjó í Garðabæ til dán-
ardags. Meirihluta starfsævi
sinnar starfaði Halldóra við
rekstur á skartgripaverslun
Jóns Sigmundssonar ásamt
Símoni, fyrstu árin ráku þau
verslunina á Laugavegi 8 og
síðar í Iðnaðarmannahúsinu en
lengst af við Laugaveg 5 ásamt
verslun í Spönginni í Graf-
arvogi.
Útför Halldóru fer fram frá
Garðakirkju í dag, 21. janúar
2022, og hefst athöfnin klukkan
13. Vegna samkomutakmark-
ana geta aðeins nánasta fjöl-
skylda og vinir verið viðstödd,
en streymt verður frá útförinni.
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
Lára, f. 2000, börn
þeirra eru Hall-
dóra Kristín, f.
2004, og Magnús
Grétar, f. 2007.
Börn Halldóru og
Símonar eru: 2)
Ágústa, f. 1971,
maki Magnús Odd-
ur Guðjónsson, f.
1970, börn þeirra
eru María, f. 1997,
Ásdís Milla, f.
2000, Eva Mía, f. 2008, og Stef-
án Máni, f. 2010. 3) Ragnar, f.
1973, maki Dísa Ragnheiður
Tómasdóttir, f. 1977, börn
Ragnars eru Alexandra Sigrún,
f. 1992, og Ásta Margrét, f.
1995, dóttir Ragnheiðar Dísu er
Embla Dögg, f. 1998, og börn
þeirra eru Símon Tómas, f.
2002, Ísabella Eir, f. 2009, og
Mikael Tumi, f. 2011.
Halldóra ólst upp í Reykja-
vík, fyrstu árin á Leifsgötu og
síðar í Stigahlíð. Hún gekk í
Mamma þú varst kletturinn í
lífi mínu og barnanna okkar
Magga. Alltaf til staðar fyrir okk-
ur, áttir réttu svörin við öllu. Mik-
ið sem ég á eftir að sakna þíns
hlýja faðms og dillandi hláturs.
Það var svo gott að hlæja með þér
og þú hafðir svo smitandi hlátur
að yfirleitt voru allir farnir að
hlæja með þér. Þín skilyrðislausa
ást og umhyggja á eftir að um-
vefja okkur alla tíð.
Þú gerðir allt fyrir alla en þáðir
sjaldan aðstoðina sjálf. Geymdir
aldrei verk sem hægt væri að
klára í dag til morguns heldur
óðst í verkin, sannkölluð súper-
mamma.
Við áttum einstaka vináttu og
heyrðum hvor í annarri á hverjum
degi og stundum oft á dag. Þú
varst stór hluti af fjölskyldu okk-
ar Magga, komst oft við í kaffi-
sopa eða borðaðir með okkur. Þú
elskaðir að ferðast og við vorum
dugleg við það, hvort sem það
voru bíltúrar innanlands eða ferð-
ir erlendis.
Þótt lífsins brekkur færu að
verða ansi brattar og erfiðar þá
varstu alltaf jákvæð og glöð. Þeg-
ar þú varst spurð hvernig þú
hefðir það var svarið alltaf það
sama: „Ég hef það bara mjög
fínt.“ Svona varstu alltaf glöð,
sterk og með mikinn lífsvilja.
Elsku mamma, þú skilur eftir
þig risaskarð í hjörtum okkar sem
enginn getur fyllt en á sama tíma
skilurðu eftir hafsjó af frábærum
minningum sem við yljum okkur
við.
Takk fyrir allt elsku mamma
Þín dóttir,
Ágústa.
Elsku mamma. Þau verða held-
ur fátækleg orðin þegar móðir er
syrgð. Hvernig er hægt að þakka
nógsamlega það ævistarf, kær-
leik, hlýju og ást sem hefur verið
til staðar alla tíð? Það er margt að
þakka í gegnum tíðina. Það að
eiga ástríka móður sem hefur
sýnt barni þolinmæði, virðingu og
hlýju er besta næring sem hægt
er að fá út í lífið. Mamma var hlý
kona og sýndi það bæði börnum
sínum og barnabörnum og fólkinu
sínu. Hún elskaði ekkert heitar en
að verja tíma með fjölskyldunni
og ferðast.
Mömmu var alltaf umhugað
um fólkið sitt og fylgdist vel með
því. Við töluðum saman flesta
daga og hún vildi gjarnan heyra
hvað barnabörnin voru að taka
sér fyrir hendur. Ég mun sakna
kærleikssamtals, góðra ráða og
dillandi hláturs. Ég kveð mömmu
með söknuð í hjarta og djúpu
þakklæti fyrir þann kærleik, hlýju
og ást sem hún hefur gefið okkur.
Mamma er kona
sem heldur í höndina
á manni fyrstu árin
en hjartað alla ævi.
Takk fyrir allt saman elsku
mamma,
þinn sonur
Arthur.
Elsku hjartans mamma mín,
með sorg og söknuð í hjarta mínu
þakka ég þér fyrir allt sem þú hef-
ur gefið mér og allar okkar stund-
ir saman. Ég elska þig og mun
ávallt geyma og varðveita þig í
mínu hjarta.
Hvíldu í friði elsku mamma
mín.
Þar sem melgrösin glóa
þar glóir þú.
Þar sem nóttin leggur lönd sín
þar sefur þú mín kæra móðir.
Þar sefur þú.
(Ómar Sigurjónsson)
Þinn sonur,
Ragnar Símonarson.
Það er ekki öllum gefið að eign-
ast góða tengdamömmu, ég var
einn af þeim lánsömu. Ég man í
fyrsta skipti sem ég kom að heim-
sækja Ágústu í Daltúnið þá kom
ég og settist í stofuna í kjallaran-
um þar sem þau systkinin höfðu
afdrep fyrir sig. Á eftir hæðinni
var Halldóra að horfa á einhvern
gamanþátt í sjónvarpinu og hló
hátt sínum smitandi hlátri,
Ágústa sagði við mig brosandi:
„Þetta er bara mamma að horfa á
sjónvarpið.“ Skömmu síðar vind-
ur Halldóra sér niður stigann og
kynnir sig með orðunum: „Sæll,
ég heiti Halldóra og mikið er gott
að sjá þig loksins.“ Þar með var
ég kominn inn í fjölskylduna, ekk-
ert fát eða fum á þessu heldur
komið hreint og beint fram. Þann-
ig var Halldóra, hrein og bein,
aldrei neitt hálfkák eða vandræði,
hún lá ekkert á skoðunum sínum
og var staðföst í því sem hún tók
sér fyrir hendur. Öll verkefni
kláruð og allt í röð og reglu.
Heimilið var Halldóru heilagt, allt
var þar heint og strokið og mikill
metnaður var lagður í matargerð
enda vandfundinn betri kokkur
en hún. Matmálstíminn var líka
hafður í hávegum, það var matur
klukkan hálfsjö, ekki fyrr og ekki
seinna, mér fannst þetta undar-
legt í fyrstu en vandist þessu
fljótt. Halldóra vann mikið allt tíð
og ég var oft hugsi hvernig hún
komst yfir það að vinna allan dag-
inn og reka síðan heimili með
þeim myndarbrag sem hún og
gerði. Ég áttaði mig fljótt á því að
hún virtist sofa minna en við hin
því hún var oft fram eftir að klára
það sem þurfti að klára án þess að
við tækjum eftir því.
Halldóra fór ung sem au pair
til Englands sem var ekki algengt
á hennar uppvaxtarárum, talaði
hún oft um hve gott það hefði gert
sér að fara ung út og standa á eig-
in fótum. Hún var dugleg að
ferðast og áttum við margar dýrð-
arstundir í Flórída, hvort sem var
þegar Arthur bjó þar eða hún
kom með okkur Ágústu og krökk-
unum í frí. Það var afskaplega
gott að vera í kringum Halldóru,
hún hafði einstakt lag á því að
vera ekki neitt að trana sér fram
og vildi aldrei vera miðdepill at-
hyglinnar. Hins vegar var hún
alltaf til staðar, stoð og stytta fyr-
ir alla, alvörumamma og -amma.
Það var óskaplega gaman að
fylgjast með henni tala um öll
barnabörn sín, hún vissi upp á hár
hvað hver var að gera, hvernig
allt gengi hjá öllum hvort sem var
í skóla eða frítíma. Tók þátt í öll-
um tímamótum hvort sem þau
voru stór eða smá, alltaf jákvæð
og uppbyggjandi og endalaust af
hrósi í boði.
Það er mikill missir að þú hafir
þurft að kveðja okkur svona fljótt,
við vorum viss um í enda árs 2020
að allt væri komið í lag og meinið
væri sigrað. Fljótlega eftir ára-
mót 20/21 tók meinið sig upp að
nýju og ekki var við neitt ráðið.
Þú tókst þessu af sama æðru-
leysinu og jákvæðni sem endra-
nær þegar eitthvað bjátaði á. Við
áttum fjölmargar stundir saman á
spítalanum þar sem við ræddum
mikið saman, þú ítrekaðir við mig
að það þýddi ekkert að kvarta yfir
þessu. Baðst mig um að passa vel
upp á Ágústu og krakkana, ég
sagði við þig að við myndum gera
það saman ég og þú. Ég þakka
þér af öllu hjarta fyrir samfylgd-
ina.
Þinn
Magnús Oddur.
Elsku amma, við höfum átt
góðar stundir og þín er sárt sakn-
að. Minningar um þig munu lifa
og allar eru þær góðar. Við höfum
fengið að bralla margt saman í
gegnum tíðina og þú varst alltaf
til í að gera eitthvað með okkur
barnabörnunum. Það verður erf-
itt að geta ekki komið til þín í
heimsókn eftir skóla þar sem þú
tókst alltaf á móti okkur með „hæ
skvís“ og bros á vör. Þú varst allt-
af til staðar fyrir okkur og það var
gott að geta komið til þín og feng-
ið álit og spjallað um allt og ekk-
ert.
Minningarnar hrannast upp
þegar við hugsum til þín og við
systkinin elskuðum Flórídaferð-
irnar með þér. Nokkrar uppá-
haldsminningar koma í hugann
við tilhugsunina að vera með þér í
fríi. Eins og þegar við vorum við
sundlaugarbakkann í sólbaði og
þú að lesa einhverja ástarvellu,
sólbrún og sæt. Alltaf tókst Evu
Míu að plata þig út í ískalda sund-
laugina með því að segja við þig
að laugin væri skítheit. Einnig
voru farnar nokkrar verslunar-
ferðir þar sem þú talaðir manna
hæst þar sem þú hélst því fram að
enginn skildi þig nema við, þú
hafðir sterkar skoðanir á því hvað
við systkinin keyptum og varst
okkar helsta tískulögga.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Þín verður sárt saknað.
Þín ömmubörn,
María, Ásdís Milla,
Eva Mía og Stefán Máni
Magnúsarbörn.
Þegar við hugsum til ömmu og
um allar góðu minningarnar sem
við eigum um hana koma fyrst
upp í hugann öll áramótin sem við
fengum að upplifa með henni. Það
var alltaf svo gaman að horfa með
henni á skaupið, en hún hló alltaf
svo hátt. Hláturinn hennar var
mjög smitandi, enda urðu hlátur-
sköstin mörg þegar amma var
viðstödd. Það var aldrei langt í
húmorinn hjá henni.
Amma var mjög skemmtilegur
og góður gestgjafi, sama hvort
það var heima hjá henni eða í búð-
inni. Hún var ómissandi hluti af
fjölskylduboðunum, en það var
alltaf gaman að vera í kringum
hana. Hún eldaði mjög góðan mat
og þá sérstaklega þegar hún bjó
til heimagerða ísinn með marssós-
unni sem má ekki gleyma.
Við hugsum til elsku ömmu
okkar með söknuði og hlýju í
hjarta og munum varðveita allar
minningarnar okkar um hana um
ókomna framtíð.
Hvíldu í friði elsku amma.
Takk fyrir allt sem þú kenndir
okkur og allar stundirnar sem við
áttum saman. Við elskum þig.
Þín ömmubörn,
Ragnhildur Lára, Halldóra
Kristín og Magnús Grétar.
Elsku amma Halldóra.
Við systkinin þökkum fyrir all-
ar góðu stundirnar með þér, hefð-
um óskað þess að þær hefðu orðið
fleiri.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson)
Þín barnabörn,
Embla, Símon,
Ísabella og Tumi.
Er við lítum yfir farinn veg og finnum
gamla slóð
færast löngu liðnar stundir okkur nær.
Því að margar standa vörður þær, sem
einhver okkar hlóð
uppi um fjöll, þar sem vorvindurinn
hlær.
Með þessum orðum viljum við
kveðja vinkonu okkar. Takk fyrir
að hafa gengið með okkur alla tíð
síðan við vorum unglingar.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi.
Innilegar samúðarkveðjur,
Arndís Jónsdóttir,
Margrét Pálfríður
Magnúsdóttir.
Halldóra Kristín
Arthursdóttir