Morgunblaðið - 21.01.2022, Side 31
Ljósmynd/Szilvia Micheller
ÍÞRÓTTIR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022
_ Knattspyrnumaðurinn Böðvar
Böðvarsson hefur skrifað undir
tveggja ára samning við sænska félag-
ið Trelleborg og verður því áfram í
sænsku B-deildinni á komandi tíma-
bili. Böðvar, sem er 26 ára bakvörður,
lék með Helsingborg á síðasta tímabili
og tók þátt í að koma liðinu upp í úr-
valsdeildina en var ekki boðinn nýr
samningur í kjölfarið. Trelleborg end-
aði í sjöunda sæti B-deildarinnar 2021.
_ Bandaríska knattspyrnukonan Tiff-
any McCarty sem lék með Breiðabliki
á síðasta tímabili og áður með Selfyss-
ingum er gengin til liðs við Þór/KA.
Tiffany er 31 árs framherji og hefur
leikið í Noregi og Japan, sem og í
bandarísku atvinnudeildinni. Hún hef-
ur skorað 17 mörk í 33 leikjum í úrvals-
deildinni hér á landi.
_ Jón Daði Böðvarsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, gekk í gær til liðs
við enska C-deildarfélagið Bolton, eftir
að hafa fengið sig lausan frá Millwall í
B-deildinni. Hann samdi til 18 mánaða,
eða til sumarsins 2023. Bolton er í 17.
sæti af 24 liðum í C-deildinni.
_ Hinn 17 ára gamli Kristian Nökkvi
Hlynsson lék sinn annan leik með að-
alliði hollenska knattspyrnustórveld-
isins Ajax í gærkvöld, og skoraði eins
og í þeim fyrsta. Hvort tveggja hafa
verið bikarleikir en í gærkvöld vann
Ajax D-deildarliðið Excelsior Maasslu-
is, 9:0. Kristian lék seinni hálfleik og
skoraði sjöunda markið á 64. mínútu.
_ Magnús Óli Magnússon og Vignir
Stefánsson, leikmenn Vals, voru í gær
kallaðir inn í landsliðshópinn í hand-
knattleik í kjölfar þess að sex leikmenn
eru úr leik vegna kórónuveirusmita.
Þeir verða væntanlega í hópnum þegar
Ísland mætir Frakklandi í Búdapest á
morgun.
_ Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elí-
asson dæma ekki meira á Evrópumóti
karla í handknattleik. Anton hefur
greinst með kórónuveiruna og er í ein-
angrun í Slóvakíu og Jónas er af þeim
sökum farinn heim til Íslands. Þeir
dæmdu einn leik í fyrstu umferð riðla-
keppninnar.
_ Davíð Snær Jóhannsson, knatt-
spyrnumaður úr Keflavík, er genginn
til liðs við ítalska félagið Lecce sem
keypti hann af Keflvíkingum. Davíð er
19 ára gamall en hefur þó leikið með
Keflavíkurliðinu frá 2018
og hefur spilað með því
67 leiki í tveimur efstu
deildunum, ásamt því að
spila 40 leiki með
yngri lands-
liðum Íslands.
Lecce er í
fimmta
sæti
ítölsku
B-
deild-
arinnar
og með liðinu
leikur einnig
Þórir Jóhann
Helgason,
fyrrverandi
leikmaður
FH.
Eitt
ogannað
EM 2022
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Frakkar, sem eru næstu mótherjar
Íslendinga á Evrópumótinu í Búda-
pest á morgun, sýndu styrk sinn í
gær þegar þeir unnu sannfærandi
sigur á Hollendingum, 34:24.
Þar rákust Erlingur Richardsson
og hans menn í hollenska liðinu loks
á vegg eftir frábæra frammistöðu til
þessa á mótinu. Þeir stóðu í ólymp-
íumeisturunum í fyrri hálfleik, stað-
an var 15:12 að honum loknum, en
síðan dró hratt í sundur með lið-
unum.
Aymeric Minne skoraði átta mörk
fyrir Frakka og Nicholas Tournat
fimm en Kay Smits og Dani Baijens
voru atkvæðamestir Hollending-
anna með fjögur mörk hvor.
Svartfellingar komu hins vegar á
óvart með sannfærandi sigri á daufu
liði Króata, 32:26, og ljóst er að bar-
áttan um þriðja sæti riðilsins verður
hörð, að því gefnu að ekki verið
hægt að stöðva Dani og Frakka á
leið þeirra í undanúrslitin.
Þriðja sætið gefur keppnisrétt
um fimmta sæti Evrópumótsins, og
það sæti gefur beinan keppnisrétt á
næsta heimsmeistaramóti. Það er
ansi stór gulrót og getur gert bar-
áttuna í riðlinum afar tvísýna í loka-
umferðunum á mánudag og mið-
vikudag þegar Ísland mætir
Króötum og Svartfellingum.
Markvörðurinn Nebojsa Simic
átti stórleik í marki Svartfellinga
gegn Króötum og var með 40 pró-
sent markvörslu. Branko Vujovic og
Milos Vujovic voru þeirra marka-
hæstu menn með sjö mörk hvor en
Ivan Cupic skoraði sjö mörk fyrir
Króata og Luka Cindric fimm. Kró-
atar hafa verið í vandræðum vegna
kórónuveirusmita og voru án nokk-
urra leikmanna. Lið þeirra þótti
baráttulítið og þá vantar mikið þeg-
ar Króatar eiga í hlut.
Fyrsta tapið hjá Alfreð
Í milliriðli tvö tóku Spánverjar
forystuna með öruggum sigri á
löskuðu liði Þjóðverja, 29:23. Alfreð
Gíslason hafði ekki undan með að fá
nýja menn í hópinn á síðustu stundu
fyrir leikinn vegna hópsmits í röð-
um þýska liðsins.
Jorge Maqueda skoraði sex mörk
fyrir Spánverja, Ferran Sole og Ag-
ustín Casado fimm hvor. Johannes
Golla og Patrick Zieker skoruðu
fjögur mörk hvor fyrir Þjóðverja
sem töpuðu sínum fyrsta leik.
Norðmenn vöknuðu til lífsins og
völtuðu yfir Pólverja, 42:31. Svíar
unnu Rússa nokkuð sannfærandi,
29:23, og líklega verður slagurinn á
milli Norðmanna og Svía um að
komast í undanúrslitin.
Þrír leikmenn skoruðu 27 af 42
mörkum Norðmanna gegn Pólverj-
um. Sebastian Barthold skoraði tíu
mörk, Sandor Sagosen níu og
Kristian Björnsen átta.
Rákust á
franskan vegg
- Frakkland og Svartfjallaland með
örugga sigra í milliriðli Íslands
AFP
Stórsigur Dika Mem skorar fyrir
Frakka gegn Hollendingum.
Selma Sól Magnúsdóttir, landsliðs-
kona í knattspyrnu úr Breiðabliki,
samdi í gær við norska félagið Ros-
enborg frá Þrándheimi til tveggja
ára. Selma er 23 ára gömul, leikur
sem miðjumaður og hefur ávallt
spilað með Blikum, utan eins tíma-
bils þegar hún var í láni hjá Fylki.
Selma á 16 A-landsleiki að baki.
Rosenborg hafnaði í öðru sæti
norsku úrvalsdeildarinnar á síðasta
ári eftir einvígi við Sandviken um
meistaratitilinn en með því tryggði
liðið sér keppnisrétt í Meistara-
deildinni á næsta tímabili.
Selma fer til
Þrándheims
Morgunblaðið/Unnur Karen
Rosenborg Selma Sól Magnúsdóttir
fer í eitt besta lið Noregs.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, átján ára
landsliðsmarkvörður í knattspyrnu,
er komin til liðs við þýsku meist-
arana Bayern München sem fengu
hana í gær lánaða frá Everton til
30. júní. Aðalmarkvörður Bayern,
Laura Benkarth, er úr leik vegna
meiðsla. Cecilía hefur ekki fengið
keppnisleyfi með Everton þar sem
hana skortir atvinnuleyfi á Bret-
landseyjum en hún var lánuð þaðan
til Örebro í Svíþjóð á síðasta ári.
Með Bayern leika einnig Glódís
Perla Viggósdóttir og Karólína Lea
Vilhjálmsdóttir.
Lánuð til Bayern
München
Ljósmynd/Bayern
Bayern Cecilía Rán Rúnarsdóttir
er komin í eitt besta lið Evrópu.
MVM Dome, Búdapest, milliriðill EM,
fimmtudag 20. janúar 2022.
Gangur leiksins: 2:4, 4:6, 7:6, 9:10,
12:12, 15:12, 17:14, 19:18, 23:19,
24:22, 27:22, 27:24, 28:24.
Mörk Danmerkur: Mathias Gidsel 9,
Mikkel Hansen 5/4, Lasse Svan 5,
Emil Jakobsen 4/2, Magnus Saugs-
trup 3, Magnus Landin Jacobsen 1,
Rasmus Lauge 1.
Varin skot: Kevin Möller 14/2, Niklas
Landin 2.
Utan vallar: 6 mínútur.
DANMÖRK – ÍSLAND 28:24
Mörk Íslands: Ómar Ingi Magn-
ússon 8/1, Janus Daði Smárason 4,
Elvar Ásgeirsson 3, Arnar Freyr Arn-
arsson 2, Teitur Örn Einarsson 2,
Orri Freyr Þorkelsson 2, Sigvaldi
Björn Guðjónsson 1, Daníel Þór
Ingason 1, Elliði Snær Viðarsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson
3/2, Viktor Gísli Hallgrímsson 2.
Utan vallar: 12 mínútur.
Dómarar: Mirza Kurtagic og Mattias
Wetterwik, Svíþjóð.
Áhorfendur: 5.060.
Kristján Jónsson í Búdapest
kris@mbl.is
Elvar Ásgeirsson var í þeirri athygl-
isverðu stöðu að leika í fyrsta skipti
A-landsleik fyrir Íslands hönd í gær-
kvöld gegn Dönum.
Elvar kom inn í liðið og fór beint í
byrjunarliðið vegna þeirra skakka-
falla sem liðið varð fyrir. Það er
vægast sagt óvenjulegt að spila á
móti heimsmeisturum í milliriðli á
stórmóti í sínum fyrsta landsleik.
„Þetta var góður leikur til að
byrja á ef svo má segja. Þetta er eins
stórt og það verður. Þar er komin
talan 1 fyrir aftan nafnið mitt,“ sagði
Mosfellingurinn þegar Morg-
unblaðið tók hann tali er hann gekk
af leikvelli í MVM Dome. Elvar byrj-
aði vel og virtist furðurólegur.
Fyrsta landsliðsmarkið kom á 6.
mínútu en hjartað hlýtur að hafa
hamast í brjóstinu?
„Það var aðallega í dag þegar mál-
in fóru að skýrast betur og útilínan
okkar að hrynja vegna veikinda. Þá
fór ég að sjá fyrir mér að þetta þýddi
hellings spiltíma fyrir mig. Þá gerði
bæði stress og tilhlökkun vart við
sig. Þegar fór að líða nær leik þá ein-
hvern veginn minnkaði það og það
hvarf þegar við komum inn í höllina.
Púlsinn var eflaust aðeins hærri en
vanalega en ekki upp úr öllu valdi,“
sagði Elvar en hann hefur spilað í
efstu deild bæði í Þýskalandi og
Frakklandi. Hann er því ekki ný-
græðingur í alvöruhandbolta.
„Það hjálpaði örugglega en var
ekkert í samanburði við þetta,“ sagði
Elvar Ásgeirsson við Morgunblaðið.
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Þrjú Elvar Ásgeirsson á leiðinni í
gegnum dönsku vörnina.
Púlsinn var hærri en vanalega
- Fyrsti landsleikur Elvars var gegn heimsmeisturunum