Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 21.01.2022, Síða 36

Morgunblaðið - 21.01.2022, Síða 36
Ljósmyndahátíð Íslands hófst í síðustu viku með opnun nokkurra sýninga og verða fleiri opnaðar um helgina. Í Lista- safni Íslands verð- ur opnuð sýningin Sviðsett augna- blik með ljósmyndum úr safneign og í Hafnarborg sýn- ing Hallgerðar Hallgrímsdóttur, Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun III. hluti. Í Þjóðminjasafninu verða tvær sýningar opnaðar, Straumnes með myndum Marinós Thorlacius og sýning á ljósmyndum Vassilis Triantis, Þar sem rósir spruttu í snjó. Á dagskrá hátíðarinnar eru þrettán sýningar með erlendum og íslenskum lista- mönnum sem og fyrirlestrar, ljósmyndabókakynningar og ljósmyndarýni. Dagskrá og viðburði má kynna sér á heimasíðu hátíðarinnar, tipf.is. Hér til hliðar má sjá eina af ljósmyndum Wassilis Triantis. Þrettán sýningar á dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 21. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. „Þetta var góður leikur til að byrja á ef svo má segja. Þetta er eins stórt og það verður,“ sagði Elvar Ásgeirs- son, nýliðinn í íslenska landsliðinu í handknattleik, eftir að hafa skorað þrjú mörk í fyrsta landsleiknum á ferl- inum gegn heimsmeistaraliði Dana á Evrópumótinu í Búdapest í gærkvöld. »31 Góður leikur til að byrja á ÍÞRÓTTIR MENNING TAK- MARKAÐ MAGN FYRSTIR KOMA, FYRSTIR FÁ H Ó TE LV Ö R U R ·D ÝN U R ·S K IP TI D ÝN U R ·R Ú M ·S ÝN IS H O R N ·S Ó FA R H Ö FU Ð G A FL A R ·S M Á B O R Ð ·H Æ G IN D A ST Ó LA R & FL EI R A ! Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þorrablótum hefur verið aflýst en fólk hættir ekki að borða þorramat og hákarlinn er eftirsóttur sem fyrr. „Ég er búinn að selja allan hákarl frá mér, síðasti skammturinn fór í Fisk- búðina í Trönuhrauni í Hafnarfirði,“ segir hákarlafangarinn og verkand- inn Björgvin A. Hreinsson á Vopna- firði. „Ég veiddi og verkaði 11 há- karla á síðasta ári og það er ágætt, mér nægir að veiða tíu til fimmtán hákarla, en hver gefur um 80 kíló.“ Hreinn Björgvinsson, faðir Bjögga, stundaði hákarlaveiðar og sonurinn rann snemma á lyktina. „Ég hef verið með puttana í hákarl- inum meira og minna alla ævi, fór fyrst með föður mínum á sjó þegar ég var átta ára og tók svo við af honum þegar hann hætti.“ „Varstu ekki bara nokkurra mánaða þegar þú byrj- aðir,“ skýtur félagi hans inn í. „Haltu kjafti,“ svarar Bjöggi og heldur áfram þar sem frá var horfið. Hann hafi byrjað á tíu tonna báti og sé nú með sex tonna Sómabát. „Við erum ekki nema einn og hálfan til tvo tíma beint út á miðin. Hákarlinn er róleg- heitaskepna og aðeins þegar þessar skepnur vefja línunni utan um sig er þetta svolítið bras en annars eru þær eins og lömb sem leidd eru til slátr- unar.“ Bjöggi segir að vinnslan sé hefð- bundin. Aflinn sé skorinn og síðan kæstur í 30 til 40 daga áður en hann sé látinn hanga í tvo og hálfan til þrjá mánuði. „Þetta fer mikið eftir veðr- áttu,“ útskýrir hann og vísar til þess að mikil úrkoma geti farið illa með afurðirnar og jafnvel eyðilagt þær. Fullsnemmt að hætta Fyrir tæpum tveimur árum var Bjögga vart hugað líf í kjölfar þess að hann kramdist á milli tveggja skipa eftir að hafa lóðsað flutningaskip frá Vopnafirði 18. mars. „Annar fóturinn klipptist nær af mér og ég var fluttur í land nær dauða en lífi en fætinum og lífi mínu var bjargað,“ rifjar hann upp. „Eftir það fór allt á hliðina hjá mér og ég er svolítið að brasa við þetta ennþá en gefst ekki upp. Ég er nagli.“ Vegna slyssins var Bjöggi óvinnu- fær í eitt ár en Guðmundur Rúnar Antonsson hjálpaði honum við veið- arnar og vinnsluna í fyrra og Sigur- björn, sonur Bjögga, var líka með honum á strandveiðunum. „Þeir og Þorsteinn B. ásamt föður mínum hafa verið helstu hjálparhellur mínar og hafnarverðirnir Lárus og Kristinn hafa ekki heldur látið sitt eftir liggja.“ Þeir veiddu hákarlana í mars og apríl, síðan var farið á grásleppu og eftir að hafa verið á strandveiðum fékk Björgvin mikla sýkingu í fótinn, var fjóra sólarhringa á gjörgæslu og tvær vikur á lyflækningadeild. „Aftur var ég nær dauða en lífi, var rannsakaður í bak og fyrir og þá fundu þeir í mér krabbamein. Ég er því svolítið að brasa í því núna, en þetta hefst allt með góðra manna hjálp. Þetta er hundvont og sárt, en ég er bara 57 ára gamall og mér finnst fullsnemmt að leggja árar í bát.“ Bjöggi segir að almennt sé frekar rólegt hjá þeim á veturna. „Ég hef verið í læknastússi í vetur en svo er ég að dunda við að yfirfara hákarla- línurnar og grásleppunetin og gera okkur klára til að fara á næstu vertíð, dytta að því sem þarf að dytta að. Vonandi getum við byrjað að leggja hákarlalínurnar um mánaðamótin febrúar og mars en það fer eftir tíð- inni.“ Naglinn gefst ekki upp - Áfall á áfall ofan en Björgvin ánægður með hákarlaveiðina Morgunblaðið/Jón Sigurðarson Hákarl Hreinn Björgvinsson og Björgvin sonur hans landa einum vænum. Á veiðum Bjöggi kann réttu tökin og kom með 11 stykki að landi í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.