Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.03.2022, Blaðsíða 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.3. 2022
w w w. i t r. i s
S ý num hver t ö ð r u tilli t s s emi
S
íðastliðinn mánudag var greint
frá áformum mínum um að Ís-
land opni sendiráð í Póllandi.
Ákvörðuninni hefur verið ákaflega vel
tekið enda er djúpstæður skilningur á
því hér á landi að vináttutengsl Ís-
lands og Póllands eru mjög mikilvæg
og dýrmæt. Ákvörðunin um stofnun
sendiráðsins er einnig rökrétt í ljósi
þess að Pólland starfrækir sendiráð
hér á landi og er sú regla almennt í
gildi að gagnkvæmni sé í rekstri send-
iskrifstofa. Þess vegna er eðlilegt og
tímabært að taka það skref að opna
sendiráð Íslands í Varsjá.
Skylda sem fylgir fullveldi
Rekstur sendiskrifstofa í erlendum
ríkjum og þátttaka í starfi al-
þjóðastofnana er skylda sem fylgir
því að vera fullvalda þjóð og að eiga
sinn stað meðal þjóða heims. Á und-
anförnum árum hefur ítrekað komið í
ljós hversu mikils-
vert það er fyrir
Ísland að eiga öfl-
ug sendiráð. Þetta
var ekki síst dýr-
mætt í gegnum
faraldurinn þar
sem mikið reyndi á
að geta veitt ís-
lenskum ríkisborg-
urum stuðning. Til viðbótar við þjón-
ustu við íslenska ríkisborgara gegna
sendiráð Íslands mikilvægu hlutverki
í tengslum við pólitíska, menningar-
lega og viðskiptalega hagsmuni. Öll
þessi hlutverk eru þess eðlis að mik-
ilvægt er að byggja upp þekkingu,
sterk sambönd og tengsl bæði við
stofnanir og einstaklinga sem skipt
geta máli þegar á reynir. Í þeim efn-
um skiptir máli að hafa hugfast að
tengslin og þekkingin þurfa að vera
þegar til staðar og ekki dugir að
reyna að koma þeim á fót þegar hent-
ar; ekki frekar en mögulegt er að
kaupa tryggingu eftir að tjónið er
orðið.
Því miður eru horfur í alþjóða-
málum þessi misserin verri en verið
hefur um langa hríð. Fyrir utan
stríðsrekstur Rússa í Úkraínu má
nefna að enn glímir heimurinn við
margvísleg eftirköst heimsfaraldurs
kórónuveirunnar og þeirra marghátt-
uðu truflana sem urðu af hans völd-
um. Pólitísk samskipti ríkja eru því
að mörgu leyti flóknari en þau voru
fyrir einungis örfáum árum. Í marg-
slungnari veröld þarf sjálfstæð þjóð
að kunna að fóta sig af eigin ramm-
leik og gæta að því að byggja upp
skilning og tengsl sem hægt er að
reiða sig á.
Í menningarlegu tilliti getur rekst-
ur öflugra sendiskrifstofa skipt miklu
máli. Í venjulegu árferði fara fram
hundruð viðburða um heim allan þar
sem sendiskrifstofur Íslands eiga
þátt í að koma íslenskri menningu á
framfæri. Áætlað er að fjöldi slíkra
viðburða á þessu ári verði á annað
hundrað og er þá ótalin margvíslegur
annar stuðningur sendiráða við ís-
lenska menningu. Þetta er mikilvægt
hlutverk fyrir fámenna þjóð sem þó
hefur mikið fram að færa á sviði
menningar og listar.
Hvað varðar viðskiptahagsmuni Ís-
lands er mikilvægi utanríkisþjónust-
unnar ótvírætt. Ísland er lítið og opið
hagkerfi. Það er í eðli slíkra hagkerfa
að treysta mjög á alþjóðleg viðskipti.
Það er því ekki óeðlilegt að viðskipta-
mál séu eitt helsta viðfangsefni utan-
ríkisþjónustunnar. Það er nefnilega
varla hægt að tala lengur um innan-
landsmarkað og útlandamarkað í ís-
lensku atvinnulífi. Ísland er í nánast
öllum skilningi hluti af alþjóðlegu við-
skiptaumhverfi. Þetta þýðir að það
skiptir höfuðmáli fyrir efnahagslega
hagsmuni Íslands
að tryggt sé að ís-
lensk framleiðsla
og íslenskt hugvit
hafi sem bestan
aðgang að stórum
markaði. Í þessum
efnum skipta góð
gagnkvæm sam-
skipti við önnur
lönd miklu, en einna mest á Ísland þó
undir öflugum og skilvirkum alþjóð-
legum stofnunum og góðum við-
skiptasamningum. Hvað slíkt al-
þjóðlegt samstarf varðar er ljóst að
mikilvægt er að forgangsraða og að
fjárfesta skynsamlega.
Fjölhæfni og viðbragðsflýtir
Þegar kemur að því að reka utanrík-
isþjónustu er ljóst að Ísland á ekki að
fara í felur með þá staðreynd að við
erum fámenn þjóð. Ísland þarf ekki
að keppast um að hafa sambærilegan
íburð og umstang eins og gjarnan
einkennir utanríkisþjónustur stærri
þjóða. Þvert á móti á það að vera
keppikefli Íslands að sýna fram á
hagkvæmni og útsjónarsemi í öllum
rekstri. Verkefnin sjálf og hagsmunir
Íslands eiga að vera ráðandi í fjár-
festingu og nálgun Íslendinga þegar
kemur að rekstri sendiskrifstofa er-
lendis. Víða um heim vekur fjölhæfni
og viðbragðsflýtir íslenskrar utanrík-
isþjónstu athygli. Það á að vera metn-
aður okkar að viðhalda því orðspori
og efla það. Þannig nýtum við best þá
orku og fjármuni sem við verjum í hið
mikilvæga starf sem utanríkisþjón-
ustunni er falið.
AFP/Wojtek Radwanski
Mikilvægi sterkrar
utanríkisþjónustu
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@althingi.is
’
Víða um heim vekur
fjölhæfni og við-
bragðsflýtir íslenskrar
utanríkisþjónstu athygli.
Það á að vera metnaður
okkar að viðhalda því
orðspori og efla það.
Samstöðufundur með Úkraínu í
Varsjá. Til stendur að opna íslenskt
sendiráð í höfuðborg Póllands.