Morgunblaðið - 25.03.2022, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022
Sjálfstæði og fullveldi
- nýjar áskoranir!
Laugardaginn 26. mars, kl. 10:30, stendur
félag Sjálfstæðismanna um fullveldismál fyrir
málþingi í Valhöll til minningar um Styrmi
Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóra.
Frummælendur:
Léttar veitingar og allir velkomnir!
Nánar á xd.is
Halldór Blöndal
Viðar Guðjohnsen
Jón Magnússon
Friðrik Hirst
Þór Whitehead
Arnar Þór Jónsson
Diljá Mist Einarsdóttir
Fimmtudagur 24. mars
Karine í Karkív
Í dag langar mig að skrifa um mat. Þann 24. febrúar, daginn þegar
stríðið hófst, áttum við engan sparnað og litlar matarbirgðir. Við áttum
þetta hefðbundna í eldhússkápnum og ísskápnum og eitthvað af dýramat
fyrir páfagaukinn okkar og hundinn.
Klukkan 5 að morgni þennan dag heyrðum við fyrstu stórskotaspreng-
ingarnar og sáum leiftur af sprengjum. Fljótlega áttuðum við okkur á að
innrás Rússa væri hafin og sáum stórskotaliðsárás þeirra á Tsjúgúív. Við
vissum að Rússar gætu ráðist á Úkraínu eftir stríðið 2014, en okkur hafði
ekki dottið í hug að árásin yrði svona yfirgengileg.
Fólk fór strax að kaupa mat og taka út peninga úr hraðbönkum. Eig-
inmaður minn keypti eitthvað af nauðsynjavörum og nágranni okkar
hjálpaði okkur og gaf okkur kartöflur sem ég notaði í dumplings, en
kartöfludumplings (vareniks) er sígildur réttur í Úkraínu. Þá gerði ég
einnig laukböku og úkraínska rauðrófusúpu (borscht).
Ég á kefirgeril sem getur búið til kefir úr mjólk og stundum bý ég til
ost úr þessum heimagerða kefir. Gerillinn þarf daglega að fá mjólk og
þess vegna er mjög mikilvægt fyrir okkur að geta fengið reglulega mjólk.
Sem betur fer er gerillinn enn á lífi og heldur áfram að vaxa.
Ég drekk daglega kaffi sem ég geri í koparpotti (cezve) og sem betur
fer áttum við smá lager af kaffibaunum heima þegar stríðið hófst, en ég
vil mala kaffið sjálf.
Á morgnana vill eiginmaður minn helst borða eggjahræru og steiktar
kartöflur. Hann og faðir hans buðu fram aðstoð sína í sjálfboðastarf, en
það felur í sér að keyra með hálftilbúinn mat til fatlaðra hér í borginni.
Fyrir þetta fá þeir reyndar auka mat sem þeir geta tekið heim, meðal
annars kjúklingaleggi, dumplinga með osti og kál.
Stórmarkaðir í borginni lokuðu í nokkra daga þegar stríðið hófst. Þeg-
ar þeir opnuðu aftur var það í skemmri tíma á hverjum degi og það ná
ekki allir íbúar að kaupa það sem þeir vilja. Úrvalið hefur líka verið tak-
markað. Undanfarið hafa minni verslanir opnað að nýju. Sterkt áfengi
hefur ekki verið selt síðasta mánuðinn, en bjór er hins vegar á tilboði. Ég
viðurkenni að eldamennskan er eins konar streitumeðferð í þessu ástandi.
Því miður hafa ekki allir íbúar möguleika á að elda heima hjá sér. Um
þúsund heimili hafa verið eyðilögð hér í Karkív og margir hafast við í
kjöllurum eða sprengjubyrgjum. Fjölmargir sjálfboðaliðar aðstoða þá
sem eru í slíkum aðstæðum með að undirbúa, elda og svo dreifa til þeirra
mat.
Eldamennskan
er eins konar
streitumeðferð
Raddir frá Úkraínu Morgunblaðið og mbl.is
birta dagbókarfærslur fólks frá Úkraínu þar
sem það lýsir daglegu lífi eftir innrás Rússa
og hvernig líf þess hefur breyst.
Matarbirgðir af skornum skammti
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við búumst við því að þurfa að veita
mörgum sem koma hingað sálrænan
stuðning. Við erum þegar farin að
hugsa til framtíðar og ef margir sem
hingað koma setjast hér að þurfum við
að gefa vel í okkar félagslega starf,“
segir Brynhildur Bolladóttir, upplýs-
ingafulltrúi Rauða krossins á Íslandi.
Margt flóttafólk frá Úkraínu hefur
komið hingað til lands síðustu vikur
eftir að innrás Rússa hófst í landið.
Margir hafa lagt hönd á plóg við mót-
töku þessa fólks. Miðstöð hefur verið
sett á fót í Guðrúnartúni, Rauði kross-
inn og fleiri samtök hafa efnt til safn-
ana og eftir helgi verður opnuð mót-
tökustöð í Domus Medica-húsinu við
Egilsgötu svo fátt eitt sé nefnt.
Brynhildur segir að Rauði krossinn
hafi verið með fataúthlutun og sé til
taks og geti opnað fjöldahjálparstöð ef
mikill fjöldi kemur í einu. Hún segir að
flóttafólkið frá Úkraínu sé í annarri
stöðu en hefðbundnir skjólstæðingar
samtakanna enda fari það ekki í hefð-
bundna hælismeðferð. „Það eru mjög
margir sem búast við að komast fljótt
aftur heim og eru því kannski bara að
bíða. Auðvitað eru allir að bíða eftir að
þessari krísu ljúki sem fyrst en það
veit enginn hvenær það verður. Við
hjá Rauða krossinum erum kannski
meira í langtímaverkefnum og því hef-
ur verið frábært að horfa upp á fram-
takið í Guðrúnartúni. Það gefur fólki
afskaplega mikið að geta komið saman
og talað saman.“
Tilkynnt var í gær að fyrstu 20
flóttamennirnir frá Úkraínu hafi ís-
lenska sjúkratryggingu og þar með
fullan rétt til greiðsluþátttöku hins op-
inbera í nauðsynlegri heilbrigðisþjón-
ustu. „Móttaka þessa flóttafólks er
stórt verkefni fyrir samfélagið í heild,
ekki síst heilbrigðiskerfið. Við höfum
lagt kapp á að tryggja skjóta af-
greiðslu þannig að þessi viðkvæmi
hópur geti haft greitt aðgengi að heil-
brigðisþjónustu, enda má reikna með
að margir innan hópsins séu í brýnni
þörf fyrir ýmiss konar aðstoð,“ er haft
eftir Maríu Heimisdóttur, forstjóra
Sjúkratrygginga Íslands, í tilkynn-
ingu.
Sjúkratryggingar verða með full-
trúa í miðstöð fyrir móttöku flótta-
manna í Domus Medica sem geta gefið
upplýsingar um afgreiðslu hjálpar-
tækja og lyfjakorta, greiðsluþátttöku í
heilbrigðisþjónustu og fleira.
Morgunblaðið/Eggert
Undirbúningur Iðnaðarmenn voru að leggja lokahönd á frágang í Domus Medica í gær. Þar verður miðstöð fyrir
móttöku flóttamanna frá Úkraínu opnuð eftir helgina. Fyrstu 20 flóttamennirnir hafa nú fengið sjúkratryggingu.
Bjóða flóttafólkinu
sálrænan stuðning
- Margir leggja hönd á plóg - 20 fengu sjúkratryggingu
Kosning til stjórnar Starfsgreina-
sambands Íslands (SGS) fer fram á
þingi sambandsins á Akureyri í dag.
Samkvæmt Flosa Eiríkssyni, fram-
kvæmdastjóra SGS, er mikil spenna
fyrir kosningunum. Hann vonast til
að allir gangi sáttir frá þinginu í dag
er niðurstöður verða ljósar.
„Það er spennandi að fara að
kjósa hér forystu. Björn [Snæbjörns-
son] er búinn að sitja óumdeildur í
tólf ár og hefur verið sjálfkjörinn öll
þau ár. Svo þetta eru miklar breyt-
ingar. Auðvitað sækja menn þessar
kosningar fast, eins og á að vera.
Það er öllum stórum hreyfingum
hollt að takast á um menn og mál-
efni. Svo verðum við klukkan tólf á
morgun býsna sammála um allt og
förum saman í þetta,“ sagði Flosi við
Morgunblaðið í gær.
Tveir vilja formannsembættið
Kosning til formanns fer fyrst
fram og hefst klukkan hálfellefu.
Tveir hafa gefið kost á sér, þeir Vil-
hjálmur Birgisson, formaður Verka-
lýðsfélags Akraness, og Þórarinn G.
Sverrisson, formaður Öldunnar
stéttarfélags. Framboðsfrestur renn-
ur ekki út fyrr en stuttu áður en
gengið er til kosninga og geta því
nýir frambjóðendur enn bæst við
hópinn.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er mikil undiralda á þinginu
og skiptast þingfulltrúar í tvær fylk-
ingar. Óhætt er að segja að mikil
átök hafa átt sér stað innan verka-
lýðshreyfingarinnar síðustu mánuði.
Það sást einna best í nýyfirstöðnu
formannskjöri Eflingar, en Sólveig
Anna Jónsdóttir, fyrrverandi og
verðandi formaður stéttarfélagsins
Eflingar, er meðal annars stödd á
þinginu. Hún hefur gefið út að hún
styðji Vilhjálm til formanns.
Spenna fyrir
kosningum SGS
- Þingfulltrúar skiptist í tvær fylkingar
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Kosningar Alls hafa 135 þing-
fulltrúar atkvæðisrétt á þinginu.
Stríð í Evrópu