Morgunblaðið - 25.03.2022, Side 11

Morgunblaðið - 25.03.2022, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 Hlýtt og notalegt Þinn dagur, þín áskorun 100% Merino ullarnærföt fyrir dömur og herra Stærðir: S–XXL Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is OLYMPIA Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: 11-18 virka daga 12-15 laugardaga. www.spennandi-fashion.is SKÓDAGAR 20% AFSLÁTTUR AF SKÓM - GILDIR ÚT 26.MARS Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu versl- unum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunar- ferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/- veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is info@transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGAR MIÐALDA- BORGIR Í EVRÓPU Saga Rómar spannar yfir 2800 ár, borg sem óx úr litlu ítölsku þorpi á 9. öld f. Krist yfir í að vera höfuðborg heimsveldis á tímum Rómverja. Í dag er Róm höfuð- borg Ítalíu, menningarleg miðstöð, stórborg á heims- vísu og er fremst í flokki þeirra borga sem þykja einna hvað fallegastar frá fornum og horfnum heimi. Þar finnur þú allt fyrir ferðamanninn. Róm er einstakur vettvangur mikillar sögu, menningar og lista er einnig borg sem iðar af fjölskrúðugu og litríku mannlífi. Sælureitur góðrar matseldar og frábærra vína með veitinga- og kaffihús á hverju horni. Stórkostlegar byggingar príða þessa glæsilegu borg sem unun er að skoða á tveimur jafnfljótum. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kasta- linn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI RÓM TALLINN EISTLANDI NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Budapest, Prag Gdansk, Krakow,Varsjá, Bratislava,Wroclaw St. Pétursborg,Vínar- borg, Napolí,Mílanó Feneyjar og Brugge Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borgarinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO. Vegagerðin hefur boðið út endur- gerð tæplega 5 kílómetra kafla á veginum um Mikladal, á milli Pat- reksfjarðar og Tálknafjarðar. „Við þurfum að halda vegakerfinu gang- andi þangað til jarðgöng koma,“ segir Pálmi Þór Sævarsson, svæð- isstjóri Vegagerðarinnar. Bíldudalsvegur frá Patreksfirði og upp brekkuna upp á Mikladal fór illa í umhleypingum fyrir fáum árum og ekki hefur verið hægt að koma honum í lag. Þetta er gamall vegur og undirlagið lélegt. Mikil umferð þungra vöruflutningabíla er um veginn, meðal annars með lax til útflutnings. Hefur Vegagerðin ekki treyst sér til að styrkja veg- inn. Því er vegurinn undirbyggður upp á nýtt í núverandi vegstæði og breikkaður. Verkið verður unnið í tveimur áföngum, í sumar og næsta sumar. Pálmi Þór segir að þetta sé nokkuð mikil framkvæmd og erfið vegna þess að unnið sé í vegstæð- inu með umferð- ina á allan tím- ann. Tryggja þurfi að hægt sé að komast þarna um á fram- kvæmdatíman- um, ekki síst með vörur. Aðeins versti kaflinn er tekinn fyrir í þessu verki. Pálmi segir að heildarverkið sé mun stærra ef litið er til alls vegarins um Mikladal og fjallveg- inn Hálfdán. Þeim hlutum vegarins þurfi einnig að halda í lagi. Hugmyndir hafa verið uppi um að grafa göng undir Mikladal og Hálfdán. Spurður hvort lagfæring vegarins útiloki þá framkvæmd segir Pálmi Þór að það hafi ekkert með gangaumræðuna að gera. Ekki sé hægt að vera með ónýtan veg á meðan beðið er eftir jarðgöngum. helgi@mbl.is Ónýtur vegur endurbyggður - Vegabætur á Mikladal í Patreksfirði Patró Vegirnir eru lífæðin. Landeigendur við Skorradalsvatn eru ósáttir við það hvernig Orka náttúrunnar stýrir vatnsmiðlun úr Skorradalsvatni. Gagnrýna þeir að ekki hafi verið farið að hleypa vatni í gegnum stífluna þrátt fyrir spá um rigningar og hlýindi og þess vegna geti stefnt í óefni. Skorradalsvatn er notað til vatns- miðlunar fyrir Andakílsárvirkjun sem Orka náttúrunnar rekur. Pétur Davíðsson, bóndi á Grund í Skorradal, sagði síðdegis í gær að vatnborðið væri að nálgast 62,50 metra yfir sjávarmáli. Það sé ná- lægt því hámarki sem Orka náttúr- unnar telji heimilt en langt yfir þau mörk sem landeigendur telji eðli- legt og heimilt. Ekki lækki í vatn- inu þótt loksins sé búið að opna fyr- ir alla loka. Það hafi raunar verið gert allt of seint því nauðsynlegt sé að hafa borð fyrir báru þegar von sé á rigningum og leysingum. Nóg- ur sé snjórinn í hlíðunum og Skarðsheiði. Segir Pétur að það hjálpi að vatn- ið sé á ís en að því komi að hann brotni upp og ef það gerði suðaust- an hvassviðri myndi ísinn og aldan ganga á land, skera bakkana og valda landbroti. Pétur segir að starfsmenn Orku náttúrunnar opni lokana aldrei fyrr en of seint og missi gjarnan stjórn á atburðarásinni. Gífurlegt landbrot hafi orðið á rekstrartíma virkjunar- innar. helgi@mbl.is Ekki haft borð fyrir báru - Bóndi gagnrýnir Orku náttúrunnar fyrir að hleypa ekki úr Skorradalsvatni þótt von sé á rigningu og leysingum Ljósmynd/Pétur Davíðsson Skorradalsvatn Þegar ísinn brotnar getur hann skorið vatnsbakkana og valdið landeyðingu. Hætta er talin á að það gerist á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.