Morgunblaðið - 25.03.2022, Síða 15

Morgunblaðið - 25.03.2022, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 Fjallabyggð Staðsetning, helstu staðreyndir og kosningaúrslit Úrslit í síðustu sveitarstjórnarkosningum Kosið var 26. maí 2018 Kjörskrá: Atkvæði: Kjörsókn: 1.578 1.251 79% I H ÍBÚAR 1.966 AFGANGUR* -56 m.kr. HEILDARSKULDIR* 2.111 m.kr. SKULDAHLUTFALL** 2021: 66,8% 2024: 62,1% KYNJASKIPTING ALDURSSKIPTING ÍBÚAR 18 ÁRA & ELDRI 1.588 FLATARMÁL 364 km² 50% Karlar Konur 50% Í bæjarstjórn er meirihluti Sjálfstæðisflokks og I-lista Forseti sveitarstjórnar: Helga Helgadóttir (D) Formaður bæjarráðs: Sigríður Guðrún Hauksdóttir (D) *Áætlanir um A- og B-hluta 2022 **Áætlanir um A- og B hluta. 0 100 200 300 400 500 600 > 7051-7031-5018-30< 18 ■ D Sjálfstæðisflokkur 44,8% 3 ■ H Fyrir heildina 30,8% 2 ■ I Betri Fjallabyggðar 24,4% 2 Siglufjörður● Ólafsfjörður● Fljóta- vík Eyjafjörður H éð in sfj ör ðu r Hrísey Tröllaskagi Hólsfjall Siglunes- múli Víkur- byrða Ólafs- fjarðar- múli Fjallabyggð varð til með sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar 2006, en fyrirhuguð Héðinsfjarðargöng voru forsenda hennar og hafa hnýtt byggðarlögin saman, þó enn séu þau ummargt afmörkuð. Helstu atvinnuvegir eru sjávarútvegur og fiskvinnsla, ferðaþjónusta og önnur þjónusta, auk þess nýsköpun og fjarvinna hefur rutt sér rúms, DAGMÁL Andrés Magnússon Stefán Einar Stefánsson Í bæjarstjórn Fjallabyggðar sitja nú fulltrúar þriggja framboða, en enn er ekki að fullu ljóst hvaða listar verða boðnir fram í vor. Þar eru sjálfstæð- ismenn og fulltrúar I-listans, Betri Fjallabyggðar, í meirihluta en í minnihluta sitja bæjarfulltrúar H- listans, Fyrir heildina. Það er þó ekki svo að aðeins Sjálfstæðisflokkurinn sé þekkt stærð utan Fjallabyggðar. Til nánari staðsetningar í hinu póli- tíska litrófi kemur fólkið í H- listanum mikið úr röðum Fram- sóknar, Vinstri grænna og óháðra, en eins eru margir I-listamenn stuðningsfólk Samfylkingar og Við- reisnar. Eins og víðar hefur á ýmsu gengið í bæjarpólitíkinni, ekki endilega með hávaða og látum, heldur kannski frekar af gangi lífsins, fólk flytur úr plássinu eða þarf að hverfa úr bæj- arstjórn af öðrum ástæðum, svo það hefur eilítið kvarnast úr hópnum og nýtt fólk, neðar af lista hefur færst upp, jafnvelmiklu neðar, þar sem ekki er gefið að næsta manni á lista sé fært að taka sæti í bæjarstjórn vegna starfa eða annarra aðstæðna. Það getur svo einnig kallað á flókna jafnvægislist í sveitarfélagi eins og Fjallabyggð, sameinuðu sveitarfélagi Ólafsfjarðar og Siglu- fjarðar — tveggja plássa af ámóta stærð —þar sem nær að tala um bæjapólitík en bæjarpólitík. Eins og meðal annars má sjá af því að þrátt fyrir að brátt séu 16 ár síðan hið nýja, sameinaða sveitarfélag varð til, þá notast það enn við tvö skjald- armerki, heldur bæjarstjórnafundi til skiptis á Siglufirði og í Ólafsfirði, og talsverður munur er á þessum tveimur þéttbýliskjörnum hvorum sínu megin við Héðinsfjarðargöng. Þeir Jón Valgeir Baldursson af H-lista og Tómas Atli Einarsson á D-lista sjálfstæðismanna hittu blaðamenn Morgunblaðsins til þess að fara yfir ástand og horfur í póli- tíkinni þar í kosningahlaðvarpi Dagmála, sem birt er í dag. Sameiningin stendur enn yfir Tómas segir að skjaldarmerkin tvö séu táknræn um margt, m.a. það að samþætting sveitarfélagsins standi enn yfir og það sé meira en einn fjörður, sem skilji þétt- býliskjarnana að. „Þetta eru ólíkir bæir um margt, en á Siglufirði hef- ur verið mikil uppbygging fyrir ein- staklingsframtak [Róberts Guð- finnssonar], sem er alveg stórkostlegt, en við [Ólafsfirðingar] höfum svolítið setið eftir í því. Við sjáum raunar vísi að slíku ein- staklingsframtaki nú þegar það er að koma á styrjueldi í bæinn og von- andi að það verði farsælt, vaxi og dafni.“ Jón Valgeir, sem einnig býr Ólafsfjarðarmegin, tekur undir orð Tómasar um þetta, en telur að þótt sameiningin hafi tekið langan tíma, þá muni hún takast. „Ég hef fulla trú á því að þegar næsta kynslóð kemur inn í pólitíkina og atvinnu- lífið þá klárist þessi sameining.“ Hann bendir á að samgangur yngri kynslóðanna sé mun meiri en hjá hinum fyrri, þær hafi gengið saman í skóla, þekkist og umgangist. Eldra fólkið hafi alist upp hvort á sínum staðnum. Atvinnumálin efst á baugi Þeir félagar nefna ýmis vandasöm viðfangsefni sveitarfélagsins, sem raunar eru mörg sameiginleg vel- flestum sveitarfélögum, svo sem hús- næðismál, fjármögnun vegna mál- efna fatlaðra og þar fram eftir götum. Eftir sem áður verði það atv- vinnulífið sem sé grundvöllur hins. Þar hafi margt gengið vel og annað standi til bóta. „Þar standa sam- gönguerfiðleikar okkur fyrir þrif- um,“ segir Jón Valgeir og bætir við að afhendingaröryggi á raforku geri illt verra að því leyti. Tómas samsinnir þessu og telur ýmsa möguleika blasa við. Þar geti aðrar breytingar haft sitt að segja og nefnir t.d. menntaskólann, sem orðið hafi til þess að sveitarfélaginu haldist betur á unga fólkinu. Þeir nefna þó að til viðbótar mætti huga að iðn- og verknámi, sem styrkt gæti svæðið enn frekar. Fjármál sveitarfélagsins eru ágæt þegar horft er til skuldastöðu, en Tómas segir að því sé ekki að neita að reksturinn sé býsna þungur. Launakostnaðurinn sé farinn að síga verulega í og það kalli á aukna út- sjónarsemi og aðhald. Þeir segja það bíða kosningabar- áttunnar hvar mest beri á milli í stefnu framboðanna, en Jón Valgeir nefnir að í bæjarstjórninni náist jafn- an að semja um helstu mál. Tómas er alls ósmeykur, segir stöðu flokksins sterka og hann sé í raun eina stjórn- málaaflið á staðnum. Kjósendur vilji vafalaust halda áfram á þeirri réttu braut, sem hann hafi markað. Sameining Fjallabyggðar klárast með næstu kynslóð - Frambjóðendur fara yfir stöðuna í kosningahlaðvarpi Morgunblaðið/Brynjólfur Löve Fjallabyggð Jón Valgeir Baldursson á H-lista og Tómas Einarsson í Sjálfstæðisflokki í kosningahlaðvarpi Dagmála.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.