Morgunblaðið - 25.03.2022, Page 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022
hjólaverslunin Berlín hefur verið
starfrækt þarna undanfarin ár.
Í frumathugun sem fylgdi fyrir-
spurninni kemur fram að lóðin sé í
dag 1.910 fermetrar en lagt er til að
breyta lóðarmörkum svo hún
stækki í 3.837 fermetra.
Samkvæmt frumathuguninni var
gert ráð fyrir að byggingarnar yrðu
þrjár, hæst sjö hæðir. Þær yrðu
samtals 7.824 fermetrar með
geymslum. Íbúðirnar yrðu 81 tals-
ins, þar af 37 tveggja herbergja.
Bílageymsla yrði 1.985 fermetrar.
Skipulagsfulltrúi vísaði fyrir-
spurninni til umsagnar verkefnis-
stjóra. Það var niðurstaða hans að
fallast ekki á tillögur umsækjanda
er varðar breytta landsnotkun lóð-
arinnar úr verslun og þjónusu í
íbúðabyggð. Þá leggst hann gegn
hugmyndum hönnuða um umtals-
verða stækkun lóðar, þ.e. spildur í
borgarlandi umhverfis lóð verði
hluti af henni. Þá er ekki fallist á
áform um inn- og útakstur í bíla-
kjallara frá Háaleitisbraut.
Þá segir verkefnisstjórinn í um-
sögninni að draga þurfi verulega úr
byggingamagni og hæð nýbygginga
enda virðist byggingamagn fljótt á
litið vera u.þ.b. 50% of mikið.
Lækka þurfi nýbyggingar um allt
að helming.
Verkefnisstjórinn telur það síður
þjóna hagsmunum borgarinnar og
borgarumhverfisins næst reitnum
að breyta landnotkun lóðarinnar
yfir í einhliða íbúðabyggð. Reit-
urinn sé vissulega nokkuð snúinn á
þann hátt að hann er knappur og
þröngur út við Háaleitisbraut.
Verslun og þjónusta á jarðhæð með
ríflegri salarhæð (mögulega með
millilofti) mót Háaleitisbraut væri
áhugaverð leið til að draga inn líf á
jarðhæðina og tengja við nýjar
íbúðir á efri hæðum og næsta um-
hverfi.
Uppbygging á mörgum lóðum
„Skipulagsyfirvöld í Reykjavík
horfa með nokkurri eftirvæntingu
til uppbyggingar á þéttingarreitum
í borginni sem eru jafnan nefndir
bensínafgreiðslulóðirnar skv. ný-
legu samkomulagi við félög sem
hafa starfrækt bensínsölu og
tengda þjónustu á lóðunum til ára-
tuga. Lóðirnar eru oftar en ekki
staðsettar á áberandi stöðum í
borgarlandinu við stærri umferð-
aræðar á við Háaleitisbraut þar sem
sýnileiki væntanlegra íbúðabygg-
inga verður ríkjandi í borgar-
innréttingunni steinsnar frá einni
fjölförnustu umferðargötu landsins,
Kringlumýrarbraut. Skipulagt sam-
býli verslana og þjónustu á jarð-
hæðum og íbúða á efri hæðum innan
sama reits er þegar til staðar á
nokkrum stöðum í borginni sem
hverfis- og nærþjónustukjarnar.
Það verður áhugavert að sjá slík
sambýli rísa með fleiri íbúðum inn-
an slíkra reita,“ segir verkefnis-
stjórinn m.a. í umsögn sinni, sem
skipulagsfulltrúinn samþykkti.
Lægri hús á lóð bensínstöðvar
- Skipulagsfulltrúi féllst ekki á ósk Atlantsolíu um stór fjölbýlishús við Háaleitisbraut - Telur bygg-
ingamagn vera 50% of mikið - Horfa með eftirvæntingu til uppbyggingar á bensínstöðvareitum
Tölvumynd/Teiknisofan Tröð
Háaleitisbraut 12 Hugmynd arkitekta að húsum á lóð bensínstöðvar. Í baksýn eru hús við Álftamýri/Safamýri.
Morgunblaðið/sisi
Bensínstöðin Atlantsolía rekur þar sjálfsafgreiðslustöð. Um árabil rak Olís
bensínstöð á lóðinni. Í stöðvarhúsinu er reiðhjólaverslun starfandi í dag.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur
hafnað ósk Atlantsolíu um að reisa
jafn stór fjölbýlishús á lóð fyrir-
tækisins á Háaleitisbraut 12 og ósk-
að var eftir. Þar er núna bensínstöð,
sem til stendur að loka. Var það nið-
urstaða skipulagsfulltrúans að fyr-
irhuguð uppbygging á lóðinni væri
of umfangsmikil.
Borgarráð samþykkti í fyrrasum-
ar samninga við þrjú stór olíufélög
um þriðjungsfækkun bensínstöðva í
Reykjavík á næstu árum. Í stað
bensínstöðva komi íbúðir og
hverfistengd þjónusta á allmörgum
þéttingarreitum í borginni. Reit-
urinn við Háaleitisbraut er sá fyrsti
sem kemur til afgreiðslu hjá
Reykjavíkurborg og kann af-
greiðsla skipulagsfulltrúans að gefa
vísbendingar um það hvernig borg-
in hyggst standa að málum varðandi
þessa þéttingarreiti í framtíðinni.
Eignuðust lóðina árið 2018
Eins og fram kom í frétt Morgun-
blaðsins í október í fyrra hefur Atl-
antsolía verið í viðræðum við
Reykjavíkurborg um að loka bens-
ínstöð fyrirtækisins við Háaleitis-
braut 12. Áformar Atlantsolía að
fjarlægja stöðina og breyta notkun
lóðarinnar í íbúðabyggð.
Atlantsolía keypti stöðina við
Háaleitisbraut í desember 2018 af
Olís, sem þurfti að selja fimm bens-
ínstöðvar sínar vegna sameiningar
við Haga. Með kaupunum fylgdu
meðal annars fasteignir, lóða- og
aðstöðusamningar.
Á fundi skipulagsfulltrúa í októ-
ber s. var lögð fram fyrirspurn
varðandi breytingu á deiliskipulagi
Safamýrar-Álftamýrar vegna lóð-
arinnar nr. 12 við Háaleitisbraut
sem fólst í stækkun lóðar, breytingu
á notkun í íbúðabyggð og uppbygg-
ingu, samkvæmt tillögu Teiknistof-
unnar Traðar. Í dag er þar rekin
sjálfsafgreiðslustöð fyrir bensín og
Frá Faxaflóahöfnum til RARIK
Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Faxaflóahafna, hefur
verið ráðinn í starf forstjóra RARIK ohf. og tekur hann
við starfinu frá 1. maí nk. Gunnar Tryggvason, sviðs-
stjóri viðskiptasviðs Faxaflóahafna, er staðgengill for-
stjóra og mun hann tímabundið taka við starfinu frá 14.
apríl og gegna því þar til það verður auglýst að nýju í
vor. Magnús Þór hefur verið í tvö ár yfir Faxaflóa-
höfnum. Þar áður var hann hjá Alcoa-Fjarðaáli í Reyð-
arfirði, fyrst sem framkvæmdastjóri og síðar forstjóri.
Magnús Þór
Ásmundsson
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
544 5151
tímapantanir
Djúsí
andasamloka
Þín upplifun skiptir okkur máli
Kringlan ... alltaf næg bílastæði
Borðabókanir á
www.finnssonbistro.is eða
info@finnssonbistro.is
Frábær kostur í hádeginu