Morgunblaðið - 25.03.2022, Page 22

Morgunblaðið - 25.03.2022, Page 22
22 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 Gísli Freyr Valdórsson Þóroddur Bjarnason Eftir óvænta sölu Bankasýslunnar á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka á þriðjudagskvöld eru bæði stjórn- málamenn og aðilar á markaði enn að átta sig á því hvernig salan fór fram, hvort verðið fyrir hlut ríkisins hafi verið rétt og hverjir fengu að kaupa í þessari lotu. Fyrirkomulagið á sölunni kom í sjálfu sér ekki á óvart í ljósi þeirra upplýsinga sem legið hafa fyrir frá því ferlið hófst. Þegar Bjarni Bene- diktsson, fjármála- og efnahagsráð- herra, tilkynnti undir lok síðustu viku að söluferlið væri hafið á ný voru um leið birt nánari gögn og álit frá ráðuneytinu, Bankasýslunni, Seðlabankanum, efnahags- og við- skiptanefnd Alþings sem og fjárlaga- nefnd. Þá er aðferð Bankasýslunnar frá því á þriðjudag, þ.e. lokað útboð til fagfjárfesta, þekkt aðferð erlendis og framkvæmd í samráði við erlenda ráðgjafa. Einn viðmælandi á mark- aði sem Morgunblaðið ræddi við sagði að ekki mætti gleyma því að fyrirkomulagið hefði legið fyrir allan tímann enda hefði það verið hluti af tillögu Bankasýslunnar varðandi söl- una. Þá hafi engin umræða verið um fyrirkomulagið í þinginu eða í að- draganda kosninga. Þótt um lokað útboð hafi verið að ræða var heildarfjárhæð áskrifta sem bárust töluvert meiri en sú upp- hæð sem ákveðið var að selja. Við- mælandi blaðsins af markaði segir að í ljósi þess hversu mikið flökt hafi verið á mörkuðum vegna stríðsins í Úkraínu m.a. væri það meiri háttar afrek að klára útboðið á þessum tíma. Í ljósi aðstæðna hefði það því verið mjög vel heppnað. Almenningur fái að taka þátt Hann sagði að hugmyndir hefðu komið fram á undirbúningstímanum um að leyfa almenningi að kaupa hluti í beinu framhaldi, en ákveðið hefði verið að fara ekki þá leið. Það rímar við aðrar heimildir Morgun- blaðsins um að íslenskir ráðgjafar hafi ekki athugasemdir við það að útboðið færi fram með þessum hætti en þó óskuðu nokkrir þeirra eftir því að upplýst yrði hvort, hvenær og hvernig almennum fjárfestum yrði boðið að kaupa hlut í bankanum – enda er talið að mikill áhugi sé meðal almennra fjárfesta að eignast hlut í bankanum, bæði þeirra sem tóku þátt í hlutafjárútboðinu sem fram fór síðasta sumar og þeirra sem hafa áhuga að á koma nýir inn. Ekki er loku fyrir það skotið að það verði kynnt innan næstu þriggja mánaða en hvorki Bankasýslan né þeir ráð- gjafar sem vinna að málinu vilja gefa nokkuð upp um framhaldið. Ekki deilt um verðið Fyrir utan átök á vettvangi stjórn- mála er ekki gerður ágreiningur um verðið á seldum hlutum, sem var 117 kr. á hlut. Markaðsaðilar hafa bent á að þegar arðgreiðsla bankans er tek- in með í myndina hafi raunverulega verðið verið 122 kr. á hlut, sem er ná- lægt því verði sem verið hefur und- anfarið en lokagengi bankans í Kauphöllinni í gær var 124,4 kr. á hlut og hefur lítið hreyfst sl. mánuð. Aftur á móti er deilt um það hverj- ir fengu að taka þátt, því margir fag- fjárfestar líta þannig á að þeir hafi haft burði til þess að koma að fjár- festingunni. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins ríkir nokkur óánægja meðal þeirra en óvíst er hvort hægt verði að koma þeirri gagnrýni í farveg. Upplýsingar um það hvernig fjárfestar eru valdir og á hvaða forsendum þeir eru metnir hæfir liggja ekki fyrir opinberlega. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins stendur ekki til að breyta því að svo stöddu. Íslensku ráðgjafarnir vildu hleypa almenningi að borðinu Morgunblaðið/Eggert Sala Ríkið seldi 22,5% hlut í Íslandsbanka á þriðjudagskvöld fyrir um 53 milljarða króna og á nú um 42,5% hlut. - Aðilar á markaði gera ekki athugasemd við verðlagningu á bréfum í Íslandsbanka 25. mars 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.72 Sterlingspund 169.79 Kanadadalur 102.17 Dönsk króna 19.01 Norsk króna 14.664 Sænsk króna 13.596 Svissn. franki 137.7 Japanskt jen 1.066 SDR 177.49 Evra 141.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.6624 « Stríðsrekstur Rússa í Úkraínu og þær efnahagsþvinganir sem lagðar hafa ver- ið á landið í kjölfarið eru farnar að bíta á almenning í Rússlandi. Verðbólgan í Rússlandi er nú um 14,5% og hefur ekki verið hærri síðan 2015. Rúblan hefur lækkað verulega gagnvart öðrum gjald- miðlum á liðnum mánuði sem hefur þau áhrif að innfluttar hrávörur verða dýrari, sem aftur hefur áhrif á matvælaverð og aðrar neysluvörur í Rússlandi. Þannig hefur verð á sykri hækkað um 37%, en sykur er mikið notaður í Rússlandi til að varðveita matvæli og búa til áfengi. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, til- kynnti í vikunni að „óvinveittum“ þjóð- um yrði gert að greiða fyrir gas í rúbl- um, en þeirri aðgerð er ætlað að styðja við gjaldeyrinn. Um 40% af öllu gasi sem nýtt er í Evrópu kemur frá Rúss- landi en þeir samningar sem í gildi eru gera ráð fyrir greiðslum í evrum og bandaríkjadal og óljóst er hvernig þeim verður breytt með svo skömmum fyr- irvara. Ríki í Evrópu greiða á bilinu 200- 800 milljónir evra á dag, um 28-113 milljarða króna, fyrir notkun á gasi. Opnað var fyrir viðskipti í Kauphöll- inni í Moskvu í gær eftir að lokað hafði verið fyrir viðskipti í tæpan mánuð. MO- EX-hlutabréfavísitalan hækkaði um 11% strax við opnun viðskipta en það má rekja til þess að rússneska ríkið varði andvirði um 10,5 milljarða banda- ríkjadala í kaup á hlutabréfum á mark- aði. Viðskipti erlendra aðila eru bönnuð og þá hefur verið lokað fyrir skortsölu um óákveðinn tíma. Rússneska hagkerfinu er byrjað að blæða STUTT Fleiri þúsund gjafabréf seldust í Skógarböðin í Eyjafirði fyrir síðustu jól. „Við ákváðum rétt fyrir jólin að setja af stað gjafakortasölu, aðallega af því að við fengum svo mikið af fyr- irspurnum úr nærumhverfinu, sem og frá landinu öllu. Eftirspurnin reyndist langt umfram væntingar. Þúsundir gjafabréfa seldust og gaf okkur góð fyrirheit um að Skógar- böðin eigi eftir að verða vinsæll við- komustaður. Það ríkir mikil spenna og eftirvænting enda er ákveðin þörf fyrir afþreyingu af þessu tagi á svæðinu,“ segir Tinna Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri í samtali við Morgunblaðið. Leggja nótt við dag Undanfarið hafa tugir manna lagt nótt við dag við frágang baðanna en stefnt er að opnun innan fárra vikna. Opið verður til miðnættis alla daga. „Við teljum vera þörf hér á svæðinu fyrir baðstað með svo lang- an þjónustutíma. Það eru margir sem koma á skíði í Híðarfjalli og eru þar fram á kvöld. Þeim finnst þá kannski notalegt að enda daginn á því að fara í bað hjá okkur. Ferða- menn eru einnig á ferð hér um sveit- irnar og þá er gott að enda í Skógar- böðunum eftir langa útiveru yfir daginn.“ Tinna segir að einnig ríki mikil eft- irvænting hjá ferðaþjónustuaðilum og einstaklingum á leið til landsins. „Við höfum fengið fjölda fyrirspurna frá fjölskyldum sem verða hér á ferð í sumar. Margar þeirra eru þegar búnar að ákveða að Skógarböðin verði einn áfangastaður á ferðalag- inu.“ tobj@mbl.is Bað Í Skógarböðunum er hægt að baða sig, borða og fara í gufu m.a. Fleiri þúsund gjafabréf seldust - Skógarböðin opn- uð innan fárra vikna Armbandsúr er sígild fermingargjöf www.gilbert.is ARC-TIC úr Með leðuról 29.900.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.