Morgunblaðið - 25.03.2022, Page 30

Morgunblaðið - 25.03.2022, Page 30
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Það er glaðbeittur Jói sem heilsar blaðamanni. „Kokkurinn er veikur þannig að ég var einn í eldhúsinu í hádeginu,“ segir hann brosandi. Húsfyllir kom ekki í veg fyrir að hinn goðsagnakenndi veitingamaður léki listir sínar fyrir viðskiptavini en hann segir að yfir helmingur pant- ananna hafi verið pítsur og þær séu fljótgerðar. Ég veit þó betur, en það er ekkert grín að keyra hádegi einn á þétt setnum veitingastað. Það er bara fyrir lengra komna að ráða við það.“ Pítsur í sérflokki Matseðillinn samanstendur af girnilegum pastaréttum, steikum, pítsum og samlokum. Hvergi er slegin feilnóta og ítölsku áhrifin nánast áþreifanleg. Til að toppa her- legheitin er veglegur eftirréttaseðill þar sem bakarinn í Jóa fær notið sín. Að því leytinu til er Felino líka hið fullkomna kaffihús yfir daginn þar sem hægt er að koma sér fyrir í notalegu umhverfinu og gæða sér á dýrindiskaffiveitingum. Kökuúrvalið samanstendur af mörgum af þekkt- ustu tertum Jóa auk ítalskra eft- irrétta. „Svo eru það pítsurnar en ég vil meina að þær séu alveg einstakar enda gerðar úr 20 ára gömlum súr,“ segir Jói og bætir við: „Þetta er súr- inn minn sem ég þróaði fyrir tutt- ugu árum og hef fóðrað allar götur síðan og notað í mínar uppskriftir. Ég hef alltaf haldið honum við og nú nýtist hann í bakaríinu mínu hér, sem ég get nánast fullyrt að sé minnsta bakarí landsins. Við bökum allt frá grunni og pítsurnar eru al- gjörlega einstakar. Við notum ekk- ert ger og engin aukaefni. Bara hreinræktað súrdeig með dýr- indisáleggi,“ segir Jói og sjá má að hvert smáatriði er úthugsað á mat- seðlinum. Litli leynistaðurinn í Laugardalnum Mikið hefur verið að gera síðan staðurinn var opnaður og viðtök- urnar að sögn Jóa verið afar góðar. „Ég ákvað að auglýsa ekkert heldur setti ég bara inn á Instagram að ég væri búinn að opna,“ segir Jói en fylgjendur hans á samfélagsmiðl- inum eru þó fleiri en hjá meðal- áhrifavaldi. „Það má því segja að fyrstu viðskiptavinirnir mínir hafi verið instagramvinir mínir,“ segir hann brosandi en staðurinn er þétt setinn. Hægt er að bóka borð í gegnum heimasíðu veitingastað- arins og mælir Jói með því þó að alltaf sé hægt að reka inn nefið. „Það er samt betra að bóka. Við er- um til dæmis fullbókuð í kvöld,“ segir hann og ljóst er að opnun stað- arins er mikill hvalreki fyrir íbúa í nágrenninu. „Ég hef fengið nokkrar ábendingar um að það vanti allar merkingar utan á bygginguna. Það sé ekkert auðvelt að finna staðinn en mér finnst það viðeigandi. Þetta er lítil falin perla í Laugardalnum og merkingarleysið er táknrænt fyrir það,“ segir Jói enda er stað- urinn bæði lítill og heimilislegur. Gamall draumur að rætast Það má segja að Jói sé með meirapróf í faginu enda einn sá reyndasti sem við eigum. Hann sló upphaflega í gegn með mat- reiðsluþáttum sínum sem voru þeir vinsælustu hér á landi um árabil. Samnefnd bakarí nutu mikilla vin- sælda en sjálfur átti Jói sér alltaf draum um að opna lítinn ítalskan veitingastað. „Það er mjög mik- ilvægt að það komi fram að þetta er ekki ítalskur veitingastaður heldur með ítölsku ívafi,“ segir Jói og er ekkert að grínast. Þetta er Ítalía Jói Fel snúinn aftur Í Listhúsinu Laugardal hefur verið opnaður nýr veitingastaður. Maðurinn við stjórnvölinn er enginn aukvisi í bransanun enda hefur hann verið órjúfanlegur hluti af íslensku þjóðlífi í áraraðir eða allt frá því að hann sló í gegn með matreiðsluþáttum sínum á Stöð 2. Hann hefur verið fjarri góðu gamni en er nú snúinn aftur með veitingastaðinn Felino. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jói Fel Felino býður ekki bara upp á dýrindismat að hætti Jóa heldur má þar fá kökurnar sem fylgt hafa Jóa í gegnum hans feril. Ítölsk hráefni Jói leggur mikið upp úr því að nota hágæða ítölsk hráefni. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Lifandi píanótónlist öll kvöld Opnunartími Mán.–Fös. 11:30–14:30 Öll kvöld 17:00–23:00 Borðapantanir á matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.