Morgunblaðið - 25.03.2022, Side 31

Morgunblaðið - 25.03.2022, Side 31
eins og ég upplifi hana. Allt það sem mér finnst best í þeirri matargerð og gert með mínu lagi. Það sagði eitt sinn ítalskur veitingamaður við mig að það væri ekki hægt að opna ítalskan veitingastað nema á Ítalíu og því nota ég fekar þetta orð,“ seg- ir Jói. „Ég hef ferðast mikið um Ítalíu og tekið upp fjölmarga sjón- varpsþætti þar. Ég þekki ítölsk hrá- efni vel og hvernig þau eru búin til. Mig dreymdi svo alltaf um að opna lítinn veitingastað með ítölsku ívafi og nú hefur sá draumur ræst,“ segir Jói og ekki laust við að hann sé hálf- meyr en þeir sem fylgja honum á Instagram vita að hann hefur mikið tjáð sig þar um lífið og tilveruna. „Þakklæti er það sem ég upplifi hvað sterkast. Þakklæti til vina minna sem hafa staðið við bakið á mér. Þakklæti fyrir lífið. Ég fékk fyrir hjartað fyrir nokkrum vikum og ef það hefði gerst fjarri manna- byggðum væri ég ekki hér. En hér er ég og er þakklátur fyrir það. Ég er búinn að opna draumaveitinga- staðinn minn og ég er svo þakklátur fyrir það,“ segir Jói að lokum og þarf að rjúka aftur inn í eldhús. Líf veitingamannsins er stöðugur hasar en fyrir menn eins og Jóa er það í blóðinu og órjúfanlegur hluti af þeim. Truflusteik Truflupasta í rjómasósu með nautalund, parmesan og basilíku. Litli leynistaðurinn Þó að Felino sé ekki stór fer afar vel um gesti. Endurunnið Afgreiðsluborðið er klætt með vínkössum sem setja skemmtilegan svip á staðinn. Pizza Felino Pítsa með ferskum mozzarella, felino salami og ferskri basilíku. Risarækjupasta Dýrindisrisarækjupasta í hvítvínsrjómasósu. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.