Morgunblaðið - 25.03.2022, Page 33

Morgunblaðið - 25.03.2022, Page 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 ✝ Sigurður Jó- hann Ágústs- son fæddist á Sauðárkróki 7. júní 1931. Hann lést á Landspítala Landakoti í Reykjavík 11. mars 2022. Foreldrar Sig- urðar voru Rögn- valdur Ágúst Hreggviðsson, bryggjusmiður og verkstjóri á Sauðárkróki, f. á stað í Reyk- hólasveit 16. maí 1888, d. 5. nóvember 1970, og Sigurrós Jóhanna Sigurðardóttir hús- freyja, f. 26. ágúst 1894 í Húnavatnssýslu, d. 4. janúar 1978. Sigurður var eina barn for- eldra sinna, en átti átta hálf- systkini. Eiginkona Sigurðar var Lára Jóhannsdóttir, húsmóðir og sjúkraliði, f. á Hofsósi 7. f. 1956, kvæntur Jovinu M. Sveinbjörnsdóttur, f. 1957. Börn þeirra eru Sveinbjörn, Lára Dagbjört og Sigríður Halla. 5) Skúli, f. 1957, kvænt- ur Guðlaugu Jóhannsdóttur, f. 1961. Sonur þeirra er Jóhann Helgi. 6) Sigurrós, f. 1958, d. 2016. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Pétur Arnar Vigfús- son, f. 1953. Börn þeirra eru Lára Ósk, Jóna Dagbjört og Arnar Már. 7) Rúnar Birgir, f. 1962, kvæntur Auði Haralds- dóttur, f. 1965. Börn þeirra eru Óskar Þór og Birgir Jarl. 8) Sigurbjörg Valdís, f. 1963. Börn hennar eru Christian Sebastian og Kasper Frey. 9) Bjarni Viðar, f. 1965, kvæntur Guðbrandi Árna Ísberg, f. 1965. 10) Hulda, f. 1968, gift Ómari Þórdórssyni. Börn þeirra eru Sunna Lind, Krist- ófer, Viktoría og Steinar Þór. Sigurður stundaði nám í blikksmíði í Reykjavík og starfaði í 40 ár hjá Nýju blikk- smiðjunni. Hann lauk starfs- ferli sínum sem umsjón- armaður við Landspítala. Útför Sigurðar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 25. mars 2022, klukkan 10. júní 1929, d. 24. desember 2020. Foreldrar hennar voru Jóhann Skúlason verka- maður, f. 25. des- ember 1866, d. 6. ágúst 1954, og Sigurrós Guðrún Ágústsdóttir hús- móðir, f. 25. mars 1897, d. 16. janúar 1971. Sigurður og Lára kynntust á Hofsósi en áttu heimili alla tíð í Reykjavik. Þau eignuðust 10 börn: 1) Gunnar Jóhann, f. 1949, kvæntur Lis Stokkeby, f. 1951. Börn þeirra eru Kia Lo- uise og Kikki Beate. 2) Hregg- viður Ágúst, f. 1953, kvæntur Þorbjörgu Karlsdóttur, f. 1956. Börn þeirra eru Sigurður Ágúst, Ragnar Örn og Karl Ágúst. 3) Sigurður, f. 1955. Börn hans eru Jóhann Darri og Birna Ýr. 4) Halldór Lárus, Elsku pabbi. Nú þegar ég kveð þig koma upp svo margar minn- ingar og sú sem ljómar mest er handverk þitt og hendur. Þær voru sterkar og nákvæmar. Það virtist í mínum ungu augum sem járnið gæti bráðnað í höndum þér. Ég var svo stoltur að fá að vera með þér í vinnu sem barn. Hjálpa til við að gata járnið, beygja og slípa. Blikksmíði var þitt líf og yndi. Þú varst frábær blikksmiður og eftirsóttur í því fagi. Að fá að vera með þér í þeirri ferð sem barn hefur gefið mér þörf og löngun til að vinna með hendurnar. Þú varst ekki alveg sáttur við að ég hætti í banka- starfinu á sínum tíma og færi í keramiknámið, en með árunum varðstu sáttari við þá ákvörðun og held ég svei mér þá að þú hafir á síðustu árum verið stoltur af því að ég skyldi velja þennan starfs- vettvang. Í dag hugsa ég svo mik- ið til þín þegar ég hnoða leirinn og skapa hina og þessa hluti. Nú finnst mér eins og ég geti látið leirinn bráðna í höndum mér líkt og þú gast látið járnið bráðna í þínum höndum. Pabbi, nú ertu kominn til mömmu. Nokkuð sem þú varst búinn að óska lengi, þó svo stutt sé frá því að mamma fór frá okk- ur. Hjarta mitt ljómar af ham- ingju af að vita að þið eruð nú saman á ný. Sem barn hugsaði ég oft hvernig lífið yrði ef ykkar nyti ekki við, og nú er ég kominn á þá vegferð, án ykkar. Styrk ykkar hef ég fengið í veganesti og mun nýta mér hann til hins ýtrasta. Elsku pabbi, þú verður ætíð í hjarta mínu. Bjarni. Elsku pabbi minn, ég á svo erf- itt með að sætta mig við að það er komið að kveðjustund. En nú er það raunveruleikinn, og ég kveð þig í hinsta sinn með mikilli sorg í hjarta. Ég veit að þú ert kominn þangað sem þú þráðir – í fang mömmu, sem þú saknaðir svo óendanlega mikið. Það eru svo margar minningar sem streyma um í huga mér frá barnæsku. Til dæmis þegar ég sem lítil skotta var send í strætó með köflóttu nestistöskuna þína upp í smiðju af því að þú „gleymd- ir henni heima“. Þegar þangað kom var það fyrsta sem ég sá blátt hjól sem stóð úti á miðju gólfi, og þú skælbrosandi yfir barnslegri kæti minni. Þér fannst alltaf svo gaman að koma okkur á óvart með óvæntum glaðningi. Við fengum svo oft að koma í heimsókn í smiðjuna til þín um helgar og fengum að sópa og hjálpa til við smáhluti sem þú varst að smíða. Þegar þú varst orðinn þreyttur á okkur þá sendir þú okkur út í sjoppu að kaupa blátt blokksúkkulaði, eða fara í lakkrísgerðina að kaupa kíló af lakkrísafgöngum. Þú varst alltaf að vinna, líka um helgar, nema á sunnudögum þar sem þú oft bara vannst fram að hádegi, og þá fórstu oft með okkur litlu börnin í smá sunnudagsleiðangra, t.d. í Eden, á BSÍ að spila smá í tíkall- akössunum, í berjamó, í bakarí að kaupa kringlur, óteljandi bíltúra um bæinn að kaupa ís, og niður á höfn, þar sem við fengum stund- um að stýra bílnum. Í gegnum líf ykkar með 10 börn hefur margt reynt á styrk ykkar, umhyggju, þolinmæði og ást. Þið hafið alltaf reynst mér og ykkar börnum vel þegar þörf hef- ur verið á, og möguleikar hafa verið fyrir hendi. Eftir að mamma kvaddi hefur þú verið mikið einmana og saknað mömmu sárt, og haft mikla þörf á að einhver myndi annast þig eins vel og þú annaðist mömmu í hennar veikindum. Það hlutverk tók ég að mér með mikilli ánægju, eins og ég hafði lofað mömmu að gera. Að annast það hlutverk sýndi mér að ég er sterk, um- hyggjusöm, þolinmóð og full af ást. Þessi lífsgildi gafst þú mér í gegnum lífið, og gafst mér mögu- leika á að styrkja og efla þau í sambandi við að annast þig. Þú sýndir mér svo mikið traust. Að þú, þessi sjálfstæði, sterki og stolti maður, lagðir líf þitt í hend- urnar á litlu dóttur þinni er mesta viðurkenning sem hægt er að hugsa sér. Ég tók þá ábyrgð á mig með æðruleysi, ást og þakk- læti. Við þessa viðurkenningu óx ég bæði i eigin og þínum augum. Takk pabbi minn. Hvíldu í friði, ég elska þig og sakna þín. Knúsaðu og kysstu mömmu frá mér. Kveðja, þín dóttir, Hulda. Stærsta tréð i skóginum er fallið. Það hefur einhvern veginn bara alltaf verið þarna þetta stóra, sterka og óbugandi lífsins tré. Gefið skugga og skjól og bundið allt í kringum sig saman – nú er bara gapandi tómt og autt þarna mitt í öllu. Elsku pabbi, þú hefur alltaf verið þarna, mitt í lífi okkar allra. Nú ertu ekki meir – og það er svo tómt. Við börnin urðum öll til í litlum neista þegar þú sem ungur kynntist fallegri mey á Hofsósi. Stuttu seinna tókstu kinnrauðar minningar og söknuð í hjartanu með þér þegar þú fluttir til Reykjavíkur. Einn örlagaríkan dag heyrðir þú lagið „Í fjarlægð“ í útvarpinu. Nú brann neistinn í öllum æðum og þú af stað að kaupa ritvél og skrifa ástarbréf til meyjunnar i sveitinni. Með rauðu og svörtu letri afritaðir þú texta lagsins, og sendir til mömmu. Eina skiptið sem ritvélin var not- uð – og sennilega eitt af fáum skiptum sem rómantíska taugin var við stjórnvölinn. Þetta bréf varð til þess, að innan skamms mætti mamma til Reykjavíkur – og þar með varð þetta bréf ör- lagaaugnablik okkar allra. Þið voruð saman í 74 ár eftir það, við börnin tíu komum til og meira en 50 afkomendur okkar. Þvílíkur flokkur sem hefur orðið til í skjóli og við rætur þessa stóra lífsins trés. Ég var langt i burtu þegar þú kvaddir. Ung flutti ég til Dan- merkur, og þér leist ekki á það. Á skrýtinn hátt hefur þessi fjar- lægð samt haft þau áhrif, að sam- band okkar var innilegt og náið eins og væru ekki 1.800 kílómetr- ar á milli heldur bara brosbreidd. Enda lifir ástin ekki í tíma eða rúmi. Söknuður setur okkur mannverur svolítið í andlegu sparifötin, og þegar við hittumst fengum við mikið það besta fram hvort í öðru, gátum bæði hlegið mikið, talað um gamla góða daga, og, svei mér þá, líka um tilfinn- ingar. Þú varst mjög vel gefinn, hafðir skoðanir á flestum málum, fylgdist vel með, hafðir hugmynd- ir um margt og mikið, og svo varstu með frábæran húmor. Það var alltaf hægt að reikna með þinni skoðun á næstum öllum málum; fannst ekkert þurfa að flækja hlutina með tilfinningum og „væmni“, enda hörkutól sem tekist hefur á við krefjandi líf með kraftamennsku og áræði. Samt sem áður gastu huggað hjörtu grátandi táningsdætra þinna með mildum, sterkum faðmi, húmor og hvatningu, leikið við barna- börnin með ótrúlegum léttleik, gleði og umhyggju, og passað mömmu í veikindum hennar með þolinmæði, ást og styrk – og hefð- ir átt fálkaorðuna skilið. Þú varst á efri árum ótrúlega flott mannvera, barst þig með reisn og dugnaði, og ekki fyrr en þú lentir í bílslysinu gafstu upp. Sálin var orðin lúin og hjartað mikið meyrt, eftir að mamma kvaddi fyrir rúmu ári. Þú sakn- aðir hennar svo ótrúlega mikið, og heimsóttir hana upp í kirkju- garð hvern einasta dag. Þú skammaðir hana fyrir að hafa skilið þig einan eftir og varst að hlusta eftir hvort hún væri ekki farin að kalla á þig. Nú hefur hún kallað – og þú hlýddir. Sennilega eina skiptið á ævinni sem þú hefur hlýtt henni. Ég hugga mig við að þið eruð saman aftur – þessi neisti slokkn- ar aldrei. Hvíldu í friði pabbi minn. Valdís. Sigurður Jóhann Ágústsson ✝ Róslín Erla Tómasdóttir fæddist í Strand- götu 23 á Akureyri 29. desember 1938. Hún lést í faðmi fjöl- skyldunnar á hjúkr- unarheimilinu Lög- mannshlíð 9. mars 2022. Foreldrar henn- ar voru Þorbjörg Jóhannesdóttir, f. 19. nóvember 1918, d. 11. októ- ber 2003, og Tómas Kristjánsson, f. 7. september 1913, d. 13. októ- ber 1976. Systkini Róslínar eru níu, sjö eru enn á lífi. Árni Gunnar, f. 13. ágúst 1941, d. 27. janúar 1942, Árni Gunnar, f. 12. ágúst 1942, d. 15. febrúar 1969, Baldur Snæv- arr, f. 6. ágúst 1945, Heimir Ey- fjörð, f. 8. júní 1947, Rósa María, f. 14. október 1949, Jóhanna Ósk, f. 4. apríl 2008, Elvar Örn, f. 26. júlí 2011, og Hrannar Bjarki, f. 6. ágúst 2021. Tómas Páll, f. 20. ágúst 1993. Aron Davíð, f. 22. apríl 1997. Stefán Daníel, f. 27. maí 2000, og Jóhann Samúel f. 12. apríl 2002. 2) Halldóra Björg, f. 12. júlí 1965. Eiginmaður henn- ar er Björn Grönvaldt Júlíusson, f. 1. mars 1966, gift 14. febrúar 1999. Börn þeirra eru Baldvin Þeyr, f. 15. desember 1983. Lís- bet Grönvaldt, f. 5. júlí 1989, í sambúð með Atla Þengilssyni, f. 2. janúar 1991. Júlía Grönvaldt f. 23. júlí 1994. 3) Tómas Páll, f. 18. desember 1970. Eiginkona hans er Hrafnhildur Sólrún Sigur- geirsdóttir, f. 25. febrúar 1973, gift 7. september 1996. Dætur þeirra eru Rósa Ingibjörg, f. 14. nóvember 1995. Eiginmaður hennar er Roger Lynn Linder Jr, f. 22. júní 1986, gift 9. júlí 2016, og eiga þau soninn Viktor Geir Linder, f. 12. janúar 2021. Róslín Erla, f. 26. september 2000, unn- usti Guðjón Armand Ericsson, f. 7. júlí 2000. Halldóra Ósk, f. 30. júní 2012. Útför Róslínar hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk. Kristín, f. 24. nóv- ember 1952, Tómas Bjarni, f. 18. desem- ber 1953, Kristján Helgi, f. 6. ágúst 1957, og Ásgeir Elf- ar, f. 13. maí 1962. Róslín Erla giftist Sævari Sigurpáls- syni, f. 14. febrúar 1940, hinn 10. októ- ber 1964 og bjuggu þau lengst af í Borg á Akureyri sem nú heitir Drangs- hlíð 1. Börn þeirra eru: 1) Heiða Björk, f. 17. júní 1964. Fv. eig- inmaður Svanlaugur Þor- steinsson, gift 17. júní 1988, og eiga þau sex börn. Börn þeirra eru Kristín Erla, f. 7. janúar 1987. Sævar Þór, f. 14. janúar 1988, í sambúð með Guðrúnu Ósk Kummer, f. 28. febrúar 1990, og eiga þau þrjú börn. Þau eru Þóra Elsku vinkona mín er dáin, far- in til guðs, farin á annað tilveru- stig, farin í draumalandið. Sál hennar frjáls og laus úr veikum líkama. Ég sé hana fyrir mér fara brosandi og glaða á móti nýrri til- veru. Vinkona mín hafði risastór- an faðm, faðmlag hennar var traust og kærleiksríkt, ég var lán- söm að eignast hana sem vinkonu á erfiðum tíma í lífi mínu fyrir sex- tíu árum. Hún var sterk fyrir- mynd og kenndi mér margt sem ég tók með mér út í lífið. Róslín var listamaður í orðsins fyllstu merkingu, allt sem hún tók sér fyrir hendur varð að listaverki, saumaskapur, prjónaskapur, mat- argerð, bakstur, allt hundrað pró- sent. Að rækta grænmeti, blóm og vinna í garðinum var hundrað pró- sent, heimilið og allt innanhúss var hundrað prósent. Hún kom úr stórri og samhentri fjölskyldu, foreldrar hennar Bogga og Tómas voru líka listamenn og gátu gert mikið og fallegt úr litlu, það er því hægt að segja að Róslín hafi feng- ið hæfileikana í vöggugjöf. Mesta gæfan í lífi hennar var Sævar Sigurpálsson eiginmaður hennar og börnin hennar þau Heiða, Dóra og Tómas, þau voru stolt hennar og gleði og barna- börnin voru demantarnir. Allt flottir og góðir afkomendur sem glöddu ömmu sína og afa óendan- lega mikið. Á árum áður fórum við Róslín í óvissuferð á vorin ef hún var á ferðinni. Einu sinni fórum við austur fyrir fjall, vorum allan dag- inn að ferðast og fórum svo suður- strandarveginn á heimleiðinni, það vildi ekki betur til en svo að við gleymdum að taka bensín og heldur betur farið að minnka á tanknum. En mín var ekki ráða- laus, hugmyndaflugið alltaf í vinnslu, enda var hún mjög hug- myndarík, og datt í hug að láta bíl- inn bara renna niður allar brekkur sem á leið okkar urðu. Þegar kom- ið var á bensínstöðina í Grindavík var bensínið búið og það þurfti bara rétt að ýta bílnum smá spotta. Það var mikið hlegið í þess- ari ferð og einnig talað um allt á milli himins og jarðar. Dýrmæt minning ásamt mörgum öðrum góðum minningum. Róslín kom miklu í verk, það var eins og það væru fleiri klukku- tímar í hennar sólarhring en mín- um. Hún var alltaf tilbúin að hjálpa mér ef ég þyrfti hjálpar við, til dæmis að sauma, og ég tala nú ekki um fyrir veislur, þá kom hún og við bökuðum, skreyttum og smurðum brauð. Þetta var ómet- anlegt, takk fyrir alla hjálpina elsku vinkona mín. Ég er viss um að það verður nóg að gera hjá henni í nýrri tilveru, að undirbúa komu þeirra sem á eftir koma. Elsku vinkona viltu taka frá pláss fyrir mig nálægt þér, þá get- um við tekið upp þráðinn að nýju og farið í óvissuferð um geiminn á páskagulu skýi. Þangað til: góða ferð til nýrra heimkynna, ég kveð þig með söknuði en jafnframt með gleði og hlýhug og þökk fyrir sam- fylgdina á lífsleiðinni. Þegar ég leystur verð þrautunum frá, þegar ég sólfagra landinu á lifi og verð mínum lausnara hjá – það verður dásamleg dýrð handa mér. (Þýð. Lárus Halldórsson) Þín vinkona, Elísabet Guðbjörg Jónsdóttir (Elsa). Róslín Erla Tómasdóttir ✝ Guðrún Daní- elsdóttir fædd- ist á Akranesi þann 5. janúar 1930. Hún lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfðu þann 14. mars 2022. Foreldrar Guð- rúnar voru Guð- laugur Daníel Vig- fússon húsasmíða- meistari, f. 16.11. 1903, d. 11.5. 1964, og Sigrún Sigurðardóttir húsmóðir, f. 2.10. 1907, d. 23.5. 1942. Guðrún var næst elst átta systkina. Systkini Guðrúnar voru Gróa, f. 1929, látin, Anna, f. 1931, látin, Hrefna, f. 1933, látin, Sigurður, f. 1934, Sigrún, Hildur Sólveig. 3) Daníel Vig- fúss. Ólafsson, f. 7.2. 1958. Sam- býliskona Alina Anisko. 4) Íris Mjöll Ólafsdóttir, f. 13.6. 1963, eiginmaður Ólafur Danivalsson. Börn Írisar eru Díana Ýr, Eva Rós, Viktoría Dröfn og Dagmar. Guðrún bjó alla sína ævi á Akranesi, lengst af á Skaga- braut 48. Hún vann við fisk- vinnslu, verslunarstörf og fleira. Komin yfir fertugt settist hún á skólabekk og útskrifaðist 1974 sem sjúkraliði. Hún vann mest- an sinn starfsferill á Sjúkrahúsi Akraness. Útförin fer fram frá Akra- neskirkju í dag, 25. mars 2022, klukkan 13. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat f. 1937, látin, Hall- dóra, f. 1939, og Margeir Rúnar, f. 1941. Móðir Guðrúnar lést frá stórum barnahópi 1942 og varð það úr að Guð- rún tók að sér að hjálpa föður sínum að halda heimili. Guðrún giftist aldrei en eignaðist fjögur börn. Þau eru: 1) Guð- laug Sigrún Sigurjónsdóttir, f. 9.2. 1951, eiginmaður Halldór Ólafsson. Börn Guðlaugar eru Rúnar Þór, Lilja, Sigurður Daníel, Halldór Fannar og Guð- rún Drífa. 2) Drífa Björnsdóttir, f. 2.11. 1953. Dóttir Drífu er Elsku amma Gunna, sem barn tekur maður ömmu sinni gjarnan sem gefnum hlut, þessi draum- kennda manneskja uppfull af ást og hlýju sem tók á móti mér í dyragættinni lét mér alltaf líða eins og mikilvægustu manneskju í heimi. Amma Gunna var yndis- leg amma, það voru í minningunni alltaf smákökur eða í það minnsta baksturssúkkulaði á boðstólum og það var fátt sem ekki mátti í heimsókn hjá ömmu. Kjólarnir og skartgripirnir hennar voru sann- kallaður ævintýraheimur sem alltaf mátti máta og leika með. Þar hitti ég oftar en ekki frænkur mínar sem urðu mér sem hálf- gerðar uppeldissystur. Minning- ar úr geymslunni hjá ömmu þar sem rótað var í gömlum gersem- um munu lifa lengi. Það hefur ekki verið síður skemmtilegt að heimsækja ömmu í seinni tíð með börnin mín og upplifa aftur þessar einstöku móttökur sem glöddu ekki síður en í minni tíð. Það er líka lær- dómsríkt að kynnast betur ömmu sinni á fullorðinsárum og átta sig betur á því hvað þessi magnaða kona hefur gengið í gegnum á sinni lífsleið. Hvernig henni tókst að koma barnastóði á legg ein síns liðs ásamt því að sinna sinni vinnu og áhugamálum. Ég dáðist oft að því hvað hún og Ósk vin- kona hennar voru duglegar að ferðast saman og veitti það henni mikla gleði. Ég sé það núna hvað hún hefur verið lagin að gera mik- ið úr því sem henni var skaffað og það sést best á hennar afkom- endahóp sem telur orðið hátt á fimmta tug og var henni ákaflega mikið stolt og gleðiefni. Amma tókst á við ýmsar brekkur á lífs- leiðinni en hjólaði upp þær allar með bros á vör og gætti að því á meðan að öllum í kringum hana liði vel. Hún var rík af fjölskyldu og vinum sem hún hlúði vel að og þótti þeim öllum afar vænt um hana og vildu henni vel. Það gætu margir lært mikið af Gunnu Dan og viðhorfi hennar til lífsins. Hvíldu í friði elsku amma, takk fyrir allt. Hildur Sólveig Sigurðardóttir. Guðrún Daníelsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.