Morgunblaðið - 25.03.2022, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 25.03.2022, Qupperneq 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 ✝ Bárður Kjart- an Vigfússon fæddist á Ljót- arstöðum í Skaft- ártungu 10. apríl 1927. Hann lést 14. mars 2022 á hjúkr- unarheimilinu Fossheimum, Sel- fossi. Foreldrar Bárð- ar voru hjónin Vigfús Gestsson frá Ljótarstöðum, f. 4.3. 1896, d. 1.5. 1981, og Kristín Árnadóttir frá Hvammi, f. 25.4. 1895, d. 1.5. 1988. Bræður Bárðar voru Jón, f. 29.12. 1922, d. 2.9. 2012, Árni, f. 11.6. 1925, d. 16.12. 2016, og Sigurður, f. 30.6. 1931, d. 25.12. 2011. Bárður kvæntist 4. apríl 1953 Sigrúnu Árnadóttur frá Ölv- isholtshjáleigu, Holtum, f. 30.12. þeirra eru Sigrún Erna og Sara Sif. Bárður og Sigrún stofnuðu heimili á Selfossi 1953. Fyrstu árin vann Bárður á bifreiða- verkstæði KÁ við bílaviðgerðir. Meiraprófsnámskeið nr. 72 var haldið á Selfossi dagana 16. okt. til 27. nóv. 1953 og aflaði Bárður sér þá réttinda sem stjórnandi stórra ökutækja og sama ár var hann einn af stofnfélögum BSS (Bifreiðastjórastöð Selfoss). Ár- ið 1958 byrjaði Bárður að vinna á jarðýtu hjá Ræktunarsam- bandi RÁHL og var hann hjá Ræktunarsambandinu með hléum til ársins 1971. Bárður vann síðan mörg sumur á jarð- ýtu hjá Suðurverki við byggingu virkjana á Landmannaafrétti. Eftir 1980 var akstur leigu- bifreiðar aðalstarf Bárðar þar til hann hætti sem leigubílstjóri árið 2002, þá 75 ára. Útför Bárðar fer fram frá Selfosskirkju í dag, 25. mars 2022, klukkan 14. Athöfninni verður streymt á vef Selfoss- kirkju; selfosskirkja.is. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat 1923, d. 3.5. 2018. Dætur Sigrún- ar eru: 1) Brynja Ágústsdóttir, f. 17.2. 1944, eig- inmaður hennar var Eggert Snorri Simonsen, f. 6.5. 1943, d. 24.8. 2009. Egg- ert og Brynja eiga Ottó Wil- helm, Sigrúnu Báru, Hafdísi Lindu og Þórunni Marsibil. 2) Ásta Hlíf Ágústs- dóttir, f. 11.2. 1945, d. 7.3. 2018. Synir Bárðar og Sigrúnar eru: 3) Gestur Ragnar, f. 26.5. 1953, kvæntur Ernu Steinu Guðmundsdóttur. Börn þeirra eru Tómas Áki, Davíð Kjartan, Gestur Ari og Hjördís. 4) Krist- inn Marinó, f. 3.1. 1957, kvænt- ur Gerðu Arnardóttur. Dætur Ég var bara tíu ára þegar ég fór í fyrsta veiðitúrinn í Veiði- vötn með pabba og mömmu. Við vorum á fagurgrænum Víbon sem pabbi hafði fengið lánaðan hjá Gumma Tyrfings vini sínum. Á þessum árum var ekki búið að brúa Tungná svo við þurftum að fara yfir Hófsvað. Jón Svein- bergs óð á undan bílnum með stóran járnkarl í hendi því Hófsvaðið er varasamt en allt gekk vel. Pabbi var veiðikló og alltaf voru aflabrögð með ágæt- um. Pabbi vann í mörg ár á ýtum hjá Sigurjóni á Galtalæk og 1968 vann hann við að byggja veg að nýrri brú yfir Jökulkvíslina úr Landmannalaugum og inn á Fjallabak. Mamma var kokkur og ég fékk að vera með í tvær vikur. Þetta var algjört ævintýri. Sveinn Þorláksson var verk- stjóri, klukkan sjö ræsti hann Skaníuna og allir fóru á fætur. Brúarvinnuflokkurinn var úr Vík, hörkukarlar sem óðu langt út í á. Pabbi vildi taka af kröpp- ustu og verstu beygjurnar í hrauninu en það mátti ekki – á vegagerðarvísdómstindi – kvað Ólafur Ketilsson. Þegar ég 40 ár- um seinna var að aka 60 manna rútu þessa leið og mæta túristum sem óku á fleygiferð varð mér stundum hugsað til þessa. Í júlí 1972, þegar skákeinvígi Spasskís og Fischers stóð sem hæst, fórum við í veiðitúr inn í Vötn. Við þurftum að stoppa á leiðinni í einni brekkunni þar sem heyrðist í langbylgjunni í út- varpinu, því við vorum báðir spenntir að frétta af einvíginu. Merkilegt að Sigurður Sigurðs- son fréttamaður skyldi geta gert útvarpsfréttir af skákeinvíginu spennandi. Pabbi studdi auðvitað Fischer. Þegar inn í Vötn var komið fékk ég að taka við að keyra. Datsúninn – sá svarti – var með frekar lítilli vél og í bröttustu brekkunum þurfti að skipta í fyrsta og kúpla með lagni. Pabbi kenndi mér að hlusta á vélina og skipuleggja bröttustu brekkurnar, reynsla sem hefur oft komið mér vel þeg- ar ég var að keyra rúturnar, hvernig átti að keyra yfir ár og skoða vöðin, hann var að kenna manni á uppbyggilegan hátt. Gestur bróðir fékk að kaupa skellinöðru þegar hann var fimmtán og ég átti mér þann draum að fá skellinörðu líka. Pabba leist ekki á það og samdi við mig að ég fengi að kaupa bíl þegar aldur leyfði. Þegar ég var átján var keyptur Ford, 1966- módel, sem pabbi gerði við og svo var hann sprautaður fagurblár. Pabbi og mamma hvöttu okk- ur bræður til að ganga mennta- veginn og hjálpuðu okkur þegar við vorum blankir. Pabbi keypti miða í Happdrætti Háskólans, borgaði sjálfur miðann en vinn- ingarnir komu í hlut okkar Gests. Síðustu jól gaf ég pabba fugla- bók í jólagjöf, þar sem hægt var að hlusta á sönginn og hljóðin í fuglunum. Þegar við vorum að hlusta á himbrima minnti ég pabba á þegar við fengum him- brimann í netin inni í Vötnum, en hann var stoppaður upp og var svo stofustáss á Sólvöllunum. Mig minnti að það hefði verið í Grænavatni, en þá leiðrétti pabbi mig: „Þetta var í Snjóölduvatni, við útfallið.“ Þegar mamma veiktist og var vistuð á Ljósheimum heimsótti pabbi hana alla daga og sat hjá henni og las fyrir hana. Mamma kvaddi í maí 2018 og ári seinna fór pabbi inn á Fossheima þar sem hann andaðist eftir stutta sjúkdómslegu. Kristinn (Kiddi). Í dag er borinn til grafar faðir minn Bárður Kjartan Vigfússon, eða Daddi eins og móðir mín kall- aði hann alltaf, en hún lést fyrir tæpum fjórum árum. Daddi fæddist á Ljótarstöðum í Skaftártungu vorið 1927, þriðji í röð fjögurra bræðra. Ólst hann þar upp við leik og störf í uppá- tækjasömum bræðrahópi allt þar til foreldrar þeirra ákváðu að flytja sinn búskap að Hjallanesi í Landsveit í þeirri von að byggja þar upp bú við betri aðstæður og fjær spúandi eldfjalli, en Kötlu- gosið 1918 hafði veitt sveitum í nágrenni eldstöðvarinnar þungar búsifjar. Gráglettni örlaganna hagaði því þó þannig til að ein- ugins liðu þrjú ár þar til Hekla hóf að gjósa í næsta nágrenni Hjallaness. Búferlaskiptin voru á vormán- uðum 1944 og var föður mínum, 17 ára unglingnum, þá falið að vera einn eftir á Ljótarstöðum í nokkrar vikur til að gæta þar fjár yfir sauðburðinn. Hann var í fæði á næsta bæ og hefur vissulega fengið einhvern stuðning þaðan, en að vera falin þessi ábyrgð í einsemdinni hefur eflaust haft mikil áhrif á unglinginn og átt þátt í að móta hans innri gerð og hugarfar. Pabbi vann mikið mín upp- vaxtarár, var löngum stundum að heiman við vinnu á jarðýtu, fyrst hjá Ræktunarsambandi Holta- og Landmanna og síðar hjá Dofra Eysteinssyni í Suðurverki sem hann hafði reyndar mörgum árum áður kennt fyrstu tökin við stjórn jarðýtu. Um helgar eða þegar hlé var í ýtuvinnunni stundaði hann akstur leigubif- reiðar sem síðar varð hans að- alstarfi. Uppeldið á heimilinu var því að töluverðu leyti á höndum móður okkar, pabbi var ekki mikið að blanda sér í það, en hann var til staðar ef á reyndi og hafði sín áhrif með góðu fordæmi og hugarfari. Ég var sumargutti í sveit í Meiri-Tungu í Holtunum á þessum árum og það gladdi unglinginn að heyra hjá Ragnari bónda þar að hann biði með að fá rækunarsambandsýtuna til vinnu þar til tryggt væri að Bárður væri á henni, hann vildi fá jarðvinnuna almennilega unna. Faðir okkar var vinur vina sinna, hann var gleðimaður, greiðvikinn og bóngóður og taldi ekki eftir sér að taka á sig krók ef einhverjum lá lítið við. Hann hafði sterka réttlætiskennd, var trúr samvinnuhugsjóninni og studdi Framsókn gegnum súrt og sætt, þótt vissulega hafi sótt að honum nokkur uggur og efi um skeið. Sem betur fór náði hann að upplifa nýja og betri tíma hvað það varðar. Foreldrar mínir voru vin- margir og á heimili þeirra var oft gestkvæmt, vinir og vandamenn ætíð velkomnir til skrafs og góðs viðurgjörnings. Þetta voru skemmtilegar stundir og gaman að vera fluga á vegg þegar þjóð- málin og pólitíkin voru krufin til mergjar og þá yfirleitt ekkert dregið undan. Seinna á lífsleiðinni þegar barnabörnin tóku að teljast inn var alltaf dásamlegt fyrir fjöl- skylduna að koma á Sólvellina til afa Dadda og ömmu Rúnu þar sem öllum var tekið opnum örm- um. Hjá þeim var gott og öruggt að alast upp á ástríku heimili, þau eru nú kvödd með kærleik og söknuð í huga. Vin sínum skal maður vinur vera og gjalda gjöf við gjöf. Hlátur við hlátri … (Úr Hávamálum) Gestur R. Bárðarson. Það er sárt að kveðja afa Dadda en eftir lifa minningarnar. Á sumrin vildi maður hvergi ann- ars staðar vera en á Selfossi, hjá Bárður Kjartan Vigfússon ✝ Elías Krist- jánsson, fyrr- verandi forstjóri Kemis ehf., fæddist á Raufarhöfn 11. september 1938. Hann lést 6. mars 2022. Hann var sonur hjónanna Þórunnar Kr. Elíasdóttur, f. í Stóru-Breiðuvík í Helgustaðahreppi 3.10. 1915, d. 10.7. 2004, og Kristjáns Jóns Einarssonar verksmiðjustjóra, f. 27.3. 1902, d. 28.7. 1946. Seinni eiginmaður Þórunnar var Eysteinn Sig- urjónsson bankafulltrúi, f. 19.2. 1923, d. 4.4. 1995. Börn Þór- unnar og Eysteins eru Kristján Jón, f. 18.6. 1951, og Dagbjört, f. 22.7. 1955. Hinn 14.8. 1971 kvæntist Elí- as Helgu Lísbeti Bergsveins- dóttur, f. í Reykjavik 7.11. 1941, dóttir hjónanna Valgerðar Jóns- dóttur, f. í Reykjavík 11.1. 1912, d. 8.10. 1993, og Bergsveins S. Bergsveinssonar, f. í Aratungu Steingrímsfirði 7.10. 1906, d. 11.12. 1977. Dóttir Elíasar og Lísbetar er Þórunn Ýr, f. í S-Kóreu 9.7. 1976, eiginmaður hennar er Guðni Már Egilsson, f. í Reykja- vík 5.1. 1974, börn þeirra eru: Elías Guðni, f. 29.9. 1994, unn- usta Diljá Guðmundardóttir, f. 14.7. 1993, dóttir María Ýr, f. 15.1. 2020; Einar Óli, f. 13.10. 1996, unnusta Bryndís Þorleifs- dóttir, f. 4.11. 1994, börn Einars ms. Eskju, réðst til Fosskrafts sf. við Búrfellsvikjun haustið 1966 og var þar mælingamaður og verkstjóri til 1969, eftir það var hann stýrimaður í eitt ár á sænskum skipum. Hann var mælingamaður hja verkfræði- stofu dr. Gunnars Sigurðssonar 1970 og hóf svo störf hjá Mat sf. sama ár þar sem hann starfaði við mælingar og eftirlit vegna ýmissa samgöngumannvirkja. Eftir tæpan áratug í þessum störfum þar sem hann öðlaðist mikla reynslu í jarðfræði og jarðfræðirannsóknum hóf hann störf hjá Aðalbraut sem stjórn- andi þar sem unnið var við olíu- möl og vegaklæðingar. Árið 1982 hóf hann vinnu við stofnun innflutningsfyrirtækis með við- skiptasambönd við Portúgal fyr- ir Nesskip sf. sem leiddi til þess að árið 1984 stofnar hann um- boðs-, heildsölu- og framleiðslu- fyrirtækið Kemis ehf. sem sinnti innflutningi og sölu á nánast öllu sem til þarf til stórra verka í byggingar- og virkjanaiðnaði. Hann seldi Kemis ehf. 2012 og hóf þá ferða- og gistiþjónustu ásamt trjárækt á landi sínu á Stóra-Knarrarnesi á Vatns- leysuströnd til ársins 2017 þeg- ar heilsu hans fór að hraka. Elí- as var alla tíð virkur í pólitísku umhverfi landsins og lét mikið til sín taka. Var ötull greina- og pistlahöfundur og liggja margar greinar eftir hann hjá Mbl. Hann var lengi félagi í St. Jóhannesarstúkunni Eddu og síðar einnig Rótarýklúbbnum Görðum. Útför Elíasar fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 25. mars 2022, klukkan, 15. Óla eru Kristófer Örn, f. 12.7. 2014, og Valgerður Guðný, f. 8.8. 2018; Ernir Freyr, f. 17.2. 1998, unnusta Val- dís Auður Arn- ardóttir, f. 28.5. 1997, dóttir Lísbet Anna, f. 26.7. 2021; Ellen Lísbet, f. 5.11. 2004; Egill Þór, f. 18.1. 2008, fyrir átti Guðni dótturina Sigríði, f. 1.1. 1992, og hennar börn eru Elena Guðný, f. 17.4. 2013, og Sig- urður Aron, f. 24.12. 2015. Elías stundaði gagnfræða- nám við gagnfræðaskóla Húsa- víkur og á Laugarvatni þaðan sem hann útskrifaðist árið 1955. Hann lauk farmannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykja- vík 1960 og lauk sænsku skip- stjórnarprófi í Gautaborg árið 1970. Frá barnæsku starfaði Elí- as við fyrirtæki fjölskyldu sinn- ar, Söltunarstöð Kristjáns J. Einarssonar hf. Fór svo til sjós 14 ára gamall, þá sem háseti á Hagbarði ÞH, var á síld á Þor- birni frá Grindavík 1955, var há- seti á ms. Kötlu frá Reykjavík 1955 og var síðan á ýmsum skip- um. Elías var stýrimaður hjá SÍS á ms. Dísarfelli 1960 og á ms. Hvassafelli, var stýrimaður frá 1961-65 hjá útgerðar- félögunum Ditlev Simonsen í Ósló, Det Öst Asiatiske Compani i Kaupmannahöfn og hjá Brost- röm Rederiene í Gautaborg, var stýrimaður á ms. Arnarfelli og Sunnudagur til sigurs, er það tilviljun að pabbi minn skuli hafa fæðst á sunnudegi og látist á sama vikudegi? Kannski, en þeg- ar horft er yfir lífshlaupið hans pabba þá var hann sigurvegari; sigurvegari í lífinu og sigurveg- ari í dauðanum en því miður tap- aði hann einum slag og það var slagurinn hans við elli kerlingu, hún lék hann grátt og mörg ár sem hefðu getað verið honum ánægjuleg fóru í súginn þegar hann tók að einangra sig og bíða eftir manninum með ljáinn sem hann óttaðist aldrei og í raun tók honum svo fagnandi þegar hann loks mætti að það var með ólík- indum. Þvílíkt óttaleysi, sem sýndi ekki einungis trú heldur fullvissu manns um eilíft líf hjá almáttugum góðum Guði, þar sem ekki þekkjast þjáningar, ótti, sorg og pína, heldur er eilíf sumarsæla. Hvað er að óttast þegar ekkert er að óttast? var svarið sem ég fékk þegar ég spurði hvort hann væri hræddur við að deyja og það kom tilhlökk- unar-gleðiglampi í augu hans um leið og hann svaraði mér. Já, pabbi var saddur, sáttur og glað- ur við sín endalok og það hefur gert viðskilnaðinn okkar mömmu við hann auðveldari, fal- legri og að öllu leyti rólegri. Pabbi skildi okkur eftir umvafð- ar sinni stóísku ró, fullvissu um að við höfum verið elskaðar, metnar að verðleikum og að hann hefði ekki viljað hafa okkur neitt öðruvísi en við erum. Hjá pabba voru allir menn jafnir og þegar ég hugsa út í það þá man ég ekki eftir því að pabbi hafi talað um fólk, ef honum líkaði ekki einhver þá bara „púkkaði“ hann ekki upp á þá manneskju, svo einfalt var það. Pabbi fór sín- ar eigin leiðir, var fylginn sér, uppfullur af visku, fróðleik, yf- irvegun og ró. Hann var þó ekki gallalaus en fyrir mér var hann það þó allt fram á mín fullorð- insár. Frá því ég man eftir mér hafði ég haft pabba uppi á him- inháum stalli, hann var fullkom- inn! Það tók á þegar augun opn- uðust og við mér blasti pabbi minn, manneskja með sinn ófull- komleik, sína bresti, sína veik- leika og sína sérvisku en þvílík dásemd að fá að öðlast það að sjá pabba minn, lærimeistara minn, í sínum veikleika en eiga samt til þessa fullkomnu elsku til hans, hjarta yfirflæðandi af þakklæti og kærleika fyrir allt það sem hann kenndi mér, fyrir allt það sem hann skilur eftir hjá mér og fyrir fullvissuna um að ég hafi verið elskuð og mikils metin af pabba mínum. Elsku pabbi, þú sem mótaðir viðskiptaáhuga minn og þjón- ustulund, þú sem sýndir mér hvernig ég vil vera og hvernig ég vil ekki vera í lífi mínu og störf- um, þú sem alltaf mættir mér með rólyndi og kærleika, þú sem varst mér svo dýrmætur og varst svo stór partur af öllu mínu lífi öllum stundum. Þú varst, ert og verður hjartahlýjan mín þar til hjarta mitt hættir að slá og við sameinumst á ný á gylltum sólarströndum eilífðar- innar. Elsku pabbi, ég kveð þig með sömu orðum og ég gerði þegar þú lokaðir augunum í hinsta sinn og slepptir af mér hendinni: Farðu í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Nú sem fyrr og um eilífð. Guð geymi þig og blessi minn- ingu þína, elsku hjartans pabbi minn. Þín elskandi dóttir, Þórunn Ýr. Það voru níu hraustir ungir menn sem luku farmannsprófi frá Stýrimannaskólanum vorið 1960. Þar var og Elías Krist- jánsson, sem við kveðjum nú, en hann hafði átt við erfið veikindi að stríða um árabil. Þéttur á velli en lipur og traustur félagi. Eftir skólagöngu skildi leiðir. Elías fór til siglinga í útlöndum. Sigldi vítt um lönd og sagði oft sögur af ferðum sínum eftir að hann kom heim til Íslands aftur. Má þar nefna að skipið Valetta, sem hann var stýrimaður á, sökk í Eystrasalti, en allir björguðust. Ræddi Elías af mikilli varfærni um slys þetta. Fór þá Elías til ýmissa starfa, landmælinga og eftirlits með ýmsum fram- kvæmdum vegagerðar o.fl. Fór sögum um það að vel hefði til verks verið vandað í vegagerð þeirri er hann sá um. Einnig vann hann hjá Nesskipum um tíma. Stofnaði síðan fyrirtækið Kemis. Þar var Elías í forsvari og vann ég, Bjarnar, hjá honum þar um árabil. Fór vel á með okkur og dáðist ég að hugviti hans og snilld í sölumennsku. Sem dæmi: Hann lærði á latínu flest nöfn á þeim vörutegundum sem hann verslaði með. Kom það verkfræðingum og öðrum er við- skipti áttu við hann mjög á óvart, svo var hann málamaður góður, bæði Norðurlandamál og sérlega á ensku. Kynnti hann sér til hlítar allt innihald og verkanir þeirra efna sem hann verslaði með. Setti saman þráavarnarefni í loðnu, sem þótti hið besta á landinu. Segir okkur félögum svo hugur að einhver öfl, öfund eða einhver annarleg öfl, hafi gert Ella erfitt fyrir og hann því tekið þá ákvörðun að selja. Eftir að hann seldi Kemis urðu kynni okkar aftur náin og unnum við ýmislegt í sameiningu, sérlega á býlinu Stóra-Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd sem hann hafði átt um áratugaskeið og leigt til ferðafólks. Þótt ekki værum við alltaf sammála þá komumst við alltaf að lausn mála. Hann reyndi þar trjárækt við afar erfiðar aðstæður, en tókst að vonum. Hann las mikið og þá allt á ensku, minnið afar gott og margar góðar stundir að hlusta á hann segja ýmsar land- vinningasögur og annað úr for- tíðinni, svo margfróður var hann um ýmis þjóðmál. Hann gat ver- ið skemmtilegur í tilsvörum, á skólaárunum sagði hann lög- reglu hafa stöðvað sig og spurt ýmissa spurninga. „Heyrið þér lögregluþjónn! Hvenær höfum vér orðið dús?“ Af okkur skóla- félögum eru nú aðeins fjórir eftir og söknum við góðs félaga. Hann var félagi og vinur góður og verður sárt saknað, en við hitt- umst af og til síðustu ár. Elías skal ætíð muna þó okkur sé hann horfinn nú. Fyllstu þakkir fyrir samveruna friður Guðs þér fylgi og trú. Daga góða lífið gefur gustar oft um stýri og mund. Lokastefnu sett nú hefur siglir hratt á drottins fund. (BK) Deyr fé deyja frændur deyr sjálfur hið sama. En orðstír deyr aldrei hveim er sér góðan getur. (Hávamál) Lísbet, Þórunn og aðrir að- standendur, hugheilar samúðar- kveðjur. Skólafélagar, Bjarnar, Guðmundur, Markús og Örn. Elías Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.