Morgunblaðið - 25.03.2022, Qupperneq 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022
✝
Sigmundur
Benediktsson
frá Vatnsenda
fæddist á Nýjabæ í
Eyjafirði 15. mars
1936. Hann andaðist
á Heilbrigðisstofnun
Vesturlands Akra-
nesi 14. mars 2022.
Foreldrar hans voru
Benedikt
Guðmundsson, f. 10
febrúar 1914, d. 8.
sept. 1997, og Jakobína Soffía
Sigurðardóttir, f. 24. júní 1906,
d. 8. sept 1972. Bjuggu þau á
Nýjabæ í Saurbæjarhreppi 1935
til 1939 er þau flytjast búferlum
að Vatnsenda og taka við búi af
foreldrum Jakobínu.
Bróðir Sigmundar er Auðun
Benediktsson, f. 25. maí 1942,
maki Ragnheiður Ragnarsdóttir.
Sigmundur ásamt konu sinni
Elínu Kjartansdóttur, f. 13. sept
1934, tók við búi á Vatnsenda
1956. Börn þeirra eru 1) Sveinn
Rúnar. f. 1957, maki Guðný Ósk-
arsdóttir. 2) Eygló, f. 1960. 3)
Hugrún, f. 1961, maki Hálfdán
Örnólfsson 4) Elsa, f. 1962, maki
Davíð Ragnar Ágústsson 5) Há-
kon Viðar, f. 1963, maki Petrína
náms og á Akranesi fór
Sigmundur í Iðnskólann, með
góðum stuðningi vinnuveitand-
ans, þar sem hann lærði ketil- og
plötusmíði og tók síðan meist-
araréttindi í vélvirkjun 1979.
Síðar vann hann lengi í Sements-
verksmiðju ríkisins þar til hann
hætti vegna aldurs. Eftir það
vann hann hjá Skaganum og var
einnig í alls konar íhlaupavinnu,
m.a. vegavinnu á Vestfjörðum.
Sigmundur söng um tíma með
Karlakórnum Svönum á Akra-
nesi og starfaði um nokkurt
skeiði með Sálarrannsókn-
arfélagi Akraness. Hann var
einnig virkur í kvæðamanna-
félögunum Iðunni og Snorra.
Brennandi áhugi hans á ís-
lenskri náttúru, málrækt
íslenskrar tungu og braglistinni
voru hornsteinn í hans ljóðagerð
en hann var hagyrðingur góður
og notaði oft dýra bragarhætti í
vísum sínum og ljóðum. Hann
var mikill náttúruunnandi,
stundaði fluguveiði og ferðaðist
mikið innanlands auk þess sem
hann fór nokkrar ferðir út í
heim.
Út eru komnar fjórar bækur
eftir Sigmund og var sú fimmta í
vinnslu.
Útför hans fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag, 25. mars
2022, kl. 13. Jarðsett verður á
Hólum í Eyjafirði.
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat.
Þórunn Óskarsdóttir.
Sigmundur og Elín
slitu samvistir. Sig-
mundur var í sambúð
með Steinunni Aldísi
Helgadóttur og eiga
þau 6) Elfar Davíð, f.
1971, maki Lena
Malmgren. Sonur
Steinunnar er Börk-
ur. Sigmundur og
Steinunn slitu sam-
vistir. Sigmundur var
í sambúð með Sesselju Jóns-
dóttur og eiga þau 7) Benedikt
Jón, f. 1978. Dætur Sesselju úr
fyrra sambandi eru Guðrún og
Edda. Sigmundur og Sesselja
slitu samvistir. Eftirlifandi sam-
býliskona Sigmundar er Heiðrún
Jónsdóttir. Hún á tvö börn úr
fyrra sambandi, Leó og Helgu.
Barnabörnin eru nítján og barna-
barnabörnin tuttugu og fjögur.
Sigmundur og Elín byggðu
upp á Vatnsenda af miklum stór-
hug áður en leiðir skildi. Eftir
það var hann um tíma til sjós og
bústjóri á kúabúi Vífilsstaðaspít-
ala en vann síðan hjá Skipa-
smíðastöð Þorgeirs og Ellerts á
Akranesi í allmörg ár.
Hugurinn hafði alltaf staðið til
Sigmundur Benediktsson
fæddist 15. mars 1936 á Nýjabæ í
Saurbæjarhreppi frammi í Eyja-
firði. Hann andaðist degi fyrir af-
mæli sitt 2022. Þá hefði hann orðið
86 ára. Ég hafði hitt hann fáum
dögum fyrr, glaðan og hressan á
blóti Kvæðamannafélagsins
Snorra í Reykholti, sem fór fram í
glæsilegum fjárskála Þórdísar og
Dagbjarts á Hrísum í Flókadal, en
þangað fórum við Alexander á
Grund í Flóa, ungur og efnilegur
kvæðamaður, í blindbyl og slark-
færi.
Sigmundur fluttist þriggja ára
gamall með foreldrum sínum að
Vatnsenda í Saurbæjarhreppi.
Þar ólst hann upp í torfbæ eins og
ég sjálfur. Við minntumst báðir
með ánægju lífsins í slíkum húsa-
kynnum. Rúmlega tvítugur tók
Sigmundur við búi á Vatnsenda og
bjó þar til ársins 1970, en þá flutt-
ist hann til Akraness. Á Vatns-
enda tóku þá við búi Sveinn sonur
hans og Guðný Óskarsdóttir kona
hans. Svo rótgróinn var Sigmund-
ur sveitinni sinni að hann fór ár-
lega, vor og haust, í búsannir á
bænum sínum gamla. Á Akranesi
bjó hann allt til enda í yndislegri
sambúð með Önnu Heiðrúnu konu
sinni, sem var honum stoð og
stytta við kveðskapinn, sjálf í
besta lagi hagmælt eins og Sig-
mundur.
Á Akranesi lærði hann vélvirkj-
un hjá Þorgeiri og Ellerti og var
síðar vélvirki hjá Sementsverk-
smiðjunni. Snemma varð Sig-
mundur handgenginn vísum. Fjöl-
skylda hans örvaði áhuga hans og
ást á kveðskap frá barnsaldri.
Þegar hann var fjögurra ára hafði
hann lært 92 vísur, sem hann þuldi
fyrir móður sína af skammeli í
fjóströðinni á meðan hún mjólkaði
kýrnar. Slíkur vísnasjóður er
óvenjulegur og e.t.v. einsdæmi hjá
svo ungum manni. Hann kynntist
bragsnilld Sveinbjarnar Bein-
teinssonar allsherjargoða er faðir
hans gaf honum bókina hans
„Bragfræði og háttatal“. Sú bók
varð honum örvun og fyrirmynd.
Sjálfur fór hann að gera vísur er
hann var 12 ára og hélt því ævina
út. Hann gaf út nokkrar vísna-
bækur og gekk í Kvæðamanna-
félagið Iðunni á útlíðandi þorra
1994 og hann var tryggur kvæða-
mannafélögunum þremur sem
hann var í félagsskap við: Iðunni í
Reykjavík, Árgala á Selfossi og
Snorra í Reykholti. Sigmundur
lék sér að því að yrkja dýrt. Vís-
urnar hans voru vel gerðar og
fljótur var hann að gera vísu.
Fjögurra ára snáði, Róbert Sig-
urðarson, kom á fund og kvað með
tærum barnarómi, einn sá yngsti
sem þar hefur komið til að kveða.
Þessa vísu fékk hann viðstöðu-
laust frá Sigmundi í kveðskapar-
laun:
Giftuhár í góðum rann,
gleðifrár því stemmu ann.
Ei svo kláran fyrr ég fann,
fjögra ára kvæðamann.
Hlýjar samúðarkveðjur til
Heiðrúnar og ættingjanna allra.
Ólöf Erla og
Sigurður Sigurðarson
dýralæknir, Selfossi.
Meðan óður lengir líf
leggur sjóð af munni:
Von og gróður, hold og hlíf
hann er þjóðtungunni.
(SB)
Sigmundur var bæði orðsnjall
og rímhagur í smíði sinni á dýrt
kveðnum vísum og lagði rækt við
þessa skáldskapargrein. Hann var
traustur félagi í árlegum hagyrð-
ingamótum sem áttu sér aldar-
fjórðungs líf allt austan frá Djúpa-
vogi vestur að Núpi. Sigmundur
og Heiðrún kona hans sóttu öll
mót, sömdu þar marga vísuna eins
og á dagslöngum rútuferðum sem
fylgdu því þegar langt var að
sækja á mótsstað úr borginni.
Eftir að Sigmundur flutti til
Akraness fór hann vor hvert norð-
ur til fólksins síns, fjárbænda
norður í Eyjafirði, að leggja þeim
lið yfir sauðburðinn. Þá ók hann
hjá tignarfjalli Borgfirðinga í
Norðurárdal og sæmdi það vís-
unni:
Sólargljáa fjallið fær
frítt að sjá og hrífur
Baula há til himins nær
heiðið bláa klýfur.
Sömuleiðis ók Sigmundur fyrir
neðan garð hjá vini sínum Jóa í
Varmahlíð og kom þar gjarnan
við. Á níræðisafmæli Jóa ávarpaði
hann afmælisbarnið með löngu
ljóði sem hefst svo:
Höfðingi Braga, heill sé þér!
Heiður, sem Jóa í Stapa ber
græðist í hljóðri gleði.
Hógværð og næmi halda á
hugarins tæru ljóðaskrá
og myndrænni glóð í geði.
Hlýjar samúðarkveðjur sendi
ég Heiðrúnu og fjölskyldunni.
Ingi Heiðmar Jónsson.
Sigmundur Benediktsson,
vísnasmiðurinn snjalli, er farinn
frá okkur. Hann fæddist í Eyja-
firði, gerðist bóndi á Vatnsenda
þar í sveit, en fluttist svo á Akra-
nes og starfaði þar sem vélvirki.
Hann var félagi í Kvæðamanna-
félaginu Iðunni og tók þátt í
skemmtikvöldum félagsins þar
sem meðal annars er mikið fengist
við vísnagerð. Sigmundur var einn
af slyngustu hagyrðingum okkar
tíma, hraðvirkur og þekktur fyrir
dýrt kveðnar en afar vel gerðar
vísur. Hann var góður félagi sem
aldrei vékst undan því að rétta
hjálparhönd ef eitthvað þurfti að
gera. Iðunnarfélagar minnast
hans með þakklæti.
Allir þeir sem unna vel gerðum
kveðskap munu þekkja vísnabæk-
ur Sigmundar. Oftast er hann
stuttorður og gagnorður, formið
sem hann velur sér er oftar en
ekki knappt og afmarkað. Þetta
ljóð kallaði hann Flæði. Hér notar
skáldið ekki nema sex stuttar lín-
ur – og hér vantar ekki neitt:
Vonum mannsins veltir tímans bára
um veglaust haf.
Sú óskastund, sem átti vængi dagsins
og andann gaf,
verður minning rökkurtjöldum reifuð
á rúmsins graf.
Fyrir hönd Kvæðamannafé-
lagsins Iðunnar vil ég þakka Sig-
mundi tryggð hans við félagið, vin-
semd og góða nærveru um leið og
ég votta aðstandendum hans sam-
úð mína.
Bára Grímsdóttir.
Sigmundur
Benediktsson
✝
Guðmunda
Alda Eggerts-
dóttir fæddist á
Súluvöllum á
Vatnsnesi 16. maí
1942. Hún lést á
Sjúkrahúsinu á
Hvammstanga 11.
mars 2022. For-
eldrar hennar voru
Eggert Eggertsson,
f. 5. júní 1905, d. 15.
september 1983, og
Jónína Helga Pétursdóttir, f. 27.
júní 1904, d. 19. janúar 2000.
Guðmunda var yngst þriggja
systkina. Systkini hennar voru
Pétur Óskar, f. 30. ágúst 1929, d.
29. apríl 1950, og Sesselja
Hulda, f. 19. apríl 1936.
Maki hennar var Jón Stef-
ánsson húsgagnasmiður frá
Haugi í Miðfirði, f. á Brunngili í
Bitrufirði 11. ágúst 1932, d. 2.
mars 2001. Börn þeirra eru: 1)
Eva Björg, f. 6. október 1962,
maki Sighvatur Rúnar Árnason,
5) Haukur Örn, f. 27. maí 1972,
maki Þórunn Jónsdóttir, f. 16.
janúar 1977. Synir Hauks eru
Davíð Þór, f. 1996, maki er Alex-
andra Ýr Baldursdóttir, f. 2001,
Ásmundur Helgi, f. 2000, Arnar
Pétur, f. 2003, og Björn Eggert,
f. 2004. Synir Þórunnar eru
Ágúst, f. 2000, og Alexander
Dagur, f. 2008.
Guðmunda eða Gumma eins
og hún var oftast kölluð ólst upp
í foreldrahúsum á Súluvöllum á
Vatnsnesi. Hún gekk í farskóla í
sveitinni eins og tíðkaðist á þeim
árum og stundaði síðan nám við
Héraðsskólann í Reykholti. Guð-
munda og Jón hófu búskap í
Reykjavík árið 1961. Í Reykjavík
vann Guðmunda við ýmis störf,
m.a. í efnalaug og á Landakots-
spítala. Vorið 1965 fluttu Jón og
Guðmunda norður og tóku við
búi á Súluvöllum ytri þar sem
þau bjuggu með blandaðan bú-
skap. Eftir að Jón féll frá árið
2001 og Guðmunda hætti bú-
skap vann hún meðal annars við
húshjálp í sveitinni og fram-
leiddi lopavörur fyrir ferða-
menn.
Útför Guðmundu fer fram frá
Tjarnarkirkju á Vatnsnesi í dag,
25. mars 2022, klukkan 14.
f. 6. júlí 1961, börn
þeirra Árni Rúnar,
f. 1981, Alda
Guðný, f. 1983,
maki Erlendur
Tómasson Hall-
grímsson, f. 1981,
og Jón Arnar, f.
1990. 2) Pétur, f. 25.
janúar 1964, maki
Lára Sverrisdóttir,
f. 26. ágúst 1973.
Börn Láru eru
Telma Sif, f. 1993, Felix Már, f.
1995, og Freyja Rún, f. 2002. 3)
Lilja Kristín, f. 20. júní 1967. 4)
Jónína Helga, f. 13. desember
1968, maki Halldór Jón Pálsson,
f. 17. maí 1969. Börn þeirra eru
Aðalsteinn Ingi, f. 1989, maki
Berglind Björk Þorsteinsdóttir,
f. 1990, og eiga þau tvo syni,
Hinrik Mána og Vilberg Arnar,
Stefán Freyr, f. 1993, maki
Heiður Magný Herbertsdóttir, f.
1984, og eiga þau eina dóttur
Særúnu. Herdís Linda, f. 1997.
Skarð er höggvið í raðir inn-
fæddra Þverhreppinga með frá-
falli Guðmundu á Súluvöllum,
sem að átt hefur hér heima nær
alla ævi utan fárra ára sem hún
bjó í Reykjavík.
Eftir að hún kom heim frá
Reykjavík hóf hún búskap á Ytri-
Súluvöllum ásamt manni sínum
Jóni Stefánssyni sem er fallinn
frá fyrir nokkrum árum, en hún
dvaldi þar fram á nær síðustu
stund.
Dóttir hennar og tengdasonur,
sem tóku við búi, byggðu sér ann-
að hús. Búskapur á Súluvöllum
hefur alla tíð verið til fyrirmynd-
ar og vandað til allra verka.
Ég og Gumma, eins og hún var
alltaf kölluð, höfum þekkst frá
upphafi, en Hlíf frá um 1970.
Voru öll samskipti við hana og
þau hjón með afbrigðum góð þó
að minna hafi verið um þau hin
síðustu ár eftir að Jón féll frá og
ekkert eftir að pestin skall á.
Þau Gumma eignuðust fimm
börn og var mikil vinátta milli
þeirra og okkar barna, enda á
svipuðu reki.
Kæra Gumma, með þessum
fáu orðum viljum við kveðja og
þakka þér fyrir öll samskipti á
liðnum árum. Því miður treystum
við okkur ekki til að mæta í útför-
ina vegna sótthættu af covid,
enda þá viðbúið að við stæðumst
ekki þá freistingu að faðma að-
standendur að okkur, en þeir
koma víða að.
Við sendum öllum aðstandend-
um okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Líður tíminn löngum hér,
lífs um stigu víða,
enginn veit hvert okkur ber,
en allir verða hlýða.
Munum kynni mörg og góð,
margt ber vel að þakka,
að endingu ég lítið ljóð,
læt nú hérna flakka.
Hlíf og Agnar, Hrísakoti.
Guðmunda Alda
Eggertsdóttir
✝
Særún Sigur-
geirsdóttir
fæddist í Reykjavík
14. maí 1947. Hún
lést á Hrafnistu
Laugarási 12. mars
2022 eftir langa
baráttu við brjósta-
krabbamein.
Foreldrar henn-
ar voru Steinunn
Halldórsdóttir og
Sigurgeir Guð-
mundur Guðmundsson. Kjör-
systir Særúnar var María Magn-
úsdóttir, hálfsystir
var Guðfinna
Magnúsdóttir og
albróðir hennar var
Ólafur Sigurgeirs-
son. Þau eru öll
látin.
Særún átti þrjú
börn, þau Stefni
Skúlason, Lilju
Kjalarsdóttur og
Írisi Kjalarsdóttur.
Útförin fer fram
í Garðakirkju í Garðabæ í dag,
25. mars 2022, klukkan 15.
Elsku æskuvinkona mín, nú er
komið að kveðjustund. Við höfum
þekkst nánast alla okkar ævi en
vinátta okkar hófst fyrir 68 árum
þegar við kynntumst í sjö ára
bekk í Breiðagerðisskóla og ég
sé þig enn fyrir mér, stelpuna
með krullaða hárið og skarðið á
milli framtannanna. Frá fyrsta
degi vorum við bestu vinkonur
og við brölluðum margt saman.
Þegar við vorum ungar konur
elskuðum við að dansa og oft fór-
um við í Breiðfirðingabúð á dans-
æfingu og varla leið sá sunnu-
dagur að við slepptum því að fara
í Silfurtunglið.
Margar minningar skjóta upp
kollinum þegar ég hugsa til þín
og rifja upp liðna tíð. Ein sú
minnisstæðasta var sumarið þeg-
ar við vorum 15 ára en það sumar
réðum við okkur sem kaupakon-
ur hvor á sinn bæinn í Reyk-
holtsdal í Borgarfirði. Þá fannst
okkur við heldur betur vera
orðnar fullorðnar konur! – Þegar
ég var 17 ára flutti ég ásamt eig-
inmanni mínum til Bandaríkj-
anna en þrátt fyrir mikla fjar-
lægð varð engin breyting á okkar
vináttu. Við vorum áfram bestu
vinkonur og hvort sem þú heim-
sóttir mig eða ég kom til Íslands
þá var eins og við hefðum hist í
gær, alltaf var vináttan jafn
sterk á milli okkar.
Með þessum fáu orðum kveð
ég þig nú í hinsta sinn, elsku Sæ-
rún mín, og minningin um þig
mun ávallt lifa í hjarta mínu.
Þín vinkona,
Auður.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Dagur að kveldi kominn hjá
Særúnu Sigurgeirsdóttur eftir
erfið veikindi síðustu misseri. Við
í saumaklúbbnum Snældunni
þökkum Særúnu fyrir samfylgd-
ina síðustu áratugina. Þegar Sæ-
rún gekk til liðs við okkur sem
höfðum verið lengur í klúbbnum
kom hún með ferskan andblæ inn
í hópinn. Í hópnum voru konur á
breiðum aldri sem gerði það að
verkum að þær sem voru eldri
miðluðu af sinni reynslu og þekk-
ingu til hinna yngri. Það eru
örugglega fáir saumaklúbbar í
dag sem geta státað af því að
meðlimirnir mæti með handa-
vinnu í klúbb.
Allt lék í höndum Særúnar,
hvort sem það var fatasaumur,
bútasaumur eða prjónaskapur.
Eftir að Særún hætti að vinna
fór hún oft í Jónshús í Garðabæ
til að hitta hinar handavinnukon-
urnar.
Saumaklúbburinn naut þess
að ferðast bæði innanlands og ut-
an. Standa ferðirnar til Jamaíku
og Barcelóna upp úr.
Að leiðarlokum sendum við
börnum, tengdabörnum og
barnabörnum Særúnar okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
F.h. Saumaklúbbsins Snæld-
unnar,
Bjarndís og Kristjana.
Særún var formaður Kven-
félags Garðabæjar í fjögur ár, ár-
in 1993 – 1996, sótti félagsfundi
og tók þátt í félagsstörfum eftir
formennsku. Hún var þægilegur
stjórnandi og elskuleg kona sem
gott var að vinna með. Særún var
svo myndarleg í sér, það sem hún
tók sér fyrir hendur. Garðbæing-
ur var hún í áratugi.
Fyrir nokkrum vikum hitti ég
á Særúnu er hún kom í Jónshús
ásamt tveimur konum, sem sögð-
ust vera Ásbúðarnágrannar. Við
skemmtum okkur við að skoða
myndir af Þorrablóti Kvenfélags
Garðabæjar sem haldið var í
Garðaholti. Spurningin var hvaða
ár var það. Það var mikið fjör á
þorrablótunum í Garðaholti sem
þær vinkonurnar glöddust yfir
að skoða myndir af.
Fegurðin
Með þér býr innri friður
fegurra en því þú veist.
Með þér býr ljósið
svo hreint og skært.
Lát það skína,
svo fleiri njóti
og vittu til það birtir upp.
Hvíldu í friði, kæra Særún.
Með kvenfélagskveðju,
Erla Bil Bjarnardóttir.
Særún
Sigurgeirsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birt-
ingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur.
Minningargreinar