Morgunblaðið - 25.03.2022, Page 46
46 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022
40 ÁRA Kolbrún Halla ólst upp í Mos-
fellsbæ og hefur nær alla tíð búið þar. Hún
er með BA-gráðu í félagsráðgjöf frá Há-
skóla Íslands og MA-gráðu í mannauðs-
stjórnun frá HÍ. Hún er aðstoðarleik-
skólastjóri í Leirvogstunguskóla í
Mosfellsbæ. Áhugamál Kolbrúnar eru úti-
vist, ferðalög, hreyfing og samvera með
fjölskyldu og vinum.
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Kolbrúnar
er Elvar Þór Grétarsson, f. 1980, verktaki
hjá Garra. Börn þeirra eru Hrafnhildur
Tinna, f. 2006, Theódór Grétar, f. 2011, og
Nökkvi Hrafn, f. 2018. Stjúpsonur Kol-
brúnar er Janus Óli, f. 1999. Foreldrar
Kolbrúnar eru Ingólfur Ólafsson, f. 1956,
bifvélavirki með eigið verkstæði, og Haf-
dís Heiðarsdóttir, f. 1956, hárgreiðslu-
kona. Þau eru búsett í Mosfellsbæ.
Kolbrún Halla Ingólfsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Láttu ekki aðra stjórna þér með ótta
eða hótunum í dag. Sýndu háttprýði í allri
framgöngu því þá mun þér farnast vel.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það er eitt og annað sem þú hefur lát-
ið sitja á hakanum, en nú skaltu bretta upp
ermarnar og hefjast handa. Byrjaðu á því að
losa þig við óþarfa dót.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú þarft að finna leið til þess að
vinna hugmyndum þínum brautargengi.
Leitaðu ráða hjá sérfræðingum til þess að
áætlanir þínar séu líklegar til að standast.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú ert í skapi til að láta ljós þitt skína
en þarft þó ekki að ganga fram af við-
stöddum. Einhver reynir að gera þér lífið
leitt svo nú reynir verulega á þolinmæðina.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Hlauptu í átt að tækifærunum, tilbúinn
til að taka ákvörðun. Nú er kjörinn tími til
þess að fjárfesta í einhverju sem mun fegra
heimili þitt.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Liggðu ekki á skoðunum þínum held-
ur láttu þær í ljósi því það auðveldar lífið.
Það segir þér oft meira það sem fólk segir
ekki heldur en það sem það segir.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú stendur á einhvers konar tímamót-
um og þarft því að íhuga vandlega næstu
skref. Þú færð ef til vill óvænta gjöf frá ein-
hverjum á næstunni.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú ættir að brjóta upp daginn
með einhverju óvæntu. Fjárhagsleg tækifæri
birtast en þú skalt fara þér að engu óðslega.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Gættu þess að þú látir ekki erf-
iðleika þína bitna á þínum nánustu. Fjöl-
skyldumál og annað er varðar heimilið
þarfnast athygli þinnar núna.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Stundum er nauðsynlegt að deila
hlutum með öðrum svo hjólin snúist og mál
komist í höfn. Nú reynir aldeilis á hæfileika
þína.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Einhver gerir mikið úr smá-
atriðum í dag svo sýnin á heildarmyndina fer
forgörðum. Reynsla þín og hæfni ættu að
fleyta þér í höfn.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Hlustaðu vandlega á aðra, líka þá
sem tala fyrir skoðunum sem þér eru á móti
skapi. Einbeittu þér að styrkleikum þínum,
þú býrð yfir mörgum.
Helstu áhugamál
Ferðalög hafa heillað Elísabetu
frá því að hún var ung. „Það er fátt
betra en gott ferðalag með fjölskyld-
unni og/eða góðum vinum, sama
hvort það er hér heima eða erlendis.
Sem einkabarn var ég svo heppin
að fá að ferðast mikið með þeim hér
heima og til útlanda. Pabbi minn sat
á Alþingi og var jafnframt fulltrúi
Íslands og formaður íslensku sendi-
nefnarinnar á þingi Evrópuráðsins í
Strassborg í áraraðir og þurfti að
Við bættum fljótlega við lítilli versl-
un þar sem við seljum alls kyns fal-
legan varning til ferðamanna eins og
til dæmis íslenskar handprjónaðar
lopapeysur. Árið 2019 voru byggð
átta lúxussmáhýsi, Seljalandsfoss
Horizons, þannig að umsvifin á veit-
ingavagnsævintýrinu með okkar
kæru vinum hafa aukist jafnt og þétt
og er hvergi nærri lokið. Þetta er
búið að vera ótrúlega gaman. Núna
fara börnin að byrja að vinna með
okkur í fyrirtækinu, enda viljum við
að þetta sé fjölskyldufyrirtæki.“
E
lísabet Ingibjörg Þor-
valdsdóttir Kvaran
fæddist 25. mars 1972
í Reykjavík og ólst
upp í Skerjafirði.
„Skerjafjörður er eins og þorp í
miðri borg og þegar maður elst upp í
svona hverfi þá myndast ævilangur
vinskapur.“
Skólagönguna hóf Elísabet fimm
ára í Ísaksskóla, þaðan fór hún í
Landakotsskóla og svo Hagaskóla.
Hún varð stúdent frá Fjölbraut við
Ármúla. Hún fór í Háskólann í
Reykjavík haustið 2001 þegar þar
var fyrst boðið upp á háskólanám
með vinnu og lauk B.Sc.-gráðu í við-
skiptafræði 2004. Hún settist aftur á
skólabekk í HR 2012 og lauk prófi í
meistaranámi í verkefnastjórnun,
MPM, árið 2014.
Elísabet fékk starf 1996 í Seðla-
bankanum við endurskoðunardeild
og síðar bókhald. Hún vann meira og
minna við fjármál og bókhald til
2005. Þá breytti hún um stefnu og
fór að vinna í Háskólanum í Reykja-
vík árið 2005, lengst af sem verk-
efnastjóri við Opna háskólann.
„Árið 2013 tókum við hjónin þá
ákvörðun með góðum vinum að setja
upp veitingavagn við Seljalandsfoss.
ferðast töluvert. Við mamma fórum
iðulega með í nokkrar ferðir á ári, til
Strassborgar og fleiri staða í Evr-
ópu. Það eru ógleymanlegar ferðir
fyrir barn því ég fékk að vera þátt-
takandi í öllu með þeim. Ég hef hald-
ið áfram að ferðast og elska að fara á
framandi staði eins og Jórdaníu og
Egyptaland en líka að heimsækja
mínar uppáhaldsborgir, London,
París, Lyon og fleiri.“
Elísabetu finnst jafnframt gaman
að ferðast um Ísland. „Ég reyni að
fara á Vestfirði á hverju ári. Pabbi
var fæddur á Kirkjubóli í Valþjófsdal
í Önundarfirði og þingmaður fyrir
Vestfirði. Ég eyddi ófáum sumrum á
ferð þar sem barn með foreldrum
mínum. Vestfirsku fjöllin veita mér
orku og náttúran þar er stórbrotin.
Við fórum minna á aðra hluta lands-
ins og ég er því enn að kynnast öllum
þeim dásemdarstöðum sem aðrir
landshlutar hafa upp á að bjóða. Við
fjölskyldan eyðum líka miklum tíma
á Ytra-Seljalandi með Seljalandsfoss
í bakgarðinum.“
Elísabet gengur mikið og fór einn-
ig að spila golf fyrir nokkrum árum.
„Mér þykir það mjög skemmtilegt
enda frábær útivera í skemmtilegum
félagsskap, markmiðið er alltaf að
Elísabet Þorvaldsdóttir Kvaran, viðskiptafræðingur og MPM – 50 ára
Fjölskyldan Elísabet, Heimir og yngri börnin í árlegri göngu í kirkjugarðinn á aðfangadag.
Góð vinátta er ómetanleg
Skerjó-vinkonur Staddar á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði.
Mæðgin Elísabet með elsta barninu, Þorvaldi Garðari.
Til hamingju með daginn
Kópavogur Kamilla Sif fæddist 31.
ágúst 2021 á Landspítalanum í
Reykjavík. Hún vó 3.086 g og var 47
cm löng. Foreldrar hennar eru Birna
Dögg og Aron Þór.
Nýr borgari
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
FUNI dúnúlpa
Kr. 33.990.-
GRÍMSEY han
Kr. 2.990.-
skar
RUMUR flannel skyrta
Kr. 9.990.-
SÓLA zip-off göngubuxur
Kr. 17.990.-
RÖKKVI göngubuxur
Kr. 11.990.-
Þín útivist - þín ánægja
HVÍTANES Merínó hálsklútur
Kr. 4.990.-
HVÍTANES Merínó ennisband
Kr. 2.990.-
BRIMNES
meðalþykk
göngusok
Kr. 2.15
ir
kar
0.-
DRANGSNES merino buxur
Kr. 11.990.-
DRANGSNES hálfrennd peysa
Kr 11 990 -. . .