Morgunblaðið - 25.03.2022, Page 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Hljómsveitakeppnin Músíktilraunir,
sem er ein helsta tónlistarveisla
hvers ár, verður haldin í 39. sinn nú
um helgina, en þá keppa 24 hljóm-
sveitir víða að af landinu um þátt-
tökurétt í úrslitum tilraunanna 2.
apríl. Keppnin verður haldin í
Hörpu, líkt og undanfarin ár.
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í
nóvember 1982 í félagsmiðstöðinni
Tónabæ í Skaftahlíð í samvinnu við
samtök tómlistarmanna, SATT. Það
eru því liðin slétt fjörutíu ár síðan
keppnin hófst, en hún hefur tvívegis
fallið niður á þeim árum, fyrst vegna
verkfalls kennara árið 1984 og svo
vegna Covid-19 árið 2019. Covid og
röskun á skólahaldi hefur líklega sitt
að segja með það að þátttökusveitir
eru færri nú en oft áður, en á síðasta
ári kepptu 45 hljómsveitir.
Fyrsta undankvöld keppninnar
verður á laugardagskvöld kl. 19.30
og svo verður keppninni fram haldið
sunnudagskvöld og mánudagskvöld á
sama tíma.
Verðlaun eru veitt fyrir 1., 2. og 3.
sæti í tilraununum og einnig fyrir
hljóðfæraslátt, söng og íslenska
texta. „Rafheili“ Músíktilrauna fær
líka viðurkenningu. Hljómsveitirnar
sem komast í úrslit eiga þess kost að
taka þátt í nýliðanámskeiði í hljóm-
sveitaiðju sem haldið er í samvinnu
Útón og Tónlistarborgarinnar
Reykjavíkur.
Á hverju undankvöldi velur salur
eina hljómsveit áfram í úrslit og
dómnefnd eina, en dómnefnd getur
svo bætt í úrslit hljómsveitum úr
undankeppninni. Á úrslitakvöldi vel-
ur dómnefnd vinningssveitir, en
áhorfendur og -heyrendur kjósa
Hljómsveit fólksins í símakosningu.
Dómnefndina 2021 skipa ofanrit-
aður og Arnar Eggert Thoroddsen,
Hildur Guðný Þórhallsdóttir, Hrafn-
kell Örn Guðjónsson, Kristján Krist-
jánsson, Krummi Björgvinsson og
Steinunn Sigþrúðardóttir Jónsdóttir.
Sigursveitir Músíktilrauna eru
margar með þekktustu hljómsveitum
íslenskrar rokksögu, til að mynda
Greifarnir, Stuðkompaníið, Kolrassa
Krókríðandi, Maus, Botnleðja, Mín-
us, 110 Rottweiler hundar / XXX
Rottweiler hundar, Mammút, Jak-
obínarína, Agent Fresco, Bróðir
Svartúlfs, sem varð Úlfur Úlfur og
Of Monsters and Men. Í síðustu til-
raunum sigraði hljómsveitin Ólafur
Kram.
26. mars
Woolly Mammoth’s Absence
Woolly Mammoth’s Absence er
hugarfóstur Einars Karls Péturs-
sonar, gítarleikara og söngvara, sem
fékk til liðs við sig þá Ásgeir Kjart-
ansson, sem leikur á trommur, Breka
Hrafn Ómarsson, sem leikur á gítar,
melódíku, munnhörpu og sög og
syngur bakraddir, og Egil Ara
Hreiðarsson, sem leikur á bassa.
Þeir eru úr Kópavogi, Reykjavík og
Hafnarfirði
Upprunalega er hljómsveitin fyrir
verkefni Einars og var sett saman
fyrir Músíktilraunir fyrir nokkrum
vikum. Þeir segjast leika tilrauna- og
þjóðlagakennt rokk.
Donyen
Róbert Donoyan Sigurðsson er
rappari úr Reykjavík sem notar
listamannsnafnið Donyen. Hann er
24 ára og hefur rappað og plötusnúð-
ast í áratug.
Hunulu
Reykvíkingarnir Baldur Kári
Malsch trommuleikari, Emil Logi
Heimisson píanóleikari, Ásgeir Helgi
Ásgeirsson gítarleikari, Örn Kjart-
ansson bassaleikari og Númi Hrafn
Baldursson gítarleikari skipa hljóm-
sveitina Hunulu. Þeir eru allir fimm-
tán ára nema Baldur sem er þrettán.
Sveitin kom saman fyrir tveimur ár-
um til að taka upp tónlist fyrir stutt-
mynd í dönsku. Þeir leika ýmiss
konar tónlist en hallast helst að jazz
og stefna á að gefa út sína fyrst
plötu núna á vormánuðum.
Hárún
Helga Rún Guðmundsdóttir kem-
ur fram undir listmannsnafninu
Hárún. Hún er 21 árs og úr Reykja-
vík, leikur á gítar og syngur. Hún
hefur fengist við tónlist í tvö ár og
lýsir tónlistinni sem draumkenndu
þjóðlaga-indípoppi með elektró
áhrifum og segist syngja af innlifun
á íslensku.
Kusk
Kusk, eða Kolbrún Óskarsdóttir,
er átján ára miðbæjarrotta úr
Reykjavík. Hún semur, syngur og
pródúserar flest lögin sín sjálf en
segist oft fá hjálp frá góðum vinum
þegar hún rekist á vegg og til að út-
setja. Styrkleikar hennar eru gúrk-
ur, espresso og Vesturbæjarlaugin.
Veikleikar auðtrúa, IKEA og
Vesturbæjarlaugin.
Raggi Jóns & Band
Hafnfirðingurinn Ragnar Már
Jónsson fer fyrir sveitinni Raggi
Jóns & Band. Hann er saxófónleik-
ari en með honum í bandinu eru Jó-
hannes Guðjónsson hljómborðsleik-
ari, Albert Elías Arason bassa-
leikari, Guðmundur Arnþór
Hreinsson gítarleikari og Unnar
Lúðvík Björnsson trommuleikari.
Þeir eru á aldrinum 21 til 24 ára og
leika blöndu af jazz, poppi og R’n’B
með saxafóninn í aðalhlutverki.
Ókindarhjarta
Þau Nóam Óli Stefánsson, Þór-
hildur Helga Pálsdóttir, Þór Ari
Grétarsson og Amalía Ólafsdóttir
kalla sig Ólíkindahjarta. Nóam leik-
ur á gítar, Þórhildur syngur og leik-
ur á bassa, Þór syngur líka og leikur
á bassa og gítar og Amalía leikur á
trommur. Þau eru á aldrinum 16 til
18 ára, menntskælingar í MH og
Borgarholtskóla og hafa öll verið í
tónlistarnámi.
Little Menace
Rokksveitin Little Menace snýr
aftur í Músíktilraunir. Hún er ættuð
úr Hafnarfirði, en teygir sig líka til
Reykjavíkur og Keflavíkur. Jasper
Matthew Bunch syngur og leikur á
hljómborð, Sigurður Már Gestsson
leikur á rafgítar, Davíð Máni Stef-
ánsson á rafbassa og Árni Tómas
Sveinbjörnsson á trommur. Þeir
eru á aldrinum 22 til 24 ára og gáfu
út sína fyrstu stuttskífu um ára-
mótin.
27. mars
Heagle
Heagle er sviðsnafn Vestur-
bæingsins Hlífars Arnar Jak-
obssonar sem er að stíga sín fyrstu
skref á tónlistarbrautinni. Hann
kenndi sjalfum sér að syngja,
semja, spila á gítar, bassa og smá
píanó og útsetur líka öll lögin
sjálfur.
Merkúr
Eyjasveitin Merkúr hefur áður
tekið þátt í Músíktilraunum. Hana
skipa gítarleikararnir og söngvar-
arnir Arnar Júlíusson og Trausti
Mar Sigurðarson, trommuleikarinn
Mikael Magnússon og bassaleik-
arinn Birgir Þór Bjarnason. Þeir
eru á aldrinum 20 til 24 ára og leika
rokk í þyngri kantinum, enda var
sveitin beinlínis stofnuð með það
markmið að endurlífga þungarokks-
senuna í Vestmannaeyjum.
Purple9
Júlíus Örn Breiðfjörð Örnuson,
píanó- og hljómborðsleikari, Guð-
mundur Gunnar Eiðsson gítarleik-
ari, Guðmundur Örn Reynisson
trommuleikari og Anton Bjarmi
Björnsson, bassa- og gítarleikari,
kalla sig Purple9. Þeir eru 16 og 17
ára, úr Reykjavík og spila popp og
rokk og stundum jazz.
Bí Bí & Joð
Reykjavíkursveitin Bí Bí & Joð
var stofnuð þegar við sveitar-
meðlimir vorum í 8. bekk, árið 2017.
Sveitina skipa Irma Sara Hjör-
nýjardóttir trommuleikari, Þor-
gerður Harpa Ragnarsdóttir píanó-
leikari, Svanhildur Guðný
Hjördísardóttir söngvari og Jakob
Freyr Einarsson bassaleikari og
Lára Ruth Clausen og Fannar Árni
Ágústsson sem syngja bakraddir.
Þau eru öll 18 ára nema Fannar
sem er 17. Þau segjast semja alls
konar tónlist sem komi þó öll frá
hjartanu.
Flea Market Sweater
Hljómsveitina Flea Market
Sweater skipa Einar Karl Péturs-
son gítarleikari, Jón Logi Pálma
bassaleikari og Óðal Hjarn Grétu
hljóðgervilsleikari. Liðsmenn hafa
starfað örstutt saman, eru 20 til 22
ára, úr Kópavogi og leika lág-
stemmt tilraunarokk.
Sóðaskapur
Reykvíska þríeykið Sóðaskap
skipa Lára Snædal Boyce, sem leik-
ur á trommur og bassa og syngur,
Hildur Björg Jónsdóttir, sem leikur
á gítar og syngur, og Sientje Sól-
björt Nína de Wagt, sem leikur á
trommur og bassa og syngur. Þær
eru 20 til 22 ára og hafa starfað
saman í sex mánuði. Nafn sveit-
arinnar vísar í hina ófullkomnu og
subbulegu hlið pönksins og lög
þeirra eru afrakstur áralangrar
reiði gagnvart yfirvaldinu, feðra-
veldinu og kapítalismanum.
ÓHP
Ólafur Hálfdan Pálsson, eða bara
ÓHP, er 22 ára Reykvíkingur sem
leikur á gítar og syngur. Hann tók
þátt í síðustu tilraunum og gekk þá
vel þótt ekki hafi hann komist í úr-
slit, en segist hafa lært mjög mikið
frá því á síðasta ári.
Gunni Karls
Gunnar Valur Karlsson, Gunni
Karls, er 16 ára Hafnfirðingur sem
hefur verið að semja og flytja tón-
list í hálft annað ár. Hann segist
spila bæði gróft og chill rap/hiphop.
Ein helsta tónlistarveisla ársins
- Hljómsveitakeppnin músíktilraunir hefst á laugardagskvöldið í Hörpu - Keppnin haldin í 39. sinn
- 45 hljómsveitir keppa um sæti í úrslitum í aprílbyrjun - Hver sveit með sinn stíl og sína stefnu
Bí Bí & Joð spilar alls konar tónlist beint frá hjartanu.
Heagle er Hlífar Örn Jakobsson. Gunnar Valur Karlsson flytur gróft og chill rapp og hiphop.
Merkúr vill auka veg þungarokks í Vestmannaeyjum.
Dóra og Döðlurnar snúa aftur til leiks.
Ragnar Már Jónsson spilar R’n’B.