Morgunblaðið - 25.03.2022, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 25.03.2022, Qupperneq 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 AF LISTUM Þorgeir Tryggvason Pólska grasrótin er tvímæla- laust eitt það áhugaverðasta sem er að gerast í íslensku leikhúslífi þessi árin. Það er næsta einstakt í Íslandssögunni að heilt samfélag með sameiginlegan bak- grunn, mál og menningu grípi til leiklistarinnar, og annarra list- greina, til að skoða, greina, gagn- rýna og skemmta sér yfir sam- skiptum sínum við „okkur“, hina rótgrónari eyjarskeggja. Það er ljóst af þessum sýningum að þær eiga erindi við báða hópana: heima- ræktaða Íslendinga og hinn stóra minnihlutahóp Pólverja sem er orð- inn hér rótgróinn, en er með rætur, og annan fótinn, í gamla landinu, eins og Vestur-Íslendingar sögðu á sínum tíma um sín fyrri heimkynni. Nýjasta sýningin úr þessari átt er Tu jest za drogo, eða Úff hvað allt er dýrt hérna, sem leikhóp- urinn PóliS sýnir á litla sviði Borgarleikhússins um þessar mundir. Aðalhöfundur er Ólafur Ásgeirsson, sem jafnframt bregður sér í ýmis Íslendingahlutverk í verkinu, en leikstjóri er Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir. Leikmynd og búninga hannar Wiola Ujaz- dowska, Fjölnir Gíslason sér um lýsinguna, Cameron Corbett stýrir sviðshreyfingunum og tónlistin er verk Unnsteins Manúels Stefáns- sonar. Hér er sjónum beint að fyrstu kynnum tveggja ungra Pólverja af landinu sem þau ætla að dvelja á í nokkra mánuði meðan þau safna fyrir brúðkaupinu sínu, en líka samskiptum þeirra við rótgrónari landa þeirra, sem hafa ílenst hér, þó allt sé dýrt, ekki síst bjórinn, heimamenn sjúgi óþarflega oft upp í nefið og þjáist af þeirri ein- kennilegu ranghugmynd að lakkrís og súkkulaði séu óaðskiljanleg. En hér eru líka persónulegri og sammannlegri áskoranir til skoðunar. Það hriktir í sambandinu sem kannski stendur ekki á sérlega traustum stoðum og þolir illa mót- lætið sem óhjákvæmilega fylgir því að byrja nýtt líf í nýju landi. Og Á leið í verbúðina Sjarmerandi „Aleksandra Skolozynska og Jakub Ziemann eru mjög geðþekk og sjarmerandi í hlutverkum parsins,“ segir í rýni um Tu jest za drogo sem leikhópurinn PóliS sýnir á litla sviði Borgarleikhússins. kannski er fólk mislangt komið á þroskabrautinni og ræður misvel við verkefnið. Það er margt sem glepur á leiðinni frá Keflavík til Eski, þar sem ætlunin er að rífa upp pening fyrir stjörnuplötusnúði og veislustjóra. Þessir tveir þættir, þróun sam- bands Eugeniuszar og Nadzieju, og sketsakennt skop um menningar- árekstra, þvælast nokkuð fyrir hvor öðrum í handriti Ólafs. Til- finningamálin öðlast litla dýpt og skopið fær ekki nóg pláss, þó það sé vissulega bitastæðari hluti verksins eins og það kemur fyrir sjónir í sýn- ingunni. Ótal sameiginleg pólsk- íslensk hlátrasköll í salnum voru til vitnis um það. Aleksandra Skolozynska og Jakub Ziemann eru mjög geðþekk og sjarmerandi í hlutverkum pars- ins en ágallar efniviðarins bitna harðast á þeim. Sylwia Zajkowska og Andrés P. Þorvaldsson bregða sér í nokkur hlutverk, þeirra fyrir- ferðarmest flugþjónarnir sem bjóða fólk velkomið til leiks í upphafi sýn- ingar, og þau leystu ágætlega. Það kemur í hlut Ólafs Ásgeirssonar að túlka Íslendingana sem verða á vegi parsins, og þar ríkir að mestu groddaleg en oft áhrifarík skop- færsla, sem stingur í stúf við annan leikstíl sýningarinnar en hefði ef til vill betur verið grunntónninn. Tu jest za drogo voru fyrstu kynni þess sem þetta skrifar af Thea-appinu, sem miðlar þeim texta sýningarinnar sem áhorf- endur ekki skilja, pólskunni á ís- lensku fyrir Íslendinga og íslensk- unni á pólsku fyrir pólskumælandi áhorfendur (geri ég ráð fyrir). Þetta gekk snurðulítið, þó erfitt sé að ýta frá sér skömmustutilfinning- unni yfir að glápa á símaskjáinn á miðri leiksýningu, þar sem leik- ararnir á sviðinu eiga tilkall til óskiptrar athygli manns. En sam- skipti yfir tungumála- og menning- armúrinn kalla á málamiðlanir og þær erum við fús til að gera ef það má verða til þess að þessi merkilegi þráður í leiklistarsögu okkar nái að spinnast áfram, þykkna og styrkj- ast. » Pólska grasrótin er tvímælalaust eitt það áhugaverðasta sem er að gerast í íslensku leikhúslífi þessi árin. Baldvin Hlynsson píanóleikari og Leifur Gunnarsson kontrabassa- leikari koma fram þessa dagana í tónleikaröð Borgarbókasafns, Jazz í hádeginu. Yfirskrift tónleika fé- laganna er „Óskalög hlustenda“. Koma þeir fram í bókasafninu í Gerðubergi í dag, föstudag, kl. 12.15 og á morgun, laugardag, í bókasafinu Spönginni kl. 13.15. Hlustendur hafa fengið að velja sér óskalög sem þeir Baldvin og Leifur leika síðan fyrir þá og er úr mörgum lögum að velja – „Fræbbblarnir, Elton John, Bubbi, Haukur Morthens nú eða bara gamla góða Sveitin milli sanda?“ spyrja þeir. Baldvin hefur unnið með ýmsu tónlistarfólki og hljómsveitum á Ís- landi en þar mætti nefna Kristínu Sesselju, HipsumHaps, Sturlu Atl- as, ClubDub, Draumfarir, Salóme Katrínu, Salsakommúnuna og Herra Hnetusmjör. Hann hefur BA- gráðu í djasspíanóleik frá Kon- unglega tónlistarháskólanum í Stokkhólmi. Leifur er listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar í Borgarbókasafni. Píanóleikarinn Baldvin Hlynsson hefur BA- gráðu í djasspíanóleik frá Stokkhólmi. Baldvin og Leifur djassa óskalögin Hérna er yfirskrift sýningar á vegum FÍSL, Félags íslenskra samtíma- ljósmyndara, sem verður opnuð á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum í dag, föstudag, kl. 17. Um er að ræða sam- sýningu íslenskra og finnskra ljós- myndara og er þetta síðasta sýningin sem verður opnuð á Ljósmyndahátíð Íslands 2022. Auk 23 meðlima FÍSL taka fjórir finnskir ljósmyndarar þátt í henni. Verkin á sýninguna voru valin af sýningarstjóranum Mike Watson fyrir hönd Northern Photographic Center í Finnlandi. „Hérna sameinar listamenn frá tveimur svipuðum en þó mjög ólíkum löndum í samræðu um hvað það þýðir að vera til staðar, hér og nú,“ segir í tilkynn- ingu. Sýningin verður opin tvær helgar, lýkur 3. apríl. Sýning á verkum eftir 27 ljósmyndara Sundlaug Ljósmynd eftir Braga Þór Jós- efsson á sýningunni á Hlöðuloftinu. Karin Torbjörnsdóttir mezzósópran og Elena Postumi píanóleikari koma fram á Söngskemmtun Ís- lensku óperunnar í Norðurljósum í Hörpu í kvöld, föstudagskvöld, klukkan 20. Í tilkynningu segir að þær flytji fallega dagskrá valinna verka, með- al annars eftir Debussy, Poulenc og Daníel Bjarnason. Tónleikarnir bera yfirskriftina Söngvar hjartans. Karin kom í fyrsta sinn fram hjá Íslensku óperunni í Brúðkaupi Fíg- arós árið 2019 þegar hún söng hlut- verk Cherubinos og hlaut hún Grímuverðlaunin sem söngvari árs- ins 2020 fyrir túlkun sína á hlut- verkinu. Elena hefur tekið þátt í ýmsum uppfærslum Íslensku óper- unnar og gegnir nú stöðu sem „solo- repetiteur“ og aðstoðarhljóm- sveitarstjóri við Staatstheater í Darmstadt. Söngkonan Karin Torbjörnsson. Karin og Elena á Söngskemmtun Hinn vinsæli írski rithöfundur Colm Tóibín hreppti Rath- bones Folio-- verðlaunin fyrir The Magician, skáldaða ævi- sögu þýska rit- höfundarins Thomasar Manns. Rétt eins og í bók frá 2004, sem byggðist á lífi rithöfundarins Henrys James, beitir Tóibín þeirri aðferð að horfa í hug rithöfund- arins á óróatímum í Evrópu. Tóibín greindist með krabbamein þegar hann hafði skrifað fjóra kafla sögunnar en gat haldið vinnunni við hana áfram eftir erfiða sex mánaða lyfjameðferð. Verðlaunaður fyrir sögu um Mann Colm Tóibín Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég vissi auðvitað af þessum verð- launum, en datt ekki í hug að fá þau fyrr en kannski í fyrsta lagi eftir 40 ár, ef ég þá fengi þau. Ég varð því orðlaus þegar ég fékk símtalið þar sem mér var tilkynnt þetta. En það er kannski viðeigandi að fara í smá sjokk þegar maður fær Schock- verðlaunin,“ segir píanóleikarinn Vík- ingur Heiðar Ólafsson. Í gær var tilkynnt að hann er einn fjögurra verðlaunahafa Rolf Schock- verðlaunanna í ár. Verðlaunin, sem að jafnaði hafa verið veitt annað hvert ár síðan 1993, eru veitt í tónlist, heim- speki, stærðfræði og sjónlist. Aðrir verðlaunahafar ársins eru heimspek- ingurinn og rökfræðingurinn David Kaplan, stærðfræðingurinn Jonathan Pila og arkitektinn Rem Koolhaas. Hver verðlaunahafi hlýtur 500 þús- und sænskar krónur eða 6,8 milljónir íslenskra króna. Verðlaunin verða af- hent við hátíðlega athöfn í Stokk- hólmi 24. október. Víkingur Heiðar er fyrsti Íslend- ingurinn sem hlýtur þessi verðlaun. Meðal þeirra sem hlotið hafa Schock- verðlaunin í tónlist á undan honum eru ungverska tónskáldið og píanó- leikarinn György Kurtág (2020), kanadíska söngkonan og stjórnand- inn Barbara Hannigan (2018) og bandaríski saxófónleikarinn og tón- skáldið Wayne Shorter (2017). „Fyrri verðlaunahafar eru fólk sem ég lít mikið upp til. Það snertir því hjartastreng að vera tekinn inn í þennan hóp. Sem dæmi er György Kurtág einn af mínum uppáhalds- tónlistarmönnum sem ég hitti í Búda- pest í haust og átti ótrúlega stund með honum,“ segir Víkingur og tekur fram að það sem allir fyrri verðlauna- hafar eigi sameiginlegt sé að vera tónlistarfólk sem farið hafi sína leið og verið óhrætt við að endurnýja sig í listinni. „Það segir mér að ég sé mögulega á einhverri réttri leið með það sem ég er að gera.“ Víkingur einn frumlegasti tónlistarmaður samtímans Í umsögn Konunglegu sænsku akademíunnar í tónlist segir að Vík- ingur hljóti viðurkenninguna „fyrir árangursríkt brautryðjandastarf í því að þróa og styrkja klassíska tónlist. Víkingur er einn frumlegasti og mest skapandi tónlistarmaður samtímans. Með hverju tónverki skapar hann nýjan heim sem tjáir bæði dýpt og andagift sem skilur eftir einstök hug- hrif hjá hlustandanum.“ Inntur viðbragða við þessari um- sögn segir Víkingur að sér sé orða vant yfir þessu mikla lofi. „Mér þykir mjög vænt um þessa umsögn, þótt ég myndi aldrei sjálfur lýsa sjálfum mér svona. Það gleður mig að tekið sé eft- ir því sem ég er að gera utan tónleika- sviðsins,“ segir Víkingur en í um- sögninni er sérstaklega minnst á tónlistarmiðlum hans í bæði útvarpi og sjónvarpi. Víkingur hlýtur Rolf Schock-verðlaunin - Verðlaunin afhent í Svíþjóð 24. október - „Varð orðlaus“ Morgunblaðið/Einar Falur Sjokk Víkingur segir viðeigandi að fá sjokk þegar maður fær Schock.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.