Morgunblaðið - 25.03.2022, Page 56

Morgunblaðið - 25.03.2022, Page 56
FERMINGAR TILBOÐ GÓÐUR STUÐNINGUR VIÐMJÓBAK ÝMIR HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT POKAGORMAKERFI Styður mun betur við líkamann en venjuleg %ECG4!'C=, 8E!4%ECG4CF#C 'C@ G'QG#B0 L3!!@G ?*C '&A#C L?* $?4C L'#C 'C@ BA4QB'AA#C * (MF@FF#,9"N!#C ?#Q 4>R4B?-Q#2 BA*=C ?#Q G"P)4!BB?-Q#2G#RR#BA*=C * G#Q"@FF#, 330 gormar per fm2, 7?*$'CA BA.R, VERÐ ÁÐURSTÆRÐ VERÐ NÚ 120×200 140×200 150×200 99.900 kr. 114.900 kr. 129.900 kr. 89.900 kr. 104.900 kr. 119.900 kr. 1RR ?'CQ G'Q 86 )EAF# E% &PA@G, J7:, I'#C# BA-Q#C * )EQ#, V e rð b ir t m e ð fy ri rv a ra u m in n sl á tt a rv il lu r o g /e ð a b re yt in g a r. FRIGG, ÓÐINN OG IÐUNN: 1RR ?'CQ 'C@ G'Q 86 )EAF# E% &PA@G, J7:, I'#C# BA-Q#C * )EQ#, STÆRÐ VERÐ ÁÐUR VERÐ NÚ 120×200 140×200 150×200 139.900 kr. 159.900 kr. 179.900 kr. 119.900 kr. 139.900 kr. 159.900 kr. IÐUNN GÓÐ SJÖ SVÆÐASKIPT HEILSUDÝNA SEM STYÐUR RÉTT VIÐ LÍKAMANN HEER '&F4)R4F(4F 4QR4%4BA R*!4G4F@GE% %'&@C )'AC# OF(@F,;PQLCMBA#"O&F@FE% C+AA@C BA@QF#F%@C AC3%%#C )'AC4 )RPQI-Q# E%)'AC# R*Q4F2 LN &-CQ(MDC# E%)'AC# B?'&F, FRIGG HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT HEILSUDÝNAÁ FRÆBÆRUVERÐI 9'QK B?-Q4B!#DA@ DE!4%ECG4!'C=,;PQ@C G"P)4!BBA@QF#F%@C, 9M!C4 E% )'AC4 4>R4B?-Q#, /CMBA#"O&F@F4C'&F# * )PRBAC@F, 54F(4Q4C !4FABA3C!#F%4C, <@RR!EG#F FMA#F% . B?'&FI'A#, ÓÐINN HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT HEILSUDÝNAÁ FRÆBÆRUVERÐI 9'QK B?-Q4B!#DA@ DE!4%ECG4!'C=,;PQ@C G"P)4!BBA@QF#F%@C,9M!C4 E%)'AC4 4>R4B?-Q#, /CMBA#"O&F@F4C'&F# * )PRBAC@F,54F(4Q4C !4FABA3C!#F%4C,<@RR!EG#FFMA#F% . B?'&FI'A#, – MILLISTÍF – STÍF 25% AFSLÁTTUR AF FYLGIHLUTUM VIÐ DÝNUKAUP VERÐ SEM KOMA Á ÓVART Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Rokksveitin Sólstafir kemur fram á Háskólatónleikum í hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla Íslands í hádeginu í dag, föstudag, og hefur sveitin leik klukkan 11.30. Allir eru velkomnir meðan húsrými leyfir og er aðgangur gjaldfrjáls. Tónleikunum verður einnig streymt og hægt verður að horfa á þá síðar í upptökuformi. Sveitin á rætur í hinu svokallaða svartþungarokki en snemma var sveigt inn á ókunnar lendur og þróun tón- málsins hefur verið ævintýraleg síðan. Í dag er sveitin þekkt á alþjóðavettvangi og hefur leikið víða um lönd. Sólstafir leika á háskólatónleikum í hátíðarsal aðalbyggingar í dag FÖSTUDAGUR 25. MARS 84. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Ronaldas Rutkauskas fór mikinn fyrir Þór frá Þorláks- höfn þegar liðið styrkti stöðu sína á toppi úrvalsdeildar karla í körfuknattleik, Subway-deildinni, með sigri gegn KR á Meistaravöllum í Vesturbæ í 20. umferð deild- arinnar í gær. Þá er Vestri fallinn úr efstu deild eftir tap gegn Breiðabliki í Smáranum í Kópavogi. »48 Þór styrkti stöðu sína á toppnum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Starfið er mjög erfitt, krefjandi, en samt sem áður mikil upplifun,“ segir Helga Jónsdóttir, rúmlega tvítug stúlka, sem fyrst íslenskra kvenna starfar sem líf- vörður Margrétar Danadrottningar, en hún hefur gegnt starfinu síð- an í nóvember. Foreldrar Helgu, Guðrún Bjarnadóttir, snyrti- og förð- unarfræðingur, sem rekur eigið fyrirtæki á sviði heilsu og útlits, og Jón Arnar Freys- son, tölvufræðingur hjá Kaupmanna- hafnarflugvelli (CPH), fluttu til Dan- merkur 1996 og þar fæddist Helga árið 2000. Eldri bróðir hennar er Freyr og yngri systir Rakel. „Þau eru bæði stolt af mér en hafa ekki áhuga á að feta sömu leið.“ Ekki eru mörg ár síðan konur fengu inngöngu í lífvörðinn og þær eru núna um 10% starfsmanna, að sögn Helgu. „Í mínum hópi eru 35 konur í 400 manna herflokki.“ Helga segist hafa sótt um því sér hafi þótt starfið spennandi og viljað reyna á getu sína og þol. Inngönguskilyrðin hafi verið ströng og síðan hafi tekið við krefjandi herþjálfun í fjóra mán- uði, frá fimm á morgnana til átta á kvöldin. Aginn sé mikill og mikið lagt upp úr þrifum og þrifnaði. Á undir- búningstímanum hafi þurft að þrífa svefnskálann vandlega, strauja skyrt- ur, brjóta saman föt og pússa skó og búnað enda hafi þurft að sýna lið- þjálfum, undirforingjum og kaftein- um tilhlýðilega virðingu í framkomu og klæðaburði. Með svarta beltið „Dagarnir voru mismunandi, suma daga vorum við úti að skjóta á skotvellinum, svo vorum við líka oft úti í skógi og gistum þar sem maður var bæði kaldur og skítugur.“ Helga segir að starfsvalið hafi ekki komið vinkonunum á óvart. „Þær voru ekki hissa, sérstaklega ekki þegar þær vissu að ég væri úti í skógi með byssu. „Þetta ert akkúrat þú, Helga,“ sögðu þær.“ Hún skemmti sér með þeim í frítímanum og hafi mikinn áhuga á bardagalistum og líkams- rækt. „Ég er með svarta beltið í kar- ate og æfi krav maga, sem Imi Licht- enfeld þróaði í hernaðarlegum tilgangi, sérstaklega fyrir ísraelska herinn á fimmta áratugnum.“ Helga segist hafa upplifað margt skemmtilegt í þjálfuninni en líka mjög mikið álag úti á víðavangi. Til dæmis hafi tekið á að vera lengi niðri í ísköldu vatni og að ganga marga kílómetra í takt með þungan búnað og bakpoka. Æfingarnar miðast við að vernda konungsfjölskylduna og öll samskipti lúta heraga. „Ég þarf að hlýða liðþjálfum, undirforingjum, liðsforingjum, ofurstum og hershöfð- ingjum mínum ásamt drottningar- fjölskyldunni í einu og öllu,“ segir Helga. Hún hafi skrifað undir þagn- arskyldu í upphafi og þurft að leggja fram samþykki lögreglunnar (poli- tiets efterretningstjeneste). „Drottningarvaktin er í rúma 30 tíma hverju sinni og ég næ að sofa í einn til þrjá tíma á vakt,“ segir Helga. „Ég hef varið meira en 100 klukku- stundum í að pússa stígvélin mín svo hægt sé að spegla sig í þeim auk þess að pússa tösku, sverðsslíður og skó.“ Lífvörður drottningar - Helga Jónsdóttir fyrst íslenskra kvenna sem gegnir starfinu Lífvörður Helga Jónsdóttir er í ábyrgðarstöðu hjá Danadrottningu eftir að hafa lokið krefjandi herþjálfun í fjóra mánuði. Helga Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.