Fréttablaðið - 14.04.2022, Blaðsíða 1
7 3 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 1 4 . A P R Í L 2 0 2 2
Árnastofnun
í sextíu ár
Leiklistin verði
að ævistarfi
Tímamót ➤ 20 Lífið ➤ 30
Skoðaðu
blaðið á
netto.is
Páskablað
Nettó
Frábært úrval af páskamat,
góð tilboð, viðtöl og uppskriftir
páskana!
Opið alla
– Nánar á kronan.is
Gleðilega
páska!
Oddvitar níu stjórnmálaflokka sem gefa kost á sér fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor, mættust í fyrsta sinn í gær. Tilefnið var fundur Samtaka um bíllausan lífsstíl sem haldinn var á Kex. Fjörugar
umræður sköpuðust um Borgarlínu, hjólreiðar og önnur samgöngumál. Samtökin buðu þeim flokkum að taka þátt sem þegar eiga sæti í borgarstjórn eða mælast með mann inni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Guðrún Reykdal hefur stefnt
ríkinu sem hún telur hafa
brotið á sér við skipun í stöðu
forstjóra Gæða- og eftirlits-
stofnunar. Hún var ein metin
hæf í stöðuna en ráðherra
stöðvaði ferlið, auglýsti aftur
og skipaði annan einstakling.
lovisa@frettabladid.is
DÓMSMÁL Guðrún Reykdal hefur
stefnt bæði fjármála- og efnahags-
ráðherra, Bjarna Benediktssyni, og
félags- og vinnumarkaðsráðherra,
Guðmundi Inga Guðbrandssyni,
vegna meintrar ólögmætrar ákvörð-
unar hvað varðar bæði skipun og
skipunarferli í embætti forstjóra
Gæða- og eftirlitsstofnunar. Guð-
rún sótti um embættið og var metin
hæfust, en þegar komið var að því
að skipa hana tilkynnti ráðherra
henni að hann ætlaði að auglýsa
stöðuna aftur.
Guðrún starfar hjá stofnuninni
og hefur gert um árabil, þar á meðal
sem settur framk væmdastjóri
hennar í 23 mánuði.
Málið var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í vikunni og ríkislög-
manni veittur frestur til að skila
greinargerð en í stefnu krefur Guð-
rún íslenska ríkið um 27 miljónir
og telur að það hafi verið ólögmæt
ákvörðun hjá ráðuneytinu að
stöðva skipunarferlið og auglýsa
embættið að nýju.
Með þessari ákvörðun er ráð-
herra, eða íslenska ríkið, talið hafa
bakað Guðrúnu fjártjón og miska.
Hún krefur ráðherra um þrjár millj-
ónir króna í miskabætur en í kröf-
unni kemur fram að með því að ráða
hana ekki í starfið hafi hann valdið
henni andlegu tjóni, rýrt starfsheið-
ur hennar og álit annarra á henni.
Þá kemur fram að með því að
líta fram hjá henni við skipunina
hafi staða hennar, menntun, starfs-
ferill og reynsla verið sniðgengin á
„einkar niðurlægjandi hátt og verið
höfð að engu.“
Fjártjónið er metið 24 milljónir
króna og er það munurinn á launum
í því starfi sem hún gegnir nú hjá
stofnuninni og launum forstjóra,
út skipunartímabilið, en skipað er
til fimm ára í senn.
Í stefnu sem ráðherra var birt í
vikunni kemur fram að Guðrún
telji ákvörðunina ógildanlega sam-
kvæmt stjórnsýslurétti og ómálefna-
lega, þar sem Guðrún er talin hafa
uppfyllt öll þau skilyrði sem sett
voru í auglýsingu um stöðuna. n
Krefur íslenska ríkið um tugi milljóna í bætur
Guðrún Reykdal