Fréttablaðið - 14.04.2022, Side 6
Flugvélabensín hefur
hækkað úr 41 senti á
gallon í 390 á tæpum
tveimur árum.
kristinnhaukur@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Íslenskt þorskfer-
líki er vóg 51 kílógramm og var 180
sentimetrar að lengd var selt á 165
pund, eða um 28 þúsund krónur,
á fiskmarkaðinum í Grimsby fyrir
skemmstu. Þorskurinn var veiddur
af Bergey, togara Síldarvinnslunnar,
við vesturströnd Íslands í lok mars.
Mikill fjöldi var samankominn
til að líta á ferlíkið þegar það kom á
markaðinn þann 2. apríl og var það
fiskkaupmaðurinn Nathan Godley
sem reiddi fram seðlana. Godley lét
mynda sig með þorskinum stóra
og stillti honum svo upp í glugga
verslunar sinnar í Grimsby áður en
hann bútaði hann niður og seldi til
viðskiptavina. Samkvæmt staðar-
blöðum í Grimsby viðurkenndi
Godley að hafa yfirborgað fyrir
þorskinn, en tækifærið hefði verið
of gott til að sleppa því.
„Ferskleikinn heillaði mig en vita-
skuld snerust þessi kaup um stærð-
ina. Hann var tíu sinnum stærri en
venjulegur þorskur,“ sagði Godley
við blaðið Leicestershire Live.
Þorskurinn, sem var sennilega
um 20 ára gamall, var jafn þungur
og þorskur sem áhöfnin á Sólrúnu
frá Árskógssandi veiddi við Kol-
beinsey fyrir tæpu ári. Vegna þess-
ara risafiska hefur hámarksþyngd
þorsksins verið uppfærð á alfræði-
síðunni Wikipedia úr 40 kílóum í
50.
Samkvæmt Vísindavef Háskóla
Íslands er talið að stærsti þorskur
sem veiðst hafi við Íslandsstrendur,
árið 1941 á Miðnessjó, hafi verið í
kringum 60 kíló. En það hefur ekki
fengist staðfest. Stærri þorskar hafa
veiðst í Atlantshafi, sá stærsti sem
vitað er um í kringum 70 kíló við
Nýfundnaland. n
Seldu íslenskt þorsktröll
Áhöfnin á Bjargey dró ferlíkið um
borð. MYND/SÍLDARVINNSLAN
Dúkaloft
Dúkaloft gefur hljóðvist algjörlega nýja merkingu
Komdu við í sýningarsal okkar að Dalvegi og ræddu
við sérfræðinga Parka og fáðu faglega ráðgjöf
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi • 595 0570
benediktboas@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Í ljósi umfjöllunar
um ferjuna Baldur í þætti Kveiks
sendu sveitarfélögin á sunnanverð-
um Vestfjörðum, Vesturbyggð og
Tálknafjarðarhreppur frá sér yfir-
lýsingu, þar sem þau krefjast þess að
ferjunni verði lagt fyrir fullt og allt.
Í þættinum var ömurlegt ástand
skipsins sýnt, bæði hvað varðar
öryggismál sem og almennan
aðbúnað.
Sveitarfélögin hafa ítrekað bent
á þá staðreynd fyrir daufum eyrum
að ferjan uppfylli ekki þá öryggis-
þætti og aðbúnað sem nútíma
ferja á að gera. „Öryggi farþega og
áhafnar er stefnt í hættu alla daga
og krefjast sveitarfélögin þess að
samstundis verði brugðist við og
ráðstafanir gerðar,“ segir í yfir-
lýsingunni. Sveitarfélögin fagna
því að byrjað sé að teikna nýja ferju
en slík áform hafa ekki verið kynnt
fyrir þeim.
Í þættinum kom fram að hafin
væri endurhönnun á ekjubrúm
á Brjánslæk og í Stykkishólmi og
stefnt væri að því að Herjólfur III.
gæti hafið siglingar á haustmán-
uðum 2023. Það finnst sveitarfélög-
unum of langur tími.
„Sveitarfélögin á sunnanverðum
Vestfjörðum krefjast þess að nauð-
synlegar framkvæmdir verði settar
í algjöran forgang og farið verði af
stað með þær strax, svo hægt verði
að leggja núverandi ferju fyrir fullt
og allt,“ segir í yfirlýsingunni. n
Vilja leggja ferjunni
Baldri fyrir fullt og allt
Sveitarfélögin vilja leggja Baldri fyrr
en áætlað er. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Flugvélabensín hefur tífaldast
í verði á tveimur árum. Olíu-
varnir Icelandair eru minni
en áður og engar hjá Play.
Eftirspurnin er mikil eftir
faraldur en miðarnir hækka
í verði.
kristinnhaukur@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Verð á f lugvéla-
bensíni í Evrópu hefur næstum
tífaldast undanfarin tvö ár. Í maí
árið 2020 kostaði hvert gallon 41
bandarískt sent en kostaði 390 um
mánaðamótin samkvæmt skýrslu
Eurocontrol, f lugöryggisstofnunar
Evrópu.
„Við skarpa hækkun olíuverðs
í tengslum við stríðið í Úkraínu
hækkaði Icelandair olíugjald sitt og
sú hækkun hefur farið út í f lugmið-
ann,“ segir í svari Icelandair við fyr-
irspurn Fréttablaðsins um hvernig
f lugfélagið hafi tekist á við þessa
miklu hækkun. Ekki hefur þurft að
fella niður flug vegna kostnaðar.
Helsta vopn Icelandair gegn
sveiflum á eldsneytismarkaði hefur
verið svokallaðar olíuvarnir, það er
að gera langtímasamninga til að
auka á fyrirsjáanleikann. Icelandair
hætti þessum vörnum þegar heims-
faraldurinn stóð sem hæst, vegna
mikillar óvissu um flugáætlunina.
Eftir að faraldrinum létti hefur
félagið byrjað varfærnislega að
auka olíuvarnir. Hefur það tryggt
sér fjórðung af áætlaðri olíunotkun
annars ársfjórðungs og fimmtung af
áætlaðri notkun þriðja ársfjórðungs
á tilteknu verði.
Flugfélagið WOW Air hafði engar
olíuvarnir og spilaði eldsneytis-
verð stóran þátt í að illa fór fyrir
því. Flugfélagið Play hefur enn ekki
komið sér upp olíuvörnum.
„Mjög fáir okkar samkeppnisað-
ila hafa einhverjar varnir að ráði.
Því munu þessa hækkanir veltast
út í verðin eins og í öðrum vöru-
f lokkum,“ segir Nadine Guðrún
Yaghi, upplýsingafulltrúi Play. Verð
á hverjum miða þurfi kannski að
hækka um 20 dollara, eða um 2.500
krónur, til að mæta þessu. „Það
er erfitt að setja varnir þegar verð
sveiflast svona mikið. Þannig að já,
verð munu hækka.“
Í svörum frá bæði Icelandair og
Play kemur hins vegar fram að far-
þegum sé að fjölga mikið þessa
dagana. Ferðaviljinn sé mikill eftir
langvinnan faraldur.
Á árunum fyrir faraldur, 2017
til 2019, var verð á f lugvélabensíni
yfirleitt á bilinu 120 til 200 sent á
gallonið en hrapaði í faraldrinum.
Þegar heimurinn kom úr hægagangi
faraldursins hækkaði verðið hratt
og stríðið í Úkraínu hefur spýtt því
upp enn frekar. Sögulega séð, þegar
verðbólga er tekin með inn í reikn-
inginn, hefur olíuverð aldrei verið
hærra nema í olíukrísunni árið 1979
og á árunum eftir bankahrunið árið
2008.
Óvissan um framboð olíu er það
sem hefur hvað mest áhrif á verðið
en Rússland er þriðja stærsta olíu-
framleiðsluríki heims. Upp úr
brunnum í Rússlandi kemur einn-
ig súrari og „þyngri“ hráolía sem
hentar betur til framleiðslu f lug-
vélabensíns. Verðhækkunin í Norð-
ur-Ameríku er hins vegar meiri en
í Evrópu þrátt fyrir að Bandaríkja-
menn kaupi lítið af olíu af Rússum.
Önnur olíuríki hafa verið óviljug
til að auka við framleiðsluna og
tæknilega er erfitt að auka hana
hratt. Þá hafa fjárfestar verið tregir
til að fara inn á olíumarkaðinn und-
anfarin ár af ótta við að „óhreinka
sig“ af umhverfisástæðum og hafa
þeir haft litla trú á að fjárfesting-
arnar borgi sig þótt verðið sé hátt
akkúrat nú. n
Flugfélögin setja hækkun á
eldsneyti út í flugmiðann
Olíuvarnir eru minni hjá Icelandair en áður og engar hjá Play. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
6 Fréttir 14. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ