Fréttablaðið - 14.04.2022, Síða 12
Þingmenn verða sjálfir
að svara fyrir það af
hverju athugasemdir
komu ekki fram þegar
fyrirkomulagið var
kynnt.
magdalena@frettabladid.is
Arion banki spáir 5,5 prósenta hag-
vexti á árinu og er sú spá bjartsýnni
heldur en spár annarra greiningar-
aðila. Þetta kom fram í viðtali við
Ernu Björgu Sverrisdóttur, aðalhag-
fræðing Arion banka, í Markaðnum
sem sýndur var á Hringbraut í gær-
kvöldi.
Erna segir að það séu fyrst og
fremst tveir þættir sem gera það að
verkum.
„Við erum að gera ráð fyrir meiri
innlendri eftirspurn heldur en
aðrir hafa verið að gera ráð fyrir.
Síðan erum við tiltölulega bjart-
sýn á fjölda ferðamanna sem koma
hingað til lands á árinu en við erum
að spá að 1,6 milljónir ferðamanna
muni sækja landið heim í ár.“
Arion er að spá minni hagvexti
en bankinn gerði ráð fyrir í síðustu
hagspá sinni.
Erna segir að ástæðan fyrir því að
bankinn spái minni hagvexti nú en
áður, sé fyrst og fremst meiri inn-
lend eftirspurn.
„Það myndu flestir halda að við
séum að spá minni hagvexti út af
stríði í Evrópu og uppgangi Covid
í upphafi árs. En það eru ekki bara
versnandi efnahagshorfur sem
spila hér inn í, heldur þvert á móti
erum við að gera ráð fyrir meiri inn-
lendri eftirspurn, meiri einkaneyslu
og meiri fjárfestingu. Það kallar
á gríðarlega mikinn innf lutning
þannig að framlag utanríkisversl-
unar til hagvaxtar verður minna,
eða réttara sagt ekki jafn hagfellt
og áður.“ Erna bætir við að staðan á
íbúðamarkaði sé erfið eins og sakir
standa.
„Staðan er auðvitað erfið en það
eru jákvæð teikn á lofti og f leiri
íbúðir á fyrstu byggingarstigum
sem er mjög jákvætt. Þó verður að
hafa í huga að það tekur tíma fyrir
þetta framboð að koma inn á mark-
aðinn, eða 1-2 ár. Í okkar spá gerum
við ráð fyrir að íbúðum muni fjölga
út spátímann, en að fjárfestingin
komist ekki almennilega á skrið
fyrr en á næsta ári. Á sama tíma
er eftirspurnarhliðin mjög sterk.
Líklega verður áfram eftirspurnar-
þrýstingur á markaðnum, þrátt
fyrir aðgerðir Seðlabankans til að
stemma stigu við verðlækkunum,
enda fólksfjölgun mikil og laun að
hækka. n
Spá Arion banka bjartsýnni en spár annarra greiningaraðila
Erna Björg
Sverrisdóttir,
aðalhagfræð-
ingur Arion
banka
MYND/HRINGBRAUT
Við erum að gera ráð
fyrir meiri innlendri
eftirspurn heldur en
aðrir hafa verið að gera
ráð fyrir.
Forstjóri Bankasýslu ríkisins
segir að salan á á 22,5 pró-
senta hlut ríkisins í Íslands-
banka hafi gengið framar
vonum. Hann sé reiðubúinn
að svara allri gagnrýni.
Bankasýslan hafi ekkert að
fela. Hann telur mikilvægt að
fá fram niðurstöðu Ríkisend-
urskoðunar áður en lengra er
haldið.
ggunnars@frettabladid.is
Í allri orrahríðinni um söluna á
22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslands-
banka þann 22. mars síðastliðinn
hafa spjótin meðal annars beinst
að stjórn Bankasýslu ríkisins og Jóni
Gunnari Jónssyni forstjóra. Stofn-
unin hefur verið harðlega gagn-
rýnd fyrir sína aðkomu að málinu,
meðal annars af þingmönnum og
ráðherrum.
Jón Gunnar segist sannfærður
um að það sé ekkert við aðkomu
stofnunarinnar að athuga.
Útboðið hafi verið vel heppnað
og í fullu samræmi við minnis-
blað sem lagt var fyrir ráðherra og
nefndir Alþingis í janúar. Hann sé
reiðubúinn að svara allri gagnrýni
efnislega. Mikilvægt sé þó að hafa
í huga að fjárhagsleg niðurstaða
útboðsins hafi verið betri en búist
var við. „Þetta fór nákvæmlega eins
fram og við höfðum lýst,“ segir Jón
Gunnar.
Hann segir að þingmenn verði
sjálfir að svara fyrir það af hverju
athugasemdir varðandi söluna
komu ekki fram þegar málið var til
meðferðar í nefndum og fyrirkomu-
lagið kynnt. „Efnislega er mjög erf-
itt að taka undir það að ferlið hafi
verið með einhverjum öðrum hætti
en það var kynnt í upphafi,“ segir
Jón Gunnar.
Bankasýslan hefði vissulega getað
staðið betur að því hvernig upplýs-
ingum var miðlað til almennings, að
mati hans. Á sama tíma bendir
hann á að við framkvæmdina hafi
Bankasýslan birt mun ítarlegri
gögn en gengur og gerist erlendis.
„En ef við lítum á stóru myndina þá
erum við að tala um þriðja stærsta
hlutafjárútboð Íslandssögunnar.
Ríkissjóður hefur aflað tæplega 110
milljarða með þessari sölu á síðustu
9 mánuðum,“ segir Jón Gunnar.
Bjar ni Jónsson, þing maður
Vinstri hreyfingarinnar græns
framboðs, hefur gengið einna lengst
í gagnrýninni á Bankasýsluna.
Hann hefur krafist þess að stjórn og
forstjóri stígi til hliðar. Jón Gunnar
segir þingmanninn aldrei hafa sett
sig í samband við Bankasýsluna til
að reyna að afla frekari upplýsinga
um ferlið eða söluna. Hann segist
ekki átta sig á því hvað búi að baki
þessari kröfu Bjarna.
Jón Gunnar telur gæta nokkurs
misskilnings varðandi fyrirkomu-
lag útboðsins. Farin hafi verið sú
leið að leita til fagfjárfesta með
tilboðsfyrirkomulagi. Sú leið hafi
verið talin heppileg þar sem eitt af
markmiðunum var að fá verð fyrir
hlutinn í bankanum sem væri sem
næst markaðsverði.
Á sama tíma væri tilboðsleiðin
best til þess fallin að lágmarka
áhættu ríkissjóðs. Hann bendir á
að þetta tiltekna fyrirkomulag sé
langalgengasta útboðsleiðin víða
um Evrópu.
En það er ekki bara aðferðafræðin
við útboðið sem hefur verið gagn-
rýnd. Þingmenn hafa fundið að því
að ekki hafi verið gert ráð fyrir lág-
marksupphæð í útboðinu.
Jón Gunnar svarar því til að þetta
sé raunar spurning sem ætti að
beina að þingmönnunum sjálfum.
„Það er þeirra að spyrja spurn-
inganna í þessum aðstæðum.“ Að
hans mati geti vel verið að einhver
skilyrði um lágmarksfjárhæðir, eins
og talað hefur verið um, hefðu getað
komið í veg fyrir að minni fjárfestar
væru á meðal þeirra sem tóku þátt í
útboðinu.
Slík skilyrði geti þó skapað önnur
vandamál og beinlínis unnið gegn
markmiðum um dreift eignarhald
og opið söluferli. Hann segir mikil-
vægt að hafa í huga að það sé ekki
Bankasýslunnar að ákveða hverjir
teljist fagfjárfestar. „Það er á foræði
fjármálafyrirtækjanna sjálfra. Allir
þeir sem f lokkuðust undir þessa
skilgreiningu og uppfylla skilyrði
útboðsins gátu tekið þátt,“ áréttar
Jón Gunnar.
Um frekari sölu á hlut ríkisins
í Íslandsbanka segir Jón Gunn-
ar ljóst að Bankasýslan muni bíða
eftir niðurstöðu Ríkisendurskoð-
unar, sem falið hefur verið að fara
í saumana á sölunni. Hann segist
fagna athuguninni, sem og fyrir-
hugaðri rannsókn Fjármálaeftir-
litsins. Einkum og sér í lagi á þeim
þáttum sölumeðferðarinnar sem
snúi að fjármálafyrirtækjum.
„Ég held það sé rétt að bíða með
næstu skref þangað til niðurstöður
þessara tveggja kannana liggja
fyrir.“ n
Forstjóri Bankasýslunnar segir ekkert að fela
Jón Gunnar
Jónsson, for-
stjóri Banka-
sýslunnar, er
hæstánægður
með söluna á
hlut ríkisins í
Íslandsbanka.
MYND/
HRINGBRAUT
12 Fréttir 14. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 14. apríl 2022 FIMMTUDAGUR