Fréttablaðið - 14.04.2022, Síða 14

Fréttablaðið - 14.04.2022, Síða 14
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Það er með ólíkindum að forkólf- ar vinstri- sinnaðs flokks á borð við VG reyni að verja gjörning af þessu tagi sem misbýður sennilega stærstum hluta þjóðar- innar. Almenn- ingi er nóg boðið. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Er stóra plan ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að ganga upp? Á síðasta kjörtímabili veikti ríkisstjórnin með skipulegum hætti afar mikilvægar eftirlitsstofnanir í íslensku samfélagi. Stjórnarflokkarnir samþykktu lög sem eru til þess fallin að veikja Fjármálaeftirlitið. Samkeppniseftirlitið var einnig veikt með lagasetn­ ingu og tennurnar dregnar úr Skattrannsóknastjóra með því að leggja embættið niður og renna því undir Skattinn. Og nú er búið að selja meiri hluta í Íslands­ banka. Stjórnarflokkarnir hafa búið vel í haginn fyrir þá sem sýsla með mikla peninga. Fyrir sumum er Alþingi Íslendinga staður þar sem stjórnmálamenn leika pólitíska leiki sem ætlaðir eru fáum og fyrir fáa útvalda. Slíkir leikir geta sannarlega dregið dilk á eftir sér þannig að almenningur beri skaðann. Skýrt dæmi um það er einkavæðing bankanna sem leiddi til banka­ hrunsins haustið 2008. Einkavæðing Íslandsbanka sem nú stendur yfir er leikur af sama toga. Niðurstaða nýjasta útboðsins er á allra vörum og ásakanir um spillingu eru háværar. Það er hlutverk okkar alþingismanna og ráðherra að gæta að hag almennings. Það var ekki gert þegar veittur var afsláttur af hlutunum í Íslandsbanka og þeir færðir skyldmennum fjármálaráðherrans, fjár­ festingarsjóðum sem keyptu og seldu strax í fyrra útboði og fólki sem vann við útboðið, svo dæmi séu tekin sem ósætti er um. Og nokkrum lykilpersónum hrunsins sem hafa sannarlega reynslu af bankarekstri líkt og sár reynsla almennings er um og flokkast nú sem hæfar til að eignast hann á ný. Almenningi er nóg boðið. Fjármálaráðherrann sem ber samkvæmt lögum alla ábyrgð á söluferlinu og samþykkti kauptilboðin, er rúinn trausti. Vinstri grænir benda í allar aðrar áttir en á þann sem ábyrgðina ber, af ótta við að missa ráðherrastóla og Framsókn er klofin í afstöðu sinni. Nú er mál að linni. Stjórnarflokkarnir verða að átta sig á að almenningur lætur þá ekki leika svona illilega á sig – aftur. n Mál að linni Oddný G. Harðardóttir þingmaður Sam­ fylkingarinnar Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is Nýafstaðin sala á hlut þjóðarinnar í Íslandsbanka er dapurlegur vitnis­ burður um vanhæfa seljendur, hvort heldur er á vegum Banka­ sýslu ríkisins eða fjármálaráðu­ neytisins. Val á kaupendum, sem margir hverjir hafa leyst út skjótfenginn hagnað sinn á undra­ skömmum tíma, er bæði óskiljanlegt og ógagn­ sætt. Voru þó vítin næg til að varast. Háttsemi þessara höndlara er þeim mun sár­ ari fyrir þjóðina þegar í ljós kemur að þeir taka út gróða sinn á kostnað íslenskra lífeyrissjóða sem hefðu viljað kaupa stærri hlut í bankanum, en fengu ekki, sakir einstaklinga sem ætluðu sér aldrei annað en að njóta langsamlega hæsta tímakaups sem stjórnvöld hafa nokkru sinni boðið yfir eina nótt. Fagfjárfestar sem ætluðu sér að eignast hlut í bankanum til langs tíma voru augljóslega ekki í forgangi við undirbúning sölunnar, heldur lukkuriddarar götunnar sem hlæja nú upp í opið geðið á þjóðinni. Ábyrgð fjármálaráðherra á þessu klúðri er mikil. En hann getur þó falið sig á bak við eigin pólitík sem gengur út á að koma eignum ríkisins til einkaaðila. Ábyrgð forsætisráðherra er enn meiri, en Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfing­ arinnar – græns framboðs, mun verða minnt á þessa sölu það sem eftir lifir kjörtímabilsins – og raunar enn lengur, enda er hér kominn vitnis­ burður um raunverulega pólitík hennar í verki. Það er með ólíkindum að forkólfar vinstri­ sinnaðs flokks á borð við VG reyni að verja gjörning af þessu tagi sem misbýður sennilega stærstum hluta þjóðarinnar. Það er jafnvel með enn meiri ólíkindum að svokallaðir sósíalistar af þessu tagi standi fyrir kapítalískri spillingu af sömu gerð og flokkur þeirra var stofnaður til að berjast gegn. Undarlegast af öllu er að enginn úr þeirra hópi hafi hreyft við mótbárum í aðdraganda sölunnar – og að það hafi aðeins verið ráðherra Framsóknarflokksins sem hafi barið í borðið, að því er virðist í tilviki Lilju Alfreðsdóttur. Og jafnvel er það allra undarlegast við þennan görótta gjörning að varla eða ekki heyrist bofs innan úr sellum sósíalistanna sem enn þá telja sig vera félagsmenn í VG. Þeir þegja bara þunnu hljóði – og ekki er einu sinni vitað hvort þeir skammist sín. Kannski finnst þeim bara þægi­ legt að vera í vasa Sjálfstæðisflokksins. Svona er þá komið fyrir VG. Flokkurinn styður Sjálfstæðisflokkinn. Kannski ætti hann að athuga með inngöngu. n Á ábyrgð VG Prinsipp Alveg er dæmalaust gaman að vera í pólitík og geta ráðið hvaða fólk sest að kjötkötl­ unum hverju sinni, en eitt verst falda leyndarmál íslenskrar stjórnsýslu hefur núna verið upplýst, Ásdís Halla Braga­ dóttir verður ráðuneytisstjóri, nema hvað, því svona er Ísland og hefur aldrei verið öðruvísi og mun ekkert breytast næstu áratugina því minni kjósenda er falið á botni buddunnar – og hefur ekkert með prinsipp að gera. Aðgangurinn að æðstu embættum ræðst sem fyrr af f lokksskírteinum – og ef menn eru með eitthvað múður út í það, þá er ráðherrunum að mæta í dómsal eftir enn eitt hundeltið. Dýr Og talandi um dýr. Mannaráðn­ ingar í æðstu lögum samfélags­ ins eru auðvitað efni í mafíósa­ mynd. Hvað er sameiginlegt með æðsta yfirmanni vegamála á Íslandi, æðsta yfirmanni Borgarlínunnar og manninum sem er einmitt þar fyrir ofan og gegnir embætti samgöngu­ ráðherra eða hvað það nú heitir eftir alla nafnakollhnísana, jú, innviða ráðherra, en öll þessi þrenning er dýralæknar. Það er eitthvað sjúklega krúttlegt við þetta og erkiíslenskt, enda eru góð ráð dýr og dýrin í skóginum ekkert annað en vinir ef þau þekkja vel til réttu dýranna. n SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 14. apríl 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.