Fréttablaðið - 14.04.2022, Side 16

Fréttablaðið - 14.04.2022, Side 16
Viðbrögð við hneykslismálum síðustu viku, siðareglubroti inn­ viðaráðherra og bankasölunni, eru fyrstu dæmin um að forsætis­ ráðherra hafi mistekist að leiða pólitísk raflost í jörð. Ríkisstjórnin hefur ekki pólitísk­ an áttavita til að sigla eftir. Það er veikleiki. En hitt er öllu alvarlegra að hún á heldur ekki siðferðilegan áttavita. Óklárað siðareglumál Forsætisráðherra staðfesti að innviðaráðherra hefði brotið siðareglur ráðherra. Hún segir hins vegar að hver ráðherra hafi sjálfdæmi um hvort slík brot hafi afleiðingar. Þetta er ekki alls kostar rétt. Það veit forsætisráðherra. Þó að sá sem í hlut á verði að íhuga stöðu sína er það samkvæmt stjórnskip­ unarreglum hlutverk þingmanna stjórnarmeirihlutans að ákveða hvort ráðherra hefur pólitískt og siðferðilegt traust til að sitja áfram. Það var undan þessari ábyrgð sem forsætisráðherra leysti sjálfa sig og aðra stjórnarþingmenn. Ábyrgðin hefði kallað á að skýrt yrði út á Alþingi hvaða siðareglur ráðherra má brjóta án afleiðinga eða hvaða viðmið eru höfð um það mat. Ef einföld afsökun er nóg eru reglurnar bara til skrauts. Vel má vera að fyllri skýringar hefðu dugað. En forsætisráðherra fór bara á flótta. Málið hefur því ekki verið klárað gagnvart Alþingi eins og vera ber. Brotalamir Nú er vitað að viðskiptaráðherra varaði samráðherra sína við þeirri siðferðilegu brotalöm að takmarka söluna við afmarkaðan hóp fjár­ festa. Hún sá þá þegar allar hliðar málsins og hverjar afleiðingarnar yrðu. Þeir hlustuðu ekki. Hins vegar hélt viðskipta­ ráðherra þessum mikilvægu upp­ lýsingum leyndum fyrir Alþingi. Það gæti verið brot á siðareglum ráðherra. Þingmenn VG og Sjálfstæðis­ manna hafa einmitt kvartað undan því að hafa verið ómeð­ vitaðir um þá hluti, sem viðskipta­ ráðherra þekkti. Einn kaupenda hefur sagt opin­ berlega að engin rök hafi verið fyrir því að veita þeim afslátt. Þetta er kórrétt og lagastoðin er að auki hæpin. Siðferðilega brota­ lömin er augljós. Hengja bakara fyrir smið Þingmenn VG hafa krafist afsagnar forstjóra og stjórnar Bankasýsl­ unnar. Rökin eru þau að fjármála­ ráðherra sé ábyrgðarlaus vegna armslengdarreglu. Þessi forsenda er hins vegar hreinn tilbúningur. Í lögunum um sölu fjármálafyrirtækja er einfald­ lega engin armslengdarregla um þessar ákvarðanir. Bankasýslan gerir aðeins tillögur og sér um handavinnuna. Ráðherra tekur aftur á móti allar ákvarðanir um söluferlið og leikreglurnar. Hann ákveður hvaða tilboðum er tekið og honum ber að undirrita samninga. Þessi lögbundna ábyrgð er ekki fram­ seljanleg. Þingmenn VG vilja því hengja bakara fyrir smið. Það er lægsta stig pólitísks siðferðis. Vanhæfi Gagnrýnt hefur verið að faðir fjár­ málaráðherra var í hópi kaupanda. Þar er hann þó í fullum rétti, bæði lagalega og siðferðilega. Hitt er að fjármálaráðherra kann að hafa verið vanhæfur til þess að taka ákvarðanir í þessu einstaka máli. Fjármálaráðherra ætlaði að veita takmörkuðum hópi kost á að kaupa þessa ríkiseign með afslætti. Hann vissi að faðir hans var í þeim hópi. Af því leiðir að skoða þarf hvort fjármálaráðherra átti ekki að víkja sæti á frumstigi ákvarðana um söluferlið. Þegar Bankasýslunni var ljóst að faðir fjármálaráðherra var á meðal tilboðsgjafa bar henni að f lagga hugsanlegu vanhæfi ráð­ herra. Margt bendir til að í síðasta lagi á þessu stigi hafi ráðherra átt að víkja sæti. Þetta álitaefni snýst um megin­ reglu stjórnsýslulaga. Brot á henni er mjög alvarlegt. Skoða þarf hvort það hefur einhver áhrif á gildi sölunnar. En stjórnarþingmenn ákveða hvort það hefur einhverjar pólitískar afleiðingar. Sé um brot að ræða er erfitt að komast hjá því. Vanræksla Ráðherra er skylt samkvæmt lögunum um bankasölu að kapp­ kosta að efla virka og eðlilega samkeppni á fjármálamarkaði þegar eignarhlutir eru seldir. Hagsmunir alls almennings, neytenda og fyrirtækja, liggja mest í því að þessari lagaskyldu sé sinnt. Hvergi kemur fram að það hafi verið reynt. Viðreisn er eini f lokkurinn, sem lagt hefur áherslu á þessa mikilvægu almannahags­ muni í umræðum um söluna. Ítrekuð vanræksla á að gæta þessarar lagaskyldu hlýtur að koma til rannsóknar og einnig ábyrgð ráðherra samkeppnis­ og neytendamála á henni. n Áttavitalaus landstjórn Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli Enn á ný erum við Reykvíkingar og landsmenn allir minntir óþægi­ lega mikið á siðferðisvitund ríkis­ stjórnarf lokkanna sem selja hluti í Íslandsbanka til vina sinna. Fyrir okkur Reykvíkinga er þetta áminn­ ing um að þessir sömu flokkar, sem nú sitja saman í ríkisstjórn, gætu sem hægast myndað meirihluta í borgarstjórn ef kjósendur veita þeim brautargengi til þess. Sjálfstæðisf lok k urinn hef ur lengst af verið stærstur borgar­ stjórnarf lokkanna og þrátt fyrir skoðanaágreining innan f lokks­ ins þá sýnir sig að þegar völd eru innan seilingar þá hljóðna þær raddir og freisting valdsins verður sannfæringunni yfirsterkari. Þá er hætt við að hugmyndir um nútíma­ lega borg og borgarsamfélag verði látnar víkja fyrir sannfæringu „freka karlsins“ sem hugnast ekki sú borgarmenning og skipulag sem hefur tekist að þróa í Reykjavík undanfarin ár. Framsóknarf lokkurinn er auð­ vitað kapítuli út af fyrir sig. Flokk­ urinn leitar vinsælda í Reykjavík­ urborg með afar sérstæðum hætti. Formaðurinn talar um að sjávar­ útvegurinn þurfi að greiða meira fyrir aðgang að fiskimiðunum en stendur fyrir hinu gagnstæða með lækkun veiðigjalda. Varaformaður­ inn talar fjálglega um að ofsagróða fyrirtækja í veirufaraldrinum og að hafa alltaf verið á móti banka­ sölunni. En það nær ekki lengra, f lokkurinn hreyfir hvorki legg né lið og gerir ekkert í málunum. Hvað er að marka slíkan málf lutning? Hvort á að hlæja eða gráta yfir svona framkomu? Trúverðugt er þetta ekki og ætti að kveikja á við­ vörunarbjöllum hjá kjósendum um að Framsóknarf lokkurinn muni ásamt Sjálfstæðisf lokknum leggja til atlögu við þær framsæknu hugmyndir sem hafa breytt lífinu í borginni til hins betra. Þjóðin hefur undanfarin ár mátt horfa upp á hvernig Vinstri græn hafa þóst vera f lokkur sem gætir hagsmuna almennings. En þegar há embætti standa til boða þá gleymast hagsmunir almenn­ ings og f lokkurinn hreiðrar um sig með sérhagsmunaöf lunum. Ef Vinstri grænum yrði boðin borgar­ stjórastaðan er ekki ólíklegt að þau myndu hoppa á það og við sæjum sömu f lokka taka saman í borgar­ stjórn og á landsvísu. Er það áhættunnar virði fyrir okkur Reykvíkinga að stuðla að ríkisstjórnarsamstarfi bankasölu­ f lokkanna á vettvangi borgar­ stjórnar? n Bankasöluflokkana í borgarstjórn? Þjóðin hefur undan- farin ár mátt horfa upp á hvernig Vinstri græn hafa þóst vera flokkur sem gætir hagsmuna almennings. Bolli Héðinsson hagfræðingur Skoða þarf hvort fjár- málaráðherra átti ekki að víkja sæti á frum- stigi ákvarðana um söluferlið. Reykjavíkurborg hefur skyldum að gegna gagnvart borgarbúum og fyrirtækjum í borginni. Ekki aðeins að veita þá þjónustu sem borginni þóknast að veita, heldur ber henni skylda til að veita lögbundna þjón­ ustu samkvæmt sveitarstjórnar­ lögum. Það sem skiptir borgarbúa mestu og við höfum sterkastar skoðanir á eru m.a. þjónusta grunnskóla, leik­ skóla, snjómokstur, sorpþjónusta, málefni aldraðra, málefni fatlaðra, félagsleg þjónusta, þ.m.t. húsnæðis­ þörf viðkvæmari hópa og stuðn­ ingsþjónusta ýmiss konar. Á því kjörtímabili sem fer nú senn að ljúka er áhugavert að rýna hvern­ ig borgin hefur verið að standa sig í þjónustuhlutverkinu. Einn besti mælikvarðinn er þjón­ ustukannanir, viðhorfskannanir meðal ólíkra hópa borgarinnar, sem sýna hvar borgin okkar er að standa sig vel og hvað má bæta. Einnig er mikilvægt að Reykja­ víkurborg setji sér þjónustustefnu, markmið hvernig hún vilji standa sig. Það er skilvirkasta leiðin, að bera síðan saman þjónustustefnu borg­ arinnar við niðurstöður þjónustu­ kannana og sjá hvað má bæta. Slíkar kannanir á að gera árlega, bæði meðal borgarbúa og fyrirtækja. Berum okkur saman við þá bestu Reykjavíkurborg á að setja sér háleit markmið. Reykjavík á að gera samanburðarhæfar þjónustu­ kannanir og bera sig saman við þá sem eru að standa sig vel. Markmið borgarinnar á að vera að standa sig best á Norðurlöndunum í þjónustu gagnvart öllum hópum samfélags­ ins, ekkert minna! St ar fsmönnum borgar innar hefur fjölgað um 20% síðustu 4 ár, það jafngildir um 500 nýjum starfsmönnum á ári þannig að ætla mætti að borgin sé að standa sig af burðavel í að þjónusta íbúa og fyrirtæki. Borgin fær falleinkunn Í þjónustukönnun sem Gallup framkvæmdi í janúar 2018 kom fram að Reykjavíkurborg mælist langneðst í þjónustukönnun í samanburði við önnur sveitar­ félög á höfuðborgarsvæðinu. Þegar kemur að þjónustu bæði leikskóla og grunnskóla, þjónustu við eldri borgara og þjónustu við fatlaða fær borgin falleinkunn. Innan við 40% borgarbúa eru ánægð með heildarþjónustu borgar­ innar gagnvart borgarbúum. Þjónustukannanir Gallup voru gerðar meðal sveitarfélaga frá árinu 2008 til 2018, en eftir niðurstöðurn­ ar árið 2018 dró Reykjavíkurborg sig út, hafnaði frekari samanburði við önnur sveitarfélög á höfuðborgar­ svæðinu. Reykjavíkurborg fék k síðan fyrirtækið Maskínu til að gera þjónustukönnun meðal borgarbúa árið 2019 þar sem að niðurstaðan var sú sama. Innan við 40% borgar­ búa voru ánægðir með þjónustu borgarinnar. Eftir þá könnun hefur Reykja­ víkurborg ekki tekið þátt í saman­ burðarþjónustukönnunum meðal borgarbúa. Ég mun beita mér fyrir því að Reykjavíkurborg setji sér virka þjónustustefnu þar sem áherslur þjónustu borgarinnar gagnvart íbúum og fyrirtækjum verða skýrar og virkar. Jafnframt að þjónustu­ kannanir verði gerðar árlega meðal íbúa og fyrirtækja í Reykjavík og niðurstöður nýttar til að bæta þjón­ ustu borgarinnar. Ég mun einnig beita mér fyrir því að koma á samstarfi við aðrar borg­ ir á Norðurlöndunum þar sem við berum okkur saman við þá bestu, með það að leiðarljósi að gera enn betur. n Þjónustuborgin Reykjavík – við getum gert betur Ómar Már Jónsson oddviti Miðflokks­ ins í Reykjavík 16 Skoðun 14. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.