Fréttablaðið - 14.04.2022, Page 17

Fréttablaðið - 14.04.2022, Page 17
KYNN INGARBLAÐ ALLT FIMMTUDAGUR 14. apríl 2022 Krist Novoselic úr Nirvana er einn meðlima nýju sveitarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY oddurfreyr@frettabladid.is Hljómsveitin 3rd Secret, sem samanstendur af meðlimum úr Nirvana, Soundgarden og Pearl Jam, gaf óvænt út plötu á mánudag. Tilvist sveitarinnar hafði ekki verið tilkynnt áður en platan kom út. Rolling Stone segir frá. Í hljómsveitinni eru Kim Thayil, gítarleikari Soundgarden, Krist Novoselic, bassaleikari Nirvana, og Matt Cameron, sem er trommari Pearl Jam en var áður í Sound gar d­ en. Auk þeirra eru Bubba Dupree, gítarleikari harðkjarnasveitarinn­ ar Void, og söngkonurnar Jennifer Johnson og Jillian Raye, sem eru líka í annarri sveit Novoselic, Giant in the Trees, einnig í sveitinni. Höfðu gefið vísbendingar Nýja platan var tekin upp og hljóðblönduð af Jack Endino, sem varð frægur fyrir hljómplötufram­ leiðslu á grugg­tímanum. Hljómsveitin lék líka á óvæntum tónleikum á Poppmenningar­ safninu í Seattle nýlega. Krist Novoselic hafði gefið vís­ bendingar um tilvist plötunnar, en í febrúar sagði hann í tísti sem hann hefur eytt að hann væri mjög upptekinn við að klára nýja plötu, en að það væri leyndarmál svo enginn mætti segja neinum frá henni. Thayil gaf líka til kynna í nýlegu viðtali að hann myndi líklega vinna meira með gömlu félög­ unum sínum úr Soundgarden. ■ Ný plata frá ofur-gruggsveit Soffía Dögg hefur mikla ástríðu fyrir að skreyta heimilið. Hér er hún búin að töfra fram páskakökuna í ár, keypti hana í 17 sortum og skreytti að neðan með litlum súkkulaðieggjum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Páskarnir boðberi vors og blóma Soffía Dögg Garðarsdóttir er konan á bak við Skreytumhus.is sem ber það nafn með rentu. Hún elskar að skreyta og fegra heimili sitt og nýtir hvert tilefni til þess. Soffía býr á Álftanesi ásamt eiginmanni sínum, tveimur börnum og hundinum Mola. 2 ALOE VERA MELTING & BÓLGUR 85%VIRKTCURCUMIN www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.