Fréttablaðið - 14.04.2022, Síða 22
Pínupils, mínípils, míkrópils eða hvað sem
menn vilja kalla þau, eru nú orðin hámóðins
aftur eftir að miðjusíð og síð pils fengu að
flæða um leggina síðustu ár.
jme@frettabladid.is
Líkt og tíska f lestra áratuga gengur reglulega í endur-
nýjun lífdaganna í tískuheiminum, þá er tíundi
áratugurinn engin undantekning. Eitt helsta ein-
kenni þúsaldartískunnar, sem prýddi stjörnur eins
og Christinu Aguilera, Britney Spears, söngkonurnar
í Destiny’s Child og Paris Hilton, mátti sjá víða á
tískupöllum í lok 2021 og byrjun 2022 fyrir sumarið
2022. Tískuspekúlantar víða um heim spá því rísandi
pilsföldum í beinu orsakasambandi við gang sólar í
sumar.
Miu Miu sýndi eina mest áberandi og vinsælustu
útgáfu pilssíddarinnar á tískuvikunni í París í októ-
ber í fyrra. Bæði er pilsið stutt og lágt í mittið, litlu
efnismeira en beltið sem það er gjarnan parað við á
pöllunum og utan þeirra. Í ofanálag var það parað við
peysu sem rétt náði niður fyrir brjóstkassann.
En örvæntum nú eigi. Það eru ekki öll pils eins
sköpuð og pínupilsin á tískupöllunum voru jafnólík
og þau voru mörg. Á meðan sum huldu vart það allra
heilagasta þá voru önnur há í mittið. Og þau sem ótt-
ast ekkert fremur en tískuslys í svo stuttri f lík gætu
látið sér nægja pínubuxur eða jafnvel stuttbuxur sem
eru með flipa að framan sem lítur út eins og pils. ■
Upprisa stutta
pilsfaldsins
Givenchy sýndi þetta dásamlega sumarlega og pastel-
græna dress með ermalausum topp og flæðandi pínu-
pilsi í Nanterre í október síðastliðnum.
Balmain á tískuvikunni í París í september fyrir vor/
sumar 2022 með sparilegt svart og gyllt mínípils.
Loewe með puttann á pínupilsapúlsinum á tískuvikunni
í París í október með túrkísblátt og diskóglatt pínupils.
Miu Miu skapaði
epískt augnablik þegar
tískuhúsið sýndi þetta
míkrópils á tískuvikunni í
október í fyrra fyrir sumar-
tískuna 2022. Síðan þá hafa
tískuunnendur keppst við að
klæðast þessari efnislitlu
en furðulega smart flík.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HJÓLABLAÐ
Föstudaginn 22. apríl gefur Fréttablaðið út sérblaðið Hjólablað.
Í þessu skemmtilega blaði er fjallað um allt sem viðkemur hjólreiðum á Íslandi.
Allir sem stunda hjólreiðar að einhverju marki munu finna áhugavert efni í blaðinu.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir
Arnar Magnússon sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5652 / arnarm@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryg þér gott uglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
6 kynningarblað A L LT 14. apríl 2022 FIMMTUDAGUR