Fréttablaðið - 14.04.2022, Side 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Kolbeins
Marteinssonar
n Bakþankar
Fyrir nokkrum árum hringdi
kunningi minn í mig og var hinn
reiðasti. Honum hafði verið sagt
fyrirvaralaust upp störfum. Erindi
hans var að bera undir mig grein
sem hann ætlaði að birta á sam-
félagsmiðlum sínum og svo í fram-
haldinu í fjölmiðlum. Í greininni
yrði ekkert dregið úr skítavinnu-
brögðum og slæmu viðskiptasið-
ferði vinnuveitandans. Ég lagði
til að hann róaði sig og biði með
birtingar á hugrenningum sínum.
Það er gott að hafa í huga að
íslenskur vinnumarkaður er agnar-
smár, sem þýðir að leiðir okkar
flestra liggja einhvern tímann
saman á lífsleiðinni og í sumum
tilfellum oftar. Reglulega er ég
minntur á þetta þegar ég hitti fyrr-
verandi vinnufélaga, skólasystkini
eða kunningja við hin ólíklegustu
tilefni í mínum störfum. Af því
leiðir að það er betra að kveðja fólk
í friði heldur en með látum, þar
sem góðar líkur eru á að maður
muni hitta það fyrir aftur.
Eftir að hafa lesið grein kunn-
ingjans sem einkenndist af gremju
yfir starfslokunum, hringdi ég í
hann og spurði hver væri tilgang-
urinn með þessu öllu saman. Hvað
ætlaði hann að fá út úr þessu, hvert
væri markmiðið? Staðreyndin er
að netið gleymir engu og allra síst
efni sem skrifað er í tilfinninga-
legu uppnámi. Eftir tíu ár erum við
löngu komin yfir erfiða hluti, en
eitthvað sem við skrifuðum eða
sögðum í reiði getur verið dregið
upp úr hatti og jafnvel haft slæm
áhrif.
Mín reynsla er því sú að það
sé oftast best að loka dyrunum
rólega á eftir sér þegar maður
kveður eða gengur út. Maður veit
nefnilega aldrei hvenær maður
þarf að opna sömu dyr aftur.
Kunninginn varð mér á endanum
sammála, greinin hans var aldrei
birt, nema þá hér. n
Ekki skella
Verslaðu á netinu byko.is
B
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
ll
ur
o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.
Skírdagur
14. apríl
Föstudagurinn
langi 15. apríl
Laugardagur
16. apríl
Páskadagur
17. apríl
Annar í páskum
18. apríl
Verslun Breidd 10-18 Lokað 10-18 Lokað 11-17
Verslun Granda 10-18 Lokað 10-18 Lokað 11-17
Afgreiðslutími um páska
Sjá afgreiðslutíma annarra verslana á byko.is
25%
afsláttur
20%
afsláttur
Handgreina- og
hekkklippur
allt harðparket
Páskablað
Nettó
Frábært úrval af páskamat,
góð tilboð, viðtöl og uppskriftir
Skoðaðu
blaðið á
netto.is
Fermingar-
skraut
Faxafeni 11,
108 Reykjavík
www.partybudin.is