Fréttablaðið - 09.07.2022, Síða 2
Ég hef tekið við hana
rökræðu í einkasímtali
og líka í í atvinnuvega-
nefnd Hún tekur
engum sönsum.
Einar Sigurðsson,
strandveiðimaður
Hingað til hafa þær
verið mjög ánægðar og
ég er bara ofboðslega
glöð.
Ylfa Helgadóttir, kokkur
kvennalandsliðsins.
Klárar í slaginn
Það fer afskaplega vel um Stelpurnar okkar á Crewe Hall Hotel and Spa þar sem þær eru staðsettar á milli æfinga á Evrópumóti kvenna í knattspyrnu. Hótelið
er rúmlega fjögur hundruð ára gamalt en leikmennirnir sem Fréttablaðið ræddi við kunnu ofboðslega vel við dvölina. Stelpurnar okkar mæta Belgum í fyrsta
leik á sunnudaginn og segir Hallbera að íslenska liðið sé staðráðið í að komast áfram í átta liða úrslitin. SJÁ SÍÐU 16. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kokkur kvennalandsliðsins
segir mikilvægasta verkefni
sitt á EM að framreiða nær
andi og spennandi mat.
Hún tók fisk og skyr með sér
frá Íslandi og er að læra af
næringarfræðingnum í liði
Íslands samhliða því að elda.
kristinnpall@frettabladid.is
EM 2022 „Það helsta sem skiptir máli
er að hafa allt til sem þeim finnst
best og gera þetta rétt. Elda þetta
vel, að hráefnið sé gott og tímasetn
ingar réttar. Þær þurfa að fá matinn
á réttum tímasetningum,“ segir Ylfa
Helgadóttir, kokkur kvennalands
liðsins, um daglegt líf hjá kokki á
ferðalagi með landsliði.
„Hingað til hafa þær verið mjög
ánægðar og ég er bara of boðslega
glöð,“ segir kokkurinn.
Ylfa, sem átti áður veitingastað og
er í námi þessa dagana, ásamt því að
taka að sér verkefni sem þessi, er í
fyrsta sinn á stórmóti með kvenna
landsliðinu. Hún var sjálf í kokka
landsliðinu.
„Það er mikilvægt að vakna
snemma og hafa allt tilbúið. Þetta
þarf líka að líta vel út svo að þær
vilji borða. Fólki finnst misgaman
að borða en þær þurfa að fá mikla
næringu, þannig að það þarf að
huga að ýmsu,“ segir Ylfa.
Vettvangsferð til Crewe fyrr í
sumar leiddi í ljós að það væru góð
hráefni til staðar en Ylfa hafði samt
tvö hráefni frá Íslandi með í för.
„Ég fór í rannsóknarferð fyrir
mánuði, til að kanna hráefnið og
koma í veg fyrir að ég væri að taka
eitthvað að óþörfu. Það var allt mjög
gott, nema fiskurinn. Við erum með
háleitar kröfur þegar kemur að fiski.
Við tókum ferskan íslenskan fisk og
skyr meðferðis,“ upplýsir Ylfa.
Elísa Viðarsdóttir, leikmaður
Íslands, er menntaður næringar
fræðingur og gaf út bók fyrir síðustu
jól. Ylfa segist ekki upplifa að hún sé
að vakta hvað sé borið fram.
„Okkur kemur vel saman,“ segir
Ylfa kímin og heldur áfram:
„Elísa kemur og hrósar mér, sér
staklega þegar hún sér eitthvað
sem henni finnst sniðugt og gott.
Við erum að læra af hvor annarri.
Ég er enginn næringarfræðingur og
get lært heilmikið af henni,“ viður
kennir landsliðskokkurinn.
Ylfa segir mikla vinnu að baki við
skipulagningu enda langur tími sem
þarf að huga að.
„Mikið af vinnunni fer fram á
Íslandi við að búa til matseðilinn til
að undirbúa alla. Hér er fullt eldhús
af kokkum sem eru að vinna á hótel
inu og vinna þetta með okkur.“ n
Landsliðskokkur með skyr
og íslenskan fisk á Englandi
Ylfa Helgadóttir segir leikmennina þurfa mikla næringu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
HJARTA
OG
ÆÐAKERFI
ARCTIC HEALTH
AHI.IS
OMEGA-3 COLLAGEN
HREIN ÍSLENSK FÆÐUBÓT
Í POKUM FYRIR LÁGMARKS KOLEFNISSPOR
bth@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Einar Sigurðsson,
strandveiðimaður á Norðaustur
landi, er harðorður í garð Lilju
Raf neyjar Magnús dótt ur, fyrr ver
andi þingmanns VG, sem gagnrýnt
hefur Svandísi Svavars dótt ur mat
vælaráðherra fyr ir að ætla að taka
upp svæðaskipt ingu á kvóta strand
veiðanna á nýj an leik.
Einar segir að Lilja stundi kjör
dæmapólitík með kröfu um að vest
firskir smábátasjómenn fái að fiska
meira á kostnað svæða utan Vest
fjarða. Svæðið sé komið með 6070
prósent af heildarafla strandveiða.
„Það er vísvitandi verið að taka
aflaheimildir af öðrum svæðum og
færa yfir á Asvæði Vestfirðinganna,
sem skaðar ekki bara okkar sjó
menn heldur byggðarlögin hér. Við
verðum af tekjum og menn héðan
eru farnir að f lýja yfir á Asvæðið
með því að f lytja útgerðir vestur.
Þeir borga þá skatta og skyldur fyrir
vestan þótt þeir búi annars staðar
hinn hluta ársins,“ segir hann.
Einar segist standa þétt við bakið
á Svandísi. „Við lifum í nútímanum,
við sjómenn viljum vera meira með
fjölskyldum okkar þótt feður okkar
hafi f lutt sig til milli vertíða.“
Að óbreyttu segir Einar að strand
veiðikerfið endi allt á einu svæði.
„Ef þetta væri Eurovision myndi
ég gefa Lilju núll stig. Ég hef tekið
við hana rökræðu í einkasímtali og
líka í atvinnuveganefnd. Hún tekur
engum sönsum.“ n
Sjómaður kveðst
gefa Lilju núll stig
Einar Sigurðsson strandveiðimaður.
MYND/AÐSEND
gar@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Kona, sem var far
þegi í bíl sem valt á Meðallandsvegi
suður af Kirkjubæjarklaustri í fyrri
nótt, lést í slysinu. Tveir aðrir voru
f luttir mikið slasaðir með þyrlu á
sjúkrahús í Reykjavík. Ökumaður
inn slapp ómeiddur.
Lögreglan á Suðurlandi kvaðst í
tilkynningu í gær ekki vilja upplýsa
um rannsókn sem hafin væri á mál
inu. Í fyrri tilkynningu kom fram að
viðbragðsaðilar á Suðurlandi hefðu
verið kallaðir til um klukkan 2.55
um nóttina. n
Kona lést í bílveltu
2 Fréttir 9. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ