Fréttablaðið - 09.07.2022, Side 4
Samkvæmt umferðar-
lögum á handhafi
stæðiskorts rétt á að
leggja á gjaldskyldu
svæði án sérstakrar
greiðslu.
Hlutirnir gerast hratt.
Guðlaugur Þór
Þórðarson, um-
hverfis-, orku-
og loftslags-
ráðherra.
JEEP.IS • ISBAND.IS
KEMUR ÞÚ
AF FJÖLLUM?
PLUG-IN HYBRID
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
Íslensku fjöllin hafa mætt jafningja sínum.
Gerðu ferðalagið algjörlega rafmagnað með
Jeep® Wrangler Rubicon Plug-In Hybrid.
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LOKAÐ LAUGARDAGA
Borgarlögmaður telur Bíla-
stæðasjóði óheimilt að taka
gjald af handhöfum P-korta.
Öryrkjabandalagið hyggst
grípa til aðgerða gegn borg-
inni verði ekki látið af inn-
heimtunni og reglum breytt.
erlamaria@frettabladid.is
adalheidur@frettabladid.is
REYKJAVÍK Lögmaður Öryrkja-
bandalags Íslands, ÖBÍ, furðar sig á
því hvers vegna ólöglegri gjaldtöku
Bílastæðasjóðs af hreyfihömluðum
ökumönnum í borginni hefur ekki
verið hætt og reglum breytt.
Í minnisblaði borgarlögmanns
fyrir borgarstjóra frá í desember í
fyrra segir að gjaldtaka Bílastæða-
sjóðs af handhöfum stæðiskorta
fyrir hreyfihamlaða í bílastæða-
húsum borgarinnar sé óheimil.
Vikið er að málinu í fundar-
gerð borgarráðs og var því vísað til
umhverfis- og skipulagsráðs. „Aug-
ljóslega þurfum við að passa upp á
að það sé ekki verið að rukka fólk
með P-merki þegar það á ekki að
gera það,“ segir Alexandra Briem,
starfandi formaður ráðsins. Hún
tjáir sig ekki um málið því umfjöll-
un um það sé ekki hafin í ráðinu.
Ágreiningur hefur ríkt um gjald-
tökuna milli Bílastæðasjóðs og
Öryrkjabandalagsins allt frá því
síðla árs 2020 er lögmaður ÖBÍ ósk-
aði fyrst skýringa frá Bílastæðasjóði.
Í bréfi Bílastæðasjóðs til aðgengis-
og samráðsnefndar borgarinnar
segir að gjaldtaka af stæðishöfum
sé hvorki skattheimta né þjónustu-
gjöld sem byggi á lagaheimildum
eða sjónarmiðum opinbers réttar
heldur sé um að ræða innheimtu
endurgjalds á einkaréttarlegum
grunni hjá þeim sem kjósi að hag-
nýta sér fasteignir sem nýttar séu
sem bílastæðahús og eigi sér stoð í
samþykktum um Bílastæðasjóð og
gjaldskrá sem borgarráð ákveði.
Mannréttindaskrifstofa Reykja-
víkur tók málið til skoðunar í júní
í fyrra. Í minnisblaði hennar kemur
fram það mat að Reykjavíkurborg
hafi takmarkað þau réttindi sem
handhafar stæðis korta eigi að njóta
með því að aðgreina bifreiðastæði í
bílastæðahúsum frá bílastæðum á
götum og opnum svæðum.
Í kjölfarið óskaði borgarstjóri
eftir minnisblaði frá borgarlög-
manni um málið og skilaði hann
því í desember í fyrra. Er þar vísað
til gildandi umferðarlaga um rétt
handhafa stæðiskorts til að leggja í
gjaldskylt bifreiðastæði án sérstakr-
ar greiðslu, auk réttar til að leggja í
sérmerkt stæði fyrir hreyfihamlaða.
Lögmaður ÖBÍ segir að félagið
muni sækja rétt félagsmanna. En
þau hefðu talið að þau þyrftu ekki
sjálf að ganga eftir því.
„Mér finnst ótrúlegt að það þurfi
að ganga svona á eftir þessu þegar
að æðsti lögfræðingur borgarinnar
sjálfur er búinn að segja að þetta
sé ólögmætt. Maður myndi halda
að borgin tæki mark á sínum eigin
borgarlögmanni,“ segir Daníel Ise-
barn Ágústsson lögmaður.
„Við ætluðum að gefa borginni og
Bílastæðasjóði einhvern smá tíma
til að bregðast við þessu, en eins og
ég segi, það er komið hálft ár þannig
að ef það fer ekki að gerast eitthvað
á allra næstu dögum förum við í
frekari aðgerðir.“ n
Rukkar hreyfihamlaða án heimildar
bth@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Guðlaugur Þór
Þórðarson umhverfis-, orku- og
loftslagsráðherra hefur ákveðið að
veita um 900 milljónir króna í styrki
til orkuskipta á þessu ári.
Þetta er hæsta úthlutun til verk-
efna í orkuskiptum hingað til. Sam-
tals fengu 137 verkefni styrk og eru
styrkþegar í öllum landshlutum.
Guðlaugur Þór segir hvetjandi að
sjá mikinn áhuga á orkuskiptum.
Áhugi fjárfesta og frumkvöðla sé
mikill. Þeir leggi til meirihluta fjár-
ins til verkefna á móti sjóðnum.
Sjóðurinn veitir nú í fyrsta sinn
umtalsverð styrkvilyrði til fram-
leiðslu rafeldsneytis og nýtingar
þess í stærri samgöngu- og f lutn-
ingstækjum.
Þá styrkir sjóðurinn notkun á
vetni í stórum flutningstækjum á
landi með styrkveitingum til Clara
Arctic Energy ehf. og Vetnis ehf. sem
stuðla meðal annars að vetnisvæð-
ingu flutningstækja hjá Eimskip og
Samskipum.
Einnig er áhersla á rafvæðingu
hafna og orkuskipti í fiskiskipum,
meðal annars breytingu fiskiskipa
þannig að þau gangi fyrir metanóli,
sem hægt er að framleiða með
grænni raforku. Þar má sérstak-
lega nefna verkefni Útgerðarfélags
Reykjavíkur, sem hyggst breyta
vinnsluskipinu Guðmundi í Nesi
RE13 þannig að það geti brennt
metanóli að talsverðum hluta.
„Þegar grænbókin kom út í mars
síðastliðnum var staðan sú að ekki
var ljóst hvaða rafeldsneyti yrði
ofan á þegar kemur að skipum og
engin teikn á lofti um hreyfingar
í þessum efnum,“ segir Guðlaugur
Þór. „Hlutirnir gerast hratt og það er
alveg ljóst að hraðinn mun aukast á
komandi árum.“ n
Reykvískt fiskiskip knúið metanóli að hluta
Það eru gjald-
skyld bílastæði
í bílastæða-
húsum sem
sjóðurinn hefur
rukkað hand-
hafa stæðis-
korta fyrir, en
lögum sam-
kvæmt þurfa
þeir ekki að
greiða fyrir slík
stæði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Alexandra
Briem,
borgarfulltrúi.
Daniel Isebarn
Ágústsson,
lögmaður ÖBÍ.
thorgrimur@frettabladid.is
JAPAN Japanska þjóðin er í sárum
eftir að Shinzō Abe, fyrrverandi for-
sætisráðherra Japans, var skotinn til
bana í borginni Nara í gær.
Sinzho Abe var forsætisráðherra
Japans frá 2007 til 2008 og aftur frá
2012 til 2020 og var þaulsetnasti for-
sætisráðherra í sögu landsins.
Abe var á útifundi að flytja stuðn-
ingsræðu fyrir frambjóðanda í kosn-
ingum sem verða haldnar til efri
deildar japanska þingsins á morgun.
Fyrrum sjóliði á fimmtugsaldri
var handtekinn á vettvangi og hefur
játað á sig morðið á Abe. Hann not-
aði heimagerða byssu til að skjóta
Abe og segist hafa drepið hann
vegna óvildar sinnar í garð „tiltek-
innar stofnunar“ sem Abe tengdist.
Abe var meðlimur í Frjálslynda
lýðræðisflokknum, sem hefur stýrt
Japan að mestu síðan á sjötta ára-
tugnum. Hann var dóttursonur fyrr-
verandi forsætisráðherrans Nobu-
suke Kishi, sem tók þátt í stofnun
flokksins.
Abe var hægrisinnaður þjóðernis-
sinni og hafði lengi talað fyrir því
að stjórnarskrá Japans yrði breytt
til þess að lyfta hömlum sem settar
voru á stærð japanska hersins eftir
seinna stríð.
Gagnrýnendur Abe höfðu gjarnan
sakað hann um að hvítþvo stríðs-
glæpi Japana með orðræðu sinni.
Þjóðarleiðtogar vottuðu í gær
fjölskyldu Abe og japönsku þjóð-
inni samúð vegna hins sviplega
fráfalls hans. Þeirra á meðal voru
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra og Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, sem bæði lýstu hlut-
tekningu sinni á Twitter. Ryotaro
Suzuki, sendiherra Japans á Íslandi,
þakkaði þeim báðum í svörum á
Twitter.
„Þakka þér kærlega, herra for-
seti, fyrir þessar innilegu samúðar-
kveðjur,“ skrifaði Suzuki í svari sínu
til forseta Íslands. n
Shinzo Abe myrtur
á útifundi í Japan
Shinzo Abe andartökum áður en
hann var veginn. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
4 Fréttir 9. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ