Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 31
Forsætisráðuneytið auglýsir eftir
gæðastjóra og móttökustjóra
Gæðastjóri
Forsætisráðuneytið leitar eftir öflugum gæðastjóra. Starfið tilheyrir skrifstofu innri þjónustu sem ber ábyrgð
á gæða- og umbótamálum forsætisráðuneytisins, fjármálum, upplýsingakerfum og sér um öryggismál
og starfsumhverfi. Starfsfólk skrifstofunnar styður við innra starf ráðuneytisins, meðal annars við störf
þverfaglegra hópa og teyma.
Leitað er eftir öflugum og lausnamiðuðum leiðtoga með yfirgripsmikla þekkingu og farsæla reynslu á
sviði gæðamála, umbótastarfs og breytingastjórnunar. Leitað er eftir einstaklingi með framúrskarandi
samskiptafærni og jákvætt viðmót. Gæðastjóri ber ábyrgð á gæðastarfi og samhæfingu verklags í stafrænni
vegferð ráðuneytisins.
Starfið er auglýst án staðsetningar.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á gæðamálum, mótun og þróun gæðastefnu
og gæðakerfis.
• Skráning ferla og framkvæmd og undirbúningur
innri og ytri úttekta.
• Greining og þróun á árangri í umbótastarfi.
• Þátttaka í umbótastarfi, s.s. mótun stefnu og
breytingastjórnun.
• Þátttaka og virkni í þverfaglegum teymum og
samráðshópum.
• Þátttaka í þróun starfsumhverfis samkvæmt
heimsmarkmiðum, s.s. stafrænni vegferð og
grænum skrefum.
Hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi færni í
mannlegum samskiptum.
• Reynsla af farsælli breytingastjórnun skilyrði.
• Fjölþætt reynsla af gæðamálum og umbótastarfi.
• Umfangsmikil reynsla af þróun starfsumhverfis.
• Framsýni og lausnamiðuð nálgun.
• Jákvætt viðmót.
• Færni í tjáningu á íslensku og ensku.
Móttökustjóri
Forsætisráðuneytið leitar eftir móttökustjóra. Meðal áhersluatriða er að þjónusta í húsum forsætisráðuneytisins
sé til fyrirmyndar varðandi veitingar, hreinlæti, öryggi og aðbúnað. Móttökustjóri annast m.a. umsýslu varðandi
fundaþjónustu, þar með talið tæknimál, gagna- og búnaðarflutninga.
Leitað er að gestrisnum, öguðum og jákvæðum einstaklingi sem er tæknilega sinnaður og hefur farsæla
starfsreynslu. Starfið heyrir til skrifstofu innri þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með fundaaðstöðu, m.a. að nauðsynlegur
tæknibúnaður sé fyrir hendi.
• Undirbúningur og frágangur funda og þátttaka í
rekstri veitingaþjónustu.
• Samskipti við birgja, umsjón með aðföngum og
skráning í birgðabókhald.
• Skráning viðburða.
• Móttaka gesta.
• Umsjón með aðbúnaði og hreinlæti.
Hæfniskröfur
• Stúdentspróf eða menntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af þjónustustjórnun eða sambærilegum
verkefnum.
• Rík þjónustulund, gestrisni og framúrskarandi
samskipta- og samvinnuhæfileikar.
• Góð alhliða þekking og/eða reynsla af uppsetningu
og tengingu tækja- og fundabúnaðar.
• Góð tölvuþekking og reynsla af rafrænni skráningu.
• Sveigjanleiki, sjálfstæði og útsjónarsemi.
• Skipulagshæfileikar og ögun í vinnubrögðum.
• Færni í tjáningu á íslensku og ensku.
Frekari upplýsingar um störfin
Einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni.
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig
umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Umsóknarfrestur er til og með 25.07.2022.
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri margret.hallgrimsdottir@for.is – s. 861 2200.
Sótt er um störfin á Starfatorgi: starfatorg.is
Stjórnarráð Íslands
Forsætisráðuneytið