Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 55
Flutningur Elko í Mylluhúsið
í Skeifunni boðar endurkomu
Ólafar Garðarsdóttur í húsnæðið
þar sem hún fékk sína fyrstu
vinnu fyrir fjörutíu árum síðan.
arnartomas@frettabladid.is
Krónan og Elko í Skeifunni fluttu sig um
set í vikunni sem leið og eru verslanir
þeirra nú komnar yfir í gamla Myllu-
húsið. Flutningurinn boðar endurfundi
fyrir Ólöfu Garðarsdóttur, sem starfar
hjá Elko, en hennar fyrsta starf var við
pökkun hjá Myllunni 1982.
„Þetta er aðallega bara skemmtilegt
enda er allt gjörbreytt,“ svarar Ólöf
aðspurð hvort endurkoman sé tilfinn-
ingaþrungin. „Ég var notabene að vinna
hérna þegar ég var sextán ára svo ég man
ekki nákvæmlega hvernig þetta var.“
Ólöf á þó minningar af því hvað hún
var gróflega að gera en hún vann við að
pakka vínarbrauði og kökum.
„Ég fór beint í þetta eftir 10. bekk-
inn svo þetta var fyrsta alvöru vinnan,
fyrsta ástin,“ segir Ólöf flissandi en hún
eignaðist sinn fyrsta kærasta í starfinu.
„En þetta er svo langt síðan svo ég man
ekki alveg hvernig þetta leit út.“
Heim á fornar slóðir
Eftir Mylluna fór Ólöf að starfa hjá Hag-
kaup þar sem hún vann í mörg ár og
f lutti síðar til Danmerkur og Noregs.
Þegar hún f lutti aftur heim fékk hún
vinnu í Keflavík hjá Elko í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Þegar Covid skall á fékk
Ólöf svo tilfærslu aftur á fornar slóðir í
Skeifunni.
„Mitt heimasvæði, sko,“ segir hún
hreykin. „Ég fékk að velja og ég þurfti
ekkert að hugsa mig um. Að sjálfsögðu
valdi ég Skeifuna!“
Ólöf hefur þannig meiri reynslu af
Skeifunni en flestir Íslendingar og hefur
sitthvað að segja um þá þróun sem þar
hefur átt sér stað á þessum fjörutíu árum.
„Mér finnst svæðið því miður aðeins
úr sér gengið, sérstaklega fyrir bílaum-
ferð,“ segir Ólöf og bendir á að umferðin
hafi ekki verið svo mikil á þeim tíma. „Í
dag eru komnar allar þessar stórversl-
anir en þá var þetta miklu meira iðn-
aðarhverfi – það var lakkrísgerð hérna
og svona. Nú eru þetta bara orðnar versl-
anir og það þyrfti að endurskipuleggja
þetta allt.“
Mylla og bingó
Ólöf varð 56 ára á þessu ári og er ekki
viss um hvort starfsferill hennar muni
leiða hana aftur í Mylluhúsið eftir næstu
fjörutíu ár.
„Ég veit ekki alveg hvort ég verði enn
þá að vinna, 96 ára gömul, en það er aldr-
ei að vita!“ segir hún og hlær. „Kannski
verður komið félag fyrir eldri borgara
sem ég verð að stjórna.“
Þeir geta þá kannski spilað myllu í
þessu húsnæði?
„Já, myllu og bingó!“ n
Endurfundir við Mylluhúsið
Ólöf Garðarsdóttir hóf starfsferil sinn í Skeifunni fyrir fjörutíu árum og er komin á sama stað aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Merkisatburðir
1357 Hornsteinn er lagður að Karlsbrúnni í Prag.
1816 Argentína lýsir yfir sjálfstæði.
1916 Vopnaður enskur togari tekur farþegaskipið Flóru á
leið frá Reykjavík til Siglufjarðar með 100 farþega
innanborðs og er því siglt til Bretlands. Farþegarnir
voru sendir heim með öðru skipi síðar í sama
mánuði.
1932 Donald Rumsfeld, fyrrverandi varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, fæðist í Illinois.
1940 Mikið haglél í Hrunamannahreppi og stíflast lækir
af aurburði.
1946 Skemmtigarðurinn Tívolí í Reykjavík er opnaður.
Þar eru meðal annars bílabraut, hringekja, Parísar-
hjól og danspallur.
2011 Suður-Súdan fær sjálfstæði frá Súdan.
Þetta er aðallega bara
skemmtilegt enda er allt
gjörbreytt.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Hjördís Pedersen
lést á krabbameinsdeild
Landspítalans aðfaranótt 7. júlí 2022.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Stefán Agnar Magnússon
Heiðbjört Hlín Stefánsdóttir Árni Sverrisson
Agnar Árni Stefánsson Brenda Mueck
Eygló Margrét Stefánsdóttir Anna Dögg Einarsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Elskuleg sambýliskona,
móðir og amma,
Þórdís Jósefína
Guðjónsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
sunnudaginn 3. júlí síðastliðinn.
Jarðarförin fer fram frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 18. júlí klukkan 13.00.
Kristján Grétar Jónsson
Sigrún Linda Þorgeirsdóttir
Þórir Viðar Þorgeirsson
Rán, Röskva, Eir
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát föður okkar,
tengdaföður og afa,
Odds Magnússonar
séntilmanns.
Hann lést í faðmi fjölskyldunnar og útför
hefur farið fram. Sérstakar þakkir færum
við starfsfólki L5 á Landakoti fyrir hlýhug. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á krabbameinsfélagið Ljósið.
Reikn. 0130-26-410520, kt. 590406-0740.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæra sonar, bróður og barnabarns,
Ómars Andrésar Ottóssonar
Hedegaardsvej 11a,
sem lést í Kaupmannahöfn, 8. maí
síðastliðinn, vegna heilablæðingar.
Sérstakar þakkir til allra sem aðstoðuðu á svo margan hátt
og þökkum ómetanlegan stuðning á þessum erfiða tíma.
Sigurlína Andrésdóttir Snorri Valberg
Egill Orri Valberg
Auður Ísadóra Valberg
Hreinn Ómar Sigtryggsson Kolbrún Þórisdóttir
Lárus Valberg Guðný Rut Jónsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Jón I. Tryggvason
rafvirki,
Árskógum 1A, Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
mánudaginn 4. júlí. Útförin fer fram frá Seljakirkju
fimmtudaginn 14. júlí klukkan 13. Blóm og kransar
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
krabbameinsfélagið Ljósið.
Guðbjörg I. Jóhannesdóttir
Arnfríður Eva Jónsdóttir Atli Örn Jónsson
Margrét Jónsdóttir Jón Helgi Bragason
Halldór Jónsson Sólveig Samúelsdóttir
Steinar Jónsson
afa- og langafabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar ástkæra
Jónasar A. Kjerúlf
Stillholti 19,
Akranesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Höfða, Hjúkrunar-
og dvalarheimilis, fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Brynja Kolbrún Kjerúlf
Jóna María S. Kjerúlf Pétur Hafsteinn Ingólfsson
Edda Elísabet Kjerúlf Einar Þorsteinsson
Kristbjörg Kjerúlf Marcelo Doti
Kolbrún Kjerúlf Guðlaugur Gunnarsson
Andrés Ólafur Kjerúlf Þórunn Káradóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðrún María Vigfúsdóttir
lést í faðmi fjölskyldunnar þann
29. júní á Hjúkrunarheimilinu Eir.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þann 14. júlí klukkan 15. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin.
Hjalti Páll Þorvarðarson
Þorvarður G. Hjaltason Guðrún Einarsdóttir
Hjalti V. Hjaltason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Kamma Agneta Dalsgaard
Níelsdóttir
leikskólastjóri,
lést á líknardeild Landspítalans
föstudaginn 1. júlí. Kamma verður
jarðsungin frá Vídalínskirkju þriðjudaginn 12. júlí kl. 15.
Rúna K. Tetzschner Jökull Benedikt Knútsson
María Rós Magnúsdóttir
Hlynur, Snæbjörn, Dagný og Elísabet Ösp Jökulsbörn
FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 9. júlí 2022 Tímamót 31