Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 64
Undirbúningsstyrkir
Styrkir til sýningaverkefna
Útgáfu-/rannsóknastyrkir
og aðrir styrkir
M
yn
dl
is
ta
rs
jó
ðu
r
Veittir verða styrkir allt að 3.000.000 kr.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 þann 22. ágúst 2022
Upplýsingar um myndlistarsjóð,
umsóknareyðublað, úthlutunar
reglur og leiðbeiningar má finna
á vefsíðu myndlistarsjóðs,
myndlistarsjodur.is
Úthlutað verður í september
mánuði. Um er að ræða seinni
úthlutun úr sjóðnum árið 2022.
Opið er fyrir
umsóknir í
myndlistarsjóð
Lestrarátakið Tími til að lesa
sameinar tvö helstu áhuga-
mál Gunnars Helgasonar,
ritlist og fótbolta. Krakkar á
aldrinum 6-14 ára eru hvattir
til að lesa og skrifa sögur
samhliða EM kvenna í knatt-
spyrnu.
Leikarinn og rithöfundurinn góð-
kunni Gunnar Helgason ýtir nýju
lestrarátaki úr vör í dag í tilefni EM
kvenna í knattspyrnu. Átakið, sem
er fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára,
ber heitið Tími til að lesa og er tví-
þætt. Í fyrsta lagi er lestraráskor-
unin Lesum leikinn.
„Þá gera börn og forráðafólk
samning sem fólk getur náð í á
timitiladlesa.is. Þar lofar barnið
að lesa ákveðið mikið fyrir hvern
leik sem íslenska kvennalandsliðið
spilar á EM, hvert mark sem er skor-
að og hvert víti sem er varið. Þau
sem gera samninginn ákveða hver
verðlaunin eru, sem eiga náttúrlega
bara að vera ókeypis, fjölskyldu-
stund, knús, bíó- eða spilakvöld,“
segir Gunnar.
Í öðru lagi er sögukeppnin Skrif-
um söguna, þar er börnum frjálst
að senda inn sögu sem inniheldur
á einhvern hátt orðið bolta.
„Það geta allir sem eru 6-14
ára sent inn sögu á gunnihelga@
timitil adlesa.is. Það getur verið
hvernig saga sem er, hún þarf ekk-
ert að vera löng. Það getur verið
ljóð, myndasaga, leikrit, sjónvarps-
handrit, þau ráða því algjörlega.
Það eru engin skilyrði með söguna
nema að það verður að vera ein-
hvers konar bolti, það getur verið
brennibolti, körfubolti, fimleika-
bolti eða fótbolti,“ segir Gunnar.
Stærstu verðlaun sem um getur
Að sögn Gunnars þurfa krakkar
að senda inn sögurnar í síðasta
lagi 18. júlí svo hann hafi tíma til
að lesa þær allar og endilega fyrr.
Verðlaunin eru svo ekki af verri
endanum en sigurvegari sögu-
keppninnar fær ferð fyrir tvo á
næsta útileik kvennalandsliðsins í
knattspyrnu í haust.
„Ég vel bestu söguna og sigur-
vegarinn fær ferð til útlanda. Þetta
eru stærstu verðlaun sem um getur
í svona smásagnakeppni barna!“
segir Gunnar.
Lestraráskorunin stendur yfir
svo lengi sem stelpurnar okkar
eru með í leik á EM í knattspyrnu.
Keppnin hefst á Englandi í þessari
viku en Ísland keppir sinn fyrsta
leik næsta sunnudag á móti Belgíu.
„Við vonum að það standi sem
lengst. Helst að við förum bara alla
leið, við trúum því. Ég er alla vega
sjálfur rosa bjartsýnn því hópurinn
hefur bara breikkað, batnað og
stækkað,“ segir Gunnar og bætir því
við að það reynist honum hægara
sagt en gert að halda væntingum í
hófi.
Bókmenntaumræður á vellinum
Eitt sinn var það þannig að krakkar
sem höfðu mikinn áhuga á fótbolta
höfðu ekki mikinn áhuga á að lesa
og öfugt. Hefur orðið breyting þar
á?
„Þegar ég var ungur maður í list-
námi þá þótti ekki fínt að tala um
fótbolta eða hafa áhuga á fótbolta.
Það voru mjög erfið fjögur ár þegar
ég þurfti að þykjast hafa ekki áhuga
á fótbolta í Leiklistarskólanum. En
mér finnst það hafa breyst mikið
undanfarið að listafólk segi kinn-
roðalaust að það hafi áhuga á fót-
bolta.“
Gunnar segir fótbolta vera mjög
stóran part af lífi margra en hann
hefur alla tíð verið bæði mikill
lestrarhestur og áhugamaður um
knattspyrnu.
„Ég finn það bara með mínum
fótboltasögum, eftir að þær fóru
að koma út, þá lendi ég oft í bók-
menntaumræðum á vellinum við
börn. Það eru svona fótboltakrakk-
ar sem koma á völlinn að horfa á
leiki, að þau skuli hafa lesið allar
þessar bækur og vilji ræða þær er
ekkert minna en stórkostlegt fyrir
mig.“ n
Fótbolti og bóklestur
í eina sæng
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
Gunnar Helgason bregður á leik með hundi sínum á sparkvelli Öldutúnsskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þegar ég
var
ungur
maður í
listnámi
þá þótti
ekki fínt
að tala
um
fótbolta
eða hafa
áhuga á
fótbolta.
tsh@frettabladid.is
Leitin er nýr hlaðvarpsþáttur sem
fer í loftið á Rás 1 í dag þar sem Þóra
Hjörleifsdóttir og Halla Ólafsdóttir
rekja söguna af leit verkfræðingsins
Giancarlo Gianazza og arkitektsins
Þórarins Þórarinssonar að hinu
heilaga grali uppi á hálendi Íslands.
„Bróðir hans pabba er búinn að
vera í mörg, mörg ár í einhverjum
óræðum fjársjóðsleiðangri sem
ég vissi aldrei alveg hvað var. Svo
frétti ég að hann væri að leita að
hinu heilaga grali með ítölskum
milljónamæringi,“ segir Þóra en
Þórarinn er föðurbróðir hennar.
Verkefnið á rætur sínar að rekja
til ársins 2004 þegar Giancarlo
Gianazza uppgötvaði faldar vís-
bendingar í Hinum guðdómlega
gleðileik eftir Dante Alighieri.
Giancarlo taldi að þetta stórvirki
ítalskrar bókmenntasögu væri í
raun dulkóðað fjársjóðskort sem
vísaði upp á Kjöl.
„Útvarpsserían rekur söguna frá
því að þeir kynnast og út á hvað
kenningar þeirra ganga. Giancarlo
Gianazza er verkfræðingur og er
með hobbí sem er að finna dul-
kóðaðar upplýsingar í málverkum
eftir Leonardo da Vinci og Sandro
Botticelli. Svo var hann mjög mikið
að pæla í Hinum guðdómlega gleði-
leik,“ segir Þóra.
Að sögn Þóru telur Giancarlo sig
hafa fundið leynileg hnit í ljóða-
bálki Dantes. Allar ljóðlínur verks-
ins eru númeraðar og gaf Dante þau
fyrirmæli að þegar Guðdómlegi
gleðileikurinn yrði endurprent-
aður mætti ekki breyta einum
einasta staf.
„Giancarlo fór að skoða ljóðið og
leita að frávikum og hlutum sem
voru skrýtnir og spá í það út frá
númerunum á ljóðlínunum. Þetta
varð til þess að hann fann hnit af
mjög afmörkuðum stað á Íslandi
sem er þarna uppi á Kili.“
Þetta hlýtur að hafa hljómað
alveg lygilega fyrst um sinn?
„Það sem mér finnst svo magnað
við þetta er að þeir eru búnir að
vera að standa í þessu verkefni í
næstum tuttugu ár og þegar fólk
heyrir af þessu þá finnst öllum
þetta bara vera eitthvað fárán-
legt. En þetta eru ekkert einhverjir
skrýtnir karlar. Jú, þeir eru klár-
lega pínu sérvitrir en maður myndi
aldrei á förnum vegi hugsa að þeir
væru eitthvað skrýtnir. Þetta eru
eldklárir og sprenglærðir karlar
sem eru ekki bara að leita að ein-
hverju út í bláinn.“
Þættirnir, sem eru fimm talsins,
verða f luttir í línulegri dagskrá á
laugardagsmorgnum á Rás 1 í júlí
og ágúst, en þáttaröðin í heild sinni
er jafnframt aðgengileg á helstu
hlaðvarpsveitum frá og með deg-
inum í dag. n
Hafa leitað að hinu h
eilaga grali á Kili í tvo
Halla Ólafsdóttir og Þóra Hjörleifsdóttir gerðu fimm þátta hlaðvarpsseríu
um æsispennandi fjársjóðsleit á Kili. MYND/ÓSKAR ÖRN HÁLFDÁNARSON
40 Menning 9. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 9. júlí 2022 LAUGARDAGUR