Fréttablaðið - 03.08.2022, Page 10
Það er alveg sama hvar
ber niður í dag. Fyrir-
tæki eiga í miklum
erfiðleikum með að
manna sig.
Helga Jóhanna Oddsdóttir
Við höfum fengið
viðbrögð víða og
meira að segja Apple
hefur lýst yfir áhuga á
samstarfi.
Vinnumarkaðurinn sem
við þekkjum í dag er að taka
stakkaskiptum að sögn
stofnenda veflausnarinnar
Opus Futura og mikilvægt er
að bregðast við því. Stofnend-
urnir vilja skapa vettvang fyrir
bæði fyrirtæki og einstaklinga
til að kynna sig með nýjum
hætti og styðja þannig við
framtíðarfærni atvinnulífsins.
magdalena@frettabladid.is
Opus Futura er vef lausn sem er
í þróun og mun með tíð og tíma
verða að eins konar markaðstorgi
fyrir alþjóðlegan vinnumarkað.
Konurnar á bak við fyrirtækið eru
þær Herdís Pála Pálsdóttir og Helga
Jóhanna Oddsdóttir. Þær segja að
vinnustaður framtíðarinnar muni
líta allt öðruvísi út og að einstakl-
ingar vilji vinna með nýjum hætti,
þegar eru farin að sjást merki um
þessar breytingar. Fyrirtæki þurfa
að hafa mun meira fyrir því en áður
að ráða til sín hæft starfsfólk með
tilheyrandi kostnaði og er markmið
Opus Futura að styðja við framtíð-
arhæfi þeirra.
Herdís segir að hugmyndin að
fyrirtækinu hafi kviknað síðasta vor
þegar þær báðar hafi verið búnar að
koma auga á það að vinnumarkað-
urinn hafi tekið stakkaskiptum á
undanförnum misserum og voru að
velta fyrir sér hvernig best væri að
bregðast við. Þær hafi þó rætt þessa
þróun töluvert lengur og hvaða
kröfur hún geri til stjórnenda.
„Við erum báðar með mikla
reynslu úr atvinnulífinu og við
sjáum mikil tækifæri í því hvernig
vinnumarkaðurinn er að breytast.
Þannig að við komum saman og
settum allar okkar hugmyndir og
reynslu í pott og úr varð Opus Fut-
ura.“
Helga bætir við að það beri
sífellt meira á því að fyrirtæki eigi í
erfiðleikum með að manna sig sem
eykur áhættu og getur takmarkað
vöxt þeirra. Lykilatriðið er að stjórn-
endur séu að líta til framtíðarfærni
fyrirtækisins í víðara samhengi en
áður.
„Það er alveg sama hvar ber niður
í dag. Fyrirtæki eiga í miklum erfið-
leikum með að manna sig. Fjöldi
umsækjenda um hvert starf fer
sífellt minnkandi. Þess vegna er
mikilvægt að skoða með heild-
rænum hætti hvaða kröfur þetta eru
sem starfsfólk framtíðarinnar er að
gera og hvað fyrirtækin geta gert til
að uppfylla þær.“
Herdís Pála tekur í sama streng.
„Ef við bregðumst ekki við núna
þá verður til ákveðin gjá á vinnu-
markaði. Staðreyndin er sú að um
40 prósent stjórnenda í 400 stærstu
fyrirtækjum landsins sjá fram á
skort á vinnuafli. En þrátt fyrir það
þá halda þeir áfram að laða til sín
fólk með sömu gömlu aðferðunum.
Þessu þarf að breyta,“ segir Herdís
og bætir við að einstaklingar séu
búnir að endurhugsa hvernig og
með hvaða hætti þeir vilja starfa
nú þegar við erum að koma út úr
heimsfaraldrinum. Staðan sé nú
sem dæmi þannig að einu sinni var
reynslutími nýttur af fyrirtækjum
til að meta nýja starfsmanninn en
nú sé það í rauninni starfsmaðurinn
sem sé að meta fyrirtækið, menn-
ingu þess og stjórnun.
„Það sem við erum að gera með
þessari lausn okkar er að brúa þessa
gjá. Það er að segja hjálpa fyrir-
tækjum að kynna sig á nýjan hátt
og hjálpa einstaklingum að meta
og bera saman fyrirtæki en einnig
að sýna fram á eigin atvinnuhæfni.
Til framtíðar litið verða ráðningar-
sambönd mun fjölbreyttari en áður
og við þurfum að hugsa hlutina
upp á nýtt og skapa vettvang fyrir
fyrirtækin og einstaklingana til að
mætast á miðri leið. Hluti af okkar
lausn er að skapa eins konar Tinder
vinnumarkaðarins.“
Helga segir að greinilegt sé að
valdahlutföllin á vinnumarkaði
hafi breyst. Það sé liðin tíð að fólk
standi í biðröð til að komast í eitt-
hvert ákveðið starf. „Það er ljóst að
margt þarf að breytast í stjórnun
og mönnun. Við einfaldlega getum
ekki haldið áfram að beita sömu
aðferðunum meðan vinnumarkað-
urinn er að breytast jafn mikið og
raun ber vitni.“
Herdís Pála tekur undir og bætir
við að vef lausnin sem þær eru
að vinna að geti einnig nýst fjár-
festum við að greina hvort ákveðin
fyrirtæki séu fýsilegur fjárfestinga-
kostur.
„Fjárfestar munu geta notað upp-
lýsingar á vefsíðunni okkar til að
meta fjárfestingakosti. Í dag er það
þannig að fjárfestar eru fyrst og
fremst að horfa á fjárhagsstærðir
en það eru svo margar aðrar stærðir
sem skipta máli. Til dæmis hvort
vinnustaðurinn sé heilbrigður,
hvort þar sé mikil starfsmannavelta
og hver meðal starfstími stjórn-
enda sé, svo fátt eitt sé nefnt. Þessar
stærðir hjálpa ekki síður við að meta
áhugaverða kosti en EBITDA, hagn-
aður og vöxtur.“
Herdís Pála og Helga Jóhanna
segja að þær sjái mörg tækifæri í
þeirri staðreynd að vinnumark-
aðurinn sé að breytast og að þær
hlakki til að taka þátt í þeirri veg-
ferð, að gera framtíðarvinnumarkað
vænlegri bæði fyrir fyrirtæki og ein-
staklinga. ■
Með Tinder vinnumarkaðarins í þróun
magdalena@frettabladid.is
Overtune er nýtt smáforrit þar sem
notendum er gert kleift að búa til
tónlist og deila afurðinni á sam-
félagsmiðla.
Nick Gatfield, fjárfestir og fyrrum
framkvæmdastjóri hjá Sony Music,
segir að þrátt fyrir að hafa fjárfest
í fjölmörgum tónlistartengdum
verkefnum hafi hann sjaldan séð
jafn mikla vaxtarmöguleika og hjá
Overtune.
„Þetta er fyrsta smáforritið sem
talar til kynslóðarinnar þar sem
sífellt f leiri efnishöfundar (e. con-
tent creator) eru að spretta upp,“
segir Nick og bætir við að möguleik-
arnir séu í raun endalausir. „Þú getur
búið til lag eða tekið upp raddprufu
og síðan deilt því, ekki aðeins á sam-
félagsmiðla heldur líka inni í smá-
forritinu.“
Nick segir að að því leytinu til
muni Overtune líklega þróast út í
að verða eins konar samfélagsmiðill.
Til að byrja með getur fólk nálgast
Overtune sér að kostnaðarlausu
en listamenn geta þó keypt ýmsar
vörur sem appið býður upp á. Með
tíð og tíma er til skoðunar að fólk
geti keypt áskriftir af ákveðnu efni
en frumhugmyndin verður ávallt
notandanum að kostnaðarlausu.
Nick bætir við að þótt fyrirtækið
hafi aðeins starfað í rétt rúm tvö ár
hafi þeir fengið gífurlega góðar við-
tökur. „Við höfum fengið viðbrögð
víða og meira að segja Apple hefur
lýst yfir áhuga á samstarfi.“ ■
Nýr samfélagsmiðill á sviði tónlistar
Sigurður Ásgeir Árnason, Jason Daði Guðjónsson og Pétur Eggerz Pétursson,
stofnendur Overtune. MYND/AÐSEND
Nick Gatfield,
fjárfestir og
fyrrum fram-
kvæmdastjóri
hjá Sony Music
Herdís Pála og
Helga Jóhanna
segja að þær sjái
mörg tækifæri í
þeirri staðreynd
að vinnu-
markaðurinn sé
að breytast.
MYND/AÐSEND
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
MARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR