Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.08.2022, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 03.08.2022, Qupperneq 10
Það er alveg sama hvar ber niður í dag. Fyrir- tæki eiga í miklum erfiðleikum með að manna sig. Helga Jóhanna Oddsdóttir Við höfum fengið viðbrögð víða og meira að segja Apple hefur lýst yfir áhuga á samstarfi. Vinnumarkaðurinn sem við þekkjum í dag er að taka stakkaskiptum að sögn stofnenda veflausnarinnar Opus Futura og mikilvægt er að bregðast við því. Stofnend- urnir vilja skapa vettvang fyrir bæði fyrirtæki og einstaklinga til að kynna sig með nýjum hætti og styðja þannig við framtíðarfærni atvinnulífsins. magdalena@frettabladid.is Opus Futura er vef lausn sem er í þróun og mun með tíð og tíma verða að eins konar markaðstorgi fyrir alþjóðlegan vinnumarkað. Konurnar á bak við fyrirtækið eru þær Herdís Pála Pálsdóttir og Helga Jóhanna Oddsdóttir. Þær segja að vinnustaður framtíðarinnar muni líta allt öðruvísi út og að einstakl- ingar vilji vinna með nýjum hætti, þegar eru farin að sjást merki um þessar breytingar. Fyrirtæki þurfa að hafa mun meira fyrir því en áður að ráða til sín hæft starfsfólk með tilheyrandi kostnaði og er markmið Opus Futura að styðja við framtíð- arhæfi þeirra. Herdís segir að hugmyndin að fyrirtækinu hafi kviknað síðasta vor þegar þær báðar hafi verið búnar að koma auga á það að vinnumarkað- urinn hafi tekið stakkaskiptum á undanförnum misserum og voru að velta fyrir sér hvernig best væri að bregðast við. Þær hafi þó rætt þessa þróun töluvert lengur og hvaða kröfur hún geri til stjórnenda. „Við erum báðar með mikla reynslu úr atvinnulífinu og við sjáum mikil tækifæri í því hvernig vinnumarkaðurinn er að breytast. Þannig að við komum saman og settum allar okkar hugmyndir og reynslu í pott og úr varð Opus Fut- ura.“ Helga bætir við að það beri sífellt meira á því að fyrirtæki eigi í erfiðleikum með að manna sig sem eykur áhættu og getur takmarkað vöxt þeirra. Lykilatriðið er að stjórn- endur séu að líta til framtíðarfærni fyrirtækisins í víðara samhengi en áður. „Það er alveg sama hvar ber niður í dag. Fyrirtæki eiga í miklum erfið- leikum með að manna sig. Fjöldi umsækjenda um hvert starf fer sífellt minnkandi. Þess vegna er mikilvægt að skoða með heild- rænum hætti hvaða kröfur þetta eru sem starfsfólk framtíðarinnar er að gera og hvað fyrirtækin geta gert til að uppfylla þær.“ Herdís Pála tekur í sama streng. „Ef við bregðumst ekki við núna þá verður til ákveðin gjá á vinnu- markaði. Staðreyndin er sú að um 40 prósent stjórnenda í 400 stærstu fyrirtækjum landsins sjá fram á skort á vinnuafli. En þrátt fyrir það þá halda þeir áfram að laða til sín fólk með sömu gömlu aðferðunum. Þessu þarf að breyta,“ segir Herdís og bætir við að einstaklingar séu búnir að endurhugsa hvernig og með hvaða hætti þeir vilja starfa nú þegar við erum að koma út úr heimsfaraldrinum. Staðan sé nú sem dæmi þannig að einu sinni var reynslutími nýttur af fyrirtækjum til að meta nýja starfsmanninn en nú sé það í rauninni starfsmaðurinn sem sé að meta fyrirtækið, menn- ingu þess og stjórnun. „Það sem við erum að gera með þessari lausn okkar er að brúa þessa gjá. Það er að segja hjálpa fyrir- tækjum að kynna sig á nýjan hátt og hjálpa einstaklingum að meta og bera saman fyrirtæki en einnig að sýna fram á eigin atvinnuhæfni. Til framtíðar litið verða ráðningar- sambönd mun fjölbreyttari en áður og við þurfum að hugsa hlutina upp á nýtt og skapa vettvang fyrir fyrirtækin og einstaklingana til að mætast á miðri leið. Hluti af okkar lausn er að skapa eins konar Tinder vinnumarkaðarins.“ Helga segir að greinilegt sé að valdahlutföllin á vinnumarkaði hafi breyst. Það sé liðin tíð að fólk standi í biðröð til að komast í eitt- hvert ákveðið starf. „Það er ljóst að margt þarf að breytast í stjórnun og mönnun. Við einfaldlega getum ekki haldið áfram að beita sömu aðferðunum meðan vinnumarkað- urinn er að breytast jafn mikið og raun ber vitni.“ Herdís Pála tekur undir og bætir við að vef lausnin sem þær eru að vinna að geti einnig nýst fjár- festum við að greina hvort ákveðin fyrirtæki séu fýsilegur fjárfestinga- kostur. „Fjárfestar munu geta notað upp- lýsingar á vefsíðunni okkar til að meta fjárfestingakosti. Í dag er það þannig að fjárfestar eru fyrst og fremst að horfa á fjárhagsstærðir en það eru svo margar aðrar stærðir sem skipta máli. Til dæmis hvort vinnustaðurinn sé heilbrigður, hvort þar sé mikil starfsmannavelta og hver meðal starfstími stjórn- enda sé, svo fátt eitt sé nefnt. Þessar stærðir hjálpa ekki síður við að meta áhugaverða kosti en EBITDA, hagn- aður og vöxtur.“ Herdís Pála og Helga Jóhanna segja að þær sjái mörg tækifæri í þeirri staðreynd að vinnumark- aðurinn sé að breytast og að þær hlakki til að taka þátt í þeirri veg- ferð, að gera framtíðarvinnumarkað vænlegri bæði fyrir fyrirtæki og ein- staklinga. ■ Með Tinder vinnumarkaðarins í þróun magdalena@frettabladid.is Overtune er nýtt smáforrit þar sem notendum er gert kleift að búa til tónlist og deila afurðinni á sam- félagsmiðla. Nick Gatfield, fjárfestir og fyrrum framkvæmdastjóri hjá Sony Music, segir að þrátt fyrir að hafa fjárfest í fjölmörgum tónlistartengdum verkefnum hafi hann sjaldan séð jafn mikla vaxtarmöguleika og hjá Overtune. „Þetta er fyrsta smáforritið sem talar til kynslóðarinnar þar sem sífellt f leiri efnishöfundar (e. con- tent creator) eru að spretta upp,“ segir Nick og bætir við að möguleik- arnir séu í raun endalausir. „Þú getur búið til lag eða tekið upp raddprufu og síðan deilt því, ekki aðeins á sam- félagsmiðla heldur líka inni í smá- forritinu.“ Nick segir að að því leytinu til muni Overtune líklega þróast út í að verða eins konar samfélagsmiðill. Til að byrja með getur fólk nálgast Overtune sér að kostnaðarlausu en listamenn geta þó keypt ýmsar vörur sem appið býður upp á. Með tíð og tíma er til skoðunar að fólk geti keypt áskriftir af ákveðnu efni en frumhugmyndin verður ávallt notandanum að kostnaðarlausu. Nick bætir við að þótt fyrirtækið hafi aðeins starfað í rétt rúm tvö ár hafi þeir fengið gífurlega góðar við- tökur. „Við höfum fengið viðbrögð víða og meira að segja Apple hefur lýst yfir áhuga á samstarfi.“ ■ Nýr samfélagsmiðill á sviði tónlistar Sigurður Ásgeir Árnason, Jason Daði Guðjónsson og Pétur Eggerz Pétursson, stofnendur Overtune. MYND/AÐSEND Nick Gatfield, fjárfestir og fyrrum fram- kvæmdastjóri hjá Sony Music Herdís Pála og Helga Jóhanna segja að þær sjái mörg tækifæri í þeirri staðreynd að vinnu- markaðurinn sé að breytast. MYND/AÐSEND GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR 588 80 40 www.scanver.is RAFMÓTORAR MARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.