Fréttablaðið - 03.08.2022, Page 28
Venjulega fékk ég
aldrei nein skilaboð en
núna gerist það bara
frekar oft að fólk er í
grenndinni!
Skartgripahönnuðurinn
Jónas Breki Magnússon er í
hörkustuði í Danmörku eftir
að hafa slegið í gegn sem sér-
legur gullsmiður tónlistarhá-
tíðarinnar Copenhell þar sem
hringar hans með sjálfum
Fenrisúlfinum hertum í rokk-
uðum vítislogum seldust upp.
toti@frettabladid.is
„Ég er Copenhell-gullsmiðurinn,“
segir Jónas Breki vígreifur en
eftir að hafa lengi verið þekkt-
astur fyrir hauskúpuhringa
sína hefur hann heldur betur
haslað sér völl í Danmörku,
þar sem hann býr með fjöl-
skyldu sinni, með skarti sem
hann gerir innblásinn af nor-
rænni goðafræði.
„Ég er svo stoltur af því að geta
sagst hafa hannað og gert fyrsta
opinbera Copenhell-hringinn,“
segir Breki og brosir breitt enda
stendur hin rómaða vítisveisla
í Kaupmannahöfn nærri rokk-
hjörtum hans og Gúrýjar, konunnar
hans.
Geggjuð fjölskylduhátíð
„Þessi hátíð er svo mikið við og
alltaf þegar við mætum er það
eins og ættarmót í besta hugsan-
lega skilningi. Við Gúrý höfum
mætt á hátíðina í átta af þeim ellefu
skiptum sem Copenhell hefur verið
haldin. Það skemmtilegasta er svo
að krakkarnir okkar fá alltaf að vera
með í einn dag og þetta var í fjórða
skiptið sem þau komu með.“
Krakkadaginn bar að þessu sinni
upp á 16. júní, afmælisdag Breka,
sem segir rokkhátíð með börnunum
hafa verið sérstaklega góða afmælis-
gjöf þar sem fjölskyldan hristi höfuð
sín saman í takt við ekki ómerkari
kanónur en Korn, Knocked Loose,
Opeth, Judas Priest og KISS.
„Þetta var geggjað og gaman að
Rokkaður
Fenrisúlfur hertur
í vítislogum Köben
odduraevar@frettabladid.is
Borið hefur á góma meðal Íslend-
inga á samfélagsmiðlum að annar
hver Íslendingur hafi ferðast til
Ítalíu í sumar. Gekk einn svo langt
að spyrja sig hvort Ítalía væri orðin
nýja Tenerife, þangað sem Íslend-
ingar hafa flykkst í stórum hópum
um margra ára skeið.
Þóra Fjeldsted, ferðamálafröm-
uður og Ítalíufari, útilokar það ekki
en vantar þó samanburðinn.
„Ég þekki ekki Tenerife og gott að
taka það fram, en skilst að þangað
fari allir, svarar Þóra sem búið
hefur á Ítalíu undanfarin ár. „En
mér hefur sýnst sem svo að síðasta
árið kannski hafi verið miklu meiri
áhugi á Ítalíu heldur en áður.
Ég á til dæmis nokkra vini og
kunningja sem allt í einu eru á
ferðalagi um Ítalíu. Svo er ég allt í
einu farin að fá skilaboð frá vinum
sem vilja fá leiðbeiningar og ábend-
ingar um hluti til að skoða.
Ég hef klárlega orðið vör við
gríðarlega mikinn áhuga og það er
Íslendingar virðast sólgnir í Ítalíu
jú eins og allir séu að heimsækja
Ítalíu. Eða virkar allavega svolítið
svoleiðis.“
Sjálf býr Þóra á milli Napolí og
Rómar. „Ég bý tiltölulega langt fyrir
utan ferðamannasvæði, þannig að
ég verð kannski ekki eins vör við
Íslendinga í kringum mig,“ útskýrir
Þóra.
„En svo þegar ég er í Bologna þá
fæ ég stundum skilaboð frá fólki
sem ég hef hvatt til að láta mig vita
ef það er í grenndinni. Venjulega
fékk ég aldrei nein skilaboð en núna
gerist það bara frekar oft að fólk er
í grenndinni!“ segir Þóra hlæjandi.
Hún segist skilja aðdáun Íslend-
inga á Ítalíu vel. „Ítalía er náttúrlega
risastór og það er svo mikið af öllu
og það er eitthvað fyrir alla.“ n
Þóra þekkir ekki
til á Tenerife og
hefur því ekki
samanburðinn
en vinsældir
Ítalíu hafa þó
ekki farið fram-
hjá henni.
MYND/AÐSEND
segja frá því að Breki jr. „crowd-
sörfaði“ í fyrsta sinn á ævinni.
Aðeins ellefu ára á Judas Priest tón-
leikunum.
Úlfur í vítislogum
Copenhell var haldin í lok júní þegar
hún losnaði loks úr tveggja ára nið-
urdrepandi Covid-læðingi og gull-
smiðurinn fékk loks að sjá glampa
á rokkaða vítisloga í rokkskartinu
sem stofnendur hátíðarinnar báðu
hann um að hanna 2020.
„Það var í janúar 2020 sem einn
af þremur stofnendum Copenhell
sendi mér tölvupóst þar sem hann
spurði hvort við gætum hist augliti
til auglitis á verkstæðinu vegna þess
að hann vildi ræða samstarf um
skartgripi,“ segir Breki og bendir
á að þremenningarnir séu í fullri
vinnu allan ársins hring að undir-
búa hverja Copenhell-hátíð.
„Þegar hann mætti kom hann sér
beint að kjarna málsins og sagði
að þeir hjá Copenhell vildu fá mig
til þess að hanna og gera „official“
Copenhell-hringinn með Fenrisúlf-
inum sem listamaðurinn Victor Ash
málaði á sínum tíma fyrir hátíðina á
gömlu skipasmíðastöðina við Refs-
halevej.“
Seint koma sumir …
Breki segist aðeins hafa átt eitt svar
við þessari beiðni: „Af hverju tók
það ykkur tíu ár að tala við mig?
Ég hannaði síðan og gerði í einum
hvelli þrjár mismunandi prótótýpur
af Fenri. Það tók þá tvær vikur að
ákveða hvaða hönnun þeir vildu.
Síðan gerðu þeir pöntun og borguðu
auðvitað fyrir hana og búmm! Fökk-
ing Corona!“
Breki afgreiddi pöntunina f ljótt
og örugglega en þegar á hólminn var
komið var ekki hægt að drepa úlfinn
úr dróma. „Þannig að það var auðvit-
að ekkert festival 2020 en ég reyndi
mikið að pressa á að setja hringinn í
sölu á vefsíðunni þeirra en þeir vildu
það ekki vegna þess að þeim fannst
fólk verða að sjá hringinn með eigin
augum. Þess vegna kom hringurinn
fyrst út í ár,“ segir Breki.
Úlfurinn rokkar
„Það er svo geðveikt að hringurinn
seldist upp á hátíðinni en þremur
dögum fyrir hátíðina var hægt að
sækja aðgangsarmböndin á svæði
við hliðina á Kødbyen hjá aðaljárn-
brautarstöðinni í Köben þar sem
þeir voru með svið, hringana, alls
konar varning og massa af bjór til
sölu,“ segir Breki, sem rokkar feitt í
Danmörku þetta árið.
Bæði sem yfirlýstur gullsmiður
Copenhell auk þess sem enn má
skoða dauðadjásn hans á skartgripa-
sýningunni Makabre Mesterværker
í Sønderborg-höll. Þar vinnur hann
einnig úr goðafræðinni og ferðalagi
Freydísar Eiríksdóttur rauða til Val-
hallar með tengingum við galdra-
stafinn Vegvísi. n
Verkið sem Breki var beðinn um að byggja hringinn á. MYND/AÐSEND
Breki gullsmiður hittir ítrekað í mark í Danmörku og tók nú síðast Cobenhell-hátíðina með trukki og funheitum Fenrisúlfi. MYND/MATTHÍAS FINNS
24 Lífið 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR