Fréttablaðið - 03.08.2022, Side 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@
frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar
Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK
OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Það hafa aldrei verið
nein leiðindi þessi
skipti sem við höfum
verið við Ráðhúsið.
Bara gleði.
Guðríður Sigurbjörnsdóttir
Hvernig var?
Stórkostleg stund Hebba í Eyjum
toti@frettabladid.is
Herbert
Guðmundsson
tónlistarmaður
„Þetta var bara
stórkostleg
stund. Stór
kostleg stund
og bara yndis
legt og gaman,“
segir tónlistar
maðurinn Herbert Guðmundsson
sem, ótrúlegt en satt, tróð upp á
Þjóðhátíð í Eyjum á sunnudags
kvöld í fyrsta sinn á löngum ferli.
„Þetta var æðislegt og bara eins
og ég segi „once in a lifetime“
upplifelsi.“
Og varla þarf að spyrja að því
að dalurinn og salurinn hafi verið
vel með á nótunum þegar Hebbi
tók sitt allra vinsælasta lag, eitís
klassíkina Can´t Walk Away?
„Já, já, og hljómsveitin Alba
tross var svo góð. Þeir voru alveg
frábærir, hann Halldór Gunnar
og þessir strákar. Þetta var bara
æðislegt. Þeir eru svo færir og
voru búnir að æfa þetta vel og
þetta er bara svo gott band. Meiri
háttar.“
Hebbi var ekki aðeins að troða
upp í fyrsta skipti á Þjóðhátíð þar
sem hann hafði aldrei verið áður
á Þjóðhátíð yfirleitt, þrátt fyrir
sterkar og margvíslegar tengingar
við Eyjar. Aðspurður segir hann
þó ljóst að hann sé heldur betur
til í að endurtaka leikinn ef kallið
kemur.
„Já, já. Þetta fór líka svo vel
fram. Mikill fjöldi og þetta var
bara alveg stórkostlegt sko,“ segir
Herbert og bætir við að stundin
hafi verið svo stór að dóttir hans,
María Anna Christoffersen, hafi
flogið sérstaklega heim til Íslands
frá Danmörku „til að sjá pabba
„live“ á stóra sviðinu.“ n
n Lykilspurningin
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
ALLT AÐ 60%
AFSLÁTTUR
SUMARÚTSALA
BETRA BAKS
20%
AF STILLAN-
LEGUM RÚMUM
60%
AFSLÁTTUR
10-40%
A F H E I L S U I N N I S KÓ M
EXCLUSIVE TOPPER
Gæsadúnn. 90 x 200 cm.
Verð: 30.900 kr.
Nú 12.360 kr.
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Borgarbókasafnið tekur
virkan þátt í Hinsegin dögum
sem hófust í gær og þá var
hinsegin bókabílnum lagt
fyrir framan hús Héraðsdóms
Reykjavíkur í Austurstræti
þar sem hann vekur forvitni
og gleði og laðar að sér alls
konar fólk annað en fordóma-
fulla leiðindapúka.
toti@frettabladid.is
Bókabíll Borgarbókasafnsins er
hinsegin þessa dagana og hefur
verið fundinn góður staður við hús
Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem
hann mun vera á Hinsegin dög-
unum, með fullfermi fjölbreytilegs
úrvals hinsegin bókmennta, þangað
til fögnuður fjölbreytileikans nær
hámarki á laugardaginn og Einar
Sigurmundsson, bókabílstjóri og
bókavörður, rennir honum saman
við Gleðigönguna.
„Hann er sko bara hinsegin í
tvær vikur, svo er hann venjulegur
allt árið,“ segir Einar. „Já, tiltölu-
lega venjulegur,“ tekur Guðríður
Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri hjá
Borgarbókasafninu, undir og heldur
áfram:
„Bókabíllinn er náttúrlega með
sína áætlun en á Hinsegin dögum
tæmum við hann af sínum venju-
legu bókum og fyllum hann með
hinsegin bókum sem koma flestar
úr Grófarsafni.“
Guðríður segir hinsegin bóka-
kost safnsins slíkan að lítið mál
sé að fylla rúmgóðan bókabílinn í
hólf og gólf. „Þegar bókasafn Sam-
takanna ‘78 var lagt niður fengum
við öll skáldritin þaðan gefins en
fræðiritin fóru á Þjóðarbókhlöðuna
og svo erum við bara með öflugt
innkaupateymi sem er vel með á
nótunum og duglegt að panta inn.“
Ný stoppistöð
Hinsegin dekkjunum hefur verið
brugðið undir bókabílinn Höfðingja
frá 2019 en Guðríður segir hann þó
aldrei hafa verið jafn áberandi og
á þessari nýju stoppistöð í Austur-
strætinu.
„Þetta er í fyrsta skipti sem hann
er hérna við Lækjartorg en annars
hefur hann bara verið niðri við
Tjörnina hjá Ráðhúsinu. Hann tekur
síðan í annað skipti þátt í göngunni
á laugardaginn en við verðum
örugglega ekki fyrst í röðinni. Við
eltum bara,“ segir Guðríður og
minnir á að heimsfaraldurinn hafi
komið í veg fyrir Gleðigönguna síð-
ustu tvö ár en nú er lag og Höfðingi
verður fulltrúi Borgarbókasafnsins í
göngunni sem boðberi fegurðar í
frelsi og öllum hvatning til að víkka
sjóndeildarhringinn með bóklestri.
„Þegar við höfum tekið þátt í
Hinsegin dögum þá er fólk meira
að skoða og svo sér það eitthvað
áhugavert. Þannig að það er ekki
eins og það sé sérstaklega að leita
að einhverri bók, eins og það gerir
kannski frekar þegar það kemur
á bókasafnið.“ Þá telur hún rétt
að vekja athygli á fjölbreytninni
í bílnum og að þar megi til dæmis
finna unglingabækur, barnabækur,
ljóð og teiknimyndasögur.
Fordómalaus forvitni
„Hann vekur heilmikla forvitni og
við höfum náttúrlega ekki verið á
svona góðum stað áður,“ segir Guð-
ríður og bætir við að fjöldi fólks
stökkvi á vagninn. „Það er líka
mikið af ferðafólki sem finnst þetta
áhugavert og svo náttúrlega eru
aðrir sem bara elska bókabílinn,“
heldur hún áfram og hlær. „Fólk er
svo glatt að sjá hann svona á ein-
hverjum óvæntum stað.“ Og bóka-
bílstjórinn tekur í svipaðan streng.
„Þetta er sérstakt dæmi, sko.“
Aðspurð segja þau Guðríður og
Einar að bókabílnum hafi bara
verið tekið fagnandi og þau hafi
ekki orðið vör við nein leiðindi eða
áreiti frá fordómaliði. „Nei, ég er nú
reyndar bara búinn að vera hérna
í klukkutíma,“ segir Einar og hlær.
„Nei, það hefur ekki verið. Það hafa
aldrei verið nein leiðindi þessi skipti
sem við höfum verið við Ráðhúsið.
Bara gleði,“ segir Guðríður.
Ekkert bannað
Bannaðar bækur fylla eina hilluna í
bílnum og eru ágætis áminning um
að fordómarnir eru sjaldnast langt
undan. „Þetta eru bækur sem eru
bannaðar í öðrum löndum. Það er
náttúrlega ekkert bannað hérna hjá
okkur.“
Bannfærðu bókmenntirnar verða
í brennidepli í bílnum í dag milli
16.30 og 17.30 þegar Mars Proppé
ræðir hvað það felur í sér að banna
bók og veltir upp spurningum um
af hverju samfélög hafi í gegnum
tíðina bannað bækur sem snúa að
hinseginleika.
„Þetta verður bara hér í bílnum
þannig að það verður gaman að sjá
hversu margir komast fyrir,“ segir
Guðríður en Höfðingi verður opinn
frá 13 til 18 fram á föstudag þegar
Einar fer að fikra sig í átt að Gleði-
göngunni. n
Ekkert pláss fyrir leiðindi
í hinsegin bókabílnum
Guðríður og Einar við Höfðingja, sannkallaðan og sýnilegan boðbera gleði og
fjölbreytileika á Hinsegin dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hinsegin bókakostur Borgarbóka
safnsins fyllir bílinn auðveldlega.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
26 Lífið 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ