Fréttablaðið - 03.08.2022, Síða 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Láru G.
Sigurðardóttur
n Bakþankar
Ég hækkaði í útvarpinu þar sem
ég mjakaðist áfram innan um
pálmatré í Kísildalnum. Doctor
Radio hafði fengið til sín í spjall
bæklunarskurðlækna. Sjarmerandi
djúp karlmannsrödd skipaði
hlustendum að anda frá sér koltví-
sýringi. Síðan bættust í loftið fleiri
raddir sem sammæltust um ágæti
hugleiðslu. Allir læknarnir byrjuðu
morguninn á að hugleiða, áður en
haldið var inn á skurðstofu. Þeir
ávísuðu meira að segja hugleiðslu
fyrir sjúklinga sína og voru að rann-
saka hvort hugleiðsla gæti dregið úr
verkjalyfjanotkun eftir aðgerð. Sá
með djúpu röddina hafði áhyggjur
af hve margir sækja í ópíóíða eftir
aðgerð.
M. Catherine Bushnell hjá
bandarísku heilbrigðismála-
stofnuninni (NIH) hefur helgað
sig rannsóknum á því hvernig
huglæg úrvinnsla verkja getur
breytt taugatengingum. Sársauki er
flókið ferli en rannsóknir hennar
hafa sýnt að hægt er að dempa boð
um líkamlegan sársauka. Með því
að beina athygli og tilfinningum í
ákveðið ferli getur virkni minnkað
í heilasvæðum þar sem sársauki
er upplifaður. Þá geta tilfinningar
stillt verkjatón og virkni sársauka-
brauta. Nýlega var gerð rannsókn
á fólki með langvinna verki sem
misnotaði ópíóíða. Fólkinu var
skipt tilviljanakennt í tvo hópa.
Annar hópurinn var þjálfaður í
núvitund sem fléttar inn hugræna
atferlismeðferð og jákvæða sál-
fræði, hinn fékk eingöngu fræðslu
og hópmeðferð. Í ljós kom að um
helmingur núvitundar-hópsins var
hættur að ofnota verkjalyf að níu
mánuðum liðnum, nær tvöfalt fleiri
en fræðslu-hópurinn.
Þótt enn sé óljóst hvaða boðefni
eru að verki í að milda sársauka
bentu læknarnir á að við getum sótt
okkar eigið ópíóíð með því að beina
huganum í ákveðinn farveg, eins og
með því að hugleiða. n
Okkar eigið ópíóíð
Það er góð
byrjun að
vera hjá TM Hugsum í framtíð
TAX FREE
af skólatöskum, 2. – 5. ágúst
Tax free jafngildir 19,36% afslætti.
Tilboðið gildir ekki með öðrum tilboðum.
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN