Skessuhorn - 14.07.2021, Blaðsíða 2
MiðViKudAgur 14. júLÍ 20212
Um næstu helgi er rólegasta helgi
ársins ef marka má viðburða-
talið. Fólk hefur undanfarið far-
ið á flennistóru fellihýsunum sín-
um út um allt land og aðallega
þar sem veðrið hefur verið sem
best. Þá hafa sumir tekið vel á því
á hinum ýmsu bæjarhátíðum sem
fram hafa farið í júlímánuði. Því er
kannski kominn tími á að slaka á
um helgina, finna sjálfan sig, vera
með sínum nánustu, skella sér í
sund eða í lautarferð með nesti nú
eða að kíkja á fjölskyldudag á Ei-
ríksstöðum í Haukadal.
Á morgun verður sunnan- og suð-
vestan 5-13 m/s og rigning eða
súld með köflum, en léttskýjað
NA-til. Hiti 10 til 20, hlýjast eystra.
Á föstudag verður suðlæg og suð-
vestlæg átt 5-13 m/s og rigning
eða súld með köflum og svo skúrir
seinnipartinn, en léttskýjað NA-til.
Hiti 10 til 20, hlýjast NA-til. Á laug-
ardag verður vestlæg eða breyti-
leg átt, 5-10 m/s. Skýjað með köfl-
um og smá skúrir víða. Hiti 9 til 16
stig og á sunnudag vestan og suð-
vestan 3-10 m/s, bjart með köflum
og hlýtt.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns hvað af eftirfarandi
lesendur Skessuhorns myndu
helst vilja. 65% vildu vinna stóran
lottóvinning, 23% vilja finna upp
hamingjuvélina, 5% vera einvald-
ur á Íslandi í eitt ár, 5% vera töfra-
menn í einn dag en 3% vera starfs-
maður mánaðarins látlaust.
Í næstu viku er spurt:
Hefurðu farið oft í megrun?
Ásdís Baldvinsdóttir í Borgarnesi
fagnaði sjötugsafmæli sínu í gær
og hættir nú formlega störfum
sem leikskólakennari eftir 42 ára
farsælt starf. Hún er Vestlendingur
vikunnar að þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Ekkert íbúðar-
húsnæði til sölu
BÚÐARDALUR: Athygli vek-
ur að ekki ein íbúð eða einbýlis-
hús var til sölu í Búðardal síð-
astliðinn mánudag, ef marka má
fasteignasölusíður. Þar hefur
lítið verið byggt á liðnum árum,
en þó var fimm íbúða raðhús
með leiguíbúðum byggt á síð-
asta ári. Í dreifbýli dalabyggð-
ar eru hins vegar nokkrar jarð-
ir og landspildur auglýstar til
sölu samkvæmt vef fasteigna-
sala. -mm
Stefnir í
læknaskort
VESTURLAND: Í síðustu
viku fjallaði fréttastofa ríkis-
útvarpsins talsvert um þann
læknaskort sem nú er á lands-
byggðinni, raunar alls stað-
ar utan suðvesturhorns lands-
ins. Í þeirri umræðu sagði for-
maður Læknafélags Íslands að
gera þyrfti læknastarfið úti á
landi meira aðlaðandi með því
að breyta vaktafyrirkomulagi og
minnka álag. Í þessari umfjöll-
un var sérstaklega rætt um al-
varlega stöðu sem horft er fram
á að geti skapast í Borgarnesi
með haustinu. Þar er útlit fyrir
að enginn læknir verði starfandi
eftir sumarið. -mm
Dópaður og
þrísviptur
BORGARNES: Lögreglu-
menn á eftirlitsferð, aðfararnótt
þriðjudags, stöðvuðu för öku-
manns á Borgarbraut í Borgar-
nesi. Við athugun reyndist öku-
maður vera sviptur ökuréttind-
um og var þetta í þriðja skipt-
ið sem hann er tekinn próflaus.
Þá er hann jafnframt grunaður
um að hafa verið undir áhrifum
fíkniefna. -frg
Lífstíls- og gjafavöruverslun, Hyrnutorgi, Borgarnesi & www.fok.is
Til hamingju með vel heppnaða
Hinseginhátíð Vesturlands um liðna helgi
Heyskapur hefur gengið vel hjá
bændum á Vesturlandi nú í júlí.
Einstaka bændur hófu slátt í júní
en flestir um síðustu mánaðamót.
Nokkrir hafa nú lokið fyrri slætti,
einkum þó kúabændur og þeir sem
gátu friðað túnin í vor fyrir beit.
Framboðslisti Miðflokksins í Norð-
vesturkjördæmi var samþykktur á
félagsfundi síðastliðinn fimmtu-
dag. Flokkurinn hlaut við síðustu
kosningar tvo þingmenn sem nú
skipta tvö efstu sætin líkt og þá.
„Ég er virkilega ánægður með öfl-
ugan lista sem nú hefur verið sam-
þykktur. Á honum er margt kröft-
ugt og gott fólk sem ég hlakka til
að vinna með í kosningabaráttunni
sem í hönd fer og á næsta kjörtíma-
bili. Þarna næst fram góð blanda af
reynslu og yngra fólki sem er til-
búið að hella sér í baráttuna,” seg-
ir Bergþór Ólason oddviti listans í
samtali við Skessuhorn. Sex efstu
sæti listans eru þannig skipuð:
Í 1. sæti er Bergþór Ólason, alþing-
ismaður, Akranesi.
Í 2. sæti er Sigurður Páll jónsson,
alþingismaður, Stykkishólmi.
Í 3. sæti er Finney Aníta Thelmu-
dóttir, háskólanemi, rvk/Ísafirði.
Í 4. sæti er ilóna Sif Ásgeirsdótt-
ir, starfmaður við frístund, Skaga-
strönd.
Í 5. sæti er Högni Elfar gylfason,
bóndi og vélfræðingur, Skagafirði.
Í 6. sæti er Hákon Hermannsson,
framkvæmdastjóri, Ísafirði. mm
Margir langt komnir eða búnir með fyrri slátt
grasspretta fór hægt af stað í vor
sökum kulda og lítillar vætu, en
eftir að hlýna tók í veðri í endaðan
júní tók hún hressilega við sér. Ágæt
gæði eru á þeim heyfeng sem náðst
hefur. Búast má við því að uppskera
af sama magni að minnsta kosti fá-
ist í öðrum slætti. Nú vantar vætu á
túnin en henni er einmitt spáð ein-
hverja daga nú í vikunni.
grétar Þór reynisson bóndi á
Höll í Þverárhlíð kveðst í samtali
við Skessuhorn vera búinn með
fyrri slátt á jörð sinni og allt hey
komið í plast. Hann gerir út hey-
vinnutæki og kemur til aðstoðar
bændum við heyskap á þremur eða
fjórum jörðum í nágrenninu. Að-
spurður um hvernig heyskapur hafi
gengið fram að þessu segir grétar:
„Það hefur gengið vel, enda veð-
urspáin aldrei staðist,“ segir hann
og hlær, og vísar til þess að oft hafi
verið spáð vætu á hans slóðum sem
ekki hafi svo skilað sér. „Það var
fínasti þurrkur nú um helgina og
margir sem náðu að komast langt
með fyrri slátt.“ grétar segir að
einkum séu það sauðfjárbændur
sem hafa þurft að bíða með að hefja
slátt enda þurfti að halda fé á tún-
um lengi þar sem lítill gróður var
á heiðinni og seint hægt að keyra á
fjall. mm
Grétar í Höll er hér að rúlla heyi á sléttum á Lindarhvoli, næstu jörð við Höll.
Miðflokkurinn birtir
framboðslista sinn