Skessuhorn - 14.07.2021, Page 6
MiðViKudAgur 14. júLÍ 20216
Tilkynnt um
aðfinnsluvert
aksturslag
VESTURLAND: Á sunnu-
dagsmorgun var lögreglu til-
kynnt um aðfinnsluvert akst-
urslag ökumanns á Vestur-
landsvegi. Í kjölfarið stöðv-
aði lögregla för ökumanns-
inn. Hann svaraði jákvætt á
fíkniefnaprófi og var hand-
tekinn. Mál hans fór í hefð-
bundinn farveg. -frg
Dópaður og
með byssur
heima
SNÆFELLSNES: Lög-
reglumenn á eftirlitsferð
stöðvuðu ökumann á 125
kílómetra hraða á Snæfells-
nesvegi á laugardag. Hann
svaraði síðan fyrir amfeta-
míni á fíkniefnaprófi og var
í kjölfarið handtekinn. Feng-
inn var úrskurður um hús-
leitarheimild og á heim-
ili ökumannsins fundust
vopn; haglabyssa, rifflar og
gasskammbyssa. Málið er í
rannsókn. -frg
Fíkniefnaakstur
SNÆFELLSNES: Síðdeg-
is á laugardag stöðvuðu lög-
reglumenn á eftirlitsferð för
ökumanns á Snæfellsnesvegi.
Ökumaður er grunaður um
akstur undir áhrifum fíkni-
efna. Hann var handtekinn
og fór mál hans hefbundna
leið. -frg
Tekinn próflaus
í þriðja skiptið
VESTURLAND: Lög-
reglumenn á eftirlitsferð
stöðvuðu ökumann á Vestur-
landsvegi á laugardag. Hann
reyndist vera sviptur ökurétt-
indum og var þetta í þriðja
skiptið sem hann var tekinn
próflaus á bílnum. -frg
Próflaus og
dópaður
VESTURLAND: Ökumað-
ur sem stöðvaður var fyrir að
aka á 120 kílómetra hraða á
Vesturlandsvegi á þriðjudag
í síðustu viku reyndist próf-
laus. Var þetta í þriðja skipti
sem hann er tekinn próflaus á
bílnum. Að auki er ökumað-
urinn grunaður um að hafa
ekið undir áhrifum fíkniefna.
-frg
Ók fullur frá
tjaldsvæði
VESTURLAND: Lögregla
á Vesturlandi var með auk-
inn viðbúnað um liðna helgi.
Ökumaður sem farið hafði of
snemma af stað frá tjaldstæði
í Borgarfirði á laugardags-
morgun var stöðvaður og við
athugun vaknaði grunur um
að hann væri undir áhrifum
áfengis. Mál hans fór í hefð-
bundið ferli. -frg
Þurfa að fjölga
leikskólaplássum
BORGARBYGGÐ: Á fundi
byggðarráðs Borgarbyggð-
ar síðastliðinn fimmtudag voru
kynntar upplýsingar úr þarfa-
greiningu fyrir leikskóla í Borg-
arnesi. „Þarfagreining fyrir
leikskóla í Borgarnesi og æski-
leg næstu skref í uppbyggingu
leikskóla í Borgarnesi mun
liggja fyrir í ágúst. umsóknum
um leikskólapláss í Borgarnesi
heldur áfram að fjölga og því
eru uppbyggingaráform með
fjölgun leikskólaplássa í huga
mikilvæg til að bregðast við
þeirri fjölgun,“ segir í bókun af
fundi byggðarráðs. -mm
Skothríð við
sumarbústað
BORGARFJ: Síðastliðið
sunnudagskvöld barst lögreglu
tilkynning um að verið væri að
skjóta af haglabyssu og riffli við
sumarbústað í Borgarfirði. Sér-
sveit ríkislögreglustjóra var
kölluð til aðstoðar eins og venja
er í slíkum málum. Í kjölfarið
voru fjórir handteknir á staðn-
um. Skotmennirnir héldu því
fram að þeir hefðu leyfi hús-
ráðanda fyrir skytteríinu. Þá
var einn aðili sem tengist mál-
inu handtekinn eftir að lögregla
stöðvaði för hans. Hann er grun-
aður um akstur undir áhrifum
fíkniefna. Við rannsókn málsins
kom í ljós að vopnin voru stol-
in. Búið er að finna raunveru-
legan eiganda þeirra en hann er
staddur erlendis. Málið tengist
því óupplýstu innbroti á höfuð-
borgarsvæðinu og má gera ráð
fyrir að það mál upplýsist í kjöl-
farið. -frg
„Við opnum fimmtudaginn 15.
júlí. Allir velkomnir, kaffi á könn-
unni og íspinnar fyrir börnin,“ seg-
ir í tilkynningu frá nýjum rekstr-
araðila Baulunnar í Borgarfirði.
Skeljungur keypti eins og kunn-
ugt er Bauluna í september á síð-
asta ári og rak hana þar til í janú-
ar að lokað var og auglýst eftir
áhugasömum sem vildu taka rekst-
urinn að sér. Síðan hefur Skeljung-
ur staðið fyrir gagngerum endur-
bótum á húsnæðinu. Búið er að
endurinnrétta alla efri hæð húss-
ins, skipta út innréttingum, koma
fyrir nýjum tækjum í eldhúsi ásamt
húsgögnum, mála og gera snyrti-
legt. Einnig er búið að taka lóðina
við Bauluna í gegn og koma fyr-
ir nýjum leiktækjum fyrir börnin.
Haukur ragnarsson veitingamað-
ur tók reksturinn á leigu og ætlar
að opna á morgun.
Haukur segist í samtali við
Skessuhorn vera bjartsýnn á rekst-
ur á þessum stað. Nú síðustu
daga, meðan unnið hefur verið við
lokafrágang á húsinu, hafi verið
stöðugt rennirí ferðafólks og marg-
ir; heimamenn, sumarhúsafólk og
aðrir, sem bíði hreinlega eftir að
þjónusta fari í gang að nýju. „Ég
tók reksturinn á leigu hjá Skelj-
ungi til fimm ára með möguleika á
framlengingu samnings. Hér verð-
ur bæði verslun, veitingasala og
eldsneytissala líkt og menn þekkja
frá því þegar Kibbi og Sigrún réðu
hér ríkjum,“ segir Haukur sem
sjálfur hefur starfað við veitinga-
rekstur til fjölda ára. Auk þess að
vera í sjálfstæðum veitingarekstri,
hefur hann m.a. verið hótelstjóri
á flughóteli en rak um árabil veit-
ingastaðinn Ask við Suðurlands-
braut. Hann segist einmitt ætla að
bjóða upp á veitingar í stíl við það
sem viðskiptavinir Asks þekkja.
„Auk þess að vera með matseð-
il verður réttur dagsins í boði alla
daga, fisk- eða kjötréttur ásamt
súpu á 1.790 krónur. Sérstaða
Baulunnar á sinni tíð var að flutn-
ingabílstjórar sóttust eftir að koma
hér við og aðrir sem kjósa gjarnan
heimilismat. Ég ætla að ná til þessa
hóps. Einnig verður á matseðli
pizzur, fiskur og franskar og ýms-
ir íslenskir kjötréttir eins og snit-
zel, lambakótilettur með bearnaise
og slíkt. Auðvitað mun matseðil-
inn svo þróast og taka mið af eft-
irspurn,“ segir Haukur. Þá verður
einnig nýlenduvöruverslun í Baul-
unni eins og menn þekktu áður,
þar sem hægt verður að kaupa
brauð og álegg, mjólkurvörur og
aðra nauðsynjavöru. Opið verð-
ur frá klukkan 9-21. „Svo breyt-
ist sjálfsagt opnunartíminn í vetur
en ég verð örugglega með boltann
í beinni, meistaradeildina, þannig
að menn geti setið hér í rólegheit-
unum.“ Sjálfur kveðst Haukur hafa
komið sér fyrir í íbúð á Bifröst og
ráðið starfsfólk sem ásamt honum
mun taka á móti fyrstu viðskipta-
vinunum á slaginu klukkan 9 á
morgun, fimmtudag. mm
Framkvæmdir við nýjan körfu-
boltavöll á skólalóð grunnskólans í
Stykkishólmi hófust í vikunni sem
leið. Á vef bæjarins segir að það hafi
verið félagsmenn úr umf. Snæfelli
sem mættu til að taka niður það
sem eftir stóð af hreystivellinum á
lóðinni, en þar mun í sumar rísa nýr
og glæsilegur körfuboltavöllur.
uppbygging körfuboltavallar-
ins er samstarfsverkefni Stykkis-
hólmsbæjar og umf. Snæfells í
anda samstarfs beggja aðila um að
efla íþróttastarf í Stykkishólmi. um
er að ræða þriðja áfanga uppbygg-
ingar á skólalóðinni sem hófst árið
2019.
mm/ Ljósm. Stykkishólmsbær.
Nýr körfuboltavöllur í sumar
Baulan enduropnuð á morgun
Baulan í Borgarfirði verður opnuð gestum að nýju á morgun, fimmtudag.