Skessuhorn - 14.07.2021, Síða 7
MiðViKudAgur 14. júLÍ 2021 7
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
bmvalla.is
Smellpassar þú í hópinn?
Verk-eða tæknifræðingur
Húseiningadeild
Umsóknir óskast rafrænt í gegnum Alfreð og er umsóknarfrestur til og með 21. júlí 2021.
Frekari upplýsingar veitir Bergþór Helgason í tölvupósti, beggi@bmvalla.is
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað.
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf. á og rekur þrjú dótturfélög sem starfa við
öflun hráefna, framleiðslu, sölu og þjónustu á byggingarmarkaði og við
mannvirkjagerð á Íslandi. Fyrirtækin eru Björgun ehf., BM Vallá ehf. og
Sementsverksmiðjan ehf., og hafa þessi félög rótgróna sögu á Íslandi sem rekja
má allt aftur til fyrri hluta síðustu aldar. Hjá fyrirtækjunum starfa um 200 manns
á starfsstöðvum víða um land en skrifstofa Hornsteins ehf. er á Bíldshöfða 7.
Mannauðsstefna
Mikil áhersla er á faglega vinnu þar sem ferlar, árangur og stöðugar
úrbætur eru hafðar að leiðarljósi. Við tilheyrum liðsheild þar sem
metnaðarfullt starf er unnið af jákvæðu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis
og við viljum gera starfsfólki okkar kleift að samhæfa vinnu og
fjölskylduábyrgð.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Verkefnastjórnun einingaverkefna og
samskipti við viðskiptavini
• Vinna við hönnun forsteyptra eininga og
gerð verkteikninga fyrir framleiðsludeild
• Þátttaka í gerð burðavirkisteikninga
• Önnur tilfallandi verkefni í tækni- og
hönnunardeild
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun í byggingafræði, verkfræði, tæknifræði eða
sambærileg menntun
• Kunnátta og reynsla af tölvuteikningu í Autocad og Revit ásamt
því að geta tileinkað sér hæfni í Impact hönnunarkerfi er
nauðsynleg
• Reynsla af gerð verkteikninga og byggingavinnu er mikill kostur
• Mjög góð tölvukunnátta
• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
BM Vallá leitar að reyndum bygginga-,tækni-eða verkfræðingi í hönnunardeild
fyrirtækisins, Smellinn. Starfsstöð starfsmanns getur verið að Breiðhöfða 3,
110 Reykjavík eða á starfsstöð BM Vallá á Akranesi.
Jöfn tækifæri
Með jafnréttisstefnunni okkar tryggjum við að starfsfólk hafi jafna
möguleika óháð kyni, þjóðerni, kynþætti, kynhneigð, aldurs og fleiri
þátta.
Um er að ræða 100% framtíðarstarf en skilgreindur vinnutími er frá kl. 8-16
eða samkvæmt samkomulagi.
Umboðsaði l i fyr ir Málning hf
301 Hval f jarðarsveit | S ími 896 2356 | gardjons@vis ir. i s
útimálun – innanhússmálun
sandspör t lun
þakmálun
múrviðgerðir
vinnuly f ta
þjónustusamningar
Hjá GJ málun eru al l ir með mik la og góða reynslu v ið
málningarvinnu, jafnt v ið út imálun sem og innimálun.
Um árabi l höfum við þjónustað mörg f yr ir tæki , stofnanir,
f asteignafé lög , e instak l inga og húsfé lög með góðum árangri og
fengist v ið ýmis spennandi verkefni .
Regluleg t v iðhald á fasteignum borgar sig. Málning er góð vörn
f yr ir veðri og vindum. Með reglulegu viðhaldi er hæg t að verja
fasteignir og koma í veg f yr ir dýrar framkvæmdir.
Ný reglugerð um stafræn Covid-19
vottorð tók gildi hér á landi 1. júlí
síðastliðinn en vottorðin munu
gilda í öllum ríkjum Evrópusam-
bandsins auk Íslands, Noregs,
Liecthenstein og Sviss. Markmið-
ið með vottorðinu er að auka frjálsa
för fólks milli ríkja og auka öryggi
einstaklinga meðan á Covid-19 far-
aldrinum stendur.
reglugerðin setur ramma um
útgáfu, sannprófun og viðurkenn-
ingu á sambærilegum vottorðum
um bólusetningu, próf og bata til
að auðvelda frjálsa för á meðan
Covid-19 heimsfaraldurinn stend-
ur yfir. Stafræn Covid-19 vottorð
innihalda upplýsingar um bólu-
setningar gegn Covid-19, niður-
stöður úr PCr-skimunum, hafi
þær verið neikvæðar, og bata, hafi
viðkomandi sýkst.
Vottorð gefin út á grundvelli
reglugerðarinnar eru tekin gild
við landamæri Íslands. Ísland hef-
ur verið framarlega á þessu sviði og
verið á undan flestum, ef ekki öll-
um, þjóðum að gefa út bólusettn-
ingarvottorð og að taka almennt
gild vottorð við landamæri.
Bólusetningarvottorð sem gefin
hafa verið út hér á landi frá byrjun
júní hafa verið í samræmi við áður-
nefnda reglugerð og áfram verður
hægt að nálgast slíkt vottorð gjald-
frjálst á vefsíðunni heilsuvera.is.
mm
Sunnudaginn 18. júlí verður dag-
ur íslenska fjárhundsins haldinn há-
tíðlegur í sjötta sinn. Eigendur ís-
lenskra fjárhunda munu að venju
koma saman í stærri og smærri hóp-
um og njóta dagsins með ferfættum
vinum sínum. Sú hefð hefur skap-
ast að Árbæjarsafn í reykjavík hef-
ur boðið meðlimum í deild íslenska
fjárhundsins að heimsækja safnið
með hunda og setja saman dagskrá
til að kynna hundinn, eðli hans og
sögu fyrir gestum safnsins. Íslensk-
ir fjárhundar verða í Árbæjarsafninu
frá kl. 13 til 17 á sunnudaginn.
Í ár verður dagskráin að mestu á
netinu til að gefa fjölmörgum er-
lendum unnendum kynsins kost á
því að koma að því að gera daginn
fræðandi og skemmtilegan. dag-
skránni verður streymt á Fb síðunni
dagur íslenska fjárhundsins og byrj-
ar kl. 13 á sunnudaginn.
-fréttatilkynning
Íslenskir fjárhundar koma
saman á Árbæjarsafni
Stafræn
samevrópsk
Covid-19
vottorð