Skessuhorn - 14.07.2021, Page 8
MiðViKudAgur 14. júLÍ 20218
Á 134 kílómetra
VESTURLAND: Ökumað-
ur var stöðvaður á 134 kíló-
metra hraða á Vesturlands-
vegi á móts við Þjófakletta
á fimmtudag í síðustu viku.
Sekt fyrir slíkt brot nem-
ur 120 þúsund krónum auk
tveggja punkta í ökuferils-
skrá. -frg
Á óskráðu fjór-
hjóli með barn
SNÆFELLSNES: Lög-
reglumenn veittu ökumanni
fjórhjóls á Snæfellsnesi eft-
irför á laugardag. Ökumað-
urinn var hjálmlaus auk þess
sem hann var með lítið barn
fyrir framan sig á hjólinu.
reyndist barnið vera þriggja
ára. Hjólið var óskráð, ekki
á númerum, og þar af leið-
andi ótryggt. Barnaverndar-
yfirvöldum var tilkynnt um
málið og á ökumaður nokkr-
ar kærur yfir höfði sér. -frg
Á 136 á
Vesturlandsvegi
VESTURLAND: Öku-
maður mældist á 136 kíló-
metra hraða á Vesturlands-
vegi á móts við Hótel Hamar
síðdegis á laugardag. Hann
hlaut fyrir tiltækið 150 þús-
und króna sekt auk þriggja
punkta í ökuferilsskrá. -frg
Lottó leitar að
vinningshafa
LANDIÐ: Vinningshafi sem
fékk fjórfaldan pott óskiptan,
rúmlega 54,5 milljónir króna,
í Lottó 12. júní síðastliðinn
hefur enn ekki gefið sig fram
við Íslenska getspá. Miðinn
var keyptur á N1 Háholti í
Mosfellsbæ. „Því biðlar Ís-
lensk getspá til allra þeirra
sem keyptu sér miða hjá N1
Háholti fyrir útdráttinn 12.
júní að renna vel yfir miðana
og tölurnar í von um að þessi
stóri vinningur komist sem
fyrst í réttar hendur,“ seg-
ir í tilkynningu frá Íslenskri
getspá. -mm
Höfuðstöðvar
Vegagerðarinn-
ar fluttar
RVK: Með nýjum höfuð-
stöðvum Vegagerðarinnar
verður starfsemi stofnunar-
innar á höfuðborgarsvæð-
inu sameinuð á einn stað,
en Vegagerðin var áður á
þremur stöðum; í Borgar-
túni, Vesturvör í Kópavogi
og Hringhellu í Hafnarfirði.
„Flutningurinn á starfsemi
miðstöðvar Vegagerðarinn-
ar hefur staðið yfir undan-
farna daga og vikur og hef-
ur stærstur hluti starfsmanna
hafið störf í nýju húsnæði.
Viðskiptavinum Vegagerðar-
innar á höfuðborgarsvæðinu
er nú vísað á nýjan stað en
móttaka gesta og allra sem
þurfa að leita til Vegagerðar-
innar er nú formlega flutt að
Suðurhrauni 3 í garðabæ.“
Fréttatilkynning
Aflatölur fyrir
Vesturland
3. til 9. júlí
Tölur (í kílóum) frá
Fiskistofu:
Akranes: 24 bátar.
Heildarlöndun: 32.411 kg.
Mestur afli: Ársæll Sigurðs-
son HF-80: 3.889 kg. í fjór-
um löndunum.
Arnarstapi: 14 bátar.
Heildarlöndun: 26.359 kg.
Mestur afli: Heppinn
AK-31: 4.337 kg. í þremur
löndunum.
Grundarfjörður: 13 bátar.
Heildarlöndun: 111.228 kg.
Mestur afli: Steinunn
SF-10: 84.921 kg. í einni
löndun.
Ólafsvík: 30 bátar.
Heildarlöndun: 56.862 kg.
Mestur afli: Oliver SH-248:
4.526 kg. í fjórum löndun-
um.
Rif: 18 bátar.
Heildarlöndun: 37.475 kg.
Mestur afli: gaffallinn
EA-0: 8.218 kg. í einni lönd-
un.
Stykkishólmur: 17 bátar.
Heildarlöndun: 34.725 kg.
Mestur afli: Fríða SH-565:
4.360 kg. í fjórum löndun-
um.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Steinunn SF-0 GRU:
84.921 kg. 8. júlí.
2. Gaffallinn EA-0 RIF:
8.218 kg. 3. júlí.
3. Sverrir SH-126 ÓLA:
2.856 kg. 6. júlí.
4. Júlli Páls SH-712 ÓLA:
2.340 kg. 7. júlí.
5. Heppinn AK-31 ARN:
2.249 kg. 7. júlí.
-frg
Alþjóðlega þríþrautarmótið ice-
land Extreme Triathlon var haldið
á Snæfellsnesi um helgina. Mótið
var haldið á Snæfellsnesi árið 2019
en féll niður í fyrra sökum heims-
faraldurs. Keppt var í maraþoni
og hálfmaraþoni en keppnin hófst
aðfararnótt laugardags á tæplega
fjögurra km löngu sundi við rætur
Kirkjufells. Að því loknu var hjól-
að 205 km leið um Snæfellsnes áður
en hlaupið var heilt maraþon yfir
jökulhálsinn, frá Ólafsvík að Arnar-
stapa, og aftur til baka. Bækistöðvar
mótsins voru í Ólafsvík og alls luku
30 keppendur keppni í mótinu um
helgina.
Í fyrstu þremur sætunum í mara-
þoninu voru Bandaríkjamenn-
irnir Nicholas Ponsor á tíman-
um 13:28:13, john Fitzgerald varð
annar á 13:43:42 og Fernardo Lo-
pez þriðji á 14:01:19. Einn íslensk-
ur keppandi náði að ljúka keppni í
maraþoninu en það var hinn 63 ára
gamli Bogi jónsson sem var á tím-
anum 19:32:58 og lenti í 13. sæti
af þeim 14 keppendum sem luku
keppni.
Í fyrstu tveimur sætunum í hálf-
maraþoninu voru Bandaríkjamenn-
irnir joseba Brit Elola á tímanum
6:41:32, dennis Breza varð ann-
ar á 6:55:30 og svo var það guð-
jón Traustason sem varð í þriðja
sæti á 7:13:23 og þá lenti Trausti
Valdimarsson í því fjórða á 7:25:11
en alls luku tólf keppendur keppni í
hálfmaraþoninu.
Mótshaldarar komu frá Banda-
ríkjunum, frá Extreme Endur-
ance Events, og eru aðrar keppn-
ir á þeirra vegum haldnar árlega í
Alaska og á Hawaii. Þess má geta
að þeir leituðu sérstaklega eftir því
að mótið yrði haldið á Snæfells-
nesi og skyldi engan undra. Þeim
innan handar voru íslenskir aðilar
sem staðið hafa að þríþrautarmót-
um hér á landi og því vanir einstak-
lingar sem koma að skipulagningu
mótsins.
vaks
Miðnætursundstund í Lýsulaug-
um var haldin í annað sinn föstu-
daginn 9. júlí síðastliðinn. Lýsu-
laugar á Snæfellsnesi er eina laugin
sinnar tegundar á landinu og í raun
einstakar á heimsvísu. Í lauginni er
heitt ölkelduvatn sem kemur beint
upp úr jörðinni, inniheldur græn-
þörunga og er ríkt af magnesíum
og kalsíum.
Það var Svæðisgarður Snæfells-
ness sem stóð fyrir Miðnætursund-
stundinni. Boðið var upp á kalt Öl-
kelduvatn undir áhrifum mohijo,
blandað ýmsum hráefnum af svæð-
inu. Má þar nefna rabbabarasý-
róp frá sveitamarkaðinum Búsæld
á Breiðabliki og kryddjurtum og
ætum blómum frá ræktunarstöð-
inni Lágafelli. Þá var graslaukur
nýttur sem rör í anda umhverfis
og heilsu. gestir gátu einnig sett
á sig heimagerðan andlitsmaska
og gúrkur yfir augun. Viðburð-
inn sóttu hátt í hundrað manns og
komu gestir af Snæfellsnesi og víð-
ar.
Fyrirhugað er að halda „miðnæt-
ursundstund“ í öllum laugum Snæ-
fellsness í sumar.
Texti og myndir:
Hlédís Sveinsdóttir.
Þorsteinn Bárðarson hjólreiðakappi
úr Snæfellsbæ gerði sér lítið fyrir
og sigraði í Elite flokki Kia gull-
hringsins í hjólreiðum um liðna
helgi. Elite flokkurinn er lengsta
leiðin en þar eru hjólaðir 96 kíló-
metrar. Þorsteinn hjólaði á tíman-
um 02:19:57 en næstu menn voru
örfáum sekúndum á eftir honum.
Þorsteinn hefur verið duglegur
að keppa í hjólreiðum undanfarin
misseri og hefur staðið sig vel.
tfk
Fremstur á meðal jafningja
í Elite flokki
Alþjóðlegt þríþrautarmót fór
fram á Snæfellsnesi
Hér má sjá keppnisleiðina.
Fjölmenni á miðnætursund-
stund í Lýsulaugum
HVAÐ ER
PLANIÐ?
Kíktu á baksíðuna