Skessuhorn - 14.07.2021, Qupperneq 10
MiðViKudAgur 14. júLÍ 202110
úrskurðarnefnd um upplýsingamál
hefur með úrskurði sínum 7. júlí
síðastliðinn komist að þeirri nið-
urstöðu að sveitarfélaginu Borg-
arbyggð hafi borið að veita íbúum
aðgang að fjárhagslegum upplýs-
ingum sem beðið var um en hafn-
að að veita í krafti trúnaðarupplýs-
inga. Það var guðsteinn Einars-
son íbúi í Borgarbyggð sem leitaði
til nefndarinnar í framhaldi af því
að hann hafði fengið synjun á ósk
um upplýsingar sem fram komu
í skýrslu sem KPMg vann fyrir
sveitarstjórn og kynnt var á fundi
byggðarráðs 7. janúar síðastliðinn.
Í skýrslunni koma fram upplýsing-
ar úr innra eftirliti og fjárhagskerfi
sveitarsjóðs árið 2020 og fjallað
var um á fundi byggðarráðs. Í svari
sveitarfélagsins til guðsteins, sem
dagsett var 9. mars 2021, var vísað
til þess að á fundi byggðarráðs sem
fram fór 21. janúar 2021, hefði ver-
ið bókað að sveitarstjóri hefði lagt
fram minnisblað um ástæður þess
að fara bæri með skýrslu KPMg
sem vinnuskjal og því trúnaðar-
mál.
guðveig Lind Eyglóardóttir,
fulltrúi minnihlutans í byggðar-
ráði, lagði fram bókun í byggðar-
ráði þess efnis að hún teldi óásætt-
anlegt að ekki væri hægt að greina
frá helstu veikleikum og ábending-
um sem sveitarfélaginu hefðu bor-
ist og tillögur að úrbótum. Eðli-
legast væri að byggðarráð myndi
greina íbúum í meginatriðum frá
hverjar athugasemdirnar væru.
Meirihluti byggðarráðs ítrekaði að
um vinnuskjal væri að ræða. Aflað
hefði verið upplýsinga hjá KPMg
um hvers vegna umrætt gagn inni-
héldi trúnaðarupplýsingar. Þau
svör hefðu fengist að skjal af þess-
um toga gæti innihaldið upplýsing-
ar um einstaka starfsmenn og ann-
að sem félli undir persónuvernd.
Alvarlegustu athugasemdum yrðu
gerð skil í skýrslu endurskoðenda
sem lögð yrði fram opinberlega
með endurskoðuðum ársreikn-
ingi síðar á árinu. Í svari Borgar-
byggðar til guðsteins kom fram að
litið væri á gagnið sem vinnuskjal
í skilningi upplýsingalaga þar sem
verið væri að vinna að undirbún-
ingi lokaskýrslu með ársreikningi
sem birt yrði opinberlega að lok-
inni samþykkt hans. Af þeim sök-
um væri beiðni guðsteins hafnað.
Taldi óreiðu í umsýslu
framkvæmda
Í kæru guðsteins til úrskurðar-
nefndarinnar kemur fram að hann
teldi talsverða óreiða hafa verið á
framkvæmdum á vegum sveitar-
félagsins sem lýstu sér m.a. í því að
framkvæmdir hafi farið langt fram
úr áætlunum. Ákvörðun um þær
væru á ábyrgð stjórnenda sveitar-
félagsins og því eðlilegt að upplýst
væri hver bæri ábyrgð á þeim. Þá
dró hann í efa að í skýrslunni væri
að finna persónugreinanlegar upp-
lýsingar. Því fór hann fram á að úr-
skurðarnefndin hlutaðist til um að
hann fengi umrædda skýrslu af-
henta.
Almennar athugasemdir
og tillögur að lausnum
Niðurstaða úrskurðarnefndar um
upplýsingamál er afgerandi. Varð-
andi trúnaðarþáttinn sem vísað
var til kom fram að þegar umrædd
skýrsla hafi verið afhent öðrum teld-
ust upplýsingar í henni ekki lengur
til vinnugagna nema þau hafi ein-
vörðungu verið afhent eftirlitsaðila
á grundvelli lagaskyldu. Loks segir
í niðurstöðu úrskurðarnefndar að í
skýrslu KPMg hafi verið að finna
almennar athugasemdir og ábend-
ingar um atriði sem fram hafa kom-
ið við endurskoðun á reikningsskil-
um sveitarfélagsins. „Þar er einnig
að finna tillögur að lausnum og við-
brögðum við þeim. Í skýrslunni er
ekki sérstaklega fjallað um aðkomu
nafngreindra einstaklinga, starfs-
manna eða stjórnenda. Að mati úr-
skurðarnefndarinnar eru upplýs-
ingarnar sem þar koma fram því
ekki þess eðlis að efni skýrslunnar
teljist vera viðkvæmar upplýsing-
ar sem lúta skuli trúnaði með vís-
an til þeirra hagsmuna sem framan-
greindum undanþáguákvæðum er
ætlað að vernda. Þvert á móti hefur
skýrslan að geyma upplýsingar um
rekstur sveitarfélagsins og þar með
ráðstöfun opinbers fjár og hags-
muna sem telja verður að almenn-
ingur hafi almennt ríka hagsmuni
af því að kynna sér. getur úrskurð-
arnefndin því ekki fallist á framan-
greinda afstöðu Borgarbyggðar um
synjun á afhendingu skýrslunnar.“
mm
Malbikunarframkvæmdir hófust í síð-
ustu viku við Faxabraut Akranesi. Þá
var malbikaður kafli frá litríku sem-
entstönkunum og vel áleiðis að enda
sjóvarnargarðsins. Því styttist í að
hægt verði að taka rúnt á Ástarbraut-
inni, eins og þessi vegarkafli er kall-
aður af Skagamönnum í daglegu tali.
Vegagerðin, Akraneskaupstaður
og Veitur eru aðalframkvæmdaaðilar
að þessu verkefni en verktaki er Bor-
garverk. Áætlað er að framkvæm-
dum, endurgerð og grjótvörn, við
Faxabraut ljúki 1. september á þes-
su ári.
vaks
Á fundi í byggðarráði Borgar-
byggðar síðastliðinn fimmtudag
var lögð fram skýrsla Benedikts
Magnússonar eftirlitsmanns sveit-
arfélagsins vegna framkvæmda við
grunnskólann í Borgarnesi. „Þeg-
ar fyrir lá, samkvæmt niðurstöðu
í ársreikningi, að framkvæmd-
in við grunnskólann í Borgarnesi
hafði farið að einhverju fram úr
fjárhagsáætlun kom fram að mis-
ræmi hafi verið til staðar á milli
verkbókhalds eftirlitsaðila og bók-
halds Borgarbyggðar. Í kjölfar-
ið var ákveðið að farið yrði ofan í
saumana á misræminu og lagt til
að bornar yrðu saman áætlun fyrir
verkið, yfirlit eftirlitsaðila og bók-
hald Borgarbyggðar í því skyni að
finna frávik og greina þau,“ segir
í bókun byggðarráðs. Þá segir að
nú liggi niðurstaða þessarar vinnu
fyrir og er henni lýst í minnisblaði
frá Benedikt frá 20. júní síðastliðn-
um. „Samkvæmt framlögðu minn-
isblaði frá eftirlitsaðila kemur fram
að eftirlitsaðilinn telur ljóst að ekki
hafi verið fylgt þeirri ákvörðun
að bóka ekki kostnað á verkefnið
nema að samþykki eftirlits lægi
fyrir. Af þeim sökum hafi þær upp-
lýsingar sem hafa reglulega voru
kynntar fyrir byggingarnefnd og
byggðarráði rangar og gáfu ekki
rétta mynd af stöðunni. Í mjög
grófum dráttum virðist skv. minn-
isblaðinu að 105.040.410 krón-
ur hafa verið skráðar á verkefnið
án samþykkis eða vitneskju eftir-
litsaðila. Eins kemur fram í minn-
isblaðinu að mögulega hafi ein-
hverjir reikningar verið samþykkt-
ir sem hafi ekki átt rétt á sér og því
mögulega um ofgreiðslu að ræða á
einhverjum þáttum.“
Loks segir að byggðarráð telji
þessa stöðu alvarlega og í ljósi
framkominna upplýsinga og þeirr-
ar stöðu sem lýst er í minnisblaðinu
leggur byggðarráð til að fram fari
hlutlaus úttekt á verkefninu í heild
sinni. „Ljóst er að búið er að vinna
heilmargt til að bæta úr þeim verk-
ferlum sem hafa verið við lýði og
mikilvægt er að læra enn frekar af
reynslunni og sjá til þess að þéttar
verði haldið utan um næstu stóru
verklegu framkvæmdir sveitar-
félagsins. Byggðarráð leggur til
að KPMg, sem er endurskoðandi
sveitarfélagsins, verði fengið til
þess að vinna úttekt á ferli og eft-
irliti á framkvæmd á viðbyggingu
og endurbótum í grunnskólanum
í Borgarnesi. gert er ráð fyrir að
verkefnatillaga varðandi framan-
greint verði lögð fyrir á næsta fundi
byggðarráðs þann 22. júlí nk. Þá er
nauðsynlegt að fara yfir alla reikn-
inga sem hafa verið bókaðir inn á
verkið og greina þá sem sannar-
lega tilheyra ekki verkinu og sjá til
þess að þeir verði endurflokkaðir í
eignaskrám sveitarfélagsins.“
mm
Bókfærðu 105 milljónir króna á
stækkun grunnskólans án heimildar
Byrjað að malbika á Faxabraut
Eins og sjá má gekk vel að malbika á Faxabrautinni.
Borgarbyggð bar að afhenda
gögn sem snertu fjárhag
Laugardaginn 17. júlí heldur jón
gnarr tónleika á Sögulofti Land-
námssetursins í Borgarnesi. Þar
mun hann syngja Völuspá við eig-
ið lag. Með honum verða Hilmar
Örn Hilmarsson, tónskáld og alls-
herjargoði og Hilmar Örn Agnars-
son organisti, en þeir hafa verið jóni
til aðstoðar við verkefnið og leika
þeir undir flutninginn á ýmis hljóð-
færi. Meðal þeirra er steinharpa Páls
á Húsafelli og merkilegur koparlúð-
ur, svokallaður norskur lur eða Vík-
ingalúður.
Sú útgáfa sem jón flytur er hin
svokallaða Konungsbókargerð. Hún
er þekktasta útgáfan og talin elsta
útgáfa ljóðsins og er alls 63 erindi.
Flutningur tekur um klukkustund
og ber viðburðurinn yfirskriftina jón
gnarr og Þeyr 2. jón fetar hér inn á
alveg nýtt svið sem sýnir að honum
er ýmislegt til lista lagt. Blaðamaður
náði tali af jóni gnarr þar sem hann
var staddur í Stykkishólmi og var
að stíga um borð í bát. Bátsferðin
er hluti af óvissuferð sem jón hefur
varið miklum tíma í að skipuleggja í
tilefni af afmæli konu hans, jóhönnu
jóhannsdóttur eða jógu.
Tilbúinn í allt nema
þjóðdansa
Aðspurður um hvernig þetta verk-
efni hafi komið til segir jón að það
sé lokaáfanginn í meistaranámi hans
við Listaháskóla Íslands. „Ég ákvað
sem lokaverkefni að flytja Völu-
spá við lag sem ég samdi sjálfur.
Ég hafði samband við Hilmar Örn
Agnarsson sem leist strax stórvel á
þetta. Við höfðum síðan samband
við Hilmar Örn Hilmarsson, alls-
herjargoða með meiru, og honum
leist sömuleiðis stórvel á þetta,“
segir jón. „Við höfum verið að hitt-
ast og æfa og við höfum komið einu
sinni fram. Þá héldum við opna æf-
ingu í Bókabúð Máls og Menningar
sem gekk alveg stórvel,“ heldur jón
áfram. „Svo hef ég alltaf haft miklar
mætur á Landnámssetrinu og lang-
að að koma fram þar.“
Þegar jón er spurður að því hvort
verkið verði flutt aftur segir hann
að það verði flutt aftur á formlegri
útskrift sem haldin verður á Þjóð-
minjasafninu 26. ágúst næstkom-
andi. Frekari flutningur er óákveð-
inn enda; „..enginn flutningur öðr-
um líkur. Þetta er algerlega ein-
stakt,“ segir jón. Þeir félagar hafa
fengið hljóðfæri lánuð, meðal ann-
ars flautur og steinhörpu frá Páli
guðmundssyni á Húsafelli auk þess
sem þeir vonast til þess að norski
Lur-inn nái í hús fyrir tónleikana.
Hvort þeir félagar græði mik-
ið á þessu tiltæki segir jón ólík-
legt en segir þó: „Völuspá hefur nú
haft mikil áhrif á alla mína tilveru.
Völuspá er náttúrulega galdrakvæði
og það að stinga sér í Völuspá er
óvissuferð sem ég hef ekki hugmynd
um hvernig endar.“ Og hann held-
ur áfram: „En ég er annars tilbúinn í
allt nema það sem inniheldur þjóð-
dansa, þá get ég ekki hugsað mér.“
frg
Völuspá hefur haft mikil
áhrif á alla mína tilveru
Hilmar Örn Agnarsson, Jón Gnarr og Hilmar Örn Hilmarsson.