Skessuhorn - 14.07.2021, Síða 13
MiðViKudAgur 14. júLÍ 2021 13
stjórnarformanns Ragnars og Ásgeirs ehf
Dagur í lífi...
Nafn: Þórey jónsdóttir
Fjölskylduhagir/búseta: Bý í
grundarfirði með eiginmanni
mínum Ásgeiri ragnarssyni og
stundum börnum og barnabörn-
um.
Starfsheiti/fyrirtæki: Stjórnar-
formaður ragnars og Ásgeirs ehf.
Áhugamál: Líkamsrækt, ferðalög
og golf.
Dagurinn: Þriðjudagurinn 6. júlí
2021.
Klukkan hvað vaknaðirðu og hvað
var það fyrsta sem þú gerðir? Ég
vaknaði klukkan 5:45 og græjaði
mig til að fara til Ólafsvíkur.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Fékk mér kaffi í morgunmat.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? rúmlega klukkan 6:00 á
bílnum.
Fyrstu verk í vinnunni? Mætt
í Ólafsvík klukkan 6:40 og byrj-
aði að vinna mig í gegnum vörur,
flokka þær og skanna inn.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Mætt til grundarfjarðar aftur
og fór þá að skrifa út reikninga.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Fékk
mér brauðsneið.
Hvað varstu að gera klukkan
14? Var að hreinsa út úr tölvukerf-
um Eimskips og Samskips og af-
henda það sem ekki skannaðist út
og skoða það sem var væntanlegt
með bílnum um kvöldið.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Slapp
úr vinnunni klukkan 16:15 eftir að
hafa gengið frá á kaffistofunni og
kveikt á uppþvottavélinni.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Tók
smá slökun heima og horfði á
glæstar vonir.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Fékk mér Camembert
hamborgara á Skerinu í Ólafsvík.
Hvernig var kvöldið? Tók á móti
flutningabíl sem kom með vörur
klukkan 19:30. Kláraði að flokka
og ganga frá honum. Svo kom
næsti bíll klukkan 20 og kláraði
einnig að ganga frá vörunum úr
honum. Svona eru dagarnir oft á
sumrin þegar margir eru í fríi. Var
komin heim klukkan 21:30.
Hvenær fórstu að sofa? um kl.
22:30.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hátta?
Fór í sturtu og setti eyrnatappana í
eyrun og sneri mér á vinstri hlið-
ina og setti svefngrímu fyrir aug-
un.
Hvað stendur upp úr eftir dag-
inn? Það sem stóð upp úr eftir
daginn var hvað allt gekk vel og
allir kátir.
Eitthvað að lokum? Verum góð
við hvert annað.
fugl á myndinni og lært fuglsnafn-
ið í leiðinni. „Við ætluðum að gera
eins með blómin í holtunum þarna
í kring.“
Snillingar
Það skiptir máli hvernig tekið
er á móti barni sem mætir í skól-
ann sinn snemma að morgni. Börn
eru misjöfn að gerð og misjafnlega
upplögð. Viðmót skiptir þar miklu,
bara eitt lítið bros getur brætt lund
lítillar syfjaðar barnssálar og gert
því daginn auðveldari og hefur Ás-
dís tileinkað sér þetta viðhorf. Yfir
árin hafa margir karakterar komið
á leikskólann til Ásdísar, hver snill-
ingurinn á eftir öðrum eins og hún
kallar börnin. Þá eru kennararnir
alltaf með ákveðin borð á matmáls-
tímum. „Eitt sinn var ég með þrjá
félaga sem voru miklir fótbolta-
áhugamenn. Ég hef aldrei á ævinni,
hvorki fyrr né síðar, vitað eins mik-
ið um ensku úrvalsdeildina og þann
vetur. Ég vissi allt um liðin og leik-
mennina. Þetta voru skemmtileg-
ir karakterar og ég held að fótbolti
sé eitt af áhugamálum þeirra enn í
dag. Þetta er eitt dæmi um hvern-
ig starfið getur í senn verið bæði
skemmtilegt og fjölbreytt.“
Forréttindi
Eins og fyrr kemur fram fagn-
aði Ásdís 70 ára afmæli sínu í gær,
þriðjudag. Þegar sumarfríið hennar
svo klárast í byrjun ágúst lætur hún
formlega af störfum en hún segir
það ekki hafa verið erfiða ákvörð-
un að hætta. „Ég hefði getað ver-
ið tvö ár í viðbót samkvæmt samn-
ingum okkar núna síðast, en þetta
er komið gott,“ segir Ásdís. „Ég hef
verð mjög heppin í gegnum árin.
jú, jú, maður hefur fengið ýmislegt
á sig og allt það en heilt yfir, algjör
forréttindi að starfa sem leikskóla-
kennari í öll þessi ár. Ég hefði get-
að verið hætt 64-65 ára en ég tímdi
því ekki. Ég hef verið heppin með
heilsu, skrokkinn og allt það, þann-
ig ég hef getað unnið. Síðustu fjög-
ur ár hef ég þó verið í hálfu starfi,
þannig séð verið að trappa mig nið-
ur. Ég hefði aldrei hætt bara allt í
einu, það hefði ekki verið gott. Ég
er búin að fá góðan aðlögunartíma
og hef lengi vitað að það kemur að
starfslokum og þá hef ég tíma til að
sinna áhugamálum mínum, ásamt
því að verja meiri tíma með fjöl-
skyldunni,“ segir Ásdís jákvæð.
Nóg verður því um að vera hjá
Ásdísi nú þegar hún er hætt að
vinna. „Ég fer í göngur, jóga og svo
sund. Svo er ég komin í púttið sem
ég hélt ég færi aldrei í. Púttið er
bara svo hrikalega gaman og frábær
félagsskapur,“ segir Ásdís full til-
hlökkunar að endingu.
glh/ Ljósm. úr einkasafni.
Ásdís með einum snillingnum, eins og
hún kallar oft börnin.
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Vinnum fyrir öll tryggingafélög Lokað frá og með
12. júlí til og með
6. ágúst, mætum aftur
9. ágúst vegna
sumarleyfi starfsmanna.
Gleðilegt sumar!
Opnunartími sunnudaga til fimmtudaga 11:00-23:00
Opnunartími föstudaga og laugardaga 11:00-01:00
Pool, píla, drykkir og matur,
Hádeigistilboð alla daga og kvöldverðatilboð,
Sími 792 9222
Kirkjubraut 10 AkranesAUGL› SING
Lyngmelur í Hvalfjarðasveit
Gatnagerð og lagnir
Sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit í samvinnu við Veitur,
Rarik og Mílu, óskar eftir tilboðum í gatnagerð á nýrri götu,
Lyngmelur í Melahverfi, ásamt því að leggja tilheyrandi
lagnir.
Helstu magntölur:
Gröftur gatna 4.000 m3
Fyllingar gatna 7.500 m3
Fráveitulagnir 830 m
Malbikun 2.000 m2
Verktími er til 15. júní 2022. Þó skal ljúka öllu verkinu utan
malbikun götu fyrir 30. janúar 2022.
Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að
senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is,
þar sem fram kemur nafn bjóðanda, ásamt nafni, netfangi
og símanúmeri tengiliðs bjóðanda.
Tilboð verða opnuð mánudaginn 9. ágúst 2021 kl. 10.00
í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301
Akranesi.
Verkefnastjóri framkvæmda og eigna