Skessuhorn - 14.07.2021, Page 14
MiðViKudAgur 14. júLÍ 202114
Hinseginhátíð Vesturlands var haldin með pompi og prakt
í fyrsta skipti í Borgarnesi um helgina. Hátíðin var gríðar-
lega vel sótt og margir sem skreyttu sig regnbogalitum ým-
ist í klæðum, höfuðbúnaði eða andlitsmálningu, eða veifuðu
fánunum litríku. Fjölmenni tók þátt í skrúðgöngunni á laug-
ardaginn sem endaði með skemmtidagskrá í dalhallanum.
Veðrið lék við gesti hátíðarinnar allan daginn og langt fram
eftir nóttu þegar gestir ásamt bæjarbúum tjúttuðu á dansgólf-
inu við söng Páls Óskars í Hjálmakletti.
Stefnt er að því að Hinseginhátíð Vesturlands færist á milli
sveitarfélaga ár hvert. Tilkynnt var á laugardaginn að hátíðin
verður haldin í Snæfellsbæ árið 2022. Leyfum myndum frá
litríkum, skemmtilegum og kærleiksríkum degi að tala sínu
máli.
glh
Litadýrð á Hinseginhátíð Vesturlands í Borgarnesi
Gleðigangan leggur af stað.
Laugardagurinn byrjaði á regnboga-
spinning með Gunnu Dan fyrir utan
Íþróttamiðstöðina í Borgarnesi.
Gleðigangan byrjaði á bílaplaninu fyrir utan Brákarhlíð og gengið var áleiðis í
Dalhallann þar sem sérstök hátíðardagskrá tók við.
Það sem einkenndi hátíðina var mikil gleði, kærleikur og litadýrð.
Vagnarnir í gleðigöngunni voru af öllum stærðum og gerðum. Hér má sjá krakka
úr Grunnskólanum í Borgarnesi um borð í sturtubíl frá JBH Vélum ehf.
Mikill mannfjöldi var samankominn í Borgarnesi á laugardaginn þegar hátíðin
náði hápunkti.
Aldrei nóg af konfetti við hátíðarhöld.
Ingvar Breiðfjörð Skúlason hélt uppi stuðinu á vagni sínum í skrúðgöngunni með
tilheyrandi tónlist, dansi og konfetti.
Kynnar skemmtidagskrár í Dalhall-
anum, þær Ingileif og María Rut frá
Hinseginleikanum.
Góð stemning var á meðal gesta hátíðarinnar og brekkan í Dalhallanum þétt
setin.