Skessuhorn - 14.07.2021, Blaðsíða 15
MiðViKudAgur 14. júLÍ 2021 15
SÍGILD TÓNLIST Í SÖGULEGU UMHVERFI
DAGSKRÁIN ÖLL Á
REYKHOLTSHATID.IS
MIÐASALA Á TIX.IS
ARÍUR OG MOZART
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ KL. 20
CLARA OG GLAZUNOV
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ KL. 20
SÖNGLÖG OG SCHUBERT
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ KL. 16
INGIBJÖRG ÝR OG BRAHMS
SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ KL. 16
Auður Hafsteinsdóttir
Bjarni Frímann Bjarnason
Bryndís Halla Gylfadóttir
Gunnhildur Daðadóttir
Herdís Anna Jónasdóttir
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Sigurbjörn Bernharðsson
Sigurður Bjarki Gunnarsson
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
Þórunn Ósk Marínósdóttir
Fyrirlestur í Snorrastofu:
Þorsteinn frá Hamri
Ástráður Eysteinsson
prófessor í bókmenntafræði
Hátíðarmessa
í Reykholtskirkju
sunnudag kl. 14
Nú í júlímánuði verður opið í versl-
uninni og upplýsingamiðstöðinni
Ljómalind í Borgarnesi frá klukk-
an 10 til 21 alla daga. Eins og flest-
ir þekkja er Ljómalind sveitamark-
aður og til húsa við Brúartorg 4 í
Borgarnesi. Þar felst sérhæfingin í
matvælum og handverki úr héraði.
Ljómalind fékk á síðasta ári styrk
úr uppbyggingasjóði Vesturlands
í verkefnið Markaðssetning smá-
framleiðenda. „Við byrjuðum það
verkefni fyrir jól og buðum þeim
sem eru að selja vörur í búðinni
okkar að vera með rafrænar kynn-
ingar fyrir jólin. Þessar kynningar
voru teknar upp í búðinni í Borg-
arnesi og settar á fésbókarsíðu Ljó-
malindar. Kynningarnar vöktu
mikla athygli og komu fyrirspurnir
víða að. Þetta gerðum við í staðinn
fyrir að fá fólk í búðina vegna Co-
vid,“ segir guðrún Sigurjónsdótt-
ir á glitstöðum einn af eigendum
Ljómalindar.
Hluti af verkefni smáframleið-
enda var að fá fleiri aðila til að selja
grænmeti í verslunni í Borgarnesi.
„Nú erum við komin með vörur
frá Narfaseli í Hvalfjarðarsveit,
ferskt og gott grænmeti, og vörur
frá Olivia‘s gourmet í Borgarnesi
en þar er m.a. búið til marmelaði
úr tómötum, bragðbætt ýmist með
myntu, chili eða appelsínum. Þetta
úrval bætist við það vöruúrval sem
fyrir var,“ segir guðrún.
Kalla eftir
borgfirsku handverki
„Þá langar okkur að koma því á
framfæri að við köllum eftir hand-
verki, munstrum eða uppskriftum
sem gætu talist borgfirskar. Víða er
hægt að finna handverk sem teng-
ist héraði svo sem Svínavatnshyrna
og fleira, en okkur vantar að vita
um eitthvað sem tengist héraðinu
okkar, sögu eða menningu héraðs-
ins og við gætum mögulega haf-
ið framleiðslu á,“ segir guðrún að
endingu.
mm/ Ljósm. frg
Ljómalind með lengri opnun og ýmsar nýjungar
Garn.
Ljómalind er til húsa í norður enda „Bananans“ við Brúartorg 4.
Handverk og gjafavara í miklu úrvali.
Matur úr héraði. Samsett mynd. Afurðir frá Erpsstöðum er hægt að
kaupa í Ljómalind.
Vigdís Guðrún Sigvaldadóttir við afgreiðslu.
Lopapeysur í hundraðatali.