Skessuhorn - 14.07.2021, Page 16
MiðViKudAgur 14. júLÍ 202116
Það var hrein unun að fylgjast
með dömunum, Önnu Þórhildi
frá Brekku, Ástu Marý frá Skipa-
nesi, Kristínu Birnu frá Ásbjarn-
arstöðum, Steinunni frá Hjarðar-
holti og Þorgerði frá Sámsstöð-
um leika og syngja í reykholts-
kirkju 4. júlí síðastliðinn. Á dag-
skránni voru píanóverk, einsöng-
ur, tvísöngur. Það er ekki miklu
að kvíða fyrir tónlistarlífið hér um
slóðir. Listamenn á hljóðfæri sem
og innra hljóðfæri fæðast og eru
okkur hinum sem viljum njóta til
skemmtunar.
Síðast þegar undirritaður naut
stundar með dætrum Borgarfjarð-
ar sagðist hann hlakka til næstu
tónleika. Það gekk svo sannarlega
eftir. Nú höfðu þær dömur tekið
skrefið, þroskast og numið. Þær
sprungu út, áttu hvert lagið og
sönginn sem þeir áheyrendur er
lögðu leið sína í reykholtskirkju
fögnuðu af hjartans list. Hvílíkt og
annað eins. Nú eru liðin nokkur ár
og stúlkurnar hafa öðlast reynslu
við að koma fram, túlka og gefa.
um leið ber að þakka skólunum
fyrir að hafa gefið þeim ungmenn-
um sem þess óska möguleika. Það
er nefnilega svo að til þess að efni
fái að njóta sín þarf tækifæri, tæki-
færi til menntunar. Þess vegna er
svo mikilvægt að samstarf þeirra
sem um fræðslumál halda sé gott
og umfram allt sveigjanlegt.
Takk fyrir skemmtunina frá-
bæru stúlkur.
Flemming Jessen
Á jörvagleði dalamanna, sem
haldin var í apríl síðastliðnum, var
dalamaður ársins 2021 kynntur.
Fjöldi dalamanna hlaut tilnefning-
ar en langflestar þeirra fékk Bragi
Þór gíslason og var hann útnefnd-
ur dalamaður ársins 2021. rök-
in fyrir valinu voru meðal annars
að Bragi Þór er sagður vera bjart-
sýnn, duglegur, hugmyndaríkur og
góð fyrirmynd fyrir unga fólkið auk
þess sem hann er sagður leggja sig
fram við að þjónusta fólk með gleði
og létta lund. Þá hefði Bragi keypt
sér hús og byggt upp fyrirtæki og
að aðdáunarvert væri hversu góður
Bragi Þór er í því að finna lausn-
ir til að láta fyrirtækið sitt ganga
þó lítið hafi verið um ferðamenn
og treysta hefði þurft á viðskipti
heimamanna.
Blaðamaður Skessuhorns heim-
sótti Braga Þór á veitingastaðinn
Veiðistaðinn í Búðardal sem hann
rekur ásamt ísbúð í sama húsnæði.
Það tók reyndar svolítinn tíma að
ná honum í spjall því að það er
mikið að gera og hann annað hvort
í vinnunni eða á þeytingi til reykja-
víkur að sækja vörur. Þá spilar einn-
ig inn í að erfiðlega hefur gengið að
fá og halda starfsfólki í Búðardal
vegna húsnæðisskortsins sem ríkir
þar. Bragi skefur ekkert af hlutun-
um þegar hann ræðir um ástandið
í Búðardal og segist hafa mikinn
áhuga á því að gera hlut Búðar-
dals sem mestan og stærstan. Hann
er ekki sáttur við hvernig sveitar-
stjórn hefur haldið á málum þegar
kemur að skipulagi og framkvæmd-
um. Bragi bendir á að öll áhersla
hafi verið á að byggja húsnæði fyrir
fjölskyldufólk. Í bænum hafa verið
byggð parhús en Bragi vill sjá fjöl-
býlishús með fjölbreyttari íbúða-
stærðum. „Hér er eingöngu byggt
húsnæði fyrir fjölskyldufólk en fjöl-
skyldufólk vill ekki flytja hingað því
hér er hvorki íþróttahús né sund-
laug,“ bendir Bragi á.
Búinn að vera
tryllingur í sumar
Bragi segir að þegar hann tók við
rekstrinum 30. apríl 2020 hafi
ástandið ekki verið gott enda Co-
vid-19 í algleymingi. „Það var
svo vitlaust að gera síðasta sumar
og búið að vera tryllingur núna í
sumar,“ segir Bragi, en hann missti
tvo starfsmenn í vikunni sem leið
vegna þess að þeir fengu einfald-
lega ekki neitt húsnæði. „Það er
eiginlega útilokað fyrir einstak-
linga að flytja hingað.“ Bragi held-
ur áfram: „Það er ekki eftirsóknar-
vert fyrir fólk með börn að flytja
hingað ef það eina sem það getur
gert er að hanga í tölvunni.“
Vegna þess hve erfiðlega Braga
gengur að fá starfsfólk þarf hann
nú að loka staðnum tvo daga í viku.
Hann segir að það sé einfaldlega
ekki hægt að leggja meira á starfs-
fólkið því þá brenni það hreinlega
út og að það sé ekki góð staða.
„Fólk þarf náttúrulega að fá sín
frí,“ segir hann. „Ef ég fæ ekki hús-
næði fyrir starfsfólkið mitt fljót-
lega lítur dæmið bara alls ekki vel
út. Ekki ætla ég að fara að útvega
einhverja íbúðargáma fyrir fólkið,
ég býð því ekki upp á það,“ segir
hann. „Það eina sem ég gæti gert
til þess að leysa þetta væri hrein-
lega að kaupa hús undir starfsfólk
en þá væri ég að ýta undir þá þróun
í Búðardal að fleiri og fleiri hús eru
orðin starfsmannabústaðir sem fyr-
irtækin í bænum eiga. Svo er sífellt
algengara að íbúðarhús sem seljast
hér í bænum endi sem sumarhús
fyrir fólk sem býr annars staðar,
til dæmis á höfuðborgarsvæðinu,
fólk sem er kannski nokkrar vikur
á ári hér í bænum. Það fólk borg-
ar lítið til sveitarfélagsins,“ bendir
Bragi á.
Flest fyrirtækin
í vandræðum
Bragi bendir á að í Búðardal eru
mörg fyrirtæki. „Flest þeirra eru í
vandræðum því það vantar húsnæði
og það kemur í veg fyrir alla upp-
byggingu. Þá er ástandið á leigu-
markaði hræðilegt því leiguverð er
allt of hátt miðað við staðsetningu.
Með því að byggja fjölbýlishús í
stað þessara parhúsa má ná niður
leiguverðinu.“ Staðan er hins vegar
snúin fyrir sveitarfélagið. „Sveitar-
félagið hefur ekki efni á að byggja
íþróttahús og sundlaug en vísitölu-
fjölskyldurnar koma ekki hingað
ef þetta er ekki fyrir hendi,“ segir
Bragi.
Braga finnst bænum hafa farið aft-
ur og bendir á fólksfækkun: „Sem
dæmi um hnignunina þá vorum við
rúmlega hundrað börn í grunn-
skólanum þegar ég var þar en nú
eru þau 80, samt er ég bara 25 ára.
Fólk á mínum aldri vill ekki sjá að
vera hérna, hér er ekkert við að vera.
Það eina sem hægt er að gera sér
til dundurs er að fara út í blóma-
beð að reita arfa.“ Bragi segir að í
Búðardal sé nánast ekkert skipu-
lagt íþróttastarf. „Það er sundlaug
að Laugum en þar er mjög skertur
opnunartími,“ segir hann. „Þetta er
bara sorglegt ástand.“ Hann heldur
áfram: „Það sem hefur alltaf geng-
ið fyrir hér í Búðardal eru hestar.
Það var til dæmis ekkert vandamál
að henda upp flottri og stórri reið-
höll. Af hverju kom ekki íþróttahús
á undan henni? Sveitarfélagið lagði
út fyrir reiðhöllinni. Sveitarfélagið
þarf ekki að byggja sjálft heldur að
sjá til þess að verktökum sé kleift að
byggja fjölbreyttari hús með því til
dæmis að úthluta lóðum sem henta
til dæmis leigufélögum,“ segir Bragi
og heldur áfram: „Það þarf að gera
eitthvað til þess að koma uppbygg-
ingu af stað. Það þarf að setja kraft í
að byggja bæinn upp.“
Krakkar í Búðardal
hörkuduglegir
Þrátt fyrir að Bragi sé ósáttur við
ýmislegt í stjórnun sveitarfélagsins
er hann samt brattur og segist langa
til að gera svo margt. Hann hafi stóra
drauma en þeir sé alveg raunsæ-
ir. Hann tekur þó fram að hann
geti ekki framkvæmt neitt af þess-
um draumum ef hann þarf að fara
að kaupa húsnæði fyrir starfsfólkið.
„Það þarf að laga gólfið hér á staðn-
um, hér var fiskvinnsla og því vatns-
halli á gólfinu. Þetta þarf að laga
auk þess sem ég ætla að setja hita í
gólfið,“ segir Bragi. Ég vil setja upp
hjólastólaaðgengi svo fatlaðir kom-
ist inn á staðinn og á salerni.“ Hann
heldur áfram: „Ég vil byggja við fyrir
aftan húsið en það er háð samþykkt
yfirvalda. Þar vil ég setja ný salerni
og stækka eldhúsið auk þess sem
okkur vantar tilfinnanlega geymslu-
aðstöðu og starfsmannaaðstöðu. Mig
langar að setja upp poolborð og skjá
til að geta sýnt boltann svo og pílu-
spjald svo eitthvað sé nefnt.“
Starfsmenn Braga eru flestir tékk-
neskir auk þess sem hann er með
nokkra fimmtán ára krakka í vinnu.
Hann segir Tékkana yndislegt fólk
og gríðarlega duglegt. um krakk-
ana segir Bragi: „Það er oft sagt um
krakka í dag að þeir nenni engu og
hangi bara í tölvunni. Það er ekki
hægt að segja um krakka í Búðardal,
þeir eru alveg frábærir og hörkudug-
legir.“
Bragi segist hvergi annars staðar
vilja vera en í Búðardal en hann seg-
ist vilja gera eitthvað úr bænum. „Ég
skora á sveitarfélagið að gera eitt-
hvað róttækt. Það þarf að reka sveit-
arfélagið eins og fyrirtæki því þessi
bær getur blómstrað ef hlutirnir eru
gerðir rétt,“ segir Bragi að lokum.
frg
Dagsstund með
Borgarfjarðardætrum
Dalamaður ársins vill uppbyggingu í Búðardal
Segir húsnæðisskort hindra uppbyggingu
Bragi Þór með tveimur starfsmönnum Veiðistaðarins, Jana og Marge.
Veiðistaðurinn og Ísbúðin í Búðardal.