Skessuhorn - 14.07.2021, Side 21
MiðViKudAgur 14. júLÍ 2021 21
Akranes – miðvikudagur 14. júlí.
Skagakonur taka á móti Gróttu á
Norðurálsvelli í Lengjudeild kvenna.
Leikurinn hefst kl. 19:15.
Dalabyggð – fimmtudagur 15. júlí
Miðskógur – sögurölt.
Sögurölt um Miðskóg í Miðdölum
og hefst á hlaðinu í Miðskógi kl. 20.
Sögurölt er samstarfsverkefni Sauð-
fjárseturs á Ströndum og Byggða-
safns Dalamanna. Allir eru velkomn-
ir í sögurölt, þó ekki sé nema til að
hitta mann og annan. Röltið er um
einn og hálfur kílómetri, en að hluta
til á fótinn. Sagt verður frá fyrrum
íbúum í Miðskógi, skoðaður stekkur,
hugleiðingar um gaddavír, notið út-
sýnis og fleira.
Búðardalur – föstudagur 16. júlí.
Sveinn Guðmundsson í Vínlands-
setrinu
Sveinn Guðmundsson leikur rólynd-
is gítarmúsík með sjálfspeglandi
textum í Vínlandssetrinu í Búðardal
kl. 20:30. Hann syngur um tímann
og tedrykkju, húð og hár, sjónvarps-
þáttapersónur, of mikla og of litla
kaffidrykkju en aðallega um sjálfan
sig. Með tvær plötur á bakinu leikur
hann ný og gömul lög í bland.
Akranes - föstudagur 16. júlí.
GÓSS í Bíóhöllinni.
Hljómsveitin GÓSS (Sigurður Guð-
mundsson, Sigríður Thorlacius og
Guðmundur Óskar) fagnar sumrinu
og heldur tónleika. Á tónleikunum
verður boðið upp á létt og skemmti-
legt prógramm þar sem aðalmark-
miðið er að skapa hugljúfa og nota-
lega kvöldstund fyrir tónleikagesti í
einum fremsta tónleikasal landsins.
Akranes – laugardagur 17. júlí.
Skagamenn fá Val í heimsókn á
Norðurálsvöll í Pepsi Max deild karla.
Leikurinn hefst kl. 16:00.
Borgarnes - laugardaginn 17. júlí.
Jón Gnarr og Þeyr 2 flytja Völuspá á
Landnámssetrinu. Jón mun syngja
Völuspá við eigið lag. Með honum
verða Hilmar Örn Hilmarsson,tón-
skáld og Hilmar Örn Agnarsson org-
anisti og leika þeir undir flutninginn
á ýmis hljóðfæri. Jón fetar hér inn á
alveg nýtt svið sem sýnir að honum
er ýmislegt til lista lagt.
Dalabyggð – 17. til 18. júlí.
Fjölskyldudagar á Eiríksstöðum.
Hefur börnin ykkar (og/eða ykkur
í laumi) alltaf dreymt um að fá að
kveikja eld með stáli, baka brauð við
opinn eld, kasta spjóti eða máta vík-
ingahöfuðföt og taka skrýtnar fjöl-
skyldumyndir. Fjölskyldudagarnir
hefjast kl. 10 á laugardeginum og
lýkur kl. 16 á sunnudeginum.
Hvalfjarðarsveit –
sunnudagur 18. júlí.
Tónleikar - Hallgrímskirkja í Saurbæ.
Skuggamyndir frá Býsans leika lög
af prógrammi Skuggamynda und-
anfarin 11 ár og nokkur íslensk þjóð-
lög í austrænum búningi. Hljóm-
sveitina skipa Haukur Gröndal, Ás-
geir Ásgeirsson, Erik Qvick og Þor-
grímur Jónsson. Aðgangseyrir er
2.500 kr.
Búðardalur – sunnudagur 18. júlí.
Sveitalíf 2 í Dalabúð. Þeir eru heims-
frægir á landsbyggðinni og eiga
met í að vera í öðru sæti í öllum
keppnum sem þeir taka þátt í. Sam-
an eru þeir hinsvegar á toppnum og
hafa aldrei verið betri. Vinirnir Frið-
rik Ómar og Jógvan Hansen tilheyra
ýmsum minnihlutahópum en þegar
kemur að því að skemmta fólki þá
kunna þeir sitt fag.
Borgarnes - sunnudagur – 18. júlí.
Sjana syngur strákana okkar í Eng-
lendingavík. Söngkonan Kristjana
Stefáns ásamt gítarleikaranum Óm-
ari Guðjónssyni og kontrabassaleik-
aranum Þorgrími Jónssyni bjóða
upp á fjölbreytta dagskrá þar sem
þau flytja í brakandi ferskum og létt
jözzuðum útsetningum lög frá ma.
Bubba Morthens, Björgvini Halldórs,
KK, Stuðmönnum, Ragga Bjarna,
Þóri Baldurs, Páli Óskari og Gunnari
Þórðar.
Grundarfjörður – 19. til 24. júlí.
Listfellsnes - Dans- og leiklistarnám-
skeið á Snæfellsnesi.
Sumarið 2021 stendur LISTFELLS-
NES fyrir skemmtilegum dans- og
leiklistarnámskeiðum á Snæfells-
nesi. Námskeiðin eru ÓKEYPIS og
opin börnum og ungmennum á
öllum aldri. Nánari upplýsingar og
skráning á vefsíðu Listfellsnes; list-
fellsnes.com.
Íbúð/hús óskast í sveit.
Fertugur karlmaður óskar eftir hús-
næði í dreifbýlinu. Er reyklaus og
reglusamur. Er öryrki með fastar
tekjur. Get skilað léttu vinnuframlagi
uppí leigu. Greiðslugeta allt að 140
þús. Upplýsingar í mikkise1980@
gmail.com
LEIGUMARKAÐUR
Á döfinni
Smáauglýsingar
AUGLÝSING UM SKIPULAG -
BORGARBYGGÐ
Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér
með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Deiliskipulag Bjarnastaðir
Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti þann 8. júlí 2021, skv.
4. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa að nýju
deiliskipulagstillögu fyrir Bjarnastaði L134637.
Tillagan var auglýst 19. maí til og með 2. júlí 2021 og send
lögbundnum umsagnaraðilum. Gerð var breyting vegna
umsagnar Minjastofnunar Íslands.
Deiliskipulagið tekur til bæjarstæðis jarðarinnar Bjarnastaða.
Svæðið er um 14,5 ha að stærð og innan þess eru skilgreindar 3
íbúðarhúsalóðir ásamt landbúnaðarbyggingum og aðkomu.
Ofangreind deiliskipulagstillaga er aðgengileg á heimasíðu
Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is og í þjónustuveri
Borgarbyggðar, Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi frá 16. júlí til
og með 29. ágúst 2021. Ef óskað er eftir nánari kynningu á
ofangreindri tillögu þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að
gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við auglýsta
skipulagstillögu og er frestur til að skila inn athugsemdum til
og með 29. ágúst 2021.
Athugasemdum skal skila skriflega í Þjónustuver
Borgarbyggðar, Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi, b.t.
skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulagsfulltrui@
borgarbyggd.is
Borgarbyggð, 12. júlí 2021
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
Nýfæddir Vestlendingar
2. júlí. Drengur. Þyngd: 4.040 gr.
Lengd: 54 cm. Foreldrar: Sigrún
Ósk Kristjánsdóttir og Jón Þór
Hauksson, Akranesi. Ljósmóðir:
Hafdís Rúnarsdóttir.
3. júlí. Stúlka. Þyngd: 3.950 gr.
Lengd: 54 cm. Foreldrar: Margrét
Tanja Ragnarsdóttir og Hrannar
Hólm Sigrúnarson, Kópavogi. Ljós-
móðir: Hafdís Rúnarsdóttir.
8. júlí. Drengur. Þyngd: 4.080 gr.
Lengd: 52 cm. Foreldrar: Sigríður
Th Sigbjörnsdóttir og Árni Ólafs-
son, Borgarnesi. Ljósmóðir: Guð-
rún Fema Ágústsdóttir.
11. júlí. Drengur. Þyngd: 3.090 gr.
Lengd: 51 cm. Foreldrar: Áslaug
María Agnarsdóttir og Júlían Bent
Austar Egilsson, Reykjavík. Ljós-
móðir: Elín Sigurbjörnsdóttir.
5. júlí. Drengur. Þyngd: 4.170 gr.
Lengd: 52 cm. Foreldrar: Sigríð-
ur Birna Róbertsdóttir og Atli Már
Bjarnason, Reykjavík. Ljósmóðir: G.
Erna Valentínusdóttir.