Skessuhorn - 14.07.2021, Síða 23
MiðViKudAgur 14. júLÍ 2021 23
ÍA tók á móti Haukum í Lengju-
deild kvenna í knattspyrnu á Akra-
nesvelli síðastliðinn fimmtudag.
Fyrir leikinn var búist við jöfn-
um og spennandi leik og það varð
raunin en liðin eru á svipuðum stað
í töflunni eða um miðja deild. Leik-
urinn var baráttuleikur frá fyrstu
mínútu og þrátt fyrir blautt gras
og smá golu náðu leikmenn upp
góðum samleik og mörg hættuleg
tækifæri fóru forgörðum í leikn-
um. Haukar misnotuðu vítaspyrnu
snemma í síðari hálfleik og undir
lok leiksins skutu þær í þverslána
og niður og skömmu síðar fengu
Skagastúlkur gott færi en þrumu-
skot þeirra fór rétt fram hjá. Loka-
staðan því markalaust jafntefli og
líklega sanngjörn niðurstaða.
Næsti leikur ÍA er gegn liði
gróttu í dag, miðvikudag, á Akra-
nesvelli og hefst klukkan 19.15.
vaks
Knattspyrnufélagið Kári, sem á í
harðri fallbaráttu í 2. deild karla
í knattspyrnu, lék á laugardaginn
gegn liði Magna frá grenivík sem
var með fjórum stigum meira en
Kári fyrir leikinn og því um svokall-
aðan sex stiga leik að ræða. Magna-
menn komust yfir á 18. mínútu
leiksins með marki guðna Sigþórs-
sonar en aðeins tveimur mínútum
síðar jafnaði Andri júlíusson fyrir
Kára og staðan í hálfleik 1-1.
Eftir um fimmtán mínútna leik í
þeim seinni komst Magni aftur yfir
með marki Alejandro Vaballe en
misstu síðan rúmlega tíu mínútum
seinna Alexander Ívan Bjarnason af
velli eftir að hann hafði fengið beint
rautt spjald. Einum fleiri tókst þó
Kára ekki að nýta sér liðsmuninn
og sjöunda tap liðsins í sumar stað-
reynd.
Kári er nú í næst neðsta sæti deild-
arinnar með sex stig þegar mótið er
hálfnað. Næsti leikur liðsins er gegn
liði KV á fimmtudag á Kr-velli og
hefst klukkan 19.15. vaks
reynismenn léku tvo leiki í lið-
inni viku en sá fyrri var gegn liði
Mídasar í C-riðli 4. deildar karla í
knattspyrnu á Víkingsvelli á þriðju-
daginn í síðustu viku. Mídas komst
fljótlega yfir í leiknum með skalla-
marki guðmundar jóhanns Arn-
grímssonar eftir hornspyrnu en
Kristinn Magnús Pétursson jafnaði
fyrir reyni á 39. mínútu með marki
úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði
verið á Atla Má gunnarssyni inn-
an vítateigs og staðan jöfn í hálfleik
1-1. Í seinni hálfleik reyndu bæði
lið að sækja til sigurs og það tókst
hjá reyni undir lok leiksins þegar
Benedikt Björn ríkharðsson skor-
aði mark í uppbótatíma eftir stungu-
sendingu frá Þráni Sigtryggssyni en
þeir höfðu báðir komið inn á sem
varamenn í leiknum.
reynir Hellissandi lék síðan
gegn toppliði KÁ á Ólafsvíkurvelli
á sunnudag. Lítið markvert gerð-
ist í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik
opnuðust allar flóðgáttir. Hafnar-
fjarðarpiltar skoruðu þá alls fimm
mörk á 45 mínútum, Aron Hólm
júlíusson skoraði tvö mörk og þeir
daði Snær ingason, Egill Örn Atl-
ason og Ólafur Sveinmar guð-
mundsson skoruðu eitt mark hver
og lokatölur 0-5 fyrir gestina.
reynismenn eru nú í sjötta sæti í
C-riðli með átta stig eftir tíu leiki og
sigla lygnan sjó en hörku barátta er
um sætin tvö sem gefa sæti í úrslita-
keppninni. Fjögur lið berjast þar
en það eru auk KÁ lið Harðar frá
Ísafirði, Álftaness og Ýmis. Næsti
leikur reynis er einmitt gegn liði
Ýmis næsta sunnudag á Versalavelli
í Kópavogi og hefst klukkan 20.
vaks
Skagamenn gerðu ekki góða ferð
í Breiðholtið á mánudaginn þeg-
ar þeir mættu reykjavíkur Leikni
í Pepsi Max deild karla í knatt-
spyrnu. Sævar Atli Magnússon kom
heimamönnum yfir á 19. mínútu og
þeir hefðu í raun geta skorað nokk-
ur mörk til viðbótar í fyrri hálfleik
en staðan 1-0 í hálfleik.
Sindri Snær Magnússon, leik-
maður ÍA, var ljónheppinn að fá
ekki beint rautt spjald eftir 20 mín-
útna leik í þeim seinni en slapp
með það gula eftir hörku tæklingu.
Tveimur mínútum síðar skoraði
Manga Escobar eftir einstaklings-
framtak með góðu skoti í fjærhorn-
ið og gulltryggði Leiknismönnum
sigurinn. Skagamenn reyndu eins
og þeir gátu að minnka muninn og
fengu tvö fín færi undir lokin en
inn vildi boltinn ekki og lokastaðan
2-0 fyrir Leikni.
jóhannes Karl, þjálfari Skaga-
manna, var svekktur í viðtali eft-
ir leik og sagði að það hefði verið
kjaftshögg að fá á sig mark snemma
í leiknum og að það hefði vant-
að mikið upp á, þeir hefðu verið
hræddir: „Það er hræðsla í mínu
liði, það vantar grimmd og við
erum allt of varkárir í ákveðnum
hlutum sem er hættulegt. Okkur
finnst þetta hafa verið stöngin út
tímabil en við ætlum ekki að væla
og láta vorkenna okkur.“
Skagamenn sitja sem fastast á
botninum í Pepsi Max deildinni
með sex stig eftir tólf leiki og eru
nú fimm stigum frá öruggu sæti og
virkilega í vondum málum. Næsti
leikur Skagamanna er gegn toppliði
Vals næsta laugardag á Akranesvelli
og hefst klukkan 16. vaks
Skallagrímur lék gegn Skautafélagi
reykjavíkur í B-riðli 4. deildar karla
í knattspyrnu á Skallagrímsvelli
síðastliðinn miðvikudag. Hrólfur
Sveinsson kom Skautafélaginu yfir
á 36. mínútu þegar hann skaut að
marki og boltinn skrúfaðist í mark-
ið. Hrafn ingi jóhannsson bætti við
öðru marki rétt fyrir leikhlé þegar
hann skautaði framhjá varnarmanni
Skallagríms og staðan 2-0 í hálfleik
fyrir Skautafélagið.
Lítið markvert gerðist í seinni
hálfleik en það var Hjörtur Hjartar-
son sem gerði út um leikinn þrem-
ur mínútum fyrir leikslok þegar
hann mætti svellkaldur á vítapunkt-
inn. Alexander jón Finnsson skor-
aði sárabótamark fyrir Skallagrím
í uppbótartíma en lokastaðan 3-1
fyrir gestina.
Skallagrímur situr nú í fimmta
sæti riðilsins með átta stig eftir átta
leiki og ljóst eftir leik kvöldsins að
lítil eða nánast engin von er um
að liðið komist í úrslitakeppnina.
Næsti leikur Skallagríms er gegn
KFB sem situr nú á botni riðilsins
eftir að lið gullfálkans dró sig úr
keppni nýlega. gullfálkinn hafði
tapað öllum sjö leikjum sínum í
deildinni og var með markatöl-
una 2-52. Leikur KFB og Skalla-
gríms fer fram á OnePlus vellinum
á Álftanesi í dag, miðvikudag, og
hefst klukkan 20. vaks
Víkingur lék gegn grindavík í
Lengjudeild karla í knattspyrnu á
Ólafsvíkurvelli á föstudagskvöldið.
grindavík tók forystuna eftir um
hálftíma leik þegar Sigurður Bjart-
ur Hallsson skoraði úr vítaspyrnu
og staðan 0-1 í hálfleik.
Harley Willard fékk svo gull-
ið tækifæri til að jafna leikinn fyr-
ir Víking eftir tíu mínútna leik í
seinni hálfleik af vítapunktinum en
Aron dagur Birnuson, markvörð-
ur grindavíkur, varði spyrnuna.
Ólsarar gáfust hins vegar ekki upp
við þetta og náðu að snúa leiknum
sér í hag. Miðvörðurinn Emmanu-
el Eli Keke kom heimamönnum
yfir á 80. mínútu með góðu skalla-
marki og Kareem isiaka kom þeim
yfir tveimur mínútum fyrir leikslok
og allt útlit fyrir fyrsta sigur þeirra
í sumar. En á lokamínútu leiksins
jöfnuðu grindvíkingar eftir horn-
spyrnu og lokastaðan 2-2.
Víkingur situr því enn í neðsta
sæti Lengjudeildarinnar með tvö
stig eftir ellefu leiki og eru eins og
staðan er nú í baráttu við Þrótt r.
og Selfoss um að halda sæti sínu
í deildinni. Næsti leikur Víkings
er gegn Aftureldingu á morgun,
fimmtudag, í Mosfellsbæ og hefst
klukkan 19.15.
vaks
Víkingur Ó ansi nálægt sínum fyrsta sigri
Emmanuel Eli Keki að
skora mark Víkings í
leiknum gegn Grindavík.
Ljósm. af.
Reynir H. steinlá fyrir KÁ
en vann Mídas
Svipmynd úr leik Reynis og KÁ. Ljósm. þa.
Kári tapaði gegn Magna
Skallagrími varð hált á svellinu
gegn Skautafélaginu
Skagastúlkur að koma sér í gírinn fyrir leik á móti Haukum. Ljósm. sas.
Jafntefli hjá ÍA
gegn Haukum
Skagamenn í
vondum málum