Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2021, Page 10

Skessuhorn - 25.08.2021, Page 10
MiðviKUdagUr 25. ÁgúST 202110 Nýverið skilaði Þórólfur guðnason sóttvarnalæknir minnisblaði til heil- brigðisráðherra um framtíðarsýn hans í sóttvarnamálum með tilliti til kórónuveirunnar. Þar leggur hann meðal annars til að næstu mánuði verði allir millilandafarþegar krafð- ir um neikvætt covid-próf, fyrir utan börn sem fædd eru eftir 2016. Einni leggur hann til að allir, þar með tal- in börn, verði skimaðir við komuna til landsins. Ef ekki verði hægt að anna þessum skimunum vegna fjölda ferðamanna þá leggur Þórólfur til að leitað verði leiða til að takmarka fjölda ferðamanna við þann fjölda sem sóttvarnaráðstafanir ráða við. „Á meðan þessi faraldur er að geisa er- lendis og við erum ekki komin með vörn, fullkomna vörn gegn þessu, þá getum við alltaf fengið veiruna inn, og þá þurfum við að hafa einhvers konar sóttvarnaráðstafanir í gangi á landamærunum,“ sagði Þórólfur. Hann býst við því að þetta ástand gæti varað næstu mánuði eða ár. „við þurfum einnig að vera við því búin að upp komi ný veiruafbrigði sem valdi skæðari sjúkdómi en áður hefur þekkst. veiran smitist auðveld- ar milli manna og sleppi jafnvel und- an vernd bóluefna,“ sagði í minnis- blaðinu. Óljóst sé hversu lengi þetta ástand muni vara en hann segir ekki óvarlegt að áætla að það taki marga mánuði eða jafnvel ár að kveða far- aldurinn niður í heiminum. Hann segir jafnframt ólíklegt að hægt verði að búa við takmarkalaust samfélag innanlands. Það hafi sýnt sig þeg- ar allar takmarkanir voru afnumdar fyrr í sumar. Meðal þess sem Þórólfur leggur til: Áfram verði beitt smitrakningu, • einangrun á smitaða og sóttkví hjá útsettum. almenn fjöldatakmörk ættu að • vera til staðar og gætu miðast við 200 manns. Eins metra nándarregla ætti al-• mennt að gilda nema hugsan- lega á viðburðum þar sem gest- ir verða sitjandi og nota grímu. grímuskylda verði við ákveðn-• ar aðstæður þar sem ekki verð- ur hægt að tryggja nándarmörk, sérstaklega innanhúss þar sem margir koma saman. veitingastaðir, skemmtistaðir • og barir opnir til kl. 23:00. reglulega þurfi að skoða hvort • gefa þurfi örvunarskammt af bóluefni gegn Covid-19 eða bólusetja með nýjum bóluefn- um. gera þurfi leiðbeiningar um • reglubundnar skimanir með PCr eða antigen hraðgrein- ingarprófum í fyrirtækjum og á vinnustöðvum. Þá leggur Þórhallur áherslu á að styrkja og efla þurfi heilbrigðiskerf- ið, sýkla- og veirufræðideild og al- mannavarnir til lengri tíma, svo kerf- ið ráði við álagið sem fylgir faraldr- inum. Hann segir ljóst að lífið verði ekki aftur eins og það var fyrir covid. „Nei, ég held að það hljóti nú allir að sjá það að lífið verður einhvern veg- inn öðruvísi,“ segir hann. mm Samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytið gaf 18. ágúst síðastliðinn út leiðbeiningar og álit vegna nokk- urra mála sem snerta stjórnsýslu í skipulags- og mannvirkjamálum í Borgarbyggð. Málið má rekja til þess að ráðuneytinu bárust kvart- anir og ábendingar um; „meinta ólögmæta stjórnsýslu sveitarfélags- ins Borgarbyggðar á sviði skipu- lags- og mannvirkjamála,“ eins og segir í álitsgerð ráðuneytisins, sem Skessuhorn hefur undir höndum. „Snúa kvartanirnar m.a. að því að sveitarfélagið hafi ekki gætt að al- mennum reglum stjórnsýsluréttar við afgreiðslu mála á þessa tiltekna sviði og að meðferð mála hafi ekki verið í samræmi við önnur lög.“ ráðuneytið reifar í áliti sínu mála- vexti í þremur málum og bæta því fjórða við þar sem Héraðsdómur vesturlands kvað upp dóm síðasta sumar í svokölluðu Húsafellsmáli sem tengdist sömuleiðis skipulags- og mannvirkjamálum í sveitarfé- laginu. Meðal þeirra sem lögðu inn kvört- un til ráðuneytisins, vegna ann- marka sveitarfélagsins, voru Fossa- tún ehf., Þorsteinn Máni Árnason í Borgarnesi og Hótel Borgarnes ehf. Sömuleiðis barst ráðuneytinu ábending um dóm sem féll í Hér- aðsdómi vesturlands. „Þessi mál gáfu ráðuneytinu sterka vísbend- ingu um kerfisbundnar brotalam- ir,“ segir í áliti ráðuneytisins. Fjögur ólík mál Steinar Berg Ísleifsson í Fossatúni kvartaði undan framgöngu sveitar- félagsins í málum er varða breyt- ingu á deiliskipulagi og rekstrar- leyfi fyrir gististað og veitingastað sem hann rekur. Eftir misvísandi upplýsingar og eftir að hafa reynt ítrekað að ná í fulltrúa sveitar- félagsins án árangurs varð mælirinn fullur þegar hann fékk tilkynningu frá lögreglunni sem hygðist loka staðnum hans þar sem hann hafði ekki viðeigandi leyfi. ráðuneytið skoðaði mál Steinars og komst að þeirri niðurstöðu að sveitarfélagið hefði mátt gæta að leiðbeiningar- skyldu sinni og reglu um forsvar- anlegan málshraða við afgreiðslu mála. Kvörtun Þorsteins Mána Árna- sonar varðar gistiheimili sem rekið er í húsi við hliðina á húsi hans við Egilsgötu í Borgarnesi. rekstrarað- ilar höfðu fengið byggingarleyfi frá sveitarfélaginu til að breyta húsinu í þrjár stúdíóíbúðir en útgáfa leyfis- ins var kærð og leyfið fellt úr gildi þar sem grenndarkynning hafði ekki farið fram. Sveitarfélagið gaf þá út annað leyfi sem var svo aft- ur fellt úr gildi þar sem of lang- ur tími hafði liðið milli útgáfu og grenndarkynningar. Niðurstaðan ráðuneytisins var sú að byggingar- fulltrúi Borgarbyggðar hafði ekki uppfyllt skyldu sína nægilega. Hótel Borgarnes sakaði sveitar- félagið um ólögmæta stjórnsýslu en sveitarfélagið svaraði ekki kvörtun vegna misræmis í lóðarleigusamn- ingi sem snertir gamla kaupfélags- húsið við Egilsgötu 11 sem Hótel Borgarnes á í dag. Loks fór ráðuneytið einnig yfir dóm Héraðsdóms vesturlands frá síðasta sumri sem felldur var í deil- unni um legsteinahús í Húsafelli og snertir sama svið sveitarfélagsins og aðrar kvartanir snúast um í áliti ráðuneytisins. Brugðist við ráðuneytið móttók 25. nóvem- ber síðastliðinn bréf frá Borgar- byggð þar sem sveitarfélagið lýsti viðbrögðum sínum í málinu. Þar var ráðuneytið upplýst um marg- þættar aðgerðir sem sveitarfé- lagið hafði þá þegar samþykkt að grípa til vegna þeirra brotalama í stjórnsýslu sveitarfélagsins sem var til umfjöllunar ráðuneytisins. Í bréfinu kom fram að sveitarfé- lagið hafði þá fengið sérfræðinga til að að rýna í stjórnsýslu sveitar- félagsins og skipurit þess og hafði gert ráðstafanir til að fylgja eft- ir tillögum að úrbótum og grein- ingu úttekta. Þær breytingar sem voru gerðar á skipuritinu voru ætl- aðar til að efla starfsemi ráðhúss- ins, fjölga starfsfólki, auka ábyrgð starfsfólks og bæta gæði stjórn- sýslunnar. Nýtt svið; stjórnsýslu- og þjónustusvið, var stofnað og lögfræðingur með mikla þekk- ingu í stjórnsýslurétti ráðinn til að stýra því. Einnig var upplýst að auglýst yrði starf gæða- og mann- auðsstjóra til að vinna á skrifstofu sveitarstjóra. Málið tekið upp að nýju eftir áramót Í áliti ráðuneytisins í síðustu viku eru veittar leiðbeiningar um hvað felst í eftirlitshlutverki sveitar- stjórnar með stjórnsýslu þess og til hvaða sjónarmiða skuli líta þeg- ar lagt er mat á hvort og hvenær skylda myndast hjá sveitarstjórn að grípa til aðgerða vegna ólögmætrar stjórnsýslu. „Í álitinu kemur fram að það sé mat ráðuneytisins að al- varlegir og kerfisbundnir annmark- ar hafi verið í stjórnsýslu sveitar- félagsins hvað varðar mannvirkja- og skipulagssvið þess og að sveitar- stjórn beri skylda til að kynna sér þau mál sem rakin eru í álitinu og grípa til viðeigandi aðgerða, sbr. 2. mgr. 8. gr. sveitarstjórnarlaga. Í ljósi þess að sveitarfélagið hefur upplýst ráðuneytið um margvísleg- ar úrbætur sem eiga að koma í veg fyrir að slíkir annmarkar endurtaki sig, telur ráðuneytið að ekki sé til- efni til að gefa sveitarfélaginu fyrir- mæli um að koma stjórnsýslu sinni í lögmætt horf, sbr. 3. tl. 2. mgr 112 gr. sveitarstjórnarlaga.“ Loks seg- ir í áliti ráðuneytisins; „ráðuneyt- ið mun fylgja eftir áliti þessu og kalla eftir upplýsingum frá sveit- arfélaginu í byrjun árs 2022 um stöðu þeirra úrbóta sem sveitarfé- lagið hefur gripið til og mati sveit- arstjórnar á því hvort að til hafi tek- ist að koma í veg fyrir þá kerfis- bundnu annmarka á skipulags- og mannvirkjasviði sveitarfélagsins sem lýst hefur verið í áliti þessu.“ Fyrir hönd ráðherra sveitarstjórn- armála skrifa undir álitið ragnhild- ur Hjaltadóttir og Hermann Sæ- mundsson. mm Háskólinn á Hólum sinnir ein- stökum námsþáttum í háskólastarfi á Íslandi, þ.e. ferðamálafræði, fisk- eldis- og fiskalíffræði og hestafræði og hefur skapað sér mikilvægan sess í íslensku háskólaumhverfi. Skólinn hefur eflst og dafnað á undanförn- um árum. Nú í haust mun skólinn bjóða í fyrsta sinn upp á meistara- nám í hestafræðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum. Þar segir jafnframt: „Framtíðarsýn Háskólans á Hól- um er að efla enn frekar tengsl sín við atvinnulífið, skapa sér stærri sess í alþjóðlegu háskólaumhverfi og efla þátttöku í nýsköpun, ásamt því að efla gæða- og þróunarstarf og stuðning við mannauðsmál. Til að framfylgja þessari framtíðar- sýn tekur gildi nýtt skipurit skól- ans þann 1. september næstkom- andi, þar sem bæði eru komin ný leiðtogastörf og skerping á störfum stjórnenda og í stoðþjónustu,“ seg- ir í tilkynningunni. „Endurskoðun skipurits háskólans samhliða innri og ytri rýni á þróun skólastarfsins er mikilvægt skref til þess að fylgja eftir metnaðarfullri stefnu háskól- ans til næstu ára,“ segir Erla Björk Örnólfsdóttir, rektor. „Háskólinn á Hólum er sérhæfður öflugur há- skóli sem ætlar sér enn ríkara hlut- verk á fræðasviðum sínum á næstu misserum.“ mm Háskólinn á Hólum boðar stórsókn Framtíðarsýn Þórólfs sóttvarnalæknis næstu misserin Grímuskylda verður áfram þar sem ekki er hægt að tryggja nándarmörk. Fylgdu ekki almennum reglum stjórnsýsluréttar

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.